Dagblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRlL 1978.
7
Mannöflin puða en
hestöflin brosa
Margir fengu sýningargripi senda i gámum frá verksmiðjunum erlendis svo sem Jöfur i Kópavogi sem fékk þverskurð af Alfa Romeo.
— litið á undir-
búningslotu
bfla-
sýningarinnar
Gólfflötur nýju Sýningahallarinnar er
hvorki meiri né minni en einn hektari.
Ötal hendur unnu að því að bóna og
snurfusa hina ýmsu glæsivagna, skapa
þeim umhverfi og að koma upp sýn-
ingarbásum. Horfðu margir fram á
vökunótt og margir voru þegar búnir að
leggja að baki óslitinn langan vinnu-
tima.
Sýningin verður I tveim húsum, sitt
hvorum megin við Bíldshöfðann. Stærra
húsið, Sýningahöllin, verður vígð með
þessari sýningu. Tjáði Jón Hjartarson,
eigandi hennar, DB mönnum að gólf-
flötur hússins á fjórum hæðum væri um
einn hektari. Neðsta hæðin er í leigu og
efsta hæðin hefur ekki enn verið tekin I
notkun.
Höll þessa teiknaði Hannes Kr.
Davlðsson sérstaklega sem sýningahöll
og var að þvi miðað að sem ódýrast væri
að koma þar upp sýningum. Er þar geysi
þéttriðið net raflagna, vatnslagna, kall-
kerfa og síma svo eitthvað sé nefnt.
Taldi Jón fyllilega vera orðna þörf fyrir
slfka sýningahöll hér. - GJS.
„Stingdu I samband,” kallaði maður-
inn með borvélina 1 miðjum Sambands-
básnum og samstundis skelltu allir
nálægir upp úr, það hljómaði einkenni-
lega að vera sambandslaus i sjálfum
Sambandsbásnum.
Þetta er aðeins lítið dæmi um léttleika
og vinnugleði sem rikti i nýju Sýninga-
höllinni við Bildshöfða i gær þegar
aðeins var sólarhringur til opnunar
stærstu bílasýningar hérlendis til þessa
og margt enn ógert.
Markaðssamkeppnin virtist rokin
lönd og leið og hver hjálpaði öðrum til
að allt mætti ganga sem bezt. Enn voru
allnokkrir sýningargripir ókomnir og t.d.
átti Veltir von á einhverjum gripum með
skipi i gærkvöld eða nótt.
litla bróður á bakinu. ^ Japönsku Subaru verksmlðjurnar bæta nú fjórhjóladrifnum „skutbfl” inn i úrval sitt.
Vauxhall Chevette bíllinn, sem sigraði I siðasta ralli, verður Fyrsti Benz station er nú kominn til landsins.
þarna til sýnis grútdrullugur og var langt komið að gera islenzk- DB- myndin R.Th.
an veg undir hann til að sýna hann I sem réttustu umhverfi.
Vegurinn einkenndist að sjálfsögðu af lausamöl og holum.
Undirvagn hífður upp að innkeyrsludyrum á annarri hæð.