Dagblaðið - 14.04.1978, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978.
19
Nú leikur þú á ný,
P°Hi Gangi þér vel
Strax eftir sólaruppkomu koma liðin á völlinn.
Okkur þarf öllum
aðgangavel, •;
Bommi.
[LÚCHO
OLlVéBH-
7--21
SigrarVíkingur—
eða setja ÍR-ingar
strik í reikninginn?
Þýðingarmikill leikur verður i 1. deild Islandsmðts-
ins i handknattleik i kvöld i LaugardalshöU. Þá leika
ÍR og Vikingur og hefst leikurinn kl. 20.00. Sigri Vík-
ingar i kvöld þurfa þeir eitt stig i siðasta leik sinum á
mótinu — gegn Val á miðvikudag — til að hljóta
Íslandsmeistaratitilinn.
Fyrri leikur liðanna á mótinu var mjög jafn lengst-
um — en á lokamínútunni tókst ÍR að vinna upp
tveggja marka forskot Vikings með þvi að skora tvi-
vegis úr vitaköstum. Leikir þessara liða undanfarin ár
hafa yfirleitt verið mjög jafnir — og ekki þarf að efa
að svo verður einnig i kvöld. Strax að leiknum loknum
leika Vikingur og Armann i I. deild kvenna — auka-
leikur i sambandi við neðstu sætin.
Hill til Derby
Enski landsliðsútherjinn hjá Manch. Utd. —
Gordon Hill — var í gær seldur til Derby County fyrir
275 þúsund sterlingspund. Hill er markhæsti
leikmaður United á leiktimabilinu —hcfur skorað 18
mörk. Nokkur þeirra úr vitaspyrnum. i leiknum
Arsenal og-Manch. Utd. á Highbury á dögunum var
Hill tekinn út af og likaði það illa. Dave Sexton, fram-
kvæmdastjórí United, ætlaði svo að velja hann I næsta
leik — gegn QPR — en hætti við það eftir að hafa
rætt við Hill. Síðan tilkynnti Sexton að Hill gæti farið
frá félaginu.
Stjóri Derby, Tommy Docherty, var fljótur til að
draga fram tékkheftið—en varð þó að hækka upp-
runalegt boð sitt I 275 þúsund sterlingspund vegna
samkeppni frá Birmingham. Þegar Docherty var stjóri
Manch. Utd. keypti hann Hill frá Millwall fyrir 70
þúsund pund seint á árinu 1975 — og Hill náði þar
strax góðum árangri, sem varð til þcss að hann var
valinn i enska landsliðið. Eftir að Hill hafði undirritað
samning við Derby i gærkvöld sagði Docherty. „Að
láta Gordon frá sér eru mestu mistök sem Manch.
Utd. hcfur nokkru sinni gert — þegar frá er skilið að
láta mig fara!”
LubanskiíHM-
liði Póllands
Frægasti knattspyrnumaður Póllands, Wlod-
zimierz Lubanski, sem leikur með belgiska liðinu
Lokeren, var i gær valinn I 40-manna landsliðshóp
Póllands. Hann gat ekki leikið á HM 1974 vegna
meiðsla. Lubanski er nú þritugur og lék sinn 50. lands-
leik gegn írum sl. miðvikudag með góðum árangri.
Fækkað verður f hópnum niður i 22 i næsta mánuði.
Allir kunnustu leikmenn Póllands eru I hópnum nema
Henryk Wieczorek, Gornik Zabrze — og þar eru
heimsfrægir knattspyrnumenn eins og markvörðurinn
Jan Tomaszewski, sem næstum á eigin spýtur sló út
England í forriðlinum 1974, varnarmennirnir Jerzy
Gorgon og Zmuda, og framherjarnir Kazimierz
Deyna, Grezegorz Lato, Andrzej Szarmach, Henryk
Kasperczak svo nokkrir séu nefndir.
Brassarnir léku
séraðlnter!
Landslið Brasiliu í knattspyrnu sigraði Inter-Mil-
anó, eitt frægasta knattspyrnulið Evrópu, með 2—0
f Milanó I gærkvöld. Brasillska landsliðið sýndi snilld-
artakta í leiknum og hafði italska liðið aldrei hina
minnstu möguleika.
Fvrírliðinn Rivelino hafði öll tök á miðjunni ásamt
Cerezo og byggðu upp hverja sóknarlotuna á fætur
annarri á italska markið. Langsendingar þeirra voru
oft stórkostlegar. Svo miklir voru yfirburðir Brasiliu
að markvörðurinn Leao þurfti varla að verja skot í
leiknum. Nunes, sem skoraði sigurmark Brasiliu gegn
Vestur-Þýzkalandi á dögunum, skoraði fyrra mark
Brasiliu i gær eftir 25 mín. Sendi knöttinn í autt
markið eftir að markvörður Inter, Brodon, hafði hálf-
varið skot frá Zico. Siðara mark Brasiliu skoraði
Dirceu á 48. min. með þrumufleyg af 30 metra færi.
Áhorfendur á San Siro leikvanginum i Milanó voru 65
liúsund — en á þessum velli hefur ítalfa tvívegis sigrað
Brasilíu 1956 og 1963.
Borg efstur með
75 milljónirkr.
Sænski tennisleikarinn Björn Borg, hefur unnið sér
inn um 75 milljónir króna — islenzkar — það sem af
er árinu 1978. Hann hefur verið meö langflesta sigra
tennisleikara i ár og því með mestar tekjurnar — eða
með um 100 þúsund dollurum meir en Jimmy Con-
nors. Bandariska tennissambandið gaf út lista i gær
um tekjuhæstu tcnnisleikarana og þeir efstu eru —
talið i dollurum.
Björn Borg, Sviþjóð 293.533
Jimmy Connors, USA, 201,481
Vitas, Gerulaitis, USA, 164.032
Brian Gottfried, USA, 120.769
Roscoe Tanner, USA, 93.553
__________
Sportmarkaðurinn Samtúni 12
. ^
viðlegubúnað — tjöld — svefnpoka — bakpoka —
veiðivörur — golfsett — reiðvörur — hnakka —
gúmmibáta — utanborðsmótor — barnahjól — fullorðins-
hjól o. fl. o. fl.
Athugið! Tekið á móti vörum frá kl. 1-
Opið 1—7 alla daga nema sunnudaga.
ATH! Við seljum næstum allt!
Tökum allar sportvörur
-4 alla daga. Ekkert geymslugjald.
Markaður með ódýrar sportvörur fyrir þig.
O
Samgjam Þróttarsigur
á bikarmeistunim Vals!
rrá lokanöti námskeiösins
Stjórnendur námskeiðsins. Ólafur Oddsson til vinstri og Jón Gunnar Grétarsson.
— á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi
Strákarnir efnilegu i Þrótti gerðu sér
lítið fyrír og sigruðu bikarmeistara Vals
á Melavellinum í gærkvöld 2—1 i
Reykjavfkurmótinu I knattspyrnu. Það
var góður og sanngjarn sigur Þróttar-
liðsins og gefur liðinu allgóða möguleika
á sigri i mótinu. „Stórveldin” tvö að baki
— KR og Valur — og Þróttur er nú i
«fsta sæti á mótinu með þrjú stig ásamt
Vfking og Val. Vikingur hefur þó aðeins
leikið einn leik.
Það var kalt og hvasst á Melavellin-
um, þegar leikurinn fór fram en
strákarnir í Þrótti eru vanir næðingi úr
„sundunum” og lét það ekki á sig fá.
Skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins.
Valur hóf leikinn en Páll Ólafsson,
unglingalandsliðsmaður Þróttar, komst
Fylkisfólk á
námskeiðum
Nýlokið er félagsnámskeiði hjá
tþróttafélaginu Fylki I Árbæ á vegum
félagsmálaskóla UMFÍ og stóð nám-
skeiðið frá 6. marz til 22. marz. Leið-
beinendur á námskeiðinu voru Ólafur
Oddsson og Jón Gunnar Grétarsson.
Námskeiðið sóttu aðaliega félagsmenn
íþróttafélagsins, alis 16 að tölu.
Þetta er annað námskeiðið sem
íþróttafélagið Fylkir stendur fyrir af
þessu tagi, en það er eina iþróttafélagið í
Reykjavík sem haldið hefur slíkt nám-
skeið.
Voru þátttakendur á einu máli um
ágæti siíkrar félagsfræðslu, sem vissu-
lega stuðlar að auknum félagsþroska
þátttakenda.
Viljum við eindregið beina því til
forustumanna íþróttahreyfingarinnar að
gangast fyrir slíkum námskeiðum til að
stuðla að auknu félagsstarfi á höfuð-
borgarsvæðinu.
Dankersen 10. apríl 1978.
Baráttan á toppi sem botni þýzku
Bundesligunnar er nú orðin hörkuspenn-
andi. Grosswallstadt náði nú hreinni
forystu eftir sigur gegn Göppingen, þar
sem Gummersbach náði aðeins jafntefli i
Rheinhausen. Grossvallstadt á þrjá afar
. erfiða útileiki eftir þ.e. i Nettelstedt,
Dankersen og Hiittenberg. Gummers-
bach á öllu léttara prógramm fyrir hönd-
um. Þö gæti siðasti leikdagur ráðið
úrsiitum en þá sækir Gummersbach
Grosswallstadt heim.
Á botninum er spennan jafnvel enn
meiri. Lið Gunnars Einarssonar,
Göppingen, stendur illa að vígi. Ásamt
Dietzenbach er liðið i 10—lL.sæti, en
11. sæti þýðir fall að keppni lokinni. Það
gæti þó farið svo að 12 stig verði dregin
af Rheinhausen vegna júgóslavnesks
leikmanns, er liðið fékk til sín i byrjun
keppnistimabilsins. Júgóslavi þessi, Or-
lonic að nafni, sagðist sjálfur hafa leikið
í marz 1977 í heimalandi sínu, sem þýddi
að hann gat byrjað að leika með Rhein-
hausen í september sama ár (fékk sex
mánaða leikbann vegna félagaskipta).
Síðar kom þó í Ijós að Orlonic lék með
sínu gamla félagi í júní 1977 og var það
því fyrst í desember 1977, sem hann átti
rétt á að leika með sínu nýja félagi.
Þetta mál hefur verið ofarlega á baugi
að undanförnu. Flestir hallast að því að
12 stig verði dæmd af Rheinhausen —
þ.e. þau stig, sem liðið vann sér inn með
þessum leikmanni. — Aðrir segja að
slikt sé ógerningur, þar sem mistökin
liggi hjá þýzka handknattleikssamband-
inu en ekki félaginu OSC Rheinhausen.
Ef svo færi að stigin yrðu dæmd af
félaginu, yrði það að sætta sig við fall.
Annað er óumflýjanlegt. Úrslit leikja
siðustu helgar urðu sem hér segir:
Kiel-Húttenberg 21—14
Rheinhausen-Gummersbach 19—19
Dankersen-Derschlag 24—23
Dietzenbach-Hannover 17—14
Grosswallstadt-Göppingen 21—16
Hofweier-Nettelstedt 22—18
Neuhausen-Milbertshofen 15—19
Ostseehöllin í Kiel var enn einu sinni
yfirfull af áhorfendum — sex þúsund og
fimmhundruð manns, sem sáu bezta leik
Kiel á keppnistimabilinu. Húttenberg
átti aldrei möguleika gegn ákveðnum
heimamönnum með markvörðinn övtel
sem besta mann. Fyrir leik þennan
losaði Kiel sig við þjálfarann Seles.
Fjögur önnur lið, öll í fallhættu, hafa
einnig sagt þjálfurum sínum upp.
Gummersbach var óheppið að ná ekki
sigri i Rheinhausen. Forystu hafði liðið
allan tímann en missti knöttinn tvisvar í
lokin á mjög svo klauflalegan hátt og
Rheinhausen náði að jafna við mikinn
fögnuð þrjú þúsund áhorfenda. Beztur
hjá Gummersbach var Deckarm. Stjórn-
aði spilinu og skoraði sjö mörk. Rhein-
hausen tók til þess ráðs að taka Wunder-
lich frá byrjun úr umferð. Við það
losnaði náttúrlega um Deckarm, sem
notaði sín tækifæri vel.
Dankersen vann eitt af botnliðunum
Derschlag með 24—23. Sigur Danker-
sen varð þó öruggari en úrslitin gefa
til kynna. Eftir að hafa leitt 5—1, 8—4
' og 9—6 var liðið að sætta sig við jafn-
tefli 10—10 I hálfleik. Júgóslavinn
Lavrnic reyndist vörn Dankersen afar
erfiður t þessum hálfleik. Skoraði úr
hverju skoti. Átta af tíu fyrstu mörkum
Derschlag. í seinni hálfleik tók Danker-
sen til þess ráðs að elta Lavrnik og tókst
það vel. Dankersen náði forystu. Leiddi
14-12 16-13, 18-14, 21-16 er 8
minútur voru til leiksioka. Derschlag
saxaði á forskotið í lokin án þess þó að
eiga möguleika á því að jafna. Hjá
Dankersen skoruðu þessir mest Axel og
Waltke 6 hvor, Ólafur 4, og Grund 3.
Lavrnic skoraði 10 mörk fyrir Dersc-
hlag og var yfirburðarmaður síns liðs.
Það sýndi sig í Dietzenbach að PSV
Hannover getur ekki lifað á Einari
Magnússyni einum. Einar átti stórleik.
En það dugði skammt þar sem aðrir leik-
menn eru einfaldlega of slakir. Staða
liðsins i deildinni segir mest um það.
Einar Magnússon hefur sýnt stórgóða
leiki með Hannover á þessu keppnis-
tímabili. Hann -hefur þó átt við meiðsli
að stríða. Gat ekki leikið mikilvæga leiki
og liðið stendur nú með 10 stig í næst-
neðsta sæti. Sem sagt fallið. í leikrium
gegn Dietzenbach skoraði Einar 8 mörk.
Göppingen rak þjálfarann Singer í síð-
ustu viku.Erwin Blum stjórnaði liðinu í
leiknum gegn Grosswallstadt. Eins og
búast mátti við tapaði Göppingen fyrir
efsta liði deildarinnar. Göppingen var þó
vel með til að byrja með. Staðan í hálf-
leik 10—9 Grosswallstadt í vil. Yfir-
burðir Grosswallstadt komu þó I Ijós
fljótlega I seinni hálfleik. Sérstaklegá var
„heimsmeistarinn” Klúhspiess
Göppingenmönnum erfiður. Úrslit 21—
16. Klúhspiess var með 10 mörk, mark-
hæstur hjá heimaliðinu, en Gunnar
’ Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Göpping-
en.
Hofweier náði góðum leik gegn
Nettelstedt og sigraði örugglega 22—18.
Mesta athygli vakti þó stórgóður leikur
hins 36 ára gamla Herbert Lúbkings hjá
Nettelstedt. Hann er allt I öllu, Stjórnar
spilinu af röggsemi og skorar flest mörk.
1 Hofweier skoraði hann 12 mörk, þar 7
júr vítaköstum. Það er því engin furða
þó áhangendur Nettelstedt séu áhyggju-
Ifullir vegna framtíðarinnar þvi Lúbking
ætlar að leggja skóna á hilluna i vor.
Arno Ehret var stórgóður hjá Hofweier,
skoraði 10 mörk og I vörninni náði hann
að gera hornamanninn hættulega hjá
Nettelstedt, Heinar Möller, óvirkan.
Með sigri sínum í Neuhausen náði
Milbertshofen að forða sér endanlega frá
falli. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð.
Staðan eftir 22 umferðir er nú þessi:
Grosswallstadt2l
Gummersbach21
Dankersen 20
Húttenberg 22
Hofweier 22
Milbertshofen 22
Rheinhausen 22
Nettelstedt
Kiel
Göppingen
Dietzenbach
Derschlag
Hannover
Neuhausen
22
21
22
22
21
22
22
390-312 35
393- 320 34
334-301 28
358-330 27
388-365 24
366-367 23
410-429 22
394- 366 21
340-347 20
357-359
353-385
362-386
299-378
322-421
18
18
15
10
7
inn I sendingu — renndi sér upp völlinn,
gegnum vörn Vals og á vítateigsbrún-
inni spyrnti hann fast á markið.
Knötturinn sveif efst í markhornið —
óverjandi fyrir Ólaf Magnússon, mark-
vörð Vals.
Þrumubyrjun. Valsmenn héldu þó
alveg ró sinni og um miðjan hálfleikinn
tókst Atla Eðvaldssyni að jafna með
góðu skoti frá vítateig. Flestir héldu nú
að bikarmeistararnir mundu ná yfirtök-
um í leiknum. En það var öðru nær.
Þróttarar voru ekkert á þeim buxunum
að gefa eftir og á 35. mín. skoraði Úlfar
Hróarsson með skoti af alllöngu færi.
Það reyndist sigurmark leiksins. Úlfar
lék með Val í fyrrasumar.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leikn-
um — en spenna var til loka. Þrátt fyrir
góðar tilraunir tókst Val ekki að jafna
eða Þrótti að auka við forskot sitt.
Miðað við aðstæður var leikurinn
þokkalegur á íslenzkan mælikvarða og
það getur orðið gaman að fylgjast með
Þróttarliðinu i sumar. Þar eru margir
ibráðefnilegir leikmenn — og Valsmenn
standa örugglega fyrir sínu í sumar,
þrátt fyrir þetta óvænta tap.
A jax í úrslit
íHollandi
Ajax Amsterdam sigraöi Sparta
Rotterdam 2—0 í Amsterdam í gær-
kvöld og tryggði sér þar með rétt i úrslit
hollenzku bikarkeppninnar. Sparta
sigraði i fyrri ieik liðanna — í Rotterdam
— með 2—1. Ekkert mark var skorað i
fyrri hálfleik í gærkvöld en i þeim síðari
skoruðu Schoenaker og Geels fyrir
Ajax. í úrslitum leikur Ajax annað hvort
við AZ ’67 eða Excelsior — en leik þess-
ara liða, sem vera átti i gær, var frestað.
Verður leikinn 19. apríl — en úrslita-
leikurinn fer fram 4. mai.
Killaninhættir
„Ég óska ekki eftir þvi að verða
endurkjörínn formaður alþjóða-ólympiu-
nefndarinnar, þegar kosið verður f
Moskvu 1980,” sagði Killanin lávarður
á blaðamannafundi i Mexikö-borg i gær.
„Ég hef ekki sótzt eftir endurkjöri
þau átta ár, sem ég hef verið formaður
nefndarinnar, og þó mér hafi fallið
starfið vel þá hefur það verið mjög erfitt.
Eftir leikana í Montreal fékk ég
aðkenningu aö hjartaslagi — og v.erð
þvi ekki framar f framboði,” sagði lá-
yarðurinn ennfremur.
Bikarúrslit
íblakinu
Úrslitaleikurinn i bikarkeppni Blak-
sambands íslands fer fram á morgun og
hefst kl. 13.30. Það verður siðasti stór-
leikurinn f blakinu á keppnistimabilinu
og enn einu sinni verða Stúdentar og
Þróttur i baráttunni. t undanúrslitum
sigruðu Stúdentar UMFL með 3—1 og
Þróttur sigraði UMFS, einnig með 3—
1. Keppt er um veglegan bikar, sem
Smjörlfki h/f gaf til keppninnar. Ljóma-
bikarinn og Þróttur er handhafi hans.
Varð bikarmeistari í fyrra.
Ársþing Blaksambands íslands verður
háð um helgina. Hefst kl. 16.00 á laug-
ardag og verður fram haldið á sunnudag
kl. 10.30.
slenzku þátttakendurnir, sem keppa í borðtennis í Hróarskeldu ásamt félögum úr Lionsklúbb Reykjavikur og Kiwanisklúbbnum Esju, og konum úr stjórn Líknarsjóðs
kirkjunefndar kvenna í Dómkirkjunni, sem færðu íþróttafélagi fatiaðra gjafir.
„Að vera þátttakandi
er stærsti sigurinn”
Sex félagar úr íþróttafélagi fatlaðra keppa í borðtennisí Hróarskeldu um helgina
„Ákveðið er að hefja framkvæmdir i
vor við að byggja upp útiíþróttasvæði á
lóðinni hér við Hátún 12,” sagði Arnór
Pétursson, formaður íþróttafélags
fatlaðra, á fundi sl. miðvikudag, þar sem
starfsemi félagsins var kynnt. Hópur
íþróttafólks úr félaginu fór utan í
morgun til keppni i Danmörku — og
félagsmenn munu taka þátt í fleiri
mótum á næstunni. Sigurður Magnús-
son, útbreiðslustjóri ÍSÍ, skýrði frá
þessum mótum og gat þess jafnframt, að
næsta verkefni íþróttasambands tslands
væri að ná til andlega fatlaðs fólks — að
stofna íþróttafélög fyrir þroskahefta og
vangefna.
Á fundinum á miðvikudag bárust
íþróttafélagi fatlaðra góðar gjafir frá
Líknarsjóði kirkjunefndar kvenna i
Dómkirkjunni, Lionsklúbbi Rcykjavíkur
og Kiwainisklúbbnum Esju. Hér á eftir
fer það helzta úr ræðu Arnórs Péturs-
sonar á blaðamannafundinum.
Upphaf og
undirbúningur
„Að frumkvæði ÍSÍ var á miðju ári
1973 sett á fót nefnd til að undirbúa
þátttöku fatlaðra í íþróttum. í þessari
nefnd eru Sigurður Magnússon frá ÍSÍ,
Guðmundur Löve frá öryrkjaþandalagi
tslands og Trausti Sigurlaugsson frá
Sjálfsbjörgu landssambandi fatlaðra. Að
frumkvæði þeirra og tSÍ var ÍFR
stofnað 30.5 74 og ÍFA stofnað 7.12. 74.
Á undanförnum árum hefur verið
unnið markvisst að uppbyggingu og
eflingu iþrótta fatlaðra auk mikillar
Ikynningarstarfsemi að frumkvæði ÍSÍ og
hefur tFR verið virkur þátttakandi i því
starfi. ^ ]
Frá starfsemi ÍFR
Sem fyrr segir var ÍFR stofnað 30.5.
74. Stofnfélagar voru um 40. í félaginu í
dag eru um 150 manns og eru um 30
þeirra ófatlaðir, en í lögum félagsins
segir: félagsmenn geta orðið allir þeir
sem áhuga hafa á íþróttum fatlaðra.
Hjá félaginu eru æfðar eftirtaldar
íþróttagreinar: Sund, boccia, bogfimi,
curling, borðtennis, lyftingar og lítillega
hafa verið æfð köst.
Þjálfarar félagsins eru Kristjana Jóns-
dóttir sund, Sveinn Áki Lúðvíksson
borðtennis og Július Arnarson aðrar
greinar, en hann hefur verið hjá félaginu
frá upphafi. Einnig hefur Erling
Jóhannsson þjálfað þátttakendur fyrir
sundmót erlendis. Borðtennis er æft 2-3
tíma sex sinnum i viku, lyftingar 2-3
tima fimm sinnum í viku, curling og
boccia 2-3 tima þrisvar í viku. Þessar
greinar eru æfðar í tveimur sölum i húsi
Sjálfsbjargar að Hátúini 12. Bogfimi er
æfð 2 tima tvisvar í viku i anddyri
Laugardalshallar, sömuleiðis sund i
Skólalaug Árbæjar, en séræfingar vegna
sundmóta allt aö sex sinnum i viku í
Sundlaug Vesturbæjar.
Nýtt íþróttasvæði
A síðasta ári fékk ÍFR leyfi Sjálfs-
bjargar til að byggja upp útiiþróttasvæði
á lóðinni hér við Hátún 12. Teiknistofan
Ármúla 6 s.f. hannaði iþróttasvæðið,
sem siðan var samþykkt af bæði íþrótta-
ráði Reykjavikur og íþróttanefnd
ríkisins og endanlega samþykkt til fram-
kvæmda sem nýtt íþróttamannvirki á
síðustu fjárlögum. Kostnaðaráætlun
gerð í september sl. hljóðaði upp á
irúmlega 30 milljónir.
Ákveðið er að hefja framkvæmdir nú
í vor og æskilegt er að hægt verði að
Ijúka þeim á sem skemmstum tima. bæði
vegna mikillar þarfar og eftir þvi sem
verkið er lengur í framkvæmd verður
það dýrara. Formaður framkvæmda-
nefndar er Ríkharður Steinbergsson, en
hann er einnig félagi i Lionsklúbbi
Reykjavíkur. Aðrir í nefpdinni eru Guð-
mundur Löve. Vigfús Gunnarsson.
Arnór Pétursson og Júlíus Arnarsson.
Utanaðkomandi
stuðningur
Þetta er ekki i fyrsta sem
klúbbar þessir koma við sögu ÍFR.
Er félagið var stofnað gaf Lions-
klúbburinn Freyr öll æfingatæki til
félagsins og hefur félagið óverulega
þurft aö endurnýja og bæta þau. Á
síðasta ári gaf Lionsklúbbur Reykja-
víkur félaginu I milljón kr. til fram-
kvæmda við væntanlegt útiíþróttasvæði,
var þessa fjár aflað með happdrætti og
sýndu þeir einstakt fordænti því félaginu
gafst tækifæri til að taka þátt i sölu
happdrættismiðanna. Kiwanisklúbb-
urinn Esja gaf félaginu stóra fjárupphæð
er félagið var stofnað og einnig hafa þeir
gefið félaginu alla bikara sem keppt er
um í innanfélagsmótum félagsins. Lions-
klúbburinn Njörður hefur gefið
verðlaunapeninga í sömu mót auk
stuðnings i mörgum myndum. Loks er
að geta I millj. króna gjafar frá starfs-
mannafélagi Sigöldu og ýmsar minni
gjafir hafa einnig borizt félaginu.
Stjórn iFR er þessum klúbbum og
“iðrum, sem hafa sýnt félaginu stuðning,
þakklátari en orð fá lýst, en þar sem
þessir klúbbar hafa allir komið við sögu
félagsins áður, lítum við jafnframt á
þessar gjafir sem traustsyfirlýsingu á
það, sem við höfum verið að gera undan-
farin ár. Því þessir aðilar hafa fylgzt með
starfi félagsins og væru varla að veita
því slíkan stuðning nema þeir hafi séð,
að fyrri gjafir þeirra hafi komið sér vel
og verið nýttar vel og skynsamlega til
eflingar íþróttum fatlaðra. Það er von
okkar og trú að við séum þess megnug
að standa undir því trausti sem okkur er
auðsýnt með þessum gjöfum.
Þátttaka f mótum
erlendis
NM í borðtennis.
Um nk. helgi fer fram i Roskilde í
Danmörku NM í borðtennis fatlaðra. Af
hálfu íslands verða 6 þátttakendur:
Elsa Stefánsdóttir,
Guðný Guðnadóttir,
Guðbjörg K. Eiríksdóttir.
Arnór Pétursson,
SævarGuðjónsson.
ViðarGuðnason.
Þjálfarar og fararstjórar verða Sveinn
Áki Lúðviksson, Júiíus Arnarson og
Guðm. Þór Arnórsson.
Þetta er i fjórða sinn sem fatlaðir
iþróttamenn taka þátt i mótum erlendis.
Fyrsta þátttakan var á alþjóðlegum
leikum í Svíþjóð í nóv. 1976. Þar
kepptu tveir sundmenn og hlutu þriðja
og fjórða sæti í sínum flokkum, annað
skiptið var á heimsleikum fatlaðra i
Stoke Mandeville í Englandi sl. sumar.
Þar kepptu fimm manns, í sundi,
borðtennis. lyftingum og spjótkasti og
unnust þrenn bronsverðlaun, tvenn i
sundi og ein í lyftingum. Þriðja mótið
var svo NM i sundi í Þrándheimi i
Noregi i nóv. sl. þar keppti þrennt og
unnust tvenn silfurverðlaun og tvenn
bronsverðlaun.
N.M. í lyftingum
6.-7. maí nk. fer fram NM I lyf-
tingum fatlaðra hér i Reykjavík. ásamt
norrænu kynningarmóti í Boccia. en það
er lítt þekkt iþróttagrein hérlendis, sem
hentar einkar vel fötluðu fólki.
Þátttakendur verða frá öllum Norður-
löndunum, samtals u.þ.b. 70—80 og
meðal þeirra eru mestu afreksmenn
heimsins í lyftingum (bakpressu).
Þar sem ekkert sérsamband í íþróttum'
fatlaðra er til hefur ÍSÍ átt allan veg og
vanda af keppnisferðum þessum.
íþróttasamband fatlaðra á Norður-
löndum var stofnað á íslandi i sept. 1976
og er ÍSÍ aðili að þvi fyrir hönd fatlaðra
iþróttamanna á tslandi.
Varla þarf að taka það fram, að
iþróttir fatlaðra á Islandi hefðu ekki
þróast svona hratt á stuttum tima nema
vegna þess að til kom mikill skilningur
almennings og forystumanna ÍSÍ sent
hafa veitt i þetta fé og ómældri vinnu og
tima, einnig ber að þakka stuðning og
skilning ríkisvalds og borgarstjórnar.”
Sþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir