Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 18
22 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978. Ólafsfjörðnr Birna Friðgeirsdóttir húsmóðirD-lista: Stórmál fyrir okkur konur... Birna Friðgeirsdóttir húsmóðir: „Da)>- vistunarmál hér eru stórmál fyrir okkur konur.” „Ég vil ekki blanda pólitik i þetta framboð mitt, — ég fer i framboð vcgna áhuga mins á bæjarmálum og skipa mér í flokk með þvi fólki sem ég treysti." sagði Birna Friðgeirsdóttir. annar maður á lista sjálfstæðismanna á Ólafsfirði. „Mitt áhugamál er að lokið verði við byggingu Heilsugæzlustöðvarinnar sem fyrst og starfsemi hennar skipulögð. Svo eru náttúrulega eilífðarmálin eins og hafnarmálin, þeim verðum við að sinna af miklum krafti." Birna taldi litið gert fyrir eldra fólkið á Ólafsfirði og nefndi í því sambandi að heimilishjálp væri engin. Þá þyrfti að skipuleggja tómstundastörf fyrir eldra fólkið. „Tannlæknaþjónusta hefur legið niðri hér i tið vinstri flokksins. Úr því ófremd- arástandi þarf að bæta hið bráðasta," sagði Birna ennfremur. „Þá munum við leggja mikla áherzlu á framhaldsmennt- un, sem er litil hér. Af öðrum félagsmál- um vil ég nefna leikskólamálið sem er stórmál fyrir okkur konur hér á Ólafs- firði.” Bætt þjónusta við ferðamenn er einn ig eitt af baráttumálum Birnu og nefndi hún í því sambandi nauðsyn þess, að Ólafsfjörður hefði upp á allt að bjóða sem ferðamannastaður. Það þyrfti að kynna fólki og gera það vel og vandlega. —HP. TVEGGJA FLOKKA KERFI Utgerð og fiskvinnsla ásamt smáiðnaði eru aðalatvinnuvegir Ólafs- firðinga og er varla gert ráð fyrir þvi, að miklar breytingar verði þar á í náinni framtið. Er skiljanlegt að fiskurinn spili stóra rullu á staðnum, þvi að stutt er á góð mið en slæm hafnaraðstaða hefur löngum verið þeim erfiður þröskuldur. Hefur þvi verið gert mikið átak í hafnarmálum á staðnum á undanförn- um árum og er hugur i mönnum að bæta aðstöðu smábátaútgerðarinnar sem er mikil. Tveir skuttogarar eru gerðir út frá Ólafsfirði auk fjölda smábáta og þar eru tvö frystihús og ein fiskimjölsverk- smiðja. Þá eru éin tiu til tólf smáfyrir- tæki, sem vinna saltfisk og skreið. Iðnaður er aðalle'ga tengdur byggingariðnaði, svo sem trésmiðaverk- stæði, en gert er ráð fyrir að iðnaðar- hverfi risi á Ólafsfirði i framtíðinni enda vilja þeir eftir megni auka léttan smá- iðnaðóháðan útgerð. Við síðustu bæjarstjórnarkosningar á Ólafsfirði misstu sjálfstæðismenn meiri- hluta eftir rúmlega þrjátíu ára setu að völdum. Atkvæðamunurinn var mjög litill en nægði samt til. Vinstri flokkarnir stóðu þá í fyrsta skipti saman að framboði og þykir samstarfið hafa gefizt vel, alla vega standa þeir að fram- boði saman nú, svo segja má, aðtveggja flokka kerfi sé að festast I sessi á Ólafsfirði. Dagblaði heimsótti Ólafsfjörð á dögunum og ræddi við nokkra fram- bjóðendur um baráttumálin. -HP. Björn Þór Ólafsson íþróttakennari H-lista: íþróttahús er á döfinni „Samstarf okkar vinstri manna hefur gengið vel enda ekki. mörg mál til þess að rífast um,” sagði Björn Þór Ólafsson, annar maður á lista vinstri manna á Ólafsfirði i viðtali við DB. „Það hefur helzt verið röðun verkefna, en ekki verk- efnin sjálf, sem deilt hefur verið um í bæjarstjórh." Björn sagði framkvæmdir i heilbrigðismálum vera það, sem meiri- hlutinn gæti hvað mest státað sig af á kjörtimabilinu, en hafnar voru fram- kvæmdir við byggingu Heilsugæzlu- stöðvarinnar á Ólafsfirði. Byrjað var á byggingunni fyrir 10 árum, en því hætt er grunnurinn var kominn upp úr jörðu. „Það var m.a. hætt við frekari byggingu skólahúss gagnfræðaskólans til þess að rýma fyrir þeim framkvæmdum," sagði Björnennfremur. „Hér á Ólafsfirði er iþróttaáhugi gífurlega mikill,” sagði Björn. „Vegna starfs míns eru þau mál mér nærri og ég mun beita mér fyrir frekari framþróun á þvi sviði." -HP. Ármann Þórðarson útibússtjóri H-lista Stórbæta þarf samgöngur Ármann Þórðarson útibússtjóri á skrif- stofu sinni. „Á kjörtímabilinu hefur verið unnið mikið verk við hafnarframkvæmdir,” sagði Ármann Þórðarson, efsti maður á lista vinstri manna á Ólafsfirði. „Hún hefur verið dýpkuð mikið og gr'afið út úr Vesturhöfninni. Eins hefur verið rekið niður stálþil og höfnin tekin i notkun.” Ármann upplýsti, að i sumar yrðu hafnar framkvæmdir við gerð viðlegu- kants við hlið frystihússins, svo að togarar gætu lagzt þar að og landað beint. „Þá eru i smiðum hér sjö íbúðir á vegum bæjarins, en mikill skortur hefur verið á leiguhúsnæði hér í bænum. Er vonazt til, að þær íbúðir verði tilbúnar undir haustið,” sagði Ármann enn- fremur. Ármann nefndi framkvæmdir við nýja aðveituæð fyrir kalt vant úr Bursta- brekkudal og nýjar borholur nær bæn- um fyrir hitaveituna, en hitaveitan hefur verið á Ólafsfirði siðan árið 1945. „Fyrir utan áframhaldandi fram- kvæmdir við Heilsugæzlustöðina vil ég nefna nauðsyn stórbættra samgangna við Ólafsfjörð,” sagði Ármann. „Bæta þarf samgöngur við Skagafjörð og ég er mjög fylgjandi bættum flugsamgöngum hingað, sem nú eru á döfinni." _HP. Gísli M. Gíslason framkvæmdastjóri D-lista: Við skipulögðum þau mál sem nú hefur verið unnið að... „Stærstu verkefnin eins og bygging Heilsugæzlustöðvarinnar hafa gengið vel,” sagði Gísli M. Gíslason þriðji mað- ur á lista sjálfstæðismanna á Ólafsfirði. „Þá hefur verið gert mikið i hafnarmál- um, sérstaklega i Vesturhöfninni og i heild má segja að nokkuð vel hafi verið unnið að þeim málum, sem skipulögð ö voru á kjörtimabilinu þar á undan. Ég legg áherzlu á, að fjölbreytni verði aukin hér í skólamálum og nefni sérstak- lega framhaldsmenntun,” sagði Gísli ennfremur. „Hér hefur verið rekin deild úr Iðnskólanum á Akureyri, en allt virð- ist vera á huldu um framtið þess máls." Þá nefndi Gisli að bæta þyrfti aðstöðu barnaheimilisins og ennfremur þyrftu Ólafsfirðingar að gera mikið átak i að efla þjónustu við ferðamenn, sem hann sagði vera fjölmarga yfir sumartimann. Hér er hótel í smíðum, en við þurfum að gera meira og þá sérstaklega að bæta samgöngur við Skagafjörð." —HP. Bjöm Þór Ólafsson íþróttakennari: „Samstarfid hefur gengið mjög vel.” Gfsli M. Gislason framkvæmdastjóri: Sjálfstæðisflokkurinn lagði drögin að þeim framkvæmdum sem unnar hafa verið.” Bæta þarf aðstöðu fyrir smábátana Sigurður Jóhannsson húsvörður vill bæta aðstöðu fyrir smábátana. SiguröurJóhannsson húsvörðurH-iista: „Hafnargerðin hér er eilífðarmál en framlag rikisins til framkvæmda hér hefur verið skert verulega eins og annars staðar, þar sem féð hefur farið til lands- hafna," sagði Sigurður Jóhannsson þriðji maður á lista vinstri manna i við- tali við DB. „En með tilkomu skuttogar- anna hafa kröfurnar til fiskihafnanna aukizt og við verðum að gera verulegt átak til þess að koma höfninni i viðun- andi horf.” Sigurður sagði að framundan væri að dýpka höfnina enn frekar og mikið þyrfti að gera til þess að bæta aðstöðu fyrir smábátana, t.d. kaupa sérstakan löndunarkrana. „Þá vonumst við til þess. að hægt verði að halda áætlun við byggingu Heilsugæzlustöðvarinnar, sem er okkar stóra mál," sagði Sigurður ennfremur. „Aukin öflun á vatni bæði heitu og köldu er mikið nauðsynjamál og haldið verður áfram við gatnagerð. Varðandi samgöngur við Ólafsfjörð vil ég lýsa mig eindreginn stuðnings- mann þess, að reynt verði að konia á áætlunarflugi hingað i samstarfi við Vængi," sagði Sigurður. „Þá er það von mín, að rikið veiti aukið fé til jtess að bæta veginn til Skagafjarðar þvi ómæld- ar upphæðir fara í snjómokstur þar ár- lega.” —HP. Úrslit ífyrri kosningum 1974 1970 1966 1962 Sjálfstœðismenn 283-3 251-4 237-4 228-4 Vinstri menn 303-4 86-1 176-2 194-3 Alþýðuflokkur 108-1 111-1 48-0 Framsóknarflokkur 123-1 Tveir listar í kjöri Framboðslisti sjálfstæðismanna 1. Kristinn G. Jóhannsson skólastjóri 2. Birna Friðgcirsdóttir húsmóðir 3. Gisli M. Gíslason framkvstj. 4. Ásgeir Ásgeirsson bæjargjaldkeri 5. Garðar Guðmundsson skipstjóri 6. Gunnar Þór Magnússon framkvstj. 7. Sigurður Bjömsson lögregluþjónn .8. Július Magnússon sjómaður 9. Klara Ambjömsdóttir húsmóðir 10. Gunnlaugur J. Magnússon framkvstj. 11. Guðni Aðalsteinsson bilasmiður 12. Svavar B. Magnússon framkvstj. 13. Jakob Ágústsson rafstjóri 14. Ásgrimur Hartmannsson framkvstj. Framboðslisti vinstri manna 1. Ármann Þórðarson útibússtjóri 2. Bjöm Þór Ólafsson íþróttakennari 3. Sigurður Jóhannsson húsvörður 4. Gunnar L. Jóhannsson bóndi 5. Stefán B. ólafsson múrarameistari 6. Bragi Halldórsson skrifstofumaður 7. RikharðurSigurðsson bifreiðastjóri 8. Guðbjörn Arngrimsson verkamaður 9. Sumarrós Helgadóttir húsmóðir 10. Gisli Friðfinnssonsjómaður 11. Jónína Óskarsdóttir, starfm. Einingar 12. Sveinn Jóhannesson verzlunarmaður 13. Ásgrimur Gunnarsson verkamaður 14. Bjöm Stefánsson fyrrv. skólastjóri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.