Dagblaðið - 12.04.1978, Page 23
23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRtL 1978.
I
Utvarp
Brezk dýralifsmynd er á dagskrá sjónvarpsins kl. 18.10 i kvöld sem nefhist Þau héldu
til hafs. Þar segir frá hvöium, selum og sæotrum sem einu sinni bjuggu á þurru landi.
Sjónvarpíkvöldkl. 18.10:
Þau héldu til hafs
FÓSTURJÖRDIN
FÓSTRAÐIÞAU
EKKINÓGU VEL
„Þessi mynd fjallar um spendýr, aðal-
lega hvali og seli, sem endur fyrir löngu
lifðu á þurru landi, en steyptu sér siðan í
sjóinn aftur. Heita þau siðan sjávarspen-
dýr.” Þetta sagði Bogi A r nar Finnboga-
son okkur m.a. um brezku dýralífs-
myndina Þau héldu til hafs, sem er á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 18.10.
Einnig sagði Bogi að flest spendýr
lifðu á landi en þar sem þessi dýr fundu
að fósturjörðin gat ekki fóstrað þau
nægilega vel, sneru þau aftur til sjávar,
þangað sem forfeður þeirra höfðu lifað
löngu áður.
Talið er að um 111 tegundir spendýra
ali allan aldur sinn i sjó en sjávarganga
þeirra gerðist ekki á einum degi, því það
tók þau milljónir ára að venjast sjávarlíf-
inu. Til dæmis má nefna að hvalir, sem
talið er að hafi gengið aftur til sjávar
fyrir 60 milljónum ára, fæða afkvæmi
sín í sjó og gefa þeim að sjúga í sjó.
Aftur á móti fæða selir afkvæmi sín enn
á landi, en þeir eru taldir hafa gengið
aftur til sjávar fyrir 30 milljónum ára.
Heimkynni ýmissa dýrategunda á
landi eru mjög nálægt eða jafnvel í
flæðarmálinu, svo sem otra, minka eða
heimskautarefa. Má segja að þessi dýr
séu landkrabbar sem hafa þörf fyrir að
hafa sjávarly ktina i nösunum.
Kvað Bogi því myndina fjalla um það
hvernig þessum sjávarspendýrum hefur
gengið að aðlaga sig lífi i sjó og sagði
hann myndina bæði fallega og fróðlega.
Það er því ekki að efa að ef dýrafræðin
væri kennd á þennan hátt væri hún
bæði skemmtilegri og auðlærðari nem-
endum.
Myndin er um 25 mínútna löng og i
litum.
RK
Svör við 21. kaf la ensku
kennslunnar On We Go
1. Svörin eru i textanum.
2. Dæmi: Tom must go shopping.
Jennifer must do the cooking.
3. Dæmi: Has Jennifer got to do the
cooking? No, she hasn’t.
4. Dæmi: Jennifer is going to buy
some drinks, so Paul needn’t.
5. 1. Jean must wrap the presents.
Must she? They’ve got to have some'
presents, haven’t they? I suppose so.
6. l.c 2. g 3. a 4.d5.i 6. e 7. b 8. j 9. f
10. h.
7. Dæmi: Why must Mrs. Brown go to
the doctor’s? Because she’s ill.
8. Dæmi: You mustn’t play footballin
the street because it’s dangerous.
9. Dæmi: You needn’t get up early
when you are on holiday. You mustn’t
make a noise when your grandmother
isasleep.
10. Haven’t got to er A. mustn’t er B.
1. A, 2. B, 3. B, 4. A, 5. B, 6. A, 7. A,
8. B, 9.A, 10.B.
11. Yes, he has er A, not yet er B. 1. B,
2. A, 3. A, 4. B, 5. A, 6. B, 7. B, 8. A, 9.
A, 10. B.
12. Þarfnastekki skýringa.
Sjónvarp
0
Miðvikudagur
12. april
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Middegissagaiu „Saga af Bróður Ylfíng’
eftir Friörik Á. Brekkan. Bolli Þ. Gústavsson
les (4).
15.00 Miðdegistónleikar. Nýja fílharmoníu
sveitin i Lundúnum leikur „Marco Spada”,
forleik eftir Daniel Auber; Richard Bonynge
stjórnar. Michael Ponti og Sinfóníuhljómsveit
Berlínar ieika Pianókonsert i a moll op. 7 eftir
Klöru Schumann. Voelker Schmidt-Gerten
bach stjómar. Zara Nelsova og Nýja Sinfóniu-
hljómsveitin i Lundúnum leika Sellókonsert
eftir Samuel Barber; höfundurinn stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Mágur kölska”,
tékkneskt ævintýrí. Hallfreður öm Eiriksson
les fyrri hluta þýðingar sinnar.
17.50 Tónleikar. Ti^kynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.35 Gestur i útvarpssak Leonidas Lipovetsky
frá Bandarikjunum leikur Planósónötu f F-dúr
(K332) eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
20.00 Á vegamótum. Stefanía Traustadóttir sér
um þátt fyrir unglinga.
20.40 íþróttir. Umsjón: Hermann Gunnarsson.
21.00 Stjörnusöngvarar fyrr og nú. Guðmundur
Gilsson kynnir söngferil frægra þýzkra söngv-
ara. Tólfti þáttur: Christa Ludwig.
21.30 Úr suðurvegi. Þómnn Elfa Magnúsdóttir
rithöfundur flytur ferðaþátt með frumortum
kviðlingum.
21.55 íslenzk tónlist: „Ljómur” eftir Atla Heimi
Sveinsson. Reykjavikur Ensemble leikur.
22.05 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir
Jón Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson les
(9).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Svört tónlist Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
13. apríl
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00,
8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 9.15: Steinunn
Bjarman les söguna , Jerutti bjargar Tuma og
Tinnu” eftir Cecil Bödker (9). Tilkynningar kl/
9.30. Þingfiréttir kl. 9.45. Utt lög mUli atr.
Fæðingarhjálp og foreldrafræðsla kl. 10.25: ‘
Hulda Jensdóttir forstöðukona Fæðingar-
heimUis Reykjavíkurborgar flytur fjórða og
siðasta erindi sitt. Tónleikar kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00: Sinfóniuhljóm-
sveit sænska útvarpsins leikur hljómsveitar-
svítuna „Gústav II AdolT eftir Hugo Alfvén;
Stig Westerberg stj./Sinfóniuhljómsveitin í
Utah leikur „Hitabeltisnótt”, sinfóniu nr. 1
eftir Louis Moreau Gottschalk; Maurice Abra-
vanel stjómar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Á
frívaktínnl. Sigrún Sigurðardóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
14.30 „Spáð 1 spU og lófa. Upplýslngar í
síma„..” Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sér
um þáttinn.
15.00 Miðdegistónleikar. Karl Leister, Georg
Donderer og Christoph Eschenbach leika Trió
i a-moll fyrir klarinettu, selló og pianó op. 114
eftir Johannes Brahms. Jacqueline Eymar,
Gílnter Kehr, Wemer Neuhaus, Erich Sicher-
mann og Bemhard Braunholz leika Píanó-
kvintett i c-moll op. 115 eftir Gabriel Fauré.
Þ
i)
Sjónvarp
Miðvikudagur
12. apríl
18.00 Ævlntýri sótarans (L). Tékknesk leik-
brúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhannsióttir.
18.10 Þau héldu tíl hafs (L). Bresk dýraUfsmynd.
Fyrir milljónum ára fannst ntáckrum spen-
dýrategundum, að nóg væri komið af dvölinni
á þurru landi. Þar á meðal voru hvalir, selir og
sæotrar. Þau héldu þvl til hafs, þaðan sem for-
feður þeirra höfðu komið löngu áður. Þýðandi
og þulur Bogi Amar Finnbogason.
18.35 Hér sé stuð (L). Hljómsveitin Melcþjor
skemmtir. Stjóm upptöku Egill Eðvarðsson.
19.00 On We Go. Enskukennsla. 22. þáttur
fmmsýndur.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Sklðaæfingar(L). Þýskur myndaflokkur.
Ellefti þáttur. Þýðandi Eirikur Haraldsson.
21.00 Vaka (L). Bókmenntir og listir á llðandi
stund. Stjóm upptöku Egill Eðvarðsson.
21.40 Charies Dickens (L). Leikinn, breskur
myndaflokkur 1 þretbán þáttum um ævi
Dickens. 2. þáttur. Afsalsbréfíð Efni fyrsta
þáttar: Hinn vinsæli rithöfundur Charles
Dickens er á sigurför um Bandaríkin, þar sem
hann les upp úr verkum sinum. Ferðalagið er
erfitt. Hann leggst veikur og tekur að rifja upp
bemsku sína. Þrátt fyrir mikla fátækt og basl
er fjölskyldan hamingjusöm. Faðirinn er
óreglusamur og óreiðumaður i fjármálum, en
börnum hans þykir vænt um hann. Þýðandi
Jón O. Edwald.
22.30 Dagskrárlok.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf
Hamraborg 1 — Símar 43466 — 43805
Kóngsbakki,
2ja herb. 50 ferm, 8 millj.
Efstaland
2ja herb. 50 ferm, 8,2 millj.
Kópavogsbraut
2ja herb. jarðhæð 80 ferm, 7,5
millj.
Víðihvammur
3ja herb. 95 ferm, 10 millj.
Ásbraut
3ja herb. með bilskúr, 95 ferm, 12
millj.
Furugrund
3ja herb. 90ferm, 12 1/2 millj.
Hlégerði
4ra herb. 100 ferm, 141/2 millj.
Lækjarkinn
4ra herb. 100 ferm, 12 millj.
Fossvogur
4ra herb. stórglæsileg ca 100 ferm,
15 millj. útborgun 11 n.illj.
Álfhólsvegur
5 herb. jarðhæð 120 ferm, 13,5
millj.
Álfhólsvegur
einbýlishús 65 ferm, 9 millj.,
byggingalóð.
Markarflöt
stórglæsilegt einbýlishús ca 200
ferm, skipti möguleg á sérhæð,
verð 35 millj.
Þinghólsbraut
einbýlishús 125 ferm, skipti mögu-
leg. Verð 20 millj.
Breiðholt
fjöldi raðhúsa fokheld múrhúðuð
og með gleri, teikningar á staðn-
•ím. Verð 13 millj. til 15 millj.
Hveragerði
raðhús 76 ferm 7 1/2 millj. útborg-
un 4 1/2.
Þorlákshöfn
glæsilegt viðlagasjóðshús, finnskt,
verð 12 millj, útborgun 67 millj.
Iðnaðarhúsgrunnur 450 ferm,
steypt plata. Upplýsingar veittar á
skrifstofunni.
Vilhjálmur Einarsson sölustjóri og Pétur
Einarsson lögfræöingur.
----------29555-------------------,
OPMÐ VIRKA DAGA FRÁ 9—21
UM HELGAR FRÁ 13—17
1 ha. eignarlands Fífusel 4 hb.
við Baldurshaga. Verð tilboð. + 1 herb. í kjallara. Verö 13,5 m.
Álfaskeið 2 herb.
góð íbúð. Verð 7,5 m.
Miðvangur 2 herb.
góð ibúð. Verð tilboð.
Hraunbær 4 hb.
aukaherb. í kjallara. Óskar eftir
skiptum á stórri 3ja hb. eða 4ra hb.
helzt íbúð í Hraunbæ.
Bergþórugata 3 hb.
lítil ibúö á I. hæð, sérinngangur.
Lækjargata
Hafnarf. 3 hb.
I. hæð í timburhúsi. Útb. 4,5 m.
Miðvangur 2 hb.
mjög góð íbúð. Verð tilboð.
Lundarbrekka 100 fm
sérlega vönduð 3 hb. íbúð. Út-
borgun 8,5 m.
Dvergabakki 4 hb.
135 fm endaíbúð. Utb. 10 m.
Dyngjuvegur 4 hb.
fallega innréttuð ibúð, sér-
inngangur, nýtt eldhús og bað,
frábært útsýni yfir borgina. Verð
13,4-14 m.
Ljósheimar 4 hb.
mjög góð ibúð i háhýsi. Verð og út-
borgun tilboð.
Hjallabraut
Hafnarf. 5 hb.
130 fm glæsileg ibúð, sérþvottur og
búr inn af eldhúsi. Verð 16,5 m.
Útb. 11—12 m.
Hlíðarvegur 5 hb.
sérhæð í 3-býli, stór, hitaður
bílskúr, glæsileg eign. Verð 20—
21 m.
Vegna gífurlegrar
eftirspurnar vantár okkur allar
gerðir eigna á skrá.
Aðstoðum við verðmat sam-
dægurs.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55
SÖLUM.: Hjörtur Gunnarsson. Lárus Helgason. Sigrún Kröwr
LOGM.: SvanuE Þór Vilhiálms$on hdl
Lausar stöður
í Kennaraháskóla íslands eru eftirtaldar
kennarastöður lausar til umsóknar:
Lektorsstaða f uppeldisgreinum,
iektorsstaða í ensku og
lektorsstaða f Ifffræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Auk kröfu um fræðilega hæfni í viðkomandi
kennslugreinum er lögð áhersla á starfsreynslu
og kennslufræðilega þekkingu.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6 Reykjavík, fyrir 8. maí nk.
Menntamólaróðuneytíð, 7. aprfl 1978.