Dagblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978. 5 Njarðvík: Lítið breyttur D-listi íbæjar- stjórnar- kosningum Sjálfstæðisflokkurinn I Njarðvik hefur lagt fram framboðslista sinn til bæjarstjórnarkosninganna I vor. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur verið í meiri- hluta I Njarðvík, með 4 af 7 bæjar fulltrúum. Hinir þrir skiptast á Framsókn. Alþýðubandalag og Alþýðuflokk. Listinn er þannig skipaður: 1. Áki Gránz málarameistari, 2. Ingólfur Aðalsteinsson framkvæmdastjóri. 3. Ingvar Jóhannsson framkvæmdastjóri. 4. Július Rafnsson, fiskverkandi, 5. Helga Óskarsdóttir húsmóðir, 6. Karl Sigtryggsson vélgæzlumaður, 7. Ingólfur Bárðarson rafvirkjameistari. 8. Ólafur Júliusson verkstjóri, 9. Krist: björn Albertsson, kennari, 10. Sigríður Aðalsteinsdóttir húsmóðir, 11. Ólafur Magnússon verkstjóri, 12. Guðmundur Gestsson verktaki, 13. Ásbjörn Guð- mundsson pípulagningameistari og 14. Karvel Ögmundsson útgerðarmaður. ÓV. Framsóknarflokkurinn á Sauðárkróki: Marteinn úr mestu baráttunni Marteinn Friðriksson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Sauðárkróki hverfur nú úr mestu baráttunni fyrir flokkinn þvi hann færist niður í 17. sæti listans eftir að hafa verið I fyrsta sæti sameiginlegs lista Framsóknar og Alþýðubandalags. Hinir tveir bæjar- stjórnarmennirnir, sem þessir flokkar hafa átl, eru i fyrstu tveim sætum list- ans. Stefán Guðmundsson framkvæmda- stjóri er í fyrsta sæti. annar er Sæmundur Hermannsson sjúkrahús- ráðsmaður, 3. Magnús Sigurjónsson deildarstjóri, 4. Jón B. Friðriksson skrif- stofustjóri, 5. Ástvaldur Guðmundsson úlvarpsvirki, 6. Stefán Peiersen Ijós- myndari, 7. Sveinn Friðvinsson skrif- stofumaður, 8. Geirmundur Valtýsson skrifstofumaður, 9. Erla Einarsdóttir húsmóðir, 10. Bragi Haraldsson húsa- smiður, 11. Rannveig Bjarnadóttir hús- móðir, 12. Árni Indriðason iðnverka- maður, 13. Ragnheiður Baldursdóttir skrifstofumaður, 14. Pétur Pétursson húsasmiður, 15. Ólína Rögnvaldsdóttir sjúkraliði, 16. Pálmi Stefánsson húsa- meistari, 17. Marteinn Friðriksson fram- kvæmdastjóri og 18. Guðjón Ingimund- arson sundlaugarvörður. í bæjarstjórn á Sauðárkróki sitja 7 menn. 420 atkvæði eru á bak við mennina þrjá sem Framsókn og Alþýðubandalag hafa þar. Almenn sérfargjöld: 8-21 dags fargjöld með sérstökum unglingaafslætti til viðbötar fyrir aldurinn 12 - 22ja ára - sérstökum hóp- afslætti ef 10 fara saman - og nú einnig með sérstökum fjölskylduafslætti til viðbótar. Fjölskylduafslátturinn gildir til allra Norðurlandanna, Bretlands og Luxem- borgar, en „almenn sérfargjöld" gilda annars allt árið til nær 60 staða í Evrópu. Afsláttur samkvæmt „almennum sérfargjöld- um“ getur orðið allt að 40%. Fjölskyldufargjöld: 30 daga fargjöld sem gilda allt áriðtil Norðurlandannaog Bretlands. Þegar fjölskyldan notar þessi fargjöld borgar einn úr fjölskyldunni fullt fargjald (venjulegt fargjald) en allir hinir aðeins hálft. Þótt við sláum mikið af fargjöldunum - þá sláum við ekkert af þeim kröfum sem við gerum til sjálfra okkar um fullkomna þjónustu. Áætl- unarstöðum fjölgar stöðugt og tíðni ferða eykst. Við fljúgum til fjölmargrastaða í Evrópu og Bandaríkjunum á hverjum einasta degi. Þú ákveður hvert þú ætlar og hvenær - viðfinnum hagkvæmasta fargjaldið fyrir þigog þína. FLUGFÉLAC IOFWIDIR . ISLANDS Ekki beinlínis útsala - en mikill afsláttur af fargjöldum og margir afsláttarmöguleikar. Helstu afsláttarfargjöld: LOFTLEIÐAFUJGMENN FLIÚGA „KAUPLAUST’ í TÆPA VIKU... Flugleiöir hf. skulda þeim um 450 frídaga „Flugleiðir skulda flugmönnum á DC-8 þotum félagsins nú um 450 frídaga og við höfum látið þá vita að frá og með 25. þ.m. og fram að mánaðamótum (ryrftum við ekki einu sinni að boða til verkfalls heldur einungis taka út frídagana til þess að stoppa allt flug," sagði Baldur Oddsson hjá félagi Loft- leiðaflugmanna I viðtali við DB. „Það munum við hins vegar ekki gera enda erum við að berjast fyrir því að Norður- Atlandshafsfluginu verði haldið áfram og að við höldum atvinnunni," sagði Baldurennfremur. Kjaradeilda flugmanna á DC-8 þotum Flugleiða og stjórnar félagsins virðist nú vera komin á það stig að ófremdarástand getur skapazt hvenær sem er. „Við höfum minnzt á það í viðræðum okkar við stjórnina að við kynnum að gripa til verkfalls en svörin sem við höfum fengið hjá stjórninni eru á þá leið, að við ættum þá bara að reyna það,” sagði Baldur ennfremur. „Ógreiddir frídagar eru því sterkt vopn í baráitunni en sannleikurinn er sá að okkur er alls ekki Ijóst hvað stjórn félagsins er að fara með þessari afstöðu Forstjórar Flugleiða h.f. eru allir er- lendis um þessar ntundir en Jón Júlíus- son framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs sagði I viðtali % Ið DB að fundur hefði verið haldinn með samninganefnd Félags Loftleiðaflugmanna I gær. Þá væri boðaður annar fundur með samninganefnd FÍA, félagi islenzkra atvinnuflugmanna i dag. Jón var að þvi spurður hvort fram hefðu komið einhverjar verkfallshótanir en hann kvaðst ekkert hafa um þaö hevrt. enda samnineafundir verið haldnir í góðu andrúmslofti, þar sern skipzt hefði verið á skoðunum af vin- sentd og einurð. en um ^erkfallshótanir. kvaðst Jón ekki einu sinni hafa séð þær skrifaðar I vindinn hvað þá heldur heyrt. Spurningunni um ógreidda frídaga svaraði Jón á þann hátt. að hann teldi sennilega hafa saxazt verulega á þá. en visaði þvi máli að öðru leyti til flug- rekstrardeildar. enda væri það spurning um framkvæmd samninga. en ekki gerð þeirra. þótt þeir brönduðust að sjálf- : 3eðu inn i viðræðurnar. - HP DS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.