Dagblaðið - 22.04.1978, Síða 1

Dagblaðið - 22.04.1978, Síða 1
friálst, úháð dagblað 4. ÁRG. — LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978 — 84. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI27022. Fluttu inn 20 kg af hassi: Söluverðmætið nær 30 millj — ekkerteftiraf fénu sem m.a. fór íþriggja mánaða heimsreisu höfuðpauranna Uppjýsi hefur verið um innflutning og dreifingu á nær 20 kg af hassi og 200 grömmum af amfetamíndufti. Lætur nærri að söluandvirði þessara fikniefna nemi um 30 milljónum króna. Lagt hefur verið hald á aðeins um 2 kg af hassi að þvi er segir I fréttatilkynningu frá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavik. Þctta er stærsta einstaka fikniefna- mál sem komið hefur upp hérlendis. „Stóra málið" svokallaða, sem upp kom 1976, var svipað livað varðar magn, en þar komu við sögu fleiri aðilar og raunar tengd saman fleiri mál, að sögn Ásgeirs Friðjónssonar sakadómara í ávana- og fikniefna- málum. Nánast allt þetta magn var flutt inn á siðasta ári. „Mestur hluti þess- ara efna var fluttur til landsins frá Hollandi, en einnig nokkuð frá Dan- mörku,” segir í fréttatilkynningu fíkniefnadeildarinnar. „Efni þetta var að talsverðu leyti flutt inn.í sjónvarps- tækjum, sem keypt höfðu verið ný til flutningsins. Þessi fíkniefni hafa verið seld viðá um land en meirihluti þeirra var þó seldur á Reykjavíkursvæðinu og til varnarliða á Keflavíkurflugvelli. Liðlega 100 mai.ns hafa verið yfir- heyrðir vegna rannsóknar málsins, sem teygzt hefur um allt land og til .annarra landa. Sakadómur i ávana- og fikniefna- málum hefur vegna málsins kveðið upp 19 gæzluvarðhaldsúrskurði yfir 15 aðilum, sem hafa verið úrskurðaðir i mismunandi langt gæzluvarðhald, frá alltað 5 dögum og upp i allt að 60 daga." segir i fréttatilkynningunni. Miðað við að rýrnun efnanna hafi verið lítil sem engin eftir að þau bárust til landsins hefur söluverðmætið verið, sem fyrr segir,. um 30 ntilljónir. Kilóið af hassi kostaði á sl. ári i Hollandi að jafnaði unt 200 þúsund krónur. Þessi átjá i kiló hafa Þv'í kostað 3.6 milljónir. Hver hundrað grömm af amfetamíndufti kostuðu í Hollandi á siðasta ári skv. upp- lýsingum DB, um 450 þúsund krónur, eða samtals unt 900 þúsund krónur. Söluverðá hverju grantmi af hassi var að jafnaði á sl. ári unt 1500 krónur, sem þýðir að 18 kiló hafa verið seld á 27 milljónir. Hvert grantm af amfetamíndufti var selt á unt 12 þúsund krónur, eða 200 grömmin fyrir 2.4 milljónir. Rannsókn lögreglunnar hefur ckki leitt i Ijós að nokkuð af þessu fé sé ennþá til. Hafa enda forsprakkarnir. sem eru aðallega þrír. lifað kóngalífi. Þessir þrir fóru m.a. í þriggja ntánaða „heimsreisu” á liðnu ári og liðu aldrei skort á þvi ferðalagi sínu. ÓV. DB alltaf í sókn og nú á hvftum reitum ogsvörtum: FRIÐRIK SKRIF- AR UM SKÁK Friðrik Ólafsson stórmeistari. — fremsti skákntaður okkar íslendinga hefur tekið að sér að skrifa af og til skák- þætti i Dagblaðið. Mun hann skjóta lil okkar greinunt í skákþátt blaðsins úm eitt og annað sem rekur á fjörur hans úr skákheiminum. Fyrsta grein hans er á bls. 9 í DB í dag — Skákhorn Friðriks Ólafssonar. Fyrirsögnin er Karpov tek- inn í karphúsið. Friðrik Ólafsson. Tillaga um nýja stjórnarskrárnefnd: „Stjórnarskrár- nefnd óstarfhæf’’ „Stjórnarskrárnefnd hefur engum til- lögum skilað og virðist að mestu óstarf- hæf,” segir allsherjarnefnd Sameinaðs þings og leggur til að umboð stjómar- skrárnefndar verði felll niður. Hin um- deilda nefnd lýtur forystu Hannibals Valdimarssonar fyrrum ráðherra og var skipuð árið 1972 lil að gera athugun á hugsanlegum breytingum á stjórnar- skránni. Stjórnarskrámefnd hefur sætt mikilli gagnrýni innan þings og utan fyrir seina- gang. Allsherjarnefnd leggur til að skipuð verði ný nefnd, sjö manna eftir tilnefn- ingu þingflokka, tveir frá tveimur stærstu flokkunum og einn frá hverjum hinna, til að taka við hlutverki nefndar Hannibals. Sérstaklega skuli stefm að breyúngum á kjördæmaskipun og kosn- ingalögum. Nefndarmenn segja að óstarfhæfni stjórnarskrámefndar sé ein orsök þess að hinar ýmsu tillögur sem komu fram um breytingar á kosningalögum verði ekki afgreiddar á þessu þingi. - HH Borgames: Fá laun með fullum bótum Ekkert nýtt að gefa feiðamönnum kaffi — sjá baksíðu Hannertrompið okkar. „Mérfinnst ég nota hæðina rétt” — segirPétur„risi” Guðmundsson, 2.17 metrar á hæð „Það er alls ekki erfitl að vcra jafnhá- vaxinn og ég er — 2.17 m. Að visu, stríddu krakkar manni á yngri árum og eins þarf maður að aðlaga sig að ýmsu, svo sem fötum. skóm. hurðum og svo framvegis. En körfuknattleikurinn hefur hjálpað mér, þar er gagn í hæðinni og mér finnst ég nota hæð mina rétt — I körfunni,” sagði Pétur Guðmundsson. hinn geðugi islenzki risi er um helgina hrellir væntanlega önnur lið á NM I körfu hér i Reykjavik. „Þetta er áreiðanlega sterkasta lands- lið sem Ísland hefur teflt fram. Við höfum æft daglega í þrjár vikur og góður árangur á að geta náðst. Ég er farinn að venjast þeirri pressu. sem því fylgir að vera svona hávaxinn i körfunni. Það má auðvitað ekki byggja um of á -einum manni en ég vona að það losni um aðra leikmenn vegna hæðar minnar,” sagði Pétur Guðmundsson ennfremur. Hann var i sviðsljósinu í gærkvöld — er Finnar léku við islendinga á NM. Þvi miður er ckki hægt að birta fréttir af leiknum þar sem blaðið fór svo snemma i premun. H. Halls Eftir æfinguna með landsliðinu í gærdag, — Pétur steikir sér egg hcima í eldhúsi fjölskyldu sinnar. — DB-mynd Hörður. LauniNoregialltuppi 100% i en hér sjá bls. 3

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.