Dagblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
Erlendar
fréttir
REUTER
Sviss:
Banka-
stjórinn f
gæzluþar
til málið
ferfyrir
rétt
Réttur í Genf i Sviss ákvað að Robert
Leclerc, bankastjóri lítils banka í borg-
inni, skyldi vera áfram í gæzlu yfirvalda
þar til mál hans yrði tekið fyrir 26. júlí
næstkomandi.
Bankastjórinn er ákærður fyrir
óstjórn og falskar upplýsingar en banka
þeim sem hann stjórnaði var lokað að
kröfu yfirvalda eftir að hann lenti í mikl-
um fjárhagskröggum í mai á síðasta ári.
Leclerc var ekki sjálfur viðstaddur
réttarhöldin i gær og sögðu lögmenn
hans hann vera undir læknishendi vegna
hjartveiki.
Yaxandi óvissa um
afdrif AldoMoros
v.
— ekkert heyrzt frá mannræningjunum í fjóra daga
valdarað enneinni árásinniíTónnó
Rauðu herdeildirnar
Italski kommúnistaflokkurinn réðst
í dag harkalega gegn Rauðu herdeild-
unum. mannræningjum Aldo Moros
fv. forsætisráðherra Ítalíu. Flokkurinn
hvatti til harðra aðgerða gegn hryðju-
verkamönnunum og endurtók þá af-
stöðu sína að alls ekki yrði samið við
mannræningjana.
Ekkert hefur heyrzt frá Rauðu her-
deildunum um örlög Aldo Moros, en
nú eru liðnar sex vikur frá þvi að
honum var rænt og fimm lífverðir
hans drepnir. Frá því að Rauðu her-
deildirnar sendu frá sér lista yfir
þrettán fanga sem þær vilja i skiptum
fyrir Moro, fyrir fjórum dögum, hafa
engin skilaboð borizt. Herdeildirnar
hótuðu því að drepa Moro ef ekki væri
farið að kröfum þeirra.
Rikisstjórnin hefur neitað því
algerlega að láta undan kúgunum
mannræningjanna. En Rauðu her-
deildirnar sýndu það i gær, að þær
geta stundað hryðjuverk sín að eigin
vild, þrátt fyrir gífurlega leit lögreglu
og hers og miklar varúðarráðstafanir.
í gær var starfsntaður Fiat verksmiðj-
anna skotinn og særður alvarlega á
fótum fyrir utan heimili sitt í Tórínó.
1 leiðara flokksblaðs kommúnista,
L’Unita. sagði í gær: „Herdeildirnar
vilja skapa ótta, þær vilja sýna að þær
geti skotið hvern sem er. hvenær sem
er og hvar sem er. En það hlýtur að
vera Ijósl, jafnvel blindum manni, að
mannrán Aldo Moros, sem er hið al-
varlegasta hingað til, er aðeins einn
hlekkur i keðju."
Óvissa um örlög Moros hefur auk-
izt. Leiðtogar Kristilega demókrata-
flokksins, sem fer með stjórnartaum-
ana, hittust i gærkvöldi til þess að
ræða. til hvaða bragða yrði gripið til
þess að standa fast gegn kröfum
mannræningjanna.
Gestir, sem hafa heimsótt heimili
fjölskyldu Aido Moros, margir þeirra
nánir vinir Aldo Moros, hafa komið
grátbólgnir aftur af fundi við eigin-
konu hans Eleonoru. Ástandið hefur
versnað enn vegna hringinga manna,
sem ekki nafngreina sig og tilkynna
dagblöðum það að Moro sé að finna á
einhverjum ákveðnum stöðum.
Engin þessara tilkynninga hefur þó
leitt lögregluna nokkru nær í leitinni
að honum.
1 L’Unita, blaði Kommúnista-
flokksins sagði ennfremur að nauðsyn-
legt væri að gefast ekki upp, heldur
gera eitthvað og bíða ekki með hendur
í skauti eftir þvi að hryðjuverkamenn
framkvæmdu hótun sína um að taka
Aldo Moro af lífi.
Leiðarinn var að hluta til svar við
tillögum sósíalista, en leiðtogi þeirra.
Bettino Craxi. lagði til að einhvers
konar samningur yrði gerður við ræn-
ingjana til þess að bjarga lifi Moros. Í
blaði sínu La Republica, sagði Craxi í
morgun að hann væri svartsýnn. en
vildi þó ekki gefast upp.
Elenora Moro, eiginkona Aldo
Moros. Æ meiri óvissa ríkir nú um
örlög eiginmanns hennar og menn
verða vonlausari með hverjum
deginum sem liður um að honum verði
sleppt á lífi. Margir nánir fjölskyldu-
vinir þeirra hjóna hafa heimsótt
Eleonoru undanfarið og komið grát-
bólgnir af þeim fundum. Eleonora og
Aldo Moro eiga fjögur uppkomin
börn.
9
«/
Má ekki bjóða bér far?
Royal Hotel i Tromsö i Noregi býður gesti sfna velkomna með nýrri gerð af bíl, sérbyggðum til flutninga á hótelgestum frá
flugvelli. Vagn þessi kallast „Airport Limosine” og tekur 12 farþega. Hótelið, sem er i eigu SAS flugfélagsins, mun nota bil-
inn til þess að koma vildarvinum sfnum hratt á milli staða. Billinn er nfu dyra og ber vfkingsnafn eins og aðrir farkostir SAS.
Þessi heitir Terje Viking.
JAPANSKUR LEIÐANGUR
KOMINN Á NORÐURPÓLINN
Japanskur leiðangur frá Nihon
háskóla er kominn á Norðurpól inn. en
jjangað fór hann á hundasleðum, að þvi
er japanska fréttastofan Kyodo greindi i
dag.
Fréttastofan sagði að leiðangurinn
hefði komið á Norðurpólinn í fyrradag,
þ.e. miðvikudag, en engar frekari
upplýsingar lágu fyrir um ferðina.
Menn komust fyrst á Norðurpólinn
árið 1909, er tveir bandarískir könnuðir
komusl þangað, en það voru Robert
Peary og Matthew Henson. Samgöngur
eru enn á sama veg og fyrir tæpum
sjötiu árum, þvi þ>eir Peary og Henson
notuðu einnig hundasleða til þess að
komast til fyrirheitna landsins.
Bandaríkin:
Eiturlyfjavandi
íherlandsins
Neyzla eitur-og vanabindandi efna er ódýrari en á heimaslóðum. Taldi hann
verulegt vandamál í bandaríska hern- einnig skipta máli að hermennirnir væru
um að sögn yfirntanna hans. Sérstaklega lausir undan aga heimila sinna og
kveður ranit að þessu í herstöðvum utan fremur hætt við einntanakennd en í
sjálfra Bandaríkjanna. Bandaríkjunum sjálfum.
Eiturlyfjaneytandinn væri venjulega
Þetta kom frarn i skýrslu Vernon reikull og óákveðinn en vildi undir
McKenzie aðstoðarráðherra, sem fer flestunt kringumstæðum alls ekki að upp
með heilbrigðismál innan hersins. um neyzlu hans kæmist. Hann legði þvi
Skýrsluna gaf hann sérstakri nefnd full- mikið á sig til að svo yrði ekki. Þvi væri
trúadeildar bandariska þingsins. sem lika oftast erfitt að gera' sér grein fyrir
kanna á ofneyzlu eiturlyfja. . hve margir eiturlyfjaneytendurnir raun-
Aðstoðarráðherrann sagði að nijög verulega væru.
greinilegt væri að eiturlyfjaneyzla ykist þó væri fullljóst að vandamálið væri
meðal þeirra hermanna, sem sendir fyrir hendi og einnig mætti gera sér
væru til herstöðva utan Bandarikjanna, grein fyrir hvar það væri mest, sagði
þar sem efnin væru auðfengnari og aðstoðarráðherrann.
15% Bandaríkjamanna þurfa
hjálp vegna geðsjúkdóma
U.þ.b. 15% Bandaríkjamanna þurfa
hjálp vegna geðrænna sjúkdóma. að
því er opinber nefnd greindi frá i gær.
Nefndin hvatti til að mjög auknu fjár-
magni yrði varið til þess að berjast gegn
þessu vandamáli. Lagt er til að 50
milljónum dollara verði varið til þess að
annast þessa sjúklinga og 6.3 milljónum
til þess að styðja stofnanir þær, sem fá’st
við lækningar geðsjúkdóma.
Samkvæmt skýrslu nefndarinnar er
árlegur kostnaður við meðferð geðsjúk-
dóma í Bandarikjunum 17 milljarðar
dollara, en það er 12% af heildar-
kostnaði við heilbrigðismál í Bandaríkj-
unum.
Á milli 5 og 15% barna áttu við
geðræn vandamál að striða og sjálfs-
morðum unglinga á aldrinum 15—24
ára hefur fjölgað mjög mikið undanfar-
tnn áratug. Svipuð aukning hefur átt sér
stað varðandi glæpi.
Mjólkurflóð
íVínarborg
Mjólkurflóð truflaði bifreiðaumferð
inn i Vínarborg í gærmorgun á háanna-
timanum, þegar hátt á sjötta þúsund
lítrar runnu út úr tanki flutninga-
bifreiðar, sem þar var á ferð.
Að sögn lögreglu urðu þó hvorki slys
á mönnum né verulegt tjón á eignum.