Dagblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 4
4
........
Alþýðubankamálið:
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
' -----------------
INGIR. HELGASON KREFST RANN-
SÓKNAR VEGNA BLAÐAVIÐTALS
Ingi R. Helgason, hæstaréttarlög-
maður, hefur krafizt opinberrar
rannsóknar vegna aðdróttana og á-
sakana, sem fram koma í tveim tbl.
Vísis fyrr I þessum mánuði. Annars
vegar vegna ummæla Jóns Hallsonar,
fyrrum bankastjóra Alþýðubankans, i
viðtali hinn 17. þ.m. Hins vegar vegna
ritstjómargreinar í sama blaði hinn
22. þessa mánaðar.
Hefur lögmaðurinn ritað sak-
sóknara rikisins, Þórði Björnssyni,
bréf, sem hér fer á eftir í heild:
Hr. saksóknari ríkisins
Þórður Björnsson
Reykjavík
Reykjavík, 24. apríf 1978.
Ég undirritaður, Ingi R. Helgason
hrl., Laugaveg 31 hér i borg, leyfi mér
hér með að snúa mér til yðar, hr.
saksóknari, með beiðni um að
rannsakaðar verði fyrir dómi með
opinberum hætti eftirgreindar sakar-
giftir á hendur mér sem lögmanns
Alþýðubankans hf. í dagblaðinu Visi
dagana 17. og 22. april 1978:
1. Fyrsta sakargift: „Það hefði
auðvitað engum átt að vera það betur
Ijóst en lögmanni bankans, sem
annaðist tryggingartöku hjá nefndum
aðilum...” (VÍSIR, 17. apríl 1978).
Af þessu tilefni verði rannsakað,
hvort ég hafi gerzt sekur um refsiverl
athæfi i sambandi við tryggingartökur
vegna útlána bankans til Guðna
Þórðarsonar, Sunnu hf. og Air Viking
hf. Rannsóknin beinist sérstaklega að
því, hvort niér hafi borið samkvæmt
stöðuumboði mínu að annast
tryggingartökuna, hvort ég hafi verið
beðinn af bankastjórn að taka
tryggingar eða meta þær, áður en féð
var látið úti, og hver hafi
raunverulega tekið þær tryggingar,
sem teknar voru í bankanum á móti
þessum útlánum þar til I október 1975,
er bankaeftirlit Seðlabankans kom á
vettvang.
2. Önnur sakargift: „Þátttaka lög-
fræðings Alþýðubankans I máli þessu
sýnist einnis vera mjög athyglisverð. í
þvi sambandi vekur mesta eftirtekt, að
hann hefur tekið við greiðslum til Air
Viking erlendis frá, er nota átti til þess
að lækka skuldir fyrirtækisins við
bankann. Peningarnir voru á hinn
bóginn notaðir til þess að greiða
innistæðulausar ávisanir, er forstjóri
fyrirtækisins, hafi gefið út per-
'sónulega. Við rannsókn málsins var
leitt i Ijós. að þessi ráðstöfun var gerð
án samþykkis beggja bankastjóranna.”
(Visir, 22. apríl 1978).
Af þessu tilefni verði rannsakað,
hvort ég Itafi gerzt sekur um
refsiveröan verknað, er ég skilaði
bankanum hinn 10. nóvember 1975
með skriflegri skilagrein greiðslu á
innistæðulausum tékkum á reikning
Guðna Þórðarsonar 60100. er ég hafi
fengið til innheimtu samkvæmt skrif-
legri innheimtubeiðni dags. 29. okt.
1975. Rannsóknin beinist einkum að
því, hvort ég hafi fengið frá banka-
stjórninni sérstök fyrirmæli um
innheimtu þessa umfram innheimtu-
beiðnina og hver þau hafi verið. -
3. Þriðja sakargift: „Þá vekur það
óneitanlega mikla athygli i þessum
upplýsingum, að lögfræðingur Al-
þýðubankans hefur tekist á hendur
utanlandsferðir I því skyni að afla
erlendra lána fyrir Air Viking. En
lögfræðingur Alþýðubankans á jafn-
framt sæti I bankaráði Seðlabankans.
Eftir að hafa fengið vilyrði fyrir sviss-
nesku láni leggur lögfræðingur
Alþýðubankans og bankaráðsmaður í
Seðlabankanum fyrir hlutaðeigandi
stjórnvöld, að þau samþykki slíka lán-
töku fyrir Air Viking. Ekki var látið
við það sitja að fyrirtækið gerði það
sjálft. Bankaráðsmaður I Seðlabankan-
um og lögfræðingur Alþýðubankans
hefur með þessu móti gerzt
milligöngumaður aðila, sem er í þess
háttar vanskilum við Alþýðubankann
að varða við lög. Þessi hlið málsins
er óneitanlega alvarleg fyrir
Alþýðubankann, er nú vinnur að þvi
að öðlast traust á ný og nýtur velvilja
flestra aðila i þeirri viðleitni. En hér
vaknar spurningin um, hvaða sið-
gæðiskröfur I fjármálum á að gera til
bankaráðsmanna í Seðlabankanum.”
(VÍSIR, 22. apríl 1978).
Af þessu tilefni verði rannsakað,
hvort ég hafi gerzt sekur um refsivert
athæfi með þvi að leita eftir erlendu
láni til handa Air Viking hf. 1975 og
afla heimildar til þeirrar lántöku hér-
lendis, þegar lánsloforðið lá fyrir.
Rannsóknin beinist einkum að því,
hvort bankastjórnin hafi beðið mig að
útvega hið erlenda lán og svo hvort
lánsútvegun min til Air Viking hf. hafi
eins og á stóð farið í bág við hagsmuni
Alþýðubankans hf. á þann hátt aðeigi
hafi samrýmzt störfum mínum fyrir
bankann.
Sá ritstjóri VÍSIS, hr. Þorsteinn
Pálsson, Háaleitisbraut 43 I Reykja-
vik, sem skrifaði ritstjórnargreinina
22. apríl 1978, er jafnframt ábyrgðar-
maður blaðsins, sbr. ákvæði laga um
preritrétt, en hann er sjálfur lög-
fræðingur og veit, að ég er ekki starfs-
maður Alþýðubankans hf.
Þessi ritstjóri telur sig nú hafa birt í
blaði sinu upplýsingar, sem nægja
mundu til ákæru á mig fyrir refsi-
verðan verknað í sambandi við ofan-
greindarsakargiftir.
Ég neita staðfastlega þessum
fullyrðingum ritstjórans, en neyðist af
tilefni þeirra til að gera þá kröfu, að
með sjálfstæðri opinberri rannsókn
liggi það alveg Ijóst fyrir, hvort ég er
sekur eða ekki um þær ávirðingar, sem
ritstjórinn ber á mig í nefndri rit-
stjórnargrein og hefur látið lesa upp
fyrir allan landslýð i Ríkisútvarpinu,
og skiptir hér engu, hvort aðrir eru
sekireða saklausir.
Þess vegna krefst ég sérstakrar
opinberrar rannsóknar.
Virðingarfyllst,
Ingi R. Heígason.
Opinber ákæra var nýlega birt á
hendur tveim fyrrverandi banka-
stjórum og fyrrverandi skrifstofustjóra
Alþýðubankans. Af þvi tilefni hafði
dagbl. Vísir viðtal við Jón Hallsson,
einn hinna ákærðu. í viðtalinu vegur
Jón nokkuð að bankaráðinu fyrrver-
andi og lögmanni bankans, Inga R.
Helgasyni. Ekki hafa aðrir ákærðu en
Jón Hallsson fjallað um meintar sakir
í fjölmiðlum.
Nú hefur Ingi R. Helgason, hrl.
krafizt opinberrar rannsóknar á þvi
ámæli sem hann er borinn I viðtalinu
við Jón Hallsson og i ritstjómargrein
nokkru síðar, eins og að framan
greinir.
-BS.
Framsókn á Fáskrúðsfirði:
A ritf ríður í heiðurssætið
Aiþýðubandaiagið á Raufarhöfn:
NÝR MAÐUR í ÖÐRU SÆTI
Arnfríður Guðjónsdóttir oddviti
skipar heiðurssætið á lista Framsóknar-
flokksins á Fáskrúðsfirði. Hefur Arn-
fríður verið önnur af tvéim mönnurn
flokksins I hreppsnefnd. Hinn er
Þórólfur Friðgeirsson skólastjóri, sem er
ekki á listanum núna.
I fyrsta sætinu er Egill Guðlaugsson
framkvæmdastjóri, 2. Sigriður Jóns-
dóttir verkamaður, 3. Gunnar Jónsson
útgerðarstjóri, 4. Kjartan Sigurgeirsson
rafvirki, 5. Gísli Jónatansson kaup-
Sjálfstæðisflokkurinn fékk í siðustu
kosningu 647 atkvæði og 4 menn af 9 í
bæjarstjórn á Isafirði. 1 kosningunum
nú eru 3 af þessum fjórum mönnum í 1.
2. og 4. sæti listans. Nýr maður er hins
vegari3.sæti.
Efstur er núna Guðmundur H.
Ingólfsson, bæjargjaldkeri, 2. Jens
Kristmannsson útsölustjóri, 3. Óli M.
Lúðvíksson framkvæmdastjóri, 4. Jón
Ólafur Þórðarson fulltrúi, 5. Gunnar
Steindórsson rafvirkjameisiari, 6. Geir-
þrúður Charlesdóttir húsmóðir, 7. Ingi-
Helgi Kristjánsson verkstjóri skipar
áfram efsta sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Ólafsvik. Hefur hann verið
eini maður flokksins i hreppsnefnd. Sitja
þar með honum 4 menn af lista
almennra borgara. Sjálfstæðismenn
fengu 159 atkvæði í síðustu kosningum.
félagsstjóri, 6. Eiríkur Olafsson vélstjóri,
7. Baldur Guðlaugsson húsasmiður, 8.
Óskar. Gunnarsson bifreiðarstjóri, 9.
Óskar Sigurðsson vélstjóri, 10. Anna B.
Stefánsdóttir verzlunarmaður, II.
MagnúsGuðmundsson verkamaður, 12.
12. Friðrik Stefánsson skipstjóri, 13.
Jóhannes Sigurðsson sjómaður og 14.
Arnfriður Guðjónsdóttir oddvili.
í síðustu kosningum fékk Framsókn
126 atkvæði og 2 menn i 7 manna
hreppsnefnd. -DS.
mar Halldórsson framkvæmdastjóri, 8.
Hermann Skúlason skipstjóri, 9. Anna
Pálsdóttir meinatæknir, 10. Ásgeir S.
Sigurðsson járnsmíðameistari, 11.
Óskar Eggertsson rafvirkjameistari, 12.
Jón Páll Halldórsson framkvæmdastjóri,
13. Inga Þ. Jónsdóttir húsfrú, 14. Sigur-
geir Jónsson bóndi, 15. Sigurður Pálmar
Þórðarson verzlunarstjóri, 16. Sævar
Getsson sjómaður, 17. Þorleifur Pálsson
skrifstofustjóri og 18. Kristján J. Jóns-
son hafnsögumaður.
Annar á listanum nú er Kristófer Þor-
leifsson héraðslæknir. 3. Soffía Þor-
grimsdóttir yfirkennari, 4. Snorri'
Böðvarsson rafveitustjóri, 5. Kristján
Bjarnason stýrimaður, 6. Emanúel
Ragnarsson verzlunarmaður, og 7. Erla
Þórðardóttir-húsmóðir. -DS.
Oháðirborgarará
Hólmavík:
KONA EFSTÁ
LISTANUM
Lýðræðissinnaðir borgarar á Hólma-,
vík hafa nú tekið sig saman og bjóða
fram lista í kosningunum i vor. 1 siðustu
kosningum voru mcnn þar einungis
kosnir sem einstaklingar en ekki eftir
flokkum.
Efst á listanum er Auður Guðjóns-
dóttir húsfrú, 2. Bynjólfur Sæmundsson
ráðunautur, 3. Karl E. Loftsson gjald-
keri, 4. Maríus Kárason sjómaður, 5.
Jón Arngrímsson verkamaður, 6. Sigur-
björn B. Pétursson sjómaður, 7.
Guðbjörg Stefánsdóttir húsfrú, 8.
Guðjón Magnússon verkamaður, 9.
Þórður Sverrisson verkamaður og 10.
Bjarni Halldórsson vélgæzlumaður.
í hreppsnefnd á Hólmavík sitja 5
menn.
DS.
Óháðir kjósendurá
Hólmavík:
Bjóða fram
sjálfstæðan
lista
Óháðir kjósendur bjóða nú fram sjálf-
stæðan lista á Hólmavík en í síðustu
kosningum voru menn valdir í hrepps-
nefnd sem einstaklingar én ekki eftir
flokkum.
Fyrstur á lista óháðra kjósenda er
Gunnar Jóhannsson kaupmaður, 2. Þor-
kell Jóhannsson kennari, 3. Magnús H.
Magnússon rafvirki, 4. Helgi Ingimund-
arson verkamaður, 5. Gunnar Númason
verkamaður, 6. Katrin Sigurðardóttir,
húsmóðir, 7. Áskell Benédiktsson bóndi,
8. Sigþrúður Pálsdóttir Ijósmóðir, 9.
Ásmundur Vermundsson húsasmiður
og 10. Ásgeir Ragnar Ásgeirsson verka-
maður.
-DS.
Alþýðubandalagið hefur haft tvc
menn í hreppsnefnd á Raufarhöfn.
Angantý Einarsson skólastjóra og
Heimi Ingimarsson sveitarstjóra.
Angantýr er nú í fyrsta sætinu á listan- '
um en Heimir er ekki með.
1 öðru sæti listans er Þorsteinn
Hallsson verkamaður, 3. Stefán Hjalta-
son sjómaður, 4. Aðalsteinn Sigvaldason
sjómaður, 5. Sigurveig Björnsdóttir hús-
móðir, 6. Jóhannes Björnsson verka-
Alþýðubandalagið býður nú fram eitt
sér á Akranesi en I siðustu kosningum
bauð það fram með SFV og Frjálslynda
flokknum. Fengu þessir flokkar 381 at-
kvæði og einn mann kjörinn, Jóhann
Ársælsson skipasmið. Er Jóhann í efsta
sæti Alþýðubandalagsins núna.
Annar er Engilbert Guðmundsson
hagfræðingur, 3. Guðlaugur Ketilsson
vélvirki, 4. Sigrún Gunnlaugsdóttir
kennari. 5. Sigrún Clausen verkamaður,
6. Laufey Skúladóttir verzlunarmaður,
7. Friðrik Kristinsson stýrimaður, 8. Búi
Sigurgeir Kristjánsson forstjóri er
efstur á lista Framsóknarflokksins í
bæjarstjórnarkosningunum í Vest-
mannaeyjum. Er Sigurgeir í bæjarstjóm
á vegum Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags sem buðu fram saman
I siðustu kosningum. Fengu flokkarnir
510 atkvæði og 2 menn í 9 manna
bæjarstjórn. Hinn maður þeirra er
Garðar Sigurðsson alþingismaður
Alþýðubandalagsins.
Annar á lista Framsóknar nú er
Georg Hermannsson kaupfélagsstjóri, 3.
Jóhann Björnsson forstjóri, 4. Einar
Steingrimsson flugumferðarstjóri, 5. Jón
maður, 7. Jónas Friðrik Guðnason
skrifstofumaður, 8. Guðni Oddgeirsson
verkamaður,9. Rósa Þórðardóttir hús-
móðir og 10. Dísa Pálsdóttir húsmóðir.
Til sýslunefndar er boðinn fram
Þorsteinn Hallsson og Guðmundur Lúð-
víksson til vara.
í síðustu kosningum fékk
Alþýðubandalagið 87 atkvæði og 2
menn I 5 manna hreppsnefnd.
Gíslason vélvirki, 9. Arsæll Valdimars-
son fv. bæjarfulltrúi, 10. Þórdís
Kristjánsdóttir verzlunarstjóri, 11. Jóna
Kristin Ólafsdóttir húsmóðir, 12. Árni
Ingvarsson verkamaður, 13. Ásdís
Magnúsdóttir húsmóðir, 14. Hulda
Óskarsdóttir húsmóðir, 15. Guðmundur
M. Jónsson varaformaður Sjóntanna-
sambands islands, 16. Jón R. Runólfs-
son hýbýlafræðingur, 17. Bjarnfríður
Leósdóttir varaformaður Verkalýðs-
félags Akraness og 18. Jón Mýrdal
skipasmiður. -DS.
Óskarsson lögfræðingur, 6. Jónas
Guðmundsson verzlunarmaður, 7.
Skæringur Georgsson trésmíðameistari,
8. Ásmundur Pálsson verkstjóri, 9.
Ólafur Örn Ólafsson forstjóri, 10. Gisli
Sigurðsson skrifstofumaður, II.
Guðmundur Kristmundsson verka-
maður, 12. Jón Ingólfsson bifreiðar-
stjóri, 13. Stefán Guðmundsson verka-
maður, 14. Sigurður Einarsson lög-
reglumaður, 15. Hilmar Rósmundsson
útgerðarmaður, 16. Logi Snædal Jóns-
son skipstjóri, 17. Guðbjörg Vernharðs-
dóttir húsmóðir og 18. Guðjón Björns-
son útgerðarmaður. -DS.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáísgötu 49 — Sími 15105
Sjátfstæðismenná ísafirði:
Nýr maður íþriðja sæti
■ DS
S jálfstæðisf lokkurinn í Ólafsvík:
Helgi áfram efstur á lista
-DS.
Akranes:
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
BÝÐUR FRAM Ein
Framsókn í Vestmannaeyjum:
Sigurgeir f orstjóri áf ram í
fyrsta sæti