Dagblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. MAl 1978.
i
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir Iþróttir
PATRICK
FURÐULEGT -
KR FALUÐ!
} c ,% <'J |. £ {,: '
-|ít- §?! _• ■ .. . - . ( : . ■ .. -■ . : ; ■', l
. , -í/ II J &
' t %% \ - : , 1 '* »p. \
1 ;VS-'| ;
. V------------------ V .
I annað sinn efnum við til hópferðar til Florida.
Fyrsta ferðin tókst stórkostlega vel og hin þriðja verður
sennilega farin í ágúst.
Dvalið verður á góðu hóteli, Ivanhoe á hinni skjannahvítu og hreinu
Miamiströnd, þar sem sjórinn er notalega hlýr og ómengaður.
Brottfbr 9. júní.
Komudagur 1. júli.
Verð kr. 189.000,- á mann í tveggja manna herb.
Aukagjald fyrir eldunaraðstöðu kr. 10.800. -
fyrlr hvom.
Frá hótelinu bjóðast skoðunarferðir til:
Disney World - heims teiknimyndapersónanna.
Seaquarium - stærsta sædýrasafns heims.
Safari Park - eftirmyndar frumskóga Afríku
Everglades þjóðgarðsins sem á engan sinn líka
og fjölmargra aunarra áhugavcrðra staða.
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800, farskrárdeild,
sími 25100, skrifstofur okkar úti á landi, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
L0FTLEIBIR
Markmenn
Hanzkar,
húfur, hnéhlífar
og o/nbogahlífar
Póstsendum
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44. Sími 11783.
— HandknattleiksfélagKópavogs
sigraði KR með níu marka mun í gær
Eitt yngsta íþróttafélag landsins,
Handknattleiksfélag Kópavogs, vann i
gær stórsigur á KR i aukaleik um réttinn
til að leika i 1. deild íslandsmótsins
næsta leiktfmabil — sigraði 29—20 og
vann þar með upp og meira til forskot
það, sem KR-ingar náðu í fyrri leik lið-
anna. Það verður þvi HK, sem leikur
meðal þeirra „stóru” næsta vetur en KR-
liðið er aftur fallið niður i 2. deild. Sorg-
legt hjá þvi stóra félaginu og nokkuð,
sem fáir eða engir reiknuðu með.
En það hafa verið gífurlegar sveiflur í
leik KR-liðsins siðustu vikurnar.
Stundum góðir leikir aðeins til að falla
niður á lægsta plan örfáum dögum siðar.
Það kom KR-ingum í koll í iþrótta-
húsinu í Mosfellssveit i gærkvöld. Þeir
léku slakan handknattleik.
Celtic sektað
Dómaranefnd skozka knattspyrnu-
sambandsins dæmdi i gær Celtic í
þúsund sterlingspunda sekt vegna fram-
komu fylgjenda liðsins á útivöllum — og
þá einkum vegna framkomu þeirra í
Edinborg i siðasta mánuði. Þá lék Celtic
við Hibernian.
Þá var Derek Parlane hjá Rangers
settur i sex daga leikbann sem þýðir, að
hann getur ekki leikið i úrslitum skozku
bikarkeppninnar á laugardag. Þá leika
Aberdeen og Rangers i úrslitum á
Hampden Park.
Öðru máli var að gegna með HK-
menn. Þeir börðust vel. Gáfu hvergi
eftir og greinilegt, að úrslitin í fyrri leik
liðanna, þegar KR vann með sjö marka
mun, voru gleymd. Þeir báru ekki hina
minnstu virðingu fyrir keppinautum
sinum og náðu fljótt forskoti. Um
miðjan fyrri hálfleikinn var munurinn
fjögur mörk, 11—7 HK í vil, og sá
munur jókst í fimm mörk fyrir leikhléið.
17-12.
I siðari hálfleiknum jókst munurinn
og HK-menn náðu þeim mun, sem með
þurfti. Þeir gáfu hvergi eftir og loka-
mínútuna var mikill darraðardans á
fjölum iþróttahússins og KR-ingar
reyndu allt til að minnka muninn i sjö
mörk. HK-menn höfðu þá átta mörk yfir
svo spennan gat ekki verið meiri. Og
þeim tókst að halda sínum hlut — og
gott betur, þvi þeir skoruðu síðasta mark
leiksins.
Nær allir leikmenn HK sýndu sínar
beztu hliðar í gær og fáir léku betur en
fyrirliðinn, Karl Jóhannsson. 44ra ára
leiddi hann lið sitt til sigurs og fyrir
keppnina lofaði hann þvi að leika meö
næsta vetur ef HK kæmist i 1. deild. Sá
fjarlægi draumur fyrir nokkrum dögum
rættist í gær. Þá var golfmaðurinn
kunni, Ragnar Ólafsson, afar erfiður
KR-ingum og skoraði átta mörk. Fleiri
kappar liðsins létu að sér kvéða og HK
hefur innan sinna vébanda bráðefnilega
stráka og leikreynda menn. Um leik KR
er bezt að hafa sem fæst orð. Það var
ekki þeirra dagur í Mosfellssveit í gær.
Leika
f Póllandi
Lvropukeppm unglingalandshða i
knattspyrnu hefst I Póllandi á
föstudag, 5. maí. tsland er meðal þátt-
tökuþjóða og það er i fimmta skipti
siðustu sex árin, sem islenzka
unglingalandsliðið hefur unnið sér rétt
i þessa keppni. Það hefur vakið mikla
athygli eriendis. tslenzku leikmenn-
irnir, fararstjórar og þjálfarar héldu
áleiðis til Póllands á þriðjudags-
morgun. Fyrsti leikur liðsins er á
föstudag.
t sama riðli og ísland eru lið Ung-
verjalands, Belglu og Júgóslavíu —
lönd, sem talin eru meðal hinna beztu i
Evrópu. Belgia núverandi Evrópu-
meistari. Fyrsti leikur tslands verður
við Ungverjaland i föstudag — á
sunnudag verður leikið við Belgíu og á
þriðjudag við Júgóslaviu. Aðeins efsta
liöið f riðlinum kemst i undanúrslit
keppninnar. Það verður þvi við
ramman reip að draga fyrir islenzka
liðið en leikmenn voru ákveönir í að
gera sitt bezta. Lárus Loftsson, aöal-
þjálfari liðsins var mjög bjartsýnn á
góðan árangur, þegar haldið var til
Póllands. t islenzka liðinu eru 16 leik-
menn og sjást nokkrir þeirra á hinni
skemmtilegu DB-mynd Bjarnleifs hér
til hliðar. Aðalfararstjóri er Helgi
Danielsson, formaður unglinganefndar
KSÍ.
DAGBLADIÐ.MIDVIKUDACUR 3.MAÍ 1978.
íþróttir iþróttir íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Fyrsti sigurFylkis
í meistaraflokki!
Merkisatburður átti sér stað á Melavellinum i gær-
kvöld. Unga Árbæjarliðið Fylkir vann þá sinn fyrsta
sigur í meistaraflokki Reykjavíkurmótsins í knatt-
spyrnu. Sigraði Ármann 2—0 en þetta er i fyrsta
skipti, sem Fylkir hcfur fengið rétt til að leika i
meistaraflokki mótsins. Fylkir, sem aðeins á tíu ár að
baki, er að verða öflugt íþróttafélag — og meistara-
flokkur félagsins í handknattleik leikur i 1. deild næsta
keppnistimabil.
Það var líka annað merkilegt við leikinn f gær en
úrslitin. Fylkir skoraði þá sín fyrstu mörk í mótinu
áður hafði ieikmönnum liðsins ekki tekizt að koma
knettinum f mark mótherjanna. Mörk Fylkis skoruðu
Hilmar Sighvatsson og Hörður Antonsson. Bæði
skoruð i fyrri hálfleik.
Staðan i mótinu er nú þannig:
KR 5 3 2 0 9—1 10
Víkingur 5 3 0 2 9—6 7
Valur 4 2 0 2 13-4 6
Þróttur 5 2 2 1 6-4 6
Fram 4 12 1 4-4 5
Fylkir 6 12 3 2—7 4
Ármann 5 10 4 2—19 2
Júgóslavía í úrslit
Það verður Júgóslavfa, sem leikur til úrslita við
Austur-Þýzkaland i Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu, leikmenn 21 árs og yngri. 1 gærkvöld gerðu
England og Júgóslavfa jafntefli 1—1 á Maine Road í
Manchester. Það nægði Júgóslövum því þeir sigruðu i
heimaleik sínum 2— 1. Samtals þvi 3—2.
Enska liðið sótti mjög nær allan leikinn i gær en
komst lítið áleiðis gegn sterkri vörn Júgóslava. Þeir
voru oftast með átta menn í vörn og ekki bætti úr skák
fyrir enska, að leikmenn liðsins voru ekki á skotskón-
um, þegar tækifæri gáfust. Júgóslavar náðu af og til
skyndiupphlaupum og þegar sjö mfn. voru til leiksloka
tókst Halilhodzic að skora eftir mistök Joe Corrigan,
markvarðar enska liðsins. Á næstu mín. tókst varnar-
manninum Steve Sims að jafna fyrir England. Þar við
sat og enskir sitja eftir með sárt ennið. En þeir geta
engum nema sjálfum sér um kennt eftir að hafa verið
betra liðið í báðum leikjunum. Áhorfendur voru
24.423.
Monakófranskur
meistari
Monakó tryggði sér sigur i 1. deildinni frönsku í
gær, þegar liðið sigraði Bastia í síðustu umferðinni i
gærkvöld. Leikið var í Monakó og heimamenn
sigruðu 2—1. Nantes sigraði Nizza á sama tfma með
miklum mun, 6—1, en það nægði ekki. Liðið varð í
öðru sæti — stigi á eftir Monakó.
Staða efstu varð þessi:
Monakó 38 22 9 7 79—46 53
Nantes 38 21 10 7 60—26 52
Strassb. 38 19 12 7 70—40 50
Marseill. 38 20 7 11 70-41 47
Nancy 38 17 9 12 63—49 43
Lokahóf hand-
knattleiksmanna
Handknattleiksmenn halda sitt lokahóf i kvöld i
Sigtúni. Það hefst með borðhaldi kl. sjö. Verðlaun
verða afhenti íslandsmótinu og bikarkeppni HSf-en
síðan verður dansað með miklu fjöri til kl. tvö. Ýms
skemmtiatriöi verða.
I
vann
Perú
Landslið Brasiliu í knattspyrnu
sigraði Perú í gær með 3—0. Leikurinn
var háður í Rio og voru áhorfendur 180
þúsund. Zico skoraði fyrsta mark
Brasilfu en f síðari hálfleik skoraði
Renaldo tvivegis. Með þessum mörkum
vann hann sér örugglega sæti i HM-liði
Brasilfu en um tima var talinn vafl á þátt-
töku hans í Argentfnu. Þessi snjalli leik-
maður hefur átt við þrálát meiðsli að
striða, sem hann hefur nú yfirstigið.
Úlfamir og Millwall héldu
sætum sínum í 1. og 2. deild
Úlfarnir áttu ekki i erfiðleikum með
að halda sæti sfnu i 1. deildinni ensku,
þegar þeir léku við nágrannalið sitt frá
Birmingham, Aston Villa, í gærkvöld.
Úlfarnir sigruðu með 3—1 og komust
við sigurinn uppfyrir tvö Lundúnalið,
QPR og West Ham, og hið síðarnefnda
er fallið niður i 2. deiid eftir 20 ár f þeirri
fyrstu eða frá 1958. Úlfarnir hafa nú 34
stig, QPR 33 og West Ham 32 stig.
Úlfarnir eiga einn leik eftir. Hin liðin
hafa lokið leikjum sínum.
Þá tókst Millwall, félaginu úr hafnar-
hverfi Lundúnaborgar, að halda sæti
sínu í 2. deild — nokkuð, sem virtist úti-
lokað fyrir nokkrum vikum. En liðið
hefur unnið hvern leikinn á fætur
öðrum að undanförnu. 1 gær Mansfield
með 1—0 og skoraði John Seasman
markið þýðingarmikla. Millwall komst
upp í 14. sæti af 22 við sigurinn. Svo
mjótterámununum.
John Richards skoraði fyrsta markið í
Wolverhampton en John Little jafnaði
fyrir Villa. Mel Eves — enn á ferðinni
pilturinn sá — náði aftur forustu fyrir
Úlfana rétt fyrir hálfleik. Undir lokin
skoraði Bill Rafferty þriðja markið.
Úrslit i gær.
I.deild
Chelsea-QPR 3-1
WBA-Nottm. Forest 2-2
Wolves-A. Villa 3—1
Þeir Tony Brown og Wayne Hughes
skoruðu mörk WBA en lan Boywer og
John Robertsson, víti, mörk Forest. For-
est hefur nú 63 stig.
Leik Orient og Charlton var frestað
vegna bleytu á leikvelli Orient. Á að fara
fram í kvöld.
í úrvalsdeildinni skozku var einn
leikur háður. Neðsta liðið Clydebank
sigraði þá Dundee Utd. 2—0._
Öldungamótí
Bláfjöllum
Öldungamót á skiðum verður háð í
Bláfjöllum á morgun, flmmtudag, og
hefst kl. 12.00. öllum 35 ára og eldri er
heimil þátttaka. Það er unga fólkið i
skíðadeildunum, sem sér um fram-
kvæmd mótsins.
Nýjarsveiflurí tískunni
LeikhúsíLondon
Matur
í Boston
Doktorinn
frá
Freeport
kvaddur
Eftir skilnaöinn
-grein-
Ný hörkugóö framhaldssaga