Dagblaðið - 14.04.1978, Page 3
DAGBLAÐID. FÖSTUDAGUR 14. APRlL 1978.
3
Spurning til Alþýðuflokksins:
Af hverju var ekki próf
kjör í Gardabæ?
Oddur Ólafsson hringdi:
Alþýðuflokkurinn telur sig hafa
unnið persónulegan sigur i þeim próf-
kjörum sem hann hefur haldið að
undanförnu. Það mun koma í ljós við
næstu kosningar hvernig það mannval
hefur tekizt og ekki vil ég hallmæla Al-
þýðuflokknum fyrir það. En sums
staðar vill nú svo til að Alþýðuflokkur-
inn vill ekki prófkjör eins og t.d. i
Garðabæ.
Þar telur örn Eiðsson sig sjálfkjör-
- inn, þar sem enginn vildi fara i fram-
boð gegn honum. En ef við horfum nú
á staðreyndir er það þannig að Örn er
formaður Alþýðuflokksfélags Garða-
bæjar og hefur svo til enga fundi
haldið.
Það er þvi staðreynd að sannir a I-
þýðuflokksmenn vildu mótmæla Erni
með því að taka ekki þátt í neinu próf-
kjöri. Ein almesta skrautfjöður
Alþýðuflokksins í Garðabæ, Hilmar
Hallvarðsson, vill helzt ekki taka þátt I
starfsemi Alþýðuflokksins þar vegna
yfirgangs Arnar.
Það er hart fyrir fylgjendur Alþýðu
flokksins þegar slikur drengur sem
Hilmar getur ekki starfað af fullum
krafti fyrir flokkinn sökum eintrján-
ingsháttar þess manns sem ætti frekar
að vera hvetjandi fyrir aðra flokks-
menn.
Það er áreiðanlega ósk allra al
þýðuflokksmanna I Garðabæ að
Hilmar Hallvarðsson verði settur I
öruggt sæti við næstu bæjarstjórnar-
kosningar í Garðabæ.
SJOMENN ÞURFA
AÐ HVÍLA SIG
Sjómaður hringdi:
Þrátt fyrir öll vaktalög á togurunum
og japl, jaml og fuður um eðlilegan
vinnutíma sjómanna. viðgengst of
mikið vinnuálag á einstaka menn i
bátaflotanum. Einkum skipstjórana,
sem oft eru uppi I tvo til þrjá sólar-
hringa þegar vel viðrar og afla er von.
Þegar fólk les svo fréttir um að
bátar strandi vegna þess að skipstjóri
eða stýrimaður hafi sofnað, er skýring-
in oft ofur einföld — OFÞREYTA.
Vandfundin er lausn á þessum
vanda en dæmið ekki skipstjóra sem
slóða, þótt honum verði á að sigla sof-
andi i strand eftir ef til vill tveggja
sólarhringa vöku. Það er aðeins
hörmulegt slys I lífsbaráttu hans.
f iTjómandi ferðakynning
í Þórscafé sunnudagskvöld 16. apríl kl. .19.00
Stóri, fallegi ferðabæklingurinn er kominn og auk
þess ótal lýsingar á sérferðum okkar. Bæklingurinn
er að vísu seint á ferð, en biddu fyrir þér, hann er
sko þess virði að beðið sé eftir honum. Við bjóðum
upp á ferðir til: Spánar, Ítalíu, Sviss, Austurríkis,
Júgóslavíu, Þýskalands, Sovétríkjanna,
Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og írlands,
auk okkar viðurkenndu skipulagningar sér-
hópferða og einstaklingsferða.
Kynnist ferðunum sem
við gefum sérstök
nöfn, eins og t.d. Ferð-
ist og fræðist, Ensku-
nám á írlandi og
Ferðist
og megrist.
Viðburðir kvöldsins
Söngflokkurinn Rand-
ver — Danssýning frá
Sigvalda — Spánný
Spánarkvikmynd Ey-
steinn Helgason for-
stjóri Samvinnuferða
kynnir stóra og fallega
bæklinginn í stuttu og
hressu máli — Okkar
sívinsæli ásadans
(ferðavinningur) —
Skoðunarferð um Þórs-
café, íslenskur farar-
stjóri (innifalið í miða-
verði) — Bingó (3
Stemmningin hefur alltaf verið frábær, við sjáum
sömu andlitin aftur og aftur. Nú finnst okkur rétt
að þið sem ekki þekkið það af eigin raun komist að
því og hættið að missa af svo góðu gamni.
ÝMSAR
FERÐIR
ferðavinningar) Þórs-
menn sjá um fjörið á
dansgólfinu og látum
húsið nötra.
Meistari Stefán
kitlar bragðlaukana
með:
Aðalréttur:
Filet de Porc
fumé Raifort.
Eftirréttur:
Coupe Guadalquivir
Verð aðeins 2.850.-
Það verða
6
ferðavinningar.
Samvinnuferöir
Austurstræti 12 Reykjavik — Simi 27077.
FJÖLBREYTTASTA
FERÐAÚRVAL LANDSINS
LANDSYN
Skólavörðustig 16 Roykjavik — Simi 28899.
Borðapantanir í Þórs-
café í síma 23333, og
pantið snemma því að
nú verður slegist um
borðin.
Gestahappdrætti: Þeir
sem koma fyrir kl.
20.00 verða sjálfkrafa
þátttakendur í ókeypis
gestahappdrætti.
Ferðavinningur.
Higgaríó lystaukinn:
Þeir sem koma fyrir kl.
20.00 fá ókeypis okkar
rómaða Higgaríó lyst-
auka.
Kynnir:
Axelsson.
Magnús
Spurning
ag
Ætlar þú á
bílasýninguna?
Eyjóhur tsaldursson rennismiður: Já,
aðallega til að skoða bilana. Ég er ekki i
kauphugleiðingum eins og stendur.
Frfmann Jóhannsson verzlunarmaoun
Já, alveg tvímælalaust, til að forvitnast.
Asta R. Jóhannesdóttir kennari: Alveg
örugglega ekki, ég hef nóg annað við
tímann að gera og lit aðeins á bila til að
þjóna manni við að komast leiðar
sinnar.
Kristján Ingi Einarsson blaðamaður: Ég
býst ekki við því þótt ég hafi ekki hug-
leitt það til fulls. Ég hef ekki það mikinn
áhuga á bílum og á engan.
Margrét Brynjólfsdóttir húsmóðir: Já,
alveg örugglega, til að skoða nýjustu bii-
ana. Annars er ég ekki íkauphugleiðing
um, ég kann vel við Dodgeinn minn.