Dagblaðið - 12.04.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
—————V
Waldheim ekki
öfundsverður
— Shevchenko vill halda stöðu sinni hjá S.Þ.
— Sovétríkin krefjast þess að fá nýjan mann
Hætta er á því að Sameinuðu þjóð-
irnar dragist inn í deilur austurs og
vesturs vegna kröfu Arkadys Shev-
chenkos, aðstoðarframkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, um að gegna
stöðu sinni áfram, enda þótt hann hafi
tilkynnt að hann ætli ekki að snúa
aftur til Sovétrikjanna vegna ágrein-
ings við sovézk stjórnvöld.
Schevchenko hefur tjáð lögfræðingi
sinum að hann óski eftir að halda stöð-
unni og ræði málið síðan betur við
Kurt Waldheim'þegar hann snýr aftur
úr för sinni til Evrópu. Staða aðstoðar-
framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóð-
anna er vel launuð, árslaun 76 þúsund
dollarar eða yfir 19 milljónir íslenzkra
króna. Samkvæmt hefð hefur staða
þessi tilheyrt sovézkum borgara, sem
Sovétstjórnin hefur útnefnt.
Shevchenko fékk í gær fyrirmæli
um að snúa aftur til Moskvu, en hann
hafði þau fyrirmæli að engu. Enda
þótt ráðningartimabil hans hafi átt að
renna út 15. apríl nk. var það fram-
lengt í febrúar sl. um tvö ár til
viðbótar.
Sovétstjórnin hefur ásakað Banda-
ríkjastjórn um að standa á bak við
mál Schevchenkos og i gær voru borin
fram formleg mótmæli Sovétstjórnar-
innar til bandaríska utanríkisráðu-
neytisins.
Talið er liklegt að Sovétstjórnin
krefjist þess að fá að útnefna nýjan
mann i stöðu Schevchenkos. Lög-
fræðingur hans vitnaði í 100. grein
sáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar
sem kveðið er á um að fulltrúum
alþjóðastofnana sé óheimilt að taka
við fyrirmælum frá hvaða stjórn sem
er. Ef Waldheim ræki Schevchenko
væri þessi grein brotin, þvi þá færi
hann eftir tilmælum stjórnar Sovét-
rikjanna. Á hinn bóginn er talið mjög
erfitt fyrir Waldheim að standa gegn
óskum stórveldisins, ef ákveðnar
kröfur koma fram um það að skipt sé
um mann í þessari stöðu.
Bandaríkjastjórn hefur sýnt varúð i
þessu máli, til þess að reyna að koma í
veg fyrir að tengsl Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna skaðist vegna þessa
máls. Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandarikjanna fer innan tiðar til
Moskvu, þar sem rædd verða mörg
mikilvæg mál, m.a. afvopnunarmál.
Gross lögfræðingur Schevchenkos
sagði í gær að fullyrðing Sovét-
stjórnarinnar um að Schevchenko
væri fórnarlamb CIA væri hlægileg.
Talið er að Schevchenko dvelji i
Bandaríkjunum á meðan hann heldur
stöðu sinni hjá Sameinuðu þjóðunum,
en missi hann hana yrði hann að biðja
um leyfi til þess að fá að dvelja áfram.
Shevchenko átti fund með sovézkum
embættismönnum á sunnudaginn, að
kröfu þeirra.
Erlendar
fréttir
ÁTÖK í BEIRÚT
Vopnahlé vinstri og hægri manna I
Beirút, höfuðborg Libanons, hefur verið
gagnslítið undanfarna daga, en um það
G
REUTER
8
var.samið' eftir blóðuga borgarastyrjöld
á árunum 1975-76. Byssurnar þögnuðu í
nótt eftir stöðuga bardaga í þrjá daga.
A.m.k. tólf manns hafa fallið og fjörutíu
særzt. Barizt hefur verið i sömu borgar-
hverfum og þegar átökin voru sem
hörðust.
Ludmila Agapova:
„HELD ÁFRAM ÞÓn ÞAÐ
KOSTI MIG LÍFIД
— Nyström látinn laus
Valentin Agapov, landflótta Sovétmaður I Sviþjóð, horfir á mynd af konu sinni, Ludmilu Agapova, i sæi.ska sjónvarpinu.
Móðir Valentins, Antonina, reyndi sjálfsmorð eftir að tilraun til þess að ná þeim frá Sovétrikjunum mistókst. Sænsk yfir-
völd hafa nú skorað á ráðamenn I Sovétrikjunum að leyfa ættingjum Valentins að koma til Svíþjóðar.
Lögreglan i Finnlandi Iét Gunnar
Nyström lausan i gær, en hann hefur
verið i haldi ásamt með landa sinum,
sænska flugmanninum Karl Göran
Wickenburg, i 10 daga fyrir að reyna
að koma ættingjum landflótta Sovét-
manns, Valentin Agapov, úr landi.
Wickenberg flaug litilli Pipervél yfir
landamæri Finnlands til Sovét-
ríkjanna til þess að reyna að ná i
Ludmilu Agapova, eiginkonu
Valentíns og dóttur þeirra og móður
Valentíns, Antoninu. Tilraunin mis-
tókst og Antonina reyndi í gær að
svipia sig lifi með því að drekka sýru
á veg^bréfaskrifstofu i Moskvu. Hún
liggur nú þungt haldin á sjúkrahúsi.
Ludmila sagðist ekki hafa haft hug-
mynd um fyrirætlanir tengdamóður
sinnar, en lýsti stjórn Sovétrikjanna á-
byrga fyrir gerðum hennar. „Ég^mun
halda áfram baráttu minni þó svo að
það kosti mig lifið," sagði Ludmila,
„og ég óttast ekki fangelsi.”
Nyström var látinn laus vegna
skorts á sönnunargögnum, en
Wickenberg er áfram i haldi og búizt
er við að hann verði ákærður fyrir
brot á lofthelgi.