Dagblaðið - 14.04.1978, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978.
Öll f ramleiðsla þessa árs þegar seld:
Húsin frá Siglufmn
20% ódýrari en „ vísitöluhúsið "
Eitt húsanna.
Fyrstu hús Húseininga hf. sem byggð eru í Reykjavík til sýnis um helgina
Verksmiðjuframleidd hús frá Húsein-
ingum hf. á Siglufirði fara nú sigurför
um landið. Fyrsta húsið var framleitt i
árslok 1974 en nú hafa verið seld 120
hús víðsvegar um land. öll framleiðsla
þessa árs er seld og er verið að vinna að
framleiðslu 50 húsa sem samið hefur
verið um. Það sem af er þessu ári hafa
verið gerðir samningar um framleiðslu
og sölu á 30 húsum en á öllu árinu I
fyrra voru seld 42 hús. Má af þessu
marka auknar vinsældir húsanna.
Búast má við fjölda forvitinna áhuga-
manna þá er Húseiningar sýna almenn-
ingi fyrsta tilbúna húsið frá verksmiöj-
unni sem reist hefur verið I Reykjavík
Það stendur að Steinaseli 1 I Breiðholti
og verður til sýnis á laugardag og sunnu-
dag kl. 2—10 báða dagana.
Húsið að Steinaseli 1 er 150 fermetrar
að bilskúr meðtöldum. Heildarverð þess
varð 14.396.000 kr. og er hluti Húsein-
inga i þeirri upphæð 6.960.000 kr. eða
48.3%.
Gatnagerðargjöld og heimæðagjöld
námu 1.571.000 kr. og gerð sökkuls
kostaði 3.250.000 kr. Reyndist grunn-
inn að Steinaseli 1 mjög dýr. Sökklar
voru á 5. metra að hæð." Hefði því verið
hægt að fá kjallara undir öllu húsinu
fokheldan fyrir tiltölulega mjög litinn
aukakostnað en það tækifæri var ekki
notað við gerð þess húss.
Mismunurinn á áðurnefndum tölum
og heildarverði hússins er söluskattur,
uppsetningarkostnaður, flutningskostn-
aður og frágangskostnaður ýmiss konar.
VERZUfl MR SEM ÚRVAUÐ ER MEST0G KJttRIN BEZT
Einfalt og ódýrt
undir hljómtækin
ogplöturnar
Forráðamenn Húseininga hf. F.v. Sigurður Fanndal, Matthías Sveinsson fram-
kvæmdastjóri og Þórarinn Vilbergsson stjórnarformaður.
„Vísitöluhúsið” svonefnda er að sögn
framkvæmdastjóra Húseininga, Matthí-
asar Sveinssonar, tæplega 20% dýrara
en hús frá Húseiningum ef miðað er við
skráð verð í dag og 110 fermetra hús-
garð.
Húseiningahús eru fáanleg sam-
kvæmd 20—30 teikningum. Þau eru líka
hægt að fá eftir sérteikningum. Húsin
eru mjög mismunandi eftir lagi og frá-
gangi og verð þeirra því misjafnt þó fer-
metratalan sé svipuð.
Einangrunargildi í útveggjum er sam-
kvæmt niðurstöðu rannsókna um 25%
meira en í steinsteyptum húsum með 2
1/2 tommu einangrun. Viðhald eininga-
húsanna stenzt samanburð við þau
steinsteyptu.
Byggingartimi einingarhúsa er veru-
lega styttri en þegar byggt er á annan
hátt. Það lækkar byggingarkostnaðinn
verulega. Mesti byggingarhraði húss frá
Húseiningum var við 130 fermetra hús
sem var reist í október sl. Fjölskyldan
var flutt inn fyrir jól. Tók 7 vikur að
ganga fullkomlega frá húsinu.
Matthías Sveinsson framkvæmda-
stjóri sagði á blaðamannafundi að húsin
frá Húseiningum væru sjálf sterkasta
auglýsingin. Með tilkomu þeirra um
landið ykist eftirspurnin. Búið er að
leggja inn eina pöntun frá Færeyjum og
verður það hús reist þar á þessu ári. Búið
er að ná hámarksafköstum í verksmiðj-
unni á Siglufirði en þar vinna alls 25
manns. Með auknum vinnukrafti (t.d.
vaktaskiptum) mætti stórauka fram-
leiðsluna án frekari vélakaupa en til þess
þarf stóraukið fjármagn þvi Húseiningar
byggja miklu hraðar en allt lánakerfi i
landinu gerir ráð fyrir. Húseiningar hafa
tekið upp í greiðslur loforð um hús-
næðismálastjórnarlán og eiga nú úti-
standandi 150 milljónir króna í slikum
loforðum. Aðauki veita Húseiningar við-
skiptavinum sínum stutt lán eða fyrir-
greiðslu. En verksmiðjan getur ekki
tekið að sér hlutverk lánastofnana. Taldi
Matthías nauðsyn á að athugaður yrði
aukinn stuðningur hvað þetta varðar við
þær húsaverksmiðjur sem til eru i land-
inu frekar en að huga að uppsetningu
nýrra og láta sér svo á sama standa um
hvernig þeim vegnaði.
Matthias benti á söluskattinn sem
framleiðendur verksmiðjuhúsa verða
enn að greiða umfram þá er byggja „á
staðnum". Söluskatturinn leggur
hundruð þúsunda króna bagga á hvert
hús. Er þar nauðsyn úr að bæta og
stendur ekki á loforðum þar um heldur
efndum.
Matthias rómaði fyrirgreiðslu Hús-
næðismálastjórnar við Húseiningar og
aðrar verksmiðjur. Hefði þar verið reynt
að styðja við bak framleiðenda af
fremsta megni þó ætíð mætti betur gera.
Húseiningar senda öllum er óska upp-
lýsingamöppu með allmörgum sýnis-
hornum af teikningum húsa ef óskað er.
Er i möppunni að finna allar frumupp-
lýsingar varðandi húsin sem siðan eru
auknar eftir óskum væntanlegra kaup-
enda.
- ASt.
[1
■ **.. L 1 r~“
Séð úr gangi inn í sjónvarpsskála og stofu einingahússins að Steinaseli 1. Eigandi hússins hefur sjálfur hlaðið steinvegg um
eldhúsið, hann smiðaði eldhúsinnréttinguna, klæddi loft á sérstakan hátt og annaðist litaval. Maðurinn er heldur enginn auk-
visi í smíðum, hann smíðaði fyrsta rafbílinn hér á landi. DB-myndir Ragnar Th.
Veró adeins kr. 28.200.- (hvítarj
Einnig fáanlegtí dökkri eik og
hnotulit— Verd kr. 44.700.-
Húsgagnadeild
HRINGBRAUT121 -SIMI28-601
Reykjavík og nágrenni:
Norsk „menningar innrás”
— kórsöngur og hljómsveitir skemmta landanum um helgina
Tveir stúdentakórar frá Þrándheimi
eru i heimsókn á tslandi þessa dagana,
TSS og TKS. í kvöld kl. 19 halda þeir
tónleika i sal Menntaskólans við
Hamrahlið en í fyrramálið kl. 11 bjóða
þeir til ókeypis tónleika sem verða i
léttum dúr.
Þá er í hópnum stúdentahljómsveit
og er dagskráin sinfónísk og efnisskrá í
samræmi við það. Heldur hljómsveitin
tónleika í Bústaðakirkju í kvöld kl.
23.30 og leikur norska tónlist ein-
göngu.
Norðmennirnir munu og koma
fram á tónleikum Landssambands
blandaðra kóra um helgina og fara til
Laugarvatns og halda tónleika þar.
Loks skal getið jass-hliðarinnar á
þessari norsku „menningar-innrás”. 1
kvöld leikur hljómsveitin Bodega
Band, 18 manna jasshljómsveit, í
Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut. Hljómleikarnir hefjast kl. 20. Á
laugardagskvöld verður svo ,jam-
session” i Tjarnarbúð.