Dagblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978.
..... ' ... " "T"""
Stjórnmálaf lokkurinn —
Hvers vegna?
Ástæðumar fyrir því að ég undir-
ritaður aðhyllist Stjórnmálaflokkinn
eru:
Hann vill breyta stjórnarskrá
íslenska lýðveldisins. Tvaer veiga-
mestu breytingarnar eru:
Að aðskilja löggjafar- og fram-
kvæmdavald, það er, að gjörbreyta
aðferðinni um val ráðherra, þar sem
ráðherraembættin eru ábyrgðarmestu
stöður islenska rikisins og þess vegna
mikil nauðsyn á að hæfustu fáanlegir
menn á hverjum tíma gegni þeim,
menn sem ekki endilega eru þingmenn
eða forustumenn stjórnmála-
flokkanna. Núverandi og fyrrverandi
ríkisstjórnir bera vitni um úrelt stjórn-
arfyrirkomulag.
Að jafna áhrif kjósenda við val
þingmanna. I-að getur ekki verið rétt-
látt í lýðræðisþjóðfélagi að hlutfall at-
kvæða á bak við hvern þingmann sé
fjórum sinnum meira I einu
kjördæmi en öðru (sbr. hlutfallið
milli Reykjavikurkjördæmis og Vest
fjarðakjördæmis).
Stjórnmálaflokkurinn stefnir að
algerri endurskoðun og einföldun
skattakerfisins, sem er orðið slikt
bákn, að jafnvel höfundar þess, hvað
þá heldur aðrir, botna ekkert I því.
Stjórnmálaflokkurinn vill draga úr
skattpíningunni, sem alla er að drepa
og taka upp staögreiðslukerfi skatta.
Stjórnmálaflokkurinn vill efla
tryggingakerfið, þannig að enginn
þurfi að búa við örbirgð vegna lágra
launa, elli eða örorku.
Stjórnmálaflokkurinn vill leggja
aðstöðugjald á herstöðvar NATO hér
á landi. Þeim peningum á að verja til
vegagerðar, flugvalla og hafnar-
mannvirkja.
Nútíma þjóðfélag með lúx-
uslimúsínum krefst all-góðra vega
með varanlegu slitlagi, vega sem hægt
er að komast um árið um kring. Sá
hluti vegakerfisins sem er með varan-
legu slitlagi er hlægilega lítill og
hraðinn við lagningu vega með varan-
Kjallarinn
Ari Eggertsson
legu slitlagi mun vera um það bil 5
kílómetrar á ári. Hvenær skyldi hann
eiginlega verða kominn hringinn?
Það vantar tilfinnanlega flugvelli
sem hægt er að nota jafnt að degi sem
nóttu og i hvaða vindátt sem er.
Slíkir flugvellir hérlendis eru ekki fleiri
en svo, að hægt er að telja þá á fingr-
um annarrar handar. Slikt nær ekki
nokkurri átt á landi sem er 103 þúsund
ferkílómetrar að flatarmáli.
Hafnir eru margar hverjar ónot-
hæfar ef gerir vind. Úr því þarf
nauðsynlega að bæta.
Bandaríkjamenn hafa skuldbundið
sig til að verja íslensku þjóðina EF á
hana verður ráðist. En EF á okkur
verður ráðist, hvernig á þá herinn að
komast um landið?
Þetta vilja þeir sem illa eru haldnir
af þjóðernisrembingi og/eða marxisma
kalla landsölu. Það er ekki stefnt að
því að hálfu Stjórnmálaflokksins að
selja neinum eitt eða neitt, heldur taka
gjald fyrir þá aðstöðu, sem NATO
hefur hér á landi. Slíkt getur EKKI
kallast sala. Eins og er hefur NATO
skikana sem herstöðvarnar standa á
að láni. Af hverju er verið að lána út-
lendingum ókeypis afnot af landinu?
Það er ekki farið svo vel með tslendí
ingana sjálfa, þeir fá engan landskika
án þess að borga fyrir hann.
Það er þvaðrað um að lslendingar
glati efnahagslegu sjálfstæði sinu ef
þeir fara að þiggja peninga frá NATO
(en hvar er efnahagslegt sjálfstæði
þjóðar, þegar erlendar skuldir eru 600
þúsund krónur á hvert mannsbarn og
erlend lán eru tekin til að borga af
erlendum lánum?). Norðmenn, svo
tekið sé nærtækt dæmi, taka gjald af
NATO, en þrátt fyrir það hljóta þeir
að teljast mun sjálfstæðari efnahags-
lega en íslendingar.
Ari Eggertsson,
menntaskólanemi.
MEÐ ÞÖKK FÝRÍR KERFIÐ
Því hefur oft verið haldið fram, að
hinn almenni vinnandi borgari þessa
lands sé ekki mjög uppnæmur þótt á
ýmsu gangi meðal þeirra manna sem
mest láta á sér bera í ræðum og riti
jafnvel þótt um hann sjálfan sé fjallað
og með kjör hans leikið á hinu póli-
tíska leiksviði.
Langur vinnudagur og erfitt starf
verkamannsins ásamt tilfinningu um
hvað launaumslagið er þunnt á föstu-
dagseftirmiðdeginum elur ekki á bar-
áttuþrekinu yfir helgina, enda timan-
um þá oft variö í að finna út hvernig
endar skuli ná saman. Trúlega hafa
margir bundið vonir sinar við, að út-
reikningar „sérfræðinga” okkar há-
þróaða samfélags og allar áætlanirnar,
sem á þeim hafa verið byggðar, af
þeim sem fyrir þjóðinni ráða, fari nú
senn að bera þann árangur, að á
morgun eða hinn daginn eða eftir
næstu mánaðamót í síðasta lagi fari
nú að hilla undir betri íma og venju-
legir menn sem vinna störf til lands og
sjávar geti lifað af kaupinu sínu Hvaða
erindi ættu svo sem bollaleggingar
minar eða þinar inn í umræður spek
inga sem allt virðast vita?
Eigum að trúa þeim
stífpressuðu
Við erum auðvitað bjálfar að skilja
það ekki, að okkur eiga að duga
fyrir okkar lítilmótlegu störf- með
skóflu eða skúringafötu, á vinnuvél, í
moldarflagi, í fjósi og á bátadekki, þau
laun sem efnahagssérfræðingarnir
segja að okkur nægi. Við eigum að
trúa þessum hámenntuðu, stroknu,
stífpressuðu mönnum, sem koma svo
einstaklega vel fyrir í sjónvarpinu og
sem eru svo duglegir að stjóma fjár-
málum þjóðarinnar, að verðbólgan fer
Kjallarinn
Sigurður Óskarsson
ekki yfir 60% á ári þrátt fyrir óhófs
kröfur okkar. Það eru líka þessir sömu
kallar sem eru svo duglegir að útvega
þjóðinni lán í útlöndum, að hvert
mannsbarn á landinu skuldar nú upp-
hæð sem jafngildir andvirði íbúðar
fyrir nokkrum árum. Þeir gæta þess
líka. að ganili erkióvinur okkar, at-
vinnurekandinn, græðir ekki lengur á
tá og fingri. Þeir skipuleggja kerfið
sem sem sér fyrir því, að hann fær
magasár á skömmum tima við fjár-
magnsreddingar og vixlabasl. Þeir
sjá fyrir þvi að hann skili innheimtu
rikisins á a.m.k. eindaga.
Þessir sömu efnahagssérfræðingar
finna það líka út,.að þingmenn okkar,
ráðherrar, bankastjórar og kommis-
arar og aðrir sem vit hafa fyrir okkur
eru ekki ofsælir i sínum ábyrgðamiklu
stjórnarstörfum af fimm- til áttföldum
launum almenns verkamanns. Sömu ’
menn fá bílana sina með tollaafslætti
eða ókeypis og sumir bílstjóra í ofaná-
lag. Það er svona erfitt að stjórna
okkur og því fylgir svo mikil ábyrgð.
Þingmennimir og hinir bilaneytend-
urnir sem ráða opinberlega og skrifa
undir plöggin, þeir eru auðvitað sam-
mála þessu enda manna kunnugastir
þvi hve þreyttir þeir eru við þessi störf,
sem þjóðin neyðir þá út i a.m.k. fjórða
hvert ár. Þeir launa sérfræðingunum
sínum dyggilega með þvi að sam-
þykkja þeim áljka hýru og jseir sjálfir
hafa og samþykkja meira af sér-
fræðingum. Það þarf fullt af sér-
fræðingum til þess að byggja yirkjanir
þar sem engin orka er fyrir, það skilja
meira að segja við almúgamennirnir
að slíkt hlýtur að þarfnast kunnáttu.
Það þarf sérfræðinga til þess að ná
heitu vatni upp úr jörðinni við efri
endann á hitaveiturörunum sem lögð
voru í fyrra. Það þarf sálfræðing í
helst hvern hrepp og kaupstað á land-
inu svo við getum gengið úr skugga
um hvort við séum vanvitar. Svo þarf
sérfræðinga til þess að hræra i skóla-
málum okkar. þannig að blessuð
börnin viti ekki að vori með hvaða
reikningsaðferð á að leggja saman tvo
og tvo að hausti og alveg sé nú úti-
lokað að við heimskir foreldrar getum
notað þær vitlausu aðferðir, sem í
þessum fræðum tiðkuðust á okkar
skóladögum, til þess að hjálpa börnun-
um okkar. Að foreldri kenni barninu
sínu að stafa hef ég enga trú á að
nokkur vogi sér lengur þvi það er full-
yrt af sérfróðum skólamönnum að það
geti jafnvel dregið úr andlegum þroska
barnsins að nota þá úreltu aðferð og
um stafsetningartilsögn er ekki að
ræða meðan setan er eitt höfuðmál
innan veggja þinghússins.
Ég nenni ekki lengur að telja upp
greinar i „sérfræðingabyltingu” okkar
þjóðar eða rekja feril hennar. Auð-
vitað kostar svona frábært skipulag og
öll ábyrgðarstörfin, hina fáu sem
vinna gamaldags vinnuna við fram-
leiðslustörfin talsvert fjármagn.
Háskólinn, okkar óskabarn, sér um út-
gáfu lögfræðinga í ríkum mæli til þess
að annast rukkun gegn hæfilegri þókn-
un en trúlega ekki riflegri því flestir
drýgja þeir tekjur sínar með þvi að
selja hús á opinberum vettvangi. Lög-
fræðingar eru nothæfir í svo margt af
því að þeir hafa pappíra upp á að þeir
skilji reglugerðirnar sem þeir sjálfir
semja fyrir menningar- og sérfræði-
þjóðfélagið okkar. Tannnlæknar t.d.
skilja ekki neitt slíkt og þess vegna
m.a. er óskabarnið okkar, Háskólinn,
ekkert að spreða út tannlæknum enda
hefur almenningur í dag engin efni á
bruðli eins og þvi að láta gera við tenn-
urnar i sér.
Haldið bara áfram
Það er búið að koma málum okkar í
gott horf. Haldið bara áfram þið sem
þjóðinni stjórnið að treysta best ráð-
um jjeirra sem búnir eru að hanna
þetta allt fyrir okkur og þið að skrifa
undir. Fyllið landið af nógu mörgum
sem hafa sérmenntað sig i því að vinna
sem minnst fyrir sem mest. Prentið
meira af verðlausum seðlum svo
áfram megi fjölga bönkunum og úti-
búunum. Hækkið laun arkitekta og
verkfræðinga úr 6 þúsund krónum á
klukkutímann i 100 þúsund krónur á
klukkötimann svo þeir geti dundað sér
við að hanna hús og mannvirki önnur,
sem enginn bygginga- eða verkamaður
ræður við að byggja fyrir hornum og
skúmaskotum. Stofnið stóra fjöl-
menna sinfóníuhljómsveit og byggið
yfir hana herlega höll svo hljómlistar-
menn okkar geti sungið og spilað kerf-
inu okkur til dýrðar. Reisið glæsta
bókahlöðu með mörgum rannsóknar-
stofum fyrir sérfræðinga í bókmennt
um, þjóðháttarfræðum, sagnfræðum
og öllum mögulegum fræðum helst
svo fullkomna að afkomendur okkar
viti hvernig ropinn í okkur var á litinn
þegar búið er að efnagreina hann.
Haldið áfram að hlíta ráðum sér-
fræðinganna sem allt vita, skilja og sjá
— nema ef einhverjum glæpamanni
dettur i hug að stela tugum milljóna
sem þjóðin geymir undir rassinum á
þeim, það skilja þeir ekki né sjá.
Að lokum þetta i þetta sinn:
Samtök okkar verkafólks, Verka-
mannasambandið og verkalýðsfélögin
innan þess, voru stöfnuð af launþeg-
um úr öllum stjórnmálaflokkum á
árum fyrir „sérfræðinga-byltinguna”,
á tímum þegar magasárslausir bissnis-
menn fyrirfundust i þessu landi og
fyrirtæki þjóðarinnar voru meira en
innheimtuapparöt. Ef þessi samtök
með fullkomlega löglegum aðgerðum
freista þess nú að gegna skyldu sinni,
þ.e. að semja um þau lágmarkslaun
svo félagsmenn fái lifað, þá rísa upp
spekingar sem allt vita og um allt
skrifa og nefna sig Svarthöfða eða eitt-
hvað annað. Illa teknar.og fókuslausar
myndir af andstæðingi verkafólks
nr. 1 formanni sjálfum Verkamanna-
sambandsins Guðmundi J.
Guðmundssyni, eru einskonar pipar
og salt á málsverð sem þessir letúrbras-
arar framleiða. Upptalning réttanna
a.m.k. i Svarthöfðagrein Vísis 6. þessa
mánaðar er efnislega eftirfarandi:
„Kæra verkafólk nú er kommadraslið
sem öllu ræður i samtökum verkafólks
á íslandi að telja ykkur trú ur.i, aö
launin sem útreiknað er að dugi
ykkur, séu of lág.” Ég ei ekki komnv
únisti, þótt ég tilheyri verkamanna-
stéttinni en af svona málsverði
verður mér bumbult.
Það eru ekki allir félagsmenn
íslensku- verkalýðsfélaganna komm-
únistar og verða það ekki. Kom-
múnisminn hefur ekki fært verkafólki
gæfu I þeim löndum, sem jveir ráða
ríkjum i. En rúmlega eitthundrað
þúsund krónu mánaðarlaun duga
sjálfstæðismanni i verkalýðsstétt
ekkert betur til lífsframfæris en
kommúnista.
Sigurður Óskarsson
framkvæmdastjóri Verka-
lýðsfélagsins Rangæings
Offsetprentari
óskast
Óskum eftir að ráða prentara á offsetprentvél
frá og með 1. maí. Uppl. gefur yfirverkstjóri.
Prentsmiðjan Hilmir
Síðumúla 12.
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notaöra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
' Peugeot 204 árgerð '69. Fiat 850 sport
árgerð'72. Fiat 128 árgerð '72.
Merzedes Benz árgerð '65.
Benz 319 dísil. Volvo Amason.
Einnig höfum við úrval afkerruefni,
tildæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 11397