Dagblaðið - 12.04.1978, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
Georgína úr Húsbændum og hjúum:
Orðin bert kyntákn
Hún Georgina okkar litla úr Hús-
bændum og hjúum lætur sér ekki nægja
lengur að koma fram alklædd í sjón-
varpsþáttum. Núna er hún farin að leika
á sviði og i kvikmyndum, meira og
minna nakin. Upphafið að netkarferlin-
um markaði kvikmyndin The Betsy sem
gerð er eftir samnefndri sögu Harolds
Robbins.
Með Sir Laurence
til Flórída
Sir Laurence gamli Olivier kemur inn
í herbergið i hjólastól. Eftir að hafa rétt
litið einu sinni á hinn fagra skrokk
Lesley Ann Down býðst hann til að
bjóða henni yfir helgina til Flórida og
felur tilboðið i sér að ástiíðurnar muni
blossa þar suður frá. Þetta atriði er mjög
táknrænt úr The Betsy sem snýst að
mjög miklu leyti um nakta kroppa og
samfarir. Og hin fagra Lesley Ann sem
við þekkjum sem Georgínu töfrar þar
bæði Olivier og alla aðra, bæði unga og
gamla.
Ekkert brezkt
siðgæði lengur
í Húsbændum og hjúum naut
Georgína þess að myndin fjallaði um
brezkt siðgæði fyrr á öldinni og þá tíðk-
aðist ekki að kvenfólk gengi um nakið
eða svo gott sem. En núna hefur hún
orðið að leggja þetta siðgæði á hilluna
með fötum sínum. 1 The Betsy er ekki
nóg með að hún afklæðist fyrir framan
Olivier heldur einnig Robert Duvall og
Tommy Lee Jones sem báðir leika elsk-
huga hennar. Fyrir utan að fjalla um
kynlíf fjallar The Betsy um spillingu
þeirra sem reka fyrirtæki í bílaiðnaðin-
um.
Lesley Ann er liklega farin úr fötun-
um fyrir fullt og allt því að núna leikur
hún einmitt í sjónvarpsmyndaflokki um
nektardansmey eina sem Phyllis Dixey
hét. í því hlutverki fá fötin góða hvíld og
Lesley Ann skelfur á sviði Blackpool
Pavilion leikhússins þar sem þættirnir
eru teknir að verulegu leyti. Á æfingu
tók bandarískt blað hana tali um þessar
nektarsenur hennar:
Kvikmyndir fyrir
karlmenn
„Ég hefði nú haldið að fólk væri farið
að vita hvernig kvenfólk lítur út. En
gallinn við kvikmyndir eins og The
Betsy er sá að þær eru gerðar fyrir karl-
menn. Allar þær konur sem Robbins
skrifar um eru kyntákn. Kynlífið stjórn-
ar lífi þeirra algjörlega, hjarta þeirra
brestur af ást og brestur líka ef ástin er
ekki fyrir hendi. Sem betur fer sá fram-
leiðandi okkar, Dan Petrie, að ekki var
hægt að bjóða Sir Laurence upp á það að
leika hlutverk um spillingu í bilaiðnaði á
meðan ber stelpa gekk yfir sviðið eins og
gerðist á tiundu hverri blaðsiðu úr bók-
inni.”
Gagnrýnendur hafa ekki lokið miklu
lofsorði á The Betsy. Þeir segja flestir að
það eina sem myndin hafi upp á að
bjóða sé sýning á nokkrum berum
kroppum. Og tilfellið er að Lesley Ann
stigur oftar upp í rúm en Laurence
Olivier upp í bilinn sinn. En margir urðu
þó mest hissa yfir því að Lesley Ann
fékk nær allt það lof sem á myndina var
borið. Hún stal senunni algerlega frá
Olivier og fleirum. Reyndar fékk lávarð-
urinn að heyra það að hann hefði verið
hörmulegur í hlutverki sínu.
Betri en nokkur
leikskóli
Lesley Ann ver þó vin sinn af öllum
kröftum. Hún segir að á meðan margir
þættir myndarinnar voru teknir upp að
nóttu til hafi hún verið alveg komin að
því að gefast upp. En Olivier hafi aftur á
móti ekki látið neinn bilbug á sér finna
og sé hægt að læra meira af þvi að horfa
á hann í hálftíma en að vera i leikskóla í
mörg ár.
Hvað sem þessu líður virðast áhorf-
endur kunna betur að meta Lesley Ann
sjálfa. Og þeir munu geta séð meira af
henni á næstunni því núna alveg næstu
daga kemur á markaðinn kvikmyndin
A Little Night Music, eða lítið nætur-
Ijóð þar sem Lesley Ann leikur á móti
Elísabetu Taylor. Oft eru þær bornar
saman og þykja alls ekki ólíkar. Enda
getur Lesley Ann þess að þær séu báðar
úr fiskamerkinu en á allt slikt er hún
mjög trúuð.
Af fátæku fólki
Það lá ekki beint við að Lesley Ann
gerðist leikkona. Þegar hún var krakki
átti fjölskyldan oft ekki fyrir mat hvað
þá öðru. En móðir hennar sem fengizt
hafði við söng og dans í tómstundum
sinum sem ung stúlka hvatti Lesley Ann
mjög til þess að halda út á listabrautina.
Faðir hennar, sem vann sem húsamál-
ari, fékk þvi að greiða dans- og söngtíma
fyrir Lesley Ann af sínum litlu launum.
Og heppnin var með Lesley Ann. Hún
hitti konu eina sem var að koma upp
miðstöð fyrir sýningarstúlkur og fékk
hjá henni vinnu af og til. Siðan komu
svo auglýsingar og örlítil hlutverk i kvik-
myndum. Þegar hún var 19 ára lék hún
svo í Húsbændum og hjúum og telur
hún það eitt mesta happ sitt i lífinu að fá
það hlutverk.
Þá hugðist hún virkilega fara að læra
að leika en var þá boðið hlutverk i
myndinni Bleiki pardusinn snýr aftur.
Þar lék hún aðalhlutverkið á móti Peter
Sellers og allt í einu var ekkert nauðsyn-
legt að læra að leika. En það hvað hún
kann litið hefur orðið henni fjötur um
fót. Þegar hún hitti Jack Nicholson
varðandi hlutverk i kvikmynd sem hann
er að gera vildi hann ekki sjá hana í
myndinni. Hann mun hafa spurt hana
að því hvernig hún byggi sig undir hlut-
verk sitt og þegar hún svaraði „Ég les
það,” sá hann að hún var ekki stúlkan
sem hann var að leita að.
Erfitt einkalíf
í einkalífi sínu er Lesley Ann mest
gefin fyrir kyrrð og frið. Hún býr með
Svona þekkjum við Georglnu með
frænda sinum James Bellamy úr
Húsbændum og hjúum.
kærasta sínum, Bruce Robinson, og kýs
helzt að búa uppi i sveit þar sem enginn
sími er og rólegt að vera. En kærastinn
sem vinnur á skrifstofu allan daginn vill
ólmur skemmta sér og af þessum and-
stæðum skapast viss vandræði. Og
meðan framinn gengur eins hratt og
hann gerir núna er lítil hætta á þvi að
Lesley Ann Down geti einangrað sig frá
umheiminum. Hún er þegar byrjuð að
leika i einni mynd enn, The Great Train
Robbery eða Lestarráninu mikla þar
sem Donald Sutherland er mótleikari
hennar.
Eftir að hafa einu sinni farið úr fötunum
kemst Lesly Ann ekki i þau aftur i bráð.
D
Verzlun
Verzlun
Verzlun
Hátalarar
í sérflokki
Ef þú vilt smiða
kassana sjálfur,
höfum við hátalara-
sett, litil og stór
frá SEAS:
Mini, 203, 303,
503 og Disco.
Einnig höfum við
ósamsetta kassa,
tilsniðna og spón-
lagða.
SAMEIND,
Húsbyggjendur, byggingaverktakar:
Eigum á lager milliveggjaplötur úr gjallí.
Stærð 50 x 50 cm. Athugið verð og greiðslu-
skilmála.
Loftorka sfDalshrauni 8 Hafnarfirði, simi 50877. ]
Tilvalinn stóll til fermingargjafa.
Framleiðandi:
Stáliðjan Kópavogi
KRÓM HÚSGÖGN
SmkJjuvogi 5. Kópavogi. Simi 43211
n
Gardínubrautir
Langholtsvegi 128 Simi 85605.
Eigum fyrirliggjandi allar gerðir af
viðarfylltumgardínubrautum, 1-4
brauta, med plast-eða viðar-
k(jg: köppum, einnig ömmustangir,
smíðajárnsstangirogallttil
gardínuuppsetningar
CfilViUnia
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Smidastofa h/i .Trönuhrauni 5. Simi 51745.
Ferguson litsjónvarps-
tækin. Amerískir inn-
línumyndlampar. Amer-
ískir transistorar og
díóður.
ORRI HJALTASON
Hagamel 8, slmi 16139.
DRÁTTARBEIZLI — KERRUR
Vorum aö taka upp 10" tommu hjólastell
fyrir Combi Camp og fleiri tjaldvagna.
Höfum á lagar allar staerflir af hjólastellum
og alla hluti í karrur, sómuleiöis allar gerflir
af karrum og vögnum.
ÞÓRARINN KRISTINSSON
Klapparstíg 8. Simi 28616 (Haima 72087)
MOTOROLA
Alternatorar I bíla og báta, 6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistorkveikjur I flesta bíla.
Haukur & Ólafur hf.
Ármúla 32. Sími 37700.
ALTERNATORAR
6/12/24 volt i flesta bíla og báta.
VERÐ FRÁ 13.500.
Amerisk úrvalsvara.i — Póstsendum.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Rafmagnsvörur í bila og þáta.
BÍLARAF HF.