Dagblaðið - 28.04.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
3
TVÆR SKÖTIIR OG
EINN SMOKK - TAKK
Bervottumlítið hugmyndaflug að hafafiskamyndirá
nýju myntinni segir bréfritari
Jón Svcinsson Hnifsdal hringdi:
Þar sem meginþorri íslendinga
vinnur i fiski allan daginn finnst
manni lítið gaman að hafa myndir af
fiskum á nýju myntinni. Þykir það
frekar lítið hugmyndaflug að láta sér
ekki detta annað en fiskar í hug til þess
að skreyta myntina. Þokkalegt verður
þegar fólk fer að tala um að eitthvað
—
kosti tvær skötur og einn smokk. Hin
hliðin á myntinni finnst mér ágæt.
En í sambandi við seðlana þá er ég
hræddur um að ég eigi ekki eftir að
handfjatla þá mikið því mér finnst
ekki gott að hafa peningaseðla með
alltof mikilli dýpt I myndinni, vera
með hálfgert málverk fyrir framan sig.
Annars ér uppkastið ágætt af seðlun-
um, en dýptin í myndunum má ekki
vera of mikil.
Þeir sem ég hef rætt við um þessa
nýju mynt eru á sama máli og- ég að
hugmyndin með fiskana á peningun-
um sé afleit. Fleiri eru aftur á móti
ánægðir með seðlana.
Sýnishorn af nýju myntinni.
\
/
Hverfafundir
borgarstjóra
í apríl - maí 1978.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri flytur ræðu og
svarar fyrirspurnum fundargesta
Fundarsljóri: Jóhannst ÓU Garóartton, framkvamdastjóri. Fundarritarar: Sigrún
O. Jónsdóttir, skrifstotumaóur og Gjrtfi Konróósson, blikksmíóamsistari.
Fundarstjóri: Bsrói Frióriksson, hjBstaréttsrlögmsóur. Fundsrritsrsr: Msgnús
Ásgsirsson, vióskiptsfrsBÓinsmi og Rúna Guómundsdóttir, vsrzlunarstjóri.
Fundarstjóri: <
Fundarritarar:
Á fundunum verður:
1. Sýning á líkönum og uppdráttum
af ýmsum borgarhverfum og
nýjum byggðasvæðum.
2. Litskuggamyndir af helztu fram-
kvæmdum borgarinnar nú og
að undanförnu.
Reykvíkingar —
tökum þátt í
fundum borgarstjóra
Nes- og Melahverfi
Vestur- og Miðbæjarhverfi
Sunnudaginn 30. apríl kl. 15:00
Atthagasal — Hótel Sögu.
Fundarstjóri: Höróur Sigurgsstsson, rskstrarhagfrasóingur.
Fundarritarar: Garóar Pálsson, skiphsrra og Hslga Bachmann, Isikari.
Háaleitishverfi Smáíbúða-
Bústaða- og Fossvogshverfi
Miðvikudaginn 3. maí kl. 20:30.
Félagsheimili Hreyfils-Fellsmúla 24 (gengið inn frá Grensásveg)
Laugarneshverfi
Langholt
Þriðjudaginn 2. maí kl. 20:30.
Glæsibær — Álfheimum 74.
Fundarstjóri: Þorstsinn Gístason, skipstjóri. Fundarritarar Óiöf Bsnsdiktsdóttir,
ksnnari og Sigmar Jónsson, framkvnmdastjóri.
Fundarstjóri: Gunnar S. Bjömsson, trésmióamsistari.
Arngrímsdóttir, húsmóöir og Tryggvi Viggósson,
Breiðholtshverfin
Sunnudaginn 7. maí kl. 15:30.
Seljabraut 54.
Árbæjar- og Seláshverfi
Laugardaginn 29. apríl kl. 14:00.
Félagsheimili rafveitunnar v/Elliðaár.
Austurbær og Norðurmyri
Hlíða- og Holtahverfi.
Laugardaginn 6. maí kl. 14:30.
Domus Medica— Egilsgótu 3
Spurning
9
Hvaða bíl
vildirþú
Þórir Aðalsteinsson verkfræðingun
Einna helzt vildi ég eiga BMW. Ég held
að það séu sterkir og góðir bilar.
Ragnhildur Hermannsdóttir hú&móðir:
Minn draumur er að eignast lítinn bíl.
Helzt vildi ég eiga silfurlitaða Hondu.
Hjörtur Pálsson nemi: Ætli ég vildi ekki
eiga BMW. Ég held að það séu góðir
bilar.
Ármann Pétursson aðalbókari hjá toll-
stjóra: Það er enginn vafi á þvi. Það er
Malibu Chevrolet super sport.
Þórir Sigurbjörnsson bilstjóri: Ætli það
sé ekki Alfa Romeo 12 cyl.
Kristln Olafsdóttir nemi^ Ég vil eiga
litinn og sætan Datsun 120A.