Dagblaðið - 19.05.1978, Side 1
4.ÁRG.— FÖSTUDAGUR 19.MAÍ 1978— 103. TBL: RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSlMI 27022.
Aukin viðskipti við Nígeríu:
„ÞETTA ÞARF AÐ ATHUGA
SEM FYRST’
sagði Bragi Eiríksson,
framkvæmdastjóri Skreiðarsamlagsins
„Við höfum lengi vitað að stjórnvöld
i Nígeríu ræða um það hversu einhliða
viðskiptin milli Íslandsog Nigeriu eru.
Við heyrum þetta hvað eftir annað
þegar við erum að reyna að selja
skreiðina okkar þangað,” sagði Bragi
Eiríksson, framkvæmdastj. Skreiðar-
samlagsins, I viðtali við DB.
„Þarna eru mjög miklir möguleikar
á gagnkvæmri vöruskiptaverzlun.
Þetta þarf að kanna sem fyrst." sagði
Bragi. Hann sagði að okkur væri tvi-
mælalaus hagur að meira jafnræði i
viðskiptum landanna. Hann sagði að
við hefðum átt viðskipti við Nígeriu
allt frá árinu 1951. Tilraun hefði verið
gerð til að kaupa timbur frá Nigeríu.
Þetta hefði stöðvazt í borgarastriðinu
þar. Eftir stríðið hefði verið bannað að
selja óunnið timbur úr landi i Nígeriu.
Þar væri þó hægt að kaupa unnið
timbur svo sem krossvið og margt
fleira.
„Nigería er auðug af olíu. Því
skyldum við ekki geta keypt oliu
þaðan," sagði Bragi. Auk þess benti
hann á mikla kryddframleiðslu þar
auk margs konar vöru, sem við gætum
keypt.
Nokkrir innflytjendur hringdu til
DB i gær og spurðust fyrir um fréttina
um hugsanleg oliukaup íslands frá
Nígeriu. Þeir lýstu áhuga. sínum á
hugmyndum um olíuhreinsun I Port-
úgal. Töldu þeir að hún væri spor i átt
til þess að örva mjög hagstæð viðskipti
við það land.
- BS
Verða lán til
kaupa á eldri
íbúðumgerð
dálítið rausnar-
legri? - bis. 23
Lægðirnar
bíða
í röðum
„Það er dálítið erfitt með góða
veðrið á suðvesturhorninu. Að visu
lagast veðrið svolítið þar í dag, léttir til
og lægir en með kvöldinu og i nótt
verður aftur vaxandi suðaustan átt og
liklega rigning." sagði Páll
Bergþórsson veðurfræðingur i
morgun.
„Lægðirnar biða i röðum eftir að
komast hingað og sú sem er nú að
koma er mjög óþolinmóð og ryðst
fram.”
Það þýðir samt ekki að missa
kjarkinn. Herðum upp hugann og
búum okkur undir enn eitt rigningar-
sumarið Suðvestanlands. Við getum
alltaf skroppið norður og austur á land
ef við erum alveg að farast úr sólar-
leysi.
Það var bæði stillt og bjart þar i
morgun en lofthiti var ekki ýkja
mikill. 6 stig voru á Akureyri og
Mánárbakka en 7 i Reykjavik. Þar var
raunar hlýjast á landinu i morgun.
Þrátt fyrir rok, rigningu og kul sendi
hún okkur hlýtt og fallegt hros þessi
telpa á harnaheimilinu Hliðaborg. —
DB-mynd Hörður.
Haukur Angantýsson (til vinstri) réttir
Helga höndina og óskar til hamingju
með titiiinn í gærkvöldi — DB-mynd
Sigurjón.
HelgiÓlafsson
íslandsmeistarí
ískákl978
Helgi Ólafsson vann þriðju skákina i
fjögurra skáka einviginu við Hauk
Angantýsson i gær. Þar með varð Helgi
íslandsmeistari 1978. Hann hafði fyrir
þriðju skákina unnið eina og gerl
jafntefli i annarri. Honum nægði þvi
einn vinningur til að vinna einvigið.
Haukur hafði hvítt í úrslitaskákinni.
Helgi náði undirtökunum og gaf
Haukur skákina í 32. leik.
-BS
FUNDU VÍN-
BIRGÐIRÁTVR
Á þriðjudaginn sáust þess merki að
farið hafði verið i vörugeymslu Eimskips
á Austurbakka við Reykjavíkurhöfn.
Þar inni voru m.a. geymdar birgðir
áfengra drykkja sem ÁTVR átti. Við
rannsókn hefur komið i Ijós að um það
bil þrir kassar eru horfnir og er þar um
vodka og eitthvað fleira að ræða.
Rannsóknarlögreglan hefur haft
málið til meðferðar og fundið söku-
dólgana. Voru það 15 ára piltar sem að
undanförnu hafa verið til heimilis á
unglingaheimilinu i Kópavogi. Málið er
ennirannsókn.
•A.St.
ÞU ÞARFT EKKIAD BORGA HUSALEIGU -
EN VIÐ SOFUM SAMAN TVISVAR í MÁNUÐI!
Er húsnæðisvændi í gangi í Reykjavík?
Er vændi í gangi I Reykjavik? Já svo
sannarlega — húsnæðisvændi! Trúi
þvi hver sem vill en kona nokkur
hringdi á ritstjóm blaðsins i gær.
Sagðist hún hafa auglýst eftir íbúð og
gefið upp simanúmer sitt.
Hún fékk aðeins tvær upphring-
ingar og þær báðar í hæsta máta
furðulegar, í báðum tilfellum vildu
leigusalarnir ekki peninga fyrir húsa-
leigu, heldur vildu þeir fá blíðu
konunnar.
Konan sagði að í auglýsingunni
hefði staðið að hún væri gift. Annar
maðurinn, sem sagðist vera utan-
bæjarmaður, sagði að það skipti sig
engu máli. Hann kæmi i bæinn tyisvar
i mánuði og hvort hann gæti ekki
fengið að sænga hjá henni.
Þessi unga kona var undrandi yfir
þessum upphringingum og hneyksluð
yfir að einhver geti látið sér detta
annaðeinsi hug.
Má benda fólki sem þarf að auglýsa
eftir húsnæði á að hægt er að láta
aulýsingaþjónustu Dagblaðsins taka á
móti símtölum fyrir sig endurgjalds-
laust. Með því móti má losna við ógeð-
felldar upphringingar.
Bretum ferfram:
Nimrodþota
tekur land-
helgisbrjót
ífyrsta skipti
— sjá erlendar
fréttirbls. S—9