Dagblaðið - 28.04.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
19
14
ð
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
Axel r
Axelsson
— Sigraði Val 19-16 í undanúrsiitum í gærkvöld eftir að hafa algjörlega yf irspilað Val í fyrri hálfleik
þcss þó að leikurinn yrði nokkru sinni
tvisýnn eða þeir ógnuðu sigri Vikings.
Lokatölur 19—16.
Viggó Sigurðsson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Viking en Gísli Blöndal
jafnaði. Víkingur komst aftur yfir með
marki Björgvins og á 7. mín. jafnaði Þor-
björn Guðmundsson. Þar með höfðu
Valsmenn sagt sitt síðasta orð í langan
tíma. Komust ekki á blað meðan Vík-
ingur skoraði hvert markið á fætur öðru
og lék snilldarlega. Eftir 24 mín. var
staðan 9—2 fyrir Víking. Loks á 27.
mín. tókst fyrirliða Vals, Stefáni
Gunnarssyni, að brjóta isinn. Skoraði
þriðja mark Vals en Sigurður Gunnars-
son, unglingalandsliðsmaðurinn stór-
efnilegi hjá Víking, svaraði strax með
fallegu marki. Var reyndar óheppinn að
skora ekki tvívegis til viðbótar lokakafla
hálfleiksins. Gnæfði yfir vörn Vals-
manna í uppstökkum og Valsmarkið
nötraði lengi eflir þrumufleyga hans.
Stangarskot.
Jón Karlsson skoraði fjórða mark
Vals á 29. min. og rétt á eftir hrökk
knötturinn i mark Vals af Magnúsi
Guðmundssyni. Það var furðulegt mark.
Magnús átti skot á mark af línu, sem
Brynjar Kvaran varði. Knötturinn
hrökk út aftur og I risann Magnús —
skoppaði síðan í markið. Magnús var
kominn niður og inn i teiginn en það
tekur þennan risa islenzks handknatt-
leiks — rúmir tveir metrar — svo langan
tíma að falla í völlinn að dómararnir
áttuðu sig ekki á þvi. Dæmdu mark og
Valsmenn voru óhressir yfir því. Að
FjöríKópa-
vogslaug
ásunnudag
— og 10 ára afmælismót
sunddeildar
Breiðabliks7. maf
Það verður mikið fjör í sundlaug Kópa-
vogs á sunnudag, 30. apríl, þegar sund-
mót barnaskólanna tjögurra i Kópavogi
fer fram. Keppt verður í 50 m bringu- og
skriðsundi og stigahæsti skólinn hlýtur
bikarinn fagra hér að ofan til varðveizlu.
Hann er gefinn af Strætisvögnum Kópa-
vogs.
Sunddeild Breiðabliks er 10 ára á
næstunni og hinn 7. maí verður efnt til af-
mælissundmóts i sundhöllinni i Reykja-
vík. Keppt verður í 14 greinum og þátt-
taka öllum opin. Þjálfari Breiðabliks cr
Ólafur Guðmundsson, sá góðkunni sund-
maður hér á árum áður. Margt efnilegt
sundfólk er innan félagsins eins og t.d.
Katrín Sveinsdóttir, Margrét Sigurðar-
dóttir og Steingrímur Davíðsson. For-
maður sunddeildar Breiðabliks er Gyða
Stefánsdóttir og aðrir í stjórn Guðlaug
Albertsdóttir og Sigurður Guðmunds-
son.
Það verður Vfkingur, sem leikur til
úslita við FH i bikarkeppni HSÍ á
laugardag kl. sex í Laugardalshöll. í gær
sigraði Vfkingur íslandsmeistara Vals
örugglega 19—16. f undanúrslitum. Ég
minnist þess ekki f áratugi að hafa séð
nýorðna íslandsmeistara eins gjörsam-
lega yfirspilaða af öðru íslenzku liði og
reyndin var langtimum saman f fvrri hálf-
leiknum á fjölum Laugardalshallarinnar
í gærkvöld. Eftir jafna byrjun skoraði
Valur ekki mark i heilar 19 mfnútur —
skoraði aðeins tvö mörk fyrstu 26 mfn.
leiksins. Sóknarleikur Víkings var beitt-
ur og vörnin mjög sterk. Þau skot, sem
komust f gegn á þessum tíma, varði
landsliðsmarkvörður Vfkings, Kristján
Sigmundss. með miklum tilþrifum. Það
stóð ekki steinn yfir steini f leik Valsliðs-
ins — örvænting og leikreyndustu menn
liðsins gerðu sig seka um furðulegar
villur. Vfkingur náði sjö marka for-
skoti, 9—2, og úrslit voru ráðin. í síðari
hálfleik unnu Valsmenn verulega á án
Varnarliðs-
menn unnu
<c
Til vinstri: Detlef Meycr (nr. 6) ungur
og stórefniiegur linumaður hjá
Dankersen í baráttu um knöttinn.
Til hægri: „Heimsmeistarinn” Dieter
Waltke sést hér skora úr hraðaupp-
hlaupi, en það er hans sérgrein.
SigurSigurðarP. SigmundssonaríV-Þýzkalandi:
Tók forustuna þegar 400 m
voru eftir og vaið fyrstur
Þekktasti hlaupari Hafnfirðinga, Sig-
urður Pétur Sigmundsson, sem dvelst í
Vestur-Þýzkalandi í sumar við æfingar
og keppni, eins og við höfðum áður skýrt
frá hér á íþróttaopnunni, hefur að undan-
fömu tekið þátt í tveimur víðavangs-
hlaupum — Waldlauf eins og Þjóðverj-
arnir kalla þau. Hann var f öðru sæti I
fyrra hlaupinu — en sigraði í því síðara.
auk þess sem félag hans, TSV Trost-
berg, sigraði f þriggja manna sveita-
keppni. Það var kærkominn sigur.
Félagið hafði ekki unnið hana frá 1971.
Fyrra hlaupið var í Traunstein 1. apríl
og var ekki ýkja sterkt hlaup. Keppt var
í tveimur flokkum fullorðinna. Milli-
vegalengd um 2500 m og í langhlaupi
um 9600 m. Sigurður Pétur valdi styttri
vegalengdina og varð í öðru sæti af 16
keppendum. Átti ekki möguleika á sigri
en sigurvegari varð Helmut Wenzl.
Hann hefur oft náð góðum árangri i
víðavangshlaupum og maraþoni. Hefur
hlaupið þaðá 2 klst. og 30 minútum.
Síðara viðavangshlaupið var i Teisen-
dorf 9. apríl og var háð til minningar um
Franz Korb, sem var vel þekktur íþrótta-
maður hér áður fyrr. Keppt var í 16
flokkum karla og kvenna — og Sigurður
var í flokki, sem hljóp 3400 metra. Það
var farið hratt af stað. Um mitt hlaupið
var Sigurður Pétur í þriðja.sæti en seig á.
Þegar 400 metrar voru eftir tók hann
forustuna og hélt henni það s«m eftir var
hlaupsins. Keppendur voru 26 og í
fyrstu sætunum urðu þessir hlauparar:
Sigurður P. Sigmundsson, TSV Trostberg 10:36 min.
Helmut Wenzl, LG Traunstein, 10:41 min.
Herbert Huber, LG Ruhpolding, 10:47 mín.
Ludwig Knollmíiller, T V Eggenfelden, 10:53 min.
HansPeterSteiner.TSVTrostberg, 11:01 min.
Helmut Grumann, TV Eggenfelden, 11:06 mín.
Horst-Dieter Steiner, TSV Trostberg, 11:11 mín.
„Ég var mjög ánægður með þetta
hlaup, sem eflaust er eitt af mínum al-
beztu hlaupum,” sagði Sigurður Pétur i
samtali við DB. „Á eftir mér kom til
dæmis i mark hlaupari, sem á bezt
8.13.0 mín. í 3000 metra hlaupi. Hann
náði þeim árangri 1976. Hlaupið vakti
talsverða athygliogvar getið allítarlega i
„Trostberger Tagblatt”,” sagði Sigurður
ennfremur. Mörg hlaup eru framundan
hjá honum og J. maí verður alþjóðlegt
mót í Trostberg. Einar bróðir hans er
enn ekki kominn til Trostberg, þar sem
ekki reyndist unnt að fá vinnu fyrir
hann líka — atvinnuleyfi. En hann er
þó væntanlegur til Trostberg á næst-
unni.
- hsim. ,
í Sigurður, Magnús og Árni eitt hver.
Fyrir Val skoruðu Þorbjörn Jensson 5,
i Jón Karlsson 4 — þrjú víti — Þorbjörn
Guðmundsson og Gísli 3 hvor, Stefán
| Gunnarsson eitt.
1 Dómarar voru Gunnlaugur Hjálmars-
l son og Jón Friðsteinsson og gætti
iðulega furðulegs ósamræmis i dómum
þeirra. Þegar Gunnlaugur benti I aðra
áttina benti Jón i hina — og undan-
i tekningarlaust lét Jón dóma Gunnlaugs
| standa.
hsim.
Tvöstig
Þróttar
Þróttur nældi sér I tvö stig á Reykja-
víkurmótinu i knattspyrnu i gær, þegar
liðið vann nýliða Fylkis úr Árbænum
með 2-0 á Melavellinum. Þorgeir Þor-
geirsson skoraði fyrra mark Þróttar
strax í byrjun — Páll Ólafsson hið
siðara þremur mín. fyrir leikslok.
Leikurinn var ekki rismikill. Sigur
Þróttar mjög verðskuldaður og ‘Sverrir
Brynjólfsson bezti maður liðsins.
Staðan í mótinu er nú þannig:
Vfkingur 4 3 0 1 9-3 7
KR 4 2 2 0 6-1 7
Valur 4 2 0 2 13-4 6
Þróttur 4 2 11 5-3 5
Fram 3 111 3-3 4
Ármann 4 10 3 2—17 2
Fylkir 5 0 2 3 0—7 2
Næsti leikur verður á sunnudag. Þá
leika KR og Víkingur kl. 14.00. Á mánu-
dag leika Fram og Þróttur en Ármann
og Fylkiráþriðjudag.
Árni Indriðason, hinn sterki varnarmaður Vlkings, skorar gegn Val 1 gær. DB-mynd Bjarnleifur.
íslandsmóti Qórða aldursflokks I blaki lauk 1 gær I tþróttahúsinu i Garðabæ. Þrjú félög sendu lið til keppni — Vikingur, Stjarn-
an og HK og var leildn tvöföld umferð. Vikingur sigraði f öllum leikjum sfnum með 2-0 og hafði sigrað i mótinu, þegar Uðið lék
siðasta leik sinn i gcr við Stjörnuna. HK varð f öðru sæti, sigraði Stjörnuna 2-1 f báðum leikjunum. Eftir leikinn f gær voru Vfking-
um afhentir verðlaunapeningar — íslandsmeistarar f blaki 4. flokks 1978. Þeir eru á myndinni hér að ofan — allt nemendur f 12
ára bekk Fossvogsskðla. Efai röð frá vinstri: Karl Þráinsson, fyrirUði, Agnar Rúnar Agnarsson, Helgi Jðnsson, Eyjðlfur
Simonarson og Gunnar Árnason, þjálfari. Fremri röð: Jðhannes Ingi Jóhannesson, Þröstur Ólafsson og Andri Marteinsson. Þetta
er i fyrsta sinn, sem Íslandsmót f þessum aldursflokki er háð. DB-mynd Bjarnleifur.
Körfuknattleikslið varnarliðsins
sigraði fslenzka úrvalsliðið f sendiherra-
keppninni f gær f Hagaskóla 88-78 f
fjórða leik liðanna. Það kom ekki að sök
fyrir fsl. liðið. Það hefur sigrað í keppn-
inni — sigraði í þremur fyrstu leikjunum.
Fimmti og sfðasti leikur liðanna verður á
Keflavikurflugvelli á laugardag.
Dankersen 24. april 1978.
Dankersen lék þann 19. april í Kiel
leik, sem áður hafði verið frestað
vegna þátttöku Dankersen I Evrópu-
keppni meistaraliða. Eins og áður var
Ostechöllin yfirfull, 7.000 áhorf-
endur. Fyrir Kiel var mikið i húfi, þar
sem liðið er f alvarlegri fallhættu. Varð
að vinna þennan leik. Áhorfendur voru
svo sannarlega með; hvatningarhrópin
voru gifurleg. Dankersen, sem á nú
enga möguleika á að halda meistara-
krónunni, lék yfirvcgaðan leik og náði
strax forystu 8—7 var staðan f hálf-
leik.
t seinni hálfleik náði liðið siðan
algjörum yfirburðum. Lék taktískan
leik og sigraði 24—17. Er líða tók á
leikinn voru áhorfendur orðnir þreytt-
ir á getuleysi Kielliðsins og klöppuðu
gestunum lof í lófa. Grund og Waltke
voru markhæstir hjá Dankersen
með 6 mörk hvor, Ólafur skoraði 4
mörk.
Um síðustu helgi urðu úrslit þessi:
Dankersen-Milbertshofen 25—17
á heimavelli sinum. Liðið á þrjá erfiða
leiki eftir og verður gaman að sjá
hvort leikmenn liðsins halda
taugum sínumí lagi I baráttunni við
Gummersbach um meistaratignina.
Markvörðurinn Hoffmann, sem varði
svo vel i úrslitaleik H.M. og talinn er
vera einn bezti markvörður heims, er
aðalstyrkur liðsins ásamt vinstri
handar stórskyttunni Kliihspiess. Þeir
eru ekki fáir leikirnir, sem þessir tveir
hafa unnið fyrir Grosswallstadt.
Hofweier lék sér hreinlega að
Huttenberg. 24—12 eru ótrúlegar
tölur. Simon Schobel hjá Hofweier
sýndi stórleik, skoraði 10 mörk, en
hann hefur verið í öldudal í síðustu
leikjum.
Einar Magnússon og félagar hans í
Hannover kræktu i sitt fyrsta stig á
útivelli. 15—15 urðu lokatölur i Neu-
hausen. Einar var yfirburðarmaður á
vellinum. Skoraði 6 mörk þrátt fyrir
strangagæzlu.
Staðan að 24 umferðum loknum er
nú þessi. 1
Gummersbach 24 19 2 3 456-372 40
Grosswallstadt 23 19 1 3 427-343 39
Dankerson 23 16 2 5 398-347 34
Híittenberg 24 13 1 10 384-371 27
Hofweier 24 11 4 9 430-397 26
Milbortshofen 24 12 1 11 402-409 25
Göppingen 24 10 2 12 388-385 22
Rheinhausen 24 10 2 12 437-461 22
Nettelstedt 24 9 3 12 424-404 21
Kiel 24 9 2 13 388-410 20
Dietzenbach 24 9 2 13 388-417 20
Derschlag 24 8 1 15 414-443 17
Hannover 24 6 1 17 333-408 13
Nouhausen 24 3 2 19 356-458 8
Auf wiedersehen,
Axel Axelsson,
ÓlafurH. Jónsson.
öðru leyti þurftu þeir ekki að vera
i óhressir með dómgæzluna. Staðan 11—
4 í hálfleik. A
1 lok fyrri hálfleiksins var Skarphéðni
Óskarssyni, hinum sterka varnarmanni
Víkings, vikið af leikvelli. Valsmenn
voru því einum fleiri í byrjun síðari hálf-
leiks. Það nýtti Þorbjörn Jensson vel og
skoraði tvö fyrstu mörkin i hálfleiknum
fyrir Val. Hefur vaxið mjög í hverjum
leik að undanförnu — bezti maður Vals
í gær. Ólafur Jónsson kom inn á hjá Vík-
ing og liðið náði aftur sjö marka forskoti
með mörkum Árna og Viggós. En Þor-
björn Jensson hafði ekki sagt sitt síðasta
orð. Skoraði tvö falleg mörk, 13—8.
Ólafur Jónsson skoraði tvívegis úr
Tueart
skoraði
Knattspyrnan er byrjuð I USA. í
fyrsta leik sinum sigraði New York
Cosmos Dallas 3—1. Dennis Tueart,
áður Man.City, skoraði eitt af mörkum
, Cosmos — lagði annað upp en hann var
! keyptur i stað Pele.
Ballesteros
í fyrsta sæti
Severiano Ballesteros, Spáni, hafði
tveggja högga forustu eftir aðra umferð
á opna Madrid-golfmeistaramótinu. Var
með 138 högg — sex undir pari. (66 og:
72). Howard Clark var með 140 högg og|
Peter Townsend, báðir Bretlandi, með
142 högg. |
bergi var vikið af velli. Víkingar voru því
einum færri í sjö mínútur i siðari hálf-
leik. Tveir Valsmenn fengu þá áminn-
ingu. Eftir að Jón Karlsson hafði mis-
notað víti fyrir Val — skotið framhjá"—
skoraði Gisli Blöndal 16. mark Vals á
lokasekúndunum.
Eftir stórleik sinn í fyrri hálfleik léku
Víkingar oft mjög rólega í þeim síðari.
Hugsuðu mest um að halda fengnum
hlut. Það ko.m þeim stundum í koll.
Nokkrum sinnum dæmd leiktöf á Vík-
ing. En i heild komst liðið vel frá þessum*
leik með Kristján markvörð — þó út-
haldið brygðist honum í síðari hálfleik
— Björgvin, Viggó, Ólaf Jónsson og
Árna sem beztu menn. Hjá Val voru
þeir nafnarnir Þorbjörn Jensson og Þor-
björn Guðmundsson beztir ásamt
Brynjari markverði í síðari hálfleik.
Mörk Víkings í leiknum skoruðu
Viggó 6 — eitt viti — Þorbergur 4,
Björgvin 3, Ólafur Jónsson 2, Páll.
Tíu landsliðs-
menn valdir
Tiu enskir landsliðsmenn verða i
ensku úrvalsliði i knattspyrnu, sem leika
mun fjóra leiki i Nýja-Sjálandi, einn i
Singapore og einn i Malasíu I sumar.
Meðal þeirra eru Mike Channon og Joe
Corrigan, Man.City, Phil Thompson og
Terry McDermott, Liverpool, Paul
Mariner, Ipswich, John Gidman, Villa,
Dave Clement, QPR, John Richards,
Wolves og Gordon Hili, Derby.
Þeir Allan Ball, Southamptaon, og
Gerry Daley, Derby, mun leika í Banda-
ríkjunum i sumar. Ball með liðf Phila-
delphfu.
Kiel-Gummersbach 16—22
Rheinhausen-Göppingen 12—13
Dietzenbach-Nettelstedt 21—14
Grosswallstadt-Derschlag 20—15
Hofweier-Huttenberg 24—12
Neuhausen-Hannover 15—15
Dankersen lék heimagegn Milberts-
hofen frá Múnchen. Ekki komst
maður hjá því að sjá að algjört áhuga-
leysi ríkir meðal leikmanpa Milberats-
hofen. Liðið hefur náð því takmarki
sinu að forðast fall og það virðist
nægja. Dankersen lék án Axels Axels-
sonar, sem tognaði illa á vinstri hand-
legg í leiknum gegn Kiel í fyrri viku.
Waltke var drýgstur hjá Dankersen
með 8/6 mörk.
Kiel lék aftur á heimavelli. Nú gegn
Gummersbach. Leikurinn var nokkuð
jafn fyrstu 40 mínúturnar, en þá kom
leikreynsla, leikmanna Gummersbach
í Ijós. Þeir sigu framúr og unnu örugg-
lega 22—16. Erhard Wunderlich,
aðalskytta Gummersbach, lék ekki
með vegna meiðsla, en vonandi getur
hann leikið með félögum sínum i
næsttí mörk — Þorbjörn Jensson, Jón
víti, og Gísli — en þá hafði Magnúsi
Guðmundssyni verið vikið af velli.
Staðan 16—14 eftir 22 mín. Þorbergur
breytti stöðunni í 17—14 og Brynjar
Kvaran varði víti frá Sigurði Gunnars-
syni. Þá skoraði Jón úr viti og aftur
tveggja marka munur, 17—15, Það stóð
ekki lengi. Víkingar — með alla inn á —
skoruðu tvö næstu mörk, Þorbergur og
Viggó víti. Staðan 19—15, þegar Þor-
úrslitaleiknum um Evróputitil bikar-
meistara, sem fer fram í Dortmund
þann 4. maí nk. Deckarm og Brand
voru beztir hjá Gummersbach í leikn-
um i Kiel.
Göppingen náði ’að sigra Rhein-
hausen 13—-12. Þessi mikilvægi sigur
kemur sjálfsagt til með að bjarga
Gunnari Einarssyni og félögum hans
frá falli, þó enn sé reyndar allt opið.
Dietzenbach tók á móti Nettelstedt
og tók liðið i karphúsið. 21 —14 sigur
Dietzenbach var-sanngjarn og Nettel-
stedt virðist algjörlega heill.um horfið.
Úr síðustu átta leikjum hefur liðið
aðeins náð 2 stigum. Nokkuð, sem
enginn reiknaði með af þessu „stjörnu-
liði” eins og það er kallað hér í Þýzka-
landi. Herbert Lúbking, stóra stjarnan
kringum hinar stjörnumar, náði ekki
að skora í leiknum gegn Dietzenbach,
nokkuð sem ekki hefurgerzt í áraraðir
hjá manninum. Júgóslavinn Krstic
átti stórleik fyrir Dietzenbach og
skoraði 8/1 mörk.
Grosswallstadt átti ekki i neinum
verulegum erfiðleikum með Derschlag
vinstra horninu fyrir Viking, 15—8 eftir
8 min. Jón Karlsson, viti, Þorbjörn
Guðmundsson skoruðu fyrir Val — og
Valsmenn minnkuðu muninn niður i
fjögur mörk, þegar Páll Björgvinssyni
var mikið af velli. 15—11. Björgvin
skoraði fyrir Viking en Valsmenn þrjú
íþróttir
VÍKINGUR í ÚRSUT BIKARSINS GEGN FH
íslandsmet Liljuí
400 metra hlaupi
Lilja Guðmundsdóttir bætti islandsmet sitt i 400
metra hlaupi verulega á innanhússmóti I Norrköping i
Sviþjóð fyrir nokkrum dögum. Hún hljóp vegalengd-
ina á 61.3 sekúndum og varð langfyrst. Næsta stúlka i
hlaupinu hljóp á 65 sekúndum, svo um enga keppni
var að ræða. Eldra íslandsmetið i 400 metra hlaupi
innanhúss var 62.2 sek. og setti Lilja það á móti i
Gautaborg 1975.
Félag Lilju sigraði bæði i karla- og kvennaflokki i
miklu götu-boðhlaupi um götur Norrköping. Keppt
var i fimm manna sveitum og hlaupnar mismunandi
vegalengdir. Lilja hljóp lengsta sprettinn — 1800
metra — fyrir sitt félag og sveitin sigraði. Fimmtán
kvennasveitir tóku þátt í götuhlaupinu. Lilja dvelur
nú í æfingabúðum á Mallorka ásamt nokkrum öðrum
frá Norrköping. Vikudvöl og komið aftur fyrstu
dagana í maí. 6. mai verður mikið skógarhlaup, sem
Lilja mun taka þátt i — en mótin hefjast um 20. maí.
Snókerkeppni á
Klapparstfg
Nýlokið er keppni 1. og 2. flokks i snóker á Billjard-
stofunni á Klapparstfg, Keppni 2. flokks var háð f
sfðustu viku. Keppendur 12 og útsláttarfyrirkomulag
að venju. Sigurvegari varð Óttar Hauksson — ekki
alls óþekktur spilari og sigraði hann alla keppinauta
sína örugglega. 1 fyrstu umferð lék hann við Jcns
Ormslev, fyrrverandi íslandsmeistara 2. flokks, og réð
sá leikur miklu um úrslit þessa móts. Öttar sigraði í
hörðum leik. í undanúrslitum léku saman Gunnar
Ólafsson og Nikulás Þorvarðarson. Gunnar sigraði
örugglega og kom mjög á óvart á þessu móti. Hann
lék síðan til úrslita við Öttar — og sigraði Óttar með
165 stigum gegn 94. Auk farandsbikar fyrir efsta
sætið hiutu þrír efstu menn peningaverðlaun.
11. flokki var keppt nú í vikunni. Einnig 12 þátttak-
endur þar og útsláttarkeppni. Keppnin var mjög tvi-
sýn. Í undanúrslitum léku Guðni Halldórsson og
Bjarni Jónsson og sigraði Guðni á siðustu kúlu —
sjöinu — eða með 131 stigi gegn 120. í úrslitum lék
Guðni við Þórð Jóelsson og sigraði þar einnig í tvísýn-
um leik. Aftur á siðustu kúlu. Lokatölur 162 stig gegn
148. Keppt var um farandbikar og hefur Guðni mögu-
leika að vinna hann til eignar næsta ár. Þrir efstu
menn hlutu einnig peningaverðlaun.
KKF.
Daninn vann
EM-titilinn
íhnefaleikum
Danski hnefaleikamaðurinn Jörgen Hansen vann
aftur Evrópumcistaratitilinn f welterwigt i hnefaleik-
um í Randers i gærkvöld. Sigraði þá meistarann Alain
Marion, Frakklandi, á rothöggi f sjöttu lotu. Frakkinn
var betri i lciknum þar til að rothögginu kom. Hansen
er 35 ára — 12 árum eldri en Marion — og vann titil-
inn á síðasta ári frá Marco Scanno, ítaliu. Tapaði
honum hins vegar tveimur mánuðum sfðar til Jörg
Eipel i Vestur-Berlfn.