Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19.MAÍ 1978. 13 „Litlir staðir hafa ekki efni á sundrungu” — samt verður hart barizt um hvert atkvæði Íbúafjöldi Grindavíkur hefur senn fjórfaldazt frá því árið 1950. Þá voru þar 492 menn en nú eru þeir senn komnir á nitjánda hundraðið. Enda er Grindavík nú komin i tölu bæjarfélaga og kjörnum fulltrúum hefur fjölgað úr 5 i 7. Árið 1962 var þar tveggja flokka kerfi i hreppsnefndarkosningum, Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks. Það ár hlaut Alþýðuflokkurinn 242 atkvæði og 3 menn kjörna, sem þá var hreinn meiri hluti. Sjálfstæðismenn fengu 126 atkvæði og tvo menn i hreppsnefnd. í næstu hreppsnefndarkosningum 1966 bauð svo Framsóknarflokkurinn fram lista. Með þvi framboði hjó hann greini- lega inn i raðir beggja gömlu flokkanna. Þó hélt Alþýðuflokkurinn hreinum meirihluta í hreppsnefnd eða þreni mönnum. Framsóknarflokkurinn fékk þá 121 atkvæði og einn niann. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 112 atkv. og 1 mann. Þá reis sól Alþýðuflokksins hæst á pólitiskum Grindavikurhimni. Raunar hefur Alþýðullokkurinn óviða haldið kjörfylgi jafnmiklu að tiltölu sem í Grindavik. 1970 fékk Framsóknar- flokkurinn 182 atkv. en Sjálfstfl. 160. Alþfl. fékk þá 218 atkv. en varð að láta sér nægja tvo menn í hreppsnefnd. Árið 1974 buðu framsóknarmenn og vinstri menn fram á sameiginlegum lista. „Vinstri mennimir" voru að meginhluta alþýðubandalagsmenn. sem ekki höfðu enn boðið fram sjálf- stæðan lista. Þessi listi fékk 2 ntenn. Alþýðuflokkurinn hélt tveim. en Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 3 menn. Flal'ði Sjálfstæðisflokkurinn bætt við sig 117 atkv. en Alþýðufl. tapað aðeins einu atkvæði. 1974 var fyrst kosið í Grinda- vikurbæ. sem var og er ört stækkandi byggðarlag. Grindavík hefur löngum verið einhver t'engsælasta verstöð á landinu. Þaðan reru um 100 bátar á vetrarvertið i ár. Alþýðuflokkur og framsóknar- og vinstri menn mynduðu bæjarstjórnar- meirihluta eftir kosningarnar 1974. Eins og einn þeirra bæjarstjórnarmanna. sem DB ræddi við. sagði. var samvinna bæjarfulltrúa góð á kjórtímabilinu. „Litlir staðir hafa ekki efni á sundr- ungu," sagði hann. Nú bjóða fram fjórir flokkar i bæjar- stjórnarkosningum. Verður fróðlegt að sjá hvernig þær kosningar fara. auk þess sem Grindavik vegur æ þyngra i kjör- dærninu í alþingiskosningum. - BS Hverju spáir þú um úrslit bæjarstjórnar- kosninganna? Ólafur Sxmundsson hefilstjóri: Það gct ég ekki — um það er ómögulegt að spá. Maður vonar það bezta. cins og hinir. Flvernig sem þær fara eru það atvinnu möguleikar og iðnaður. sem hcl/t þarf að hiijsa um. Bogi Hallgrímsson kennari (B-lista): Samvinnan góð og andstaðan sanngjörn Heita vatnið frá Hitaveitu Suðurnesja streymir dag og nótt til Grindavikur. „Við buðum fram með alþýðubanda- lagsmönnum og mynduðum siðan meiri- hluta með Alþýðuflokknum eftir siðustu bæjarstjórnarkosningar hér i Grindavik. Samvinnan hefur verið góð og and- staðan sanngjörn. Litlir staðir hafa ekki efni á sundrungu,” sagði Bogi Hall- grimsson kennari i viðtali við DB. Hann er nú efsti maður á lista framsóknar- manna. „Hér eru atvinnumálin mjög ofarlega á baugi. í þeim er ótryggt ástand. Hér er vaxandi fiskileysi og afkoma atvinnu- fyrirtækjanna ótrygg." sagði Bogi. „Hér byggist allt á sjávarafla. Ef hann bregzt eða minnkar verulega horfir til vand- ræða. Af verklegum framkvæmdum má nefna byggingu iþróttahúss, varanlegt slitlag á götur og við erum að Ijúka við holræsagerð. Þá þarf að halda höfninni i góðu horfi. Hún er góð og þarl' að vera það. Héðan róa um 100 bátar á vcrtið enda cr Grindavik einhver bezta vcrstöð á Suðvcsturlandinu." sagði Bogi. „i iitaveituframkvæmdir ber mjög hátt. þegar rælt er um framkvæmdir á loknu kjörtimabili. Lagt hefur verið i Járn- gerðarstaðahverfið. Nú þarf að leggja i Þórkötlustaðahverfið og Eyjabyggð. sem svo er nefnd vegna Viðlagasjóðs- húsanna, sem hér voru reist i Vest- mannaeyjagosinu,"sagði Bogi. Hann kvað mikla eftirspum eftir hús- næði. Margl fólk vill flytja til Grinda- vikur. Nú er verið að hefja byggingu skólahúss, þar sem rikisframlagið ræður miklu um framkvæmdahraða. Þá er Bogi Hallgrimsson kennari (B). hugsað nokkuð fyrir öldruðu fólki með aðild að DAS i Hafnarfirði. Bogi lagði áherzlu á góða reynslu af frábæru samstarfi byggðarlaganna á Suðurnésjum. Hún hefði myndað sterkt afl. scm ntargt gott hcfði leitt af og ætti cflaust eftir aðgera i enn meira mæli. • BS Grindavík er á bannsvæði ríkisvaldsins — segirSvavar Arnason frkvstj „Grindavik er. eins og aðrar byggðir Suðurnesja. á bannsvæði rikisvaldsins varðandi aðgang að fjármagni til jafns við aðra landshluta. Með þvi er atvinnu- öryggi bæjarbúa stefnt i beinan voða." sagði Svavar Árnason framkvstj., elsti maður á lista Alþýðuflokksins i Grinda- vík. „Við sem skipum A-listann við bæjar- stjórnarkosningarnar í vor erum þeirrar skoðunar, að atvirtnuöryggi íbúanna sé það málið, sem öllu varðar. Éger þeirrar skoðunar. að bæjarstjórn geti ekki látið atvinnumálin afskiptalaus. ef sjávarút- vegurinn yrði fyrir meiri skakkaföllum cn orðið er." sagði Svavar. „Sjálfsagt er að laða að iðnfyrirtæki. Ég er samt þcirrar skoðunar. að cnginn iðnaður geti komið í stað sjávarútvegs- ins. Það þarf hugarfarsbreytingu hjá þeim ötlum i þjóðfélaginu. sent ráð- stafa fjármagni þjóðarinnar. í ungu bæjarfélagi i framför biða óteljandi vcrkefni úrlausnar. Við teljum ekki fram neinn loforðalista. Fjár- magnið hlýtur að ráða ferðinni. Öll viljum við gera okkar bezta. Holræsi og gatnagerð eru eilifðarmál í vaxandi byggð. Að öðru leyti verður að mcta framkvæmdaröð. Við höfum ákveðið að láta byggingu iþróttahúss fyrir æskulýð- inn hafa forgang. Við stefnum að þvi að það verði byggt á næsta ári." sagði Svavar Árnason að lokum. - BS m---------------► Svavar Árnason frkvstj. (A). Úrslití fjórum síðustu kosningum 1974 1970 1966 1962 Alþýðuflokkur 217-2 218-2 196-3 242-3 Framsókn og vinstri menn 203-2 Sjálfstæðisfl. 277-3 160-1 112-1 126-2 Framsóknarfl. 182-2 121-1 Jóhannes Guðmundsson sjómaóur: Lg hefi alltaf verið úti á sjó og f>lgist ekki rneð. Auk þess er ég að flytja héðan vestur á lirði i meira atvinnuöryggi. Sæmundur Jónsson hílstjóri: Lg lield að Sjálfstæðisnokkurinn tapi einurn ntai n, lai tvo. Framsókn og Alþýðuflokkur lá lika tvohvor og Alþýðubandalagiðeinn Guðgeir Helgason sjómaður: Ltli maður rcikni ekki með tveim sjálfstæðis mönnum. tveint framsóknarmónnum og tveim alþýðuflokksmönnum og Alþýðu bandalagið lái einn. Kðvarð Júlíusson, skipstj., útgerðarm. með meiru: Allir vona það bezta l'yrir sig. Ég er sjálfstæðismaður. Við erunt með þrjá. Ég held við séunt með góða von i þcini fjórða. 4 listarí kjöri A-listi Alþýðuflokkur 1. Svavar Árnason frvkstj.. 2. Jón Hólmgeirsson bæjarritari. 3. Guðbrandur Eiriksson skrifstm., 4. Sigmar Sævaldsson rafvirki. 5. Sæunn Kristjánsdóttir húsfrú . 6. Sverrir Jóhannsson umboðsmaður. 7. Jón Gröndal kennari, 8. Pétur Vilbergsson sjómaður. 9. Jón Leósson útgerðarm.. 10. Lúðvik Jóelsson bifrstj.. 11. Þórarinn Ólafsson skipstj., 12. Hjalti Magnússon verslm.. 13. Einar Kr. Einarsson. fyrrv. skólastj.. 14. Kristinn Jónsson. B-listi Framsóknarflokkur 1. Bogi G. Hallgrimsson kennari. 2. Halldór Ingvason kennari. 3. Hallgrimur Bogason. skrifstm. 4.SvavarSvavarsson múrari. 5. Willard Ólason skipstj.. 6. Gunnar Vilbergsson lögregluþjónn. 7. Sigurður Sveinbjörnsson útibússijóri. 8. Helga Jóhannsdóttir húsfreyja. 9. Sigurður Vilmundsson.trésmiður. 10. Gylfi Halldórsson verkstj.. 11. Kristján Finnbogason útgerðarm.. 12. Kristinn Þórhallsson rafvirki. 13. AgnarGuðmundsson bifrstj.. 14. Ragnheiöur Bergmundsd. húsfreyja. D-listi Sjálfstæðisflokkur 1. Dagbjartur Einarsson frkvstj.. 2. Ólina G. Ragnarsdóttir húsm., 3. Björn Haraldsson vcrzlm.. 4. Guðmundur Kristjánsson verkstj.. 5. Eðvarð Júliusson útgerðarm.. 6. Viðar Hjaltason vélsm.. 7. Jens Óskarsson skipstj.. 8. Ástbjöm Egilsson kaupm.. 9. Ágústa H. Gisladóttir húsfrú. 10. AlexandcrG. Edvardsson ncmi.. 11. Aðalgeir Jóhannsson netagerðarm.. 12. Sævar Óskarsson sjóm.. 13. Guðmundur Þorsteinsson frkvstj.. 14. Jón Danielsson. G-listi Alþýðubandalag 1. Kjartan Kristófersson sjómaöur. 2. Guðni ölversson kennari. 3. Helga Enoksdóttir húsm.. 4. Guömundur Wium stýrimaður. 5. Jón Guðmundsson pipulagningam., 6. Unnur Haraldsdóttir hárgreiðsluk.. 7. Ragnar Þór Ágústsson kcnnari. 8. Hclgi Ólafsson skipstj.. 9. Hinrik Bergsson vélstj., 10. Bragi Ingvasonsjóm., 11.SigurlaugTryggvadóttir húsm.. 12. Böðvar Halldórsson vélstj.. 13. Vilberg Jóhannesson verkam.. 14. Ólafur Andrésson sjóm. Alexander Edvardsson nemi: Þctta verður svipaðog var. Sjálfstæðismenn fá 3. Alþýðuflokkurinn 2 og Framsókn lika 2. Framboð Alþýðubandalagsins gæti drcift atkvæðum þannig. að Fram sókn tapaði einum og Sjálfstæðisflokk urinn bætti þá við sig manni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.