Dagblaðið - 12.04.1978, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
12
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
13
Liverpool sigraði Borussia i úrslitaleik
Þú getur það , j Þú verður að konta
ekki hér meðokKur.-s-----
Hvarertu
að gera?
Fá ferskt
loft
I Verðirnir tal
fætur Bomma.
Hvað kostarað lifa?
Fjórar fjölskyldur héldu búreikninga fyrir Vikuna
Spinks-Alií
New Orleans
15. september
— þriðji titilleikurinn, sem
háður er þar í borg í þunga vigt í
hnefaleikum
Leon Spinks undirritaði í gær samning um nýjan
leik við Muhammad Ali, sem háður verður á Super-
domeleikvanginum í New Orleans 15. september næst-
komandi. Hinn 15. febrúar sl. kom Spinks mjög á
övart i Las Vegas og vann heimsmeistaratitilinn af Ali.
Siðan það skeði hefur annað heimssambandið, WBC,
svipt Spinks titlinum en hann er enn viðurkenndur
heimsmeistari hins sambandsins WBA.
Superdome-leikvangurinn er stærsti yfirbyggði
leikvangur i heimi. Þar rúmast 85 þúsund áhorfendur
og að sögn Bob Arum, framkvæmdastjöra Spinks, er
reiknað með, að áhorfendur muni greiöa fimm
milljönir dollara fyrir að sjá leik Spinks og Ali þar.
Auk þess er reiknað með sjö milljón dollurum fyrir
sjónvarpsrétt i Bandarikjunum einum.
Þegar samningurinn var undirritaður i gær mætti
Spinks klukkustund of seint á Hilton-hótelið i New
Orleans. Það likaði Ali ekki beint og sagði. „Þegar ég
var meistari lét ég aldrei neinn biða eftir mér”, en loks
þegar Spinks kom skreið Ali undir borð og breiddi
dúk yfir sig. Hrópaði. „Ég er hræddur við hann” — og
Spinks var fljótur til að taka þátt i leiknum.
Eftir að samningurinn hafði verið undirritaður sagði
Ali. „Það mun kosta mig mikla vinnu, en ég get náð
titlinum aftur. Ég verð fyrsti þungavigtarmaðurinn til
að vinna titilinn i þriðja sinn”.
Keppni um heimsmeistaratitilinn hefur tvívegis áður
verið háð i New Orleans. Fyrst þegar Jim Corbett
vann titilinn frá John L. Sullivan 7. september 1892 á
rothöggi í 21. lotu — og 15. janúar 1972, þegar Joe
Frazier stöðvaði Terry Daniels I fjórðu lotu. Iþrótta-
ráð Louisiana-fylkis stendur að samningi Spinks og
Ali og greiðir þrjár milljónir dollara fyrir réttinn til að
halda leikinn — og heldur inngangseyrinum á leik-
vanginum. Öll stærstu sjónvarpsfyrirtækin I USA hafa
sýnt áhuga að fá sjónvarpsréttinn.
CrijuffekkiáHM-
lista Hollands
Johan Crijuff, snjallasti knattspyrnumaður heims,
er ekki á lista hollenzka knattspyrnusambandsins um
HM-leikmenn Hollands i Argentinu, sem birtur var i
gær. Hins vegar cru allir hinir 10 leikmenn Hollands,
sem léku til úrslita við Vestur-Þýzkaland á HM 1974
á listanum. Nöfn 40 leikmanna eru á listanum en þeim
verður fækkað i 22 í næsta mánuði. Eftir þessa birt-
ingu HM-leikmanna Hollands getur Crijuff ekki
keppt i Argentinu, þó svo hann breytti ákvörðun sinni
að keppa ckki á HM.
Nokkur önnur þekkt nöfn vantar á listann eins og
t.d. Rudy Geels, en þar eru menn, sem leika með er-
lendum liðum eins og Wim Suurbier, Schalke, Johnny
Rep, Bastia, Jan Boskamp, Molenbeek, Johan Neesk-
ens, Barcelona, og Anderlecht-lcikmennirnir Arie
Haan, Rob Rcnsenbrink, Johnny Dusbaba og Nice
de Bree. Flestir eru frá AZ '61 Alkmaar eða sex,
Pcter Arntz, Wim van Hanegem, Hugo Hovcnkamp,
Kees Kist, John Mctgod og Jan Petcrs. Fimm frá
PSV m.þ. Kerkhoftviburarnir og 5 frá Ajax. M.þ.
Rudi Krol og Piet Schrijvers — Jan Jongbloed, Pierre
Vermeulen og Dick Nanninga frá Roda og Wim Jans-
scn og Wim Rijsbergen frá Feyenoord.
Erfitt val hjá
RonGreenwood
gegn Brasilíu vegna deildaleikja
Leikmenn frá Liverpool, Nottm. Forest, Aston
Villa, WBA, Ipswich og Derby voru ekki í enska.
landsliöshópnum, scm tilkynntur var I gær, og mun
leika gegn Brasilíu á Wembley 19. april. Ofangreind
félög eiga deildaleiki um það leyti. Að sögn enska út-
varpsins í gær var ekkert óvænt i vali Ron Greenwood,
enska landsliðseinvaldsins, og aðeins tekið fram, að
Tony Currie, Leeds, væri í landsliðshópnum. Ef að lík-
um lætur mynda leikmenn frá Manchester-liðunum
landsliðskjarnann auk manna eins og Trevor Francis,
Birmingham, Trevor Brooking, Wcst Ham, Bob
Latchford, Everton, og Trevor Cherry, Leeds, svo
nokkur nöfn séu nefnd.
Mikil og góð aðsókn hefur verið
að leiðbeinendanámskeiðum, sem
Badmintonsamband tsland hefur
staðið fyrir að undanförnu — og
þar hafa fjórir íslandsmeistarar
verið meðal þátttakenda. Jóhann
Kjartansson, Lovísa Sigurðardótt-
ir, Óskar Guðmundsson og Á^úst
Bjartmarz, sá kunni kappi hér á
árum áður, sem hyggst hefja bad-
minton til vegs og virðingar i
Stykkishólmi á ný.
Danski badmintonmaðurinn Jan
Boye Larsen hefur verið aðalleið-
beinandi á námskeiðunum og auk
þess Garðar Alfonsson og JólHinn-
es Sæmundsson. Fyrri helmingí
námskeiðanna er nú lokið — en
Jan Boye mun dvelja hér á landi
fram til loka maf við kennslu og
leiðbeiningar. Meðal annars hefur
hann farið til Siglufjarðar. Hann
lætur vel af dvöl sinni hér og er
ánægður með þann árangur, sem
íslenzkt badmintonfólk hefur sýnt.
Myndirnar að ofan tók Bjarnleifur
á námskeiðinu á sunnudag. Þátt-
takendur til vinstri — en til hægri
þeir Garðar Alfonsson og Jan
Boye.
Forest nálgast markið
gerði jafntefli við Man. City í Manchesterí gærkvöld og varbetra liðið é vellinum
Nottingham Forest hlaut þýðingar-
mikið stig gegn einum helzta keppinaut
sínum í gærkvöld — Man. City og það
þó leikið væri á Maine Road í Manchest-
er. Forest er nú alveg að ná markinu i 1.
deildinni. Það kemur ekkert í veg fyrir
sigur liðsins úr þessu þó samkvæmt
ströngustu kenningum þurfi liðið enn sex
stig úr þeim sjö leikjum, sem það á eftir
til að vinna örugglega enska meistara-
titilinn f fyrsta sinn. En ef öllum likum er
sleppt er jafnvel sennilegt, að þau 55 stig,
sem liðið hefur hlotið nægi.
Leikurinn á Maine Road var heldur
þungur i gær — en Forest-liðið hafði þó
frumkvæðið lengstum. Peter Withe var
klaufi að tryggja Forest ekki bæði
stigin, þegar hann komst frír í gegn og
átti aðeins eftir Joe Corrigan, markvörð
City. En hann hikaði of lengi og Mike
Doyle tókst að spyrna knettinum frá
honum. Eina tækifæri City fékk Brian
Kidd en spyrnti yfir af stuttu færi.
Queens Park Rangers vann öruggan
sigur á Arsenal og ætti að hafa góða
möguleika á að bjarga sér frá falli. Þeir
Don Shanks og Stan Bowles skoruðu
mörk QPR áður en Liam Brady skoraði
eina mark Arsenal á síðustu mínútu
leiksins úr vítaspyrnu. Mikil læti voru í
lokin og áhorfandi hljóp niður á völlinn
og sló Phil Parkes, markvörð QPR, áður
en lögreglan náði tökum á honum.
Úrslit í gær urðu annars þessi.
Öll efstu liðin i 1. deild á Italíu gerðu
jafntcfii i leikjum sinum um helgina.
Úrslit urðu þessi.
Atlanta-Pescara 2—0
Bologna-Vicenza 3—2
Foggia-Napoli 1—1
Genúa-Róma 1—0
Juventus-Inter 2—2
Lazio-Fiorentina 1—0
Milano-Torino 1—1
Verona-Perugia 0—0
Staða efstu liða.
Juventus 26 13 12 1 39—13 38
Milano 26 II 12 3 35—20 34
Torino 26 12 10 4 32-19 34
Birmingham — Ipswich
Man. City — Nottm. Forest
Middlesbro — Coventry
QPR — Arsenal
2. deild
Hull — Southampton
Eftir þessi úrslit eru litlar líkur á að
Hull haldi sæti sinu í deildinni — en
möguleikar Southampton að komast í I.
deild jukust enn. Liðið er nú í öðru sæti
með 52 stig eftir 38 leiki. Tottenham
vefur 53 stig og sama leikjafjölda en á
oftir að leika í Brighton og Southamp-
ton. Bolton hefur 51 stig eftir 37 leiki og
i eftir léttustu leiki efstu liðanna. Mörk
Southampton í gær skoruðu Ted
MacDougall, Phil Boyer og Alan Ball.
3. deild
Carlisle — Hereford 2-0
Peterbro — Chesterfield 2-0
Plymouth — Rotherham 1-1
Port Vale — Wrexham 1-1
Swindon — Walsall 2-3
Tranmere —Gillingham 1-1
Eftir þessi úrslit er Wrexhamn öruggt
með sæti i 2. deild næsta keppnistímabil.
Peterborough skauzt við sigurinn á
Chesterfield upp í annað sæti i deildinni.
4. deild
Barnsley — Swansea 0-2
Crewe — Southport 2-0
, Doncaster — Aldershot 4-3
Grimsby — Watford 1 -1
Hartlepool — Northampton 0 -2
Huddersfield — York 1-2
Sigur Swansea var ákaflega þýðingar-
mikill gegn einu efsta liðinu í deildinni
og greinilegt, að John Toshach ætlar að
koma Swansea í 3. deild.
hsfm.
Heimsmeistarar Þjóð-
verja leika við Svía
Vestur-þýzki landsliðseinvaldurinn,
Helmut Schön, valdi 1 gær 20 manna
landsliðshóp f landsleikinn gegn Svfum,
sem háður verður f Stokkhólmi miðviku-
daginn 19. april. í hópnum eru þessir
leikmenn.
Markverðir Maier (Bayern) og
Franke (Brunschweig). Varnarmenn
Vogts (Gladbach), Kaltz (Hamborg),
Rússmann (Schalke), Dietz (Duisburg),
Schwarzenbech (Bayern), Foerster
(Stuttgart), Zimmermann og Konopka,
báðir Köln, Framverðir og framherjar.
Bonhof (Gladbach), Flohe (Köln), Beer
(Hertha), Burgsmúller (Dortmund),
Hoelzenbein (Frankfurt), Hansi Múller
(Stuttgart), Abramczik og Fischer (báðir
Schalke), Rummenigge (Bayern) og
Worm (Duisburg).
Borussia án Simonsen
í Evrópub ika rleiknum í Li verpool í kvöld
Evrópumeistarar Liverpool stefna að
því f kvöld að komast f úrslit Evrópu-
bikarsins annað árið i röð, þegar þeir
leika sfðari leik sinn við Borussia
Mönchengladbach á Anfield f Liverpool.
Borussia sigraði f fyrri leiknum 2—1 I
Dússeldorf og verður aftur án „knatt-
spyrnumanns Evrópu”, Danans Alan
Simonsen. David Johnson leikur ekki
mcð Liverpool vegna meiðsla, sem hann
hlaut i leiknum gegn Leicester á iaugar-
dag en hins vegar var tilkynnt f gær, að
Steve Heighway gæti leikið. Hann var
liðanna i Evrópubikarnum i fyrra, 3— 11
Rómaborg, og sigraði Borussia einnig i
úrslitaleikjum UEFA-keppninnar 1973.
í hinum leiknum í undanúrslitum í
Evrópubikarnum leika Brugge og
Juventus í Brugge. ttalska liðið sigraði
1—0 i fyrri leiknum svo Brugge ætti að
hafa góða möguleika á þvi að verða fyrst
belgískra liðq til að komast i úrslit í
Evrópubikamum. Liðið er nú öruggt
með að hljóta sinn þriðja meistaratitil i
Belgíu. Ekki var alveg vist í gærkvöldf
hvort kunnasti leikmaður Brugge, Raoul
Lambert, getur leikið í kvöld en hann
átt við meiðsli að stríða að undan-
förnu.
■ 1 undanúrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa leika Anderlecht, Belgíu, og
Twente Enscehe, Hollandi, í Brussel.
Anderlecht sigraði f fyrri leiknum í Hol-
landi 1—0 og ætti að hafa alla mögu-
leika á að komast i úrslit keppninnar
þriðja árið í röð. Allir beztu leikmenn
Anderlecht leika í kvöldf og liðið hefur
sýnt mjög góða leiki að undanfömu. Á
laugardag tapaði Twente hins vegar
fyrir PSV i 1. deild í Hollandi og missti
við tapið alla von i hollenzka meistara-
titilinn.
t hinum leiknum I undanúrslitum
leika Austria og Dinamo Moskva f
.Vinarborg. Dinamo sigraði 2—1 í fyrri
jleiknum i Tblisi og skoraði bæði mörk
jsin rétt fyrir leikslok. Dinamo er eina
austantjaldsliðið, sem eftir er í Evrópu-
mótunum þremur, en litlar líkur eru
taldar á að það komist áfram f kvöld.
í UEFA-keppninni fer PSV Eind-
hoven með þriggja marka forskot til
Barcelona — og litlar likur eru á að jafn-
vel John Crijuff gæti breytt þeim mun
Barcelona i hag. t hinum leiknum i
undanúrslitum UEFA-keppninnar leika
Bastia og Grasshoppers Ztlrich á
Korsíku. Svissneska liöiö sigraði i Zilrich
3—2 en ólíklegt er að það dugi gegn
Johnny Rep og félögum hans í Bastia-
,liðinu.
Stórsigur
Brassanna
Brasilfa sigraði meistara Saudi
Arabíu — A1 Ahli 6—1 i Jeedah f gær-
kvöld. Um 40 þúsund manns fylgdust
með viðureigninni en fyrrum HM-
stjarna Brasilfumanna, Didi, þjálfar Al
Ahli. Staðan f leikhléi var 3—0 Brössun-
um í vil — þrjú mörk á sjö mfnútum
skoruð af Gerzo, Nunes og Gil. t sfðari
hálfieik sóttu Brassarnir mjög — og þeir
Mendoca, Toninho og Nunes bættu við
mörkum en Al Ahli skoraði sitt eina
mark skömmu fýrir leikslok.
fjórir íslendingar keppa á Nonðurlandameistaramótinu í lyftingum í Finnlandi
„Við munum senda fjóra keppendur á
Norðurlandameistaramótið f lyftingum,
sem haldið verður f Kotka í Finnlandi
dagana 15. og 16. april næstkomandi.
Þvf miður var ekki hægt að senda fullt
lið — eða tfu menn — að þessu sinni og
getur tsland þvf ekki blandað sér f stiga-
keppnina á mótinu,” sagði Ólafur Sigur-
geirsson, formaður Lyftingasambands
tslands, þegar DB ræddi við hann f gær.
tslenzku þátttakendurnir fjórir munu
allir keppa sunnudaginn 16. aprfl en þeir
eru Már Vilhjálmsson, Ármanni, Birgir
Þór Borgþórsson, KR, Ágúst Kárason,
KR, og Gústaf Agnarsson, KR. Þeir
Már og Gústaf kepptu f sveit tslands á
NM f fyrra en hinir tveir keppa enn í
ungiingaflokki og fá f Finnlandi dýrmæta
reynslu fyrir Norðurlandameistaramót
unglinga, sem háð verður f Danmörku i
haust.
Á Norðurlandameistaramótinu 1977,
sem haldið var hér á landi, urðu þeir
Gústaf Agnarsson og Guðmundur
Sigurðsson Norðurlandameistarar i sfn-
um þyngdarflokkum — Árni Þór Helga-
son hlaut silfurverðlaun og Stranda-
maðurinn sterki, Hreinn Halldórsson,
bronzverðlaun. Af verðlaunamönnunum
já verður aðeins einn með i Finnlandi —
Gústaf Agnarsson, sem ákveðinn er f að
verja titil sinn f Finnlandi og gera gott
betur. Um hina er þaö að segja, að
Guðmundur hefur ekki snert lyftistöng
sfðan f fyrra eftir 15 ára þjálfun. Árni
Þór dvelur við nám f arkitektúr f Dan-
mörku og hefur iftið getað æft — en
Hreinn hefur verið frá æfingum og
keppni frá þvi sl. haust vegna meiðsla.
Verð
kr
450
15. tbl. 40. árg. 13. apríl 1978
■
Sannleikurínn a bak við
„Hveríum klukkan glymur”
A vmbörum
í London
Ættarmót
Vatnsfiiðii
V - -
■
GÚSTAF ÁKVEÐINN í AÐ VERJA NM-
TITIL SINN 0G GERA GOn BETUR