Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978. írjálst, nháð dagUað Útgefandi Dagbladið hf. Framkværodastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson. Fréttastjón: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfuiltríji: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannes Reykdal. íþróttin Hallur Sfmonarson. Aðstoóarfróttastjóri: Atfi Steinarsson. Handrít: Ásgrímur Póisson. útaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdóttir, Gissur Sigurðs- son, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndin Ámi P6II Jóhannsson, Bjamle'rfur Bjamleifsson, Hörður VithjólmsSon, Ragnar Th. Sigurös- son, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkerí: Práinn Þoríeifsson. Sökistjórí: Ingvar Sveinsson Drerfingarstjórí: Már E. M. Halldórsson. Ritstjóm Síöumúla 12. Afgreiðsla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðsíl- slmi blaðsins 27022 (10 línur). Áskrift 2000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Siöumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skerfunni 10. Danmörk: Atvinnulausir og sjúk- ir á sólarstrendur fyrir ríutu og fimm krónur Sérkennileg barátta Meirihlutinn í Reykjavík segist vera að falli kominn. Stærsti flokkur minni- hlutans segist vonlaus um að bæta við sig manni. Annar flokkur hans segir það sér að þakka, sem vel sé gert. Og minnsti flokkurinn hefur tæpast haldið úti blaði né baráttu að undanförnu. Kosningabaráttan í Reykjavík er vægast sagt sér- kennileg í þetta sinn. Hún virðist vera rekin sem fræði- grein fremur en hin blindu og stjórnlausu slagsmál, sem áður tíðkuðust. Langskólagengnir og langreyndir sér- fræðingar gæta þess vandlega, að allt sé á lágum nótum og fari ekki úr böndum. Kosningabaráttan var líkust þessu árið 1966, þegar flestir flokkarnir komu fram eins og þeir væru með hálfan huga við þær. Árið 1970 hófst baráttan á svipað- an hátt, en þá biluðu taugar sumra á endasprettinum. Hin gamla harka lét á sér kræla í lok kosningabaráttunn- ar. Ekkert bendir til, að neinar taugar muni bila í þetta sinn. Sérfræðingar flokkanna telja reynsluna mæla með lágum nótum í kosningabaráttu. Og ráðamenn flokk- anna taka mark á sérfræðingum sínum að þessu sinni. Efnisatriðin eru léttvæg í kosningabaráttunni. Meiri- hluti Sjálfstæðisflokksins býður ekki upp á neitt sérstakt höfuðmál að þessu sinni, hvorki gula, rauða né bláa bylt- ingu. Og allt bendir til, að þetta sé með ráðum gert. Svipað er uppi á teningnum hjá minnihlutanum. Hann kristallar ekki andstöðu sína í neinu höfuðmálefni, né beinir hann spjótum sínum að neinum aðalveikleika stjórnarfars meirihlutans. Flokkar minnihlutans vilja greinilega ekki, að fólk telji skörp skil milli hans og meiri- hlutans. Tölfræðilegir útreikningar á fylgisprósentum og full- trúafjölda eru ær og kýr kosningabaráttunnar. Það eru hingað til einu atriðin, sem flokkarnir hafa reynt að hamra á. Þar af leiðandi er ekki von, að almenningur hafi mikinn áhuga. Morgunblaðið sannar með tölum, að oft hafi munað sáralitlu í næstu kosningum á eftir velgengniskosning- um. í slíkum tilvikum hafi meirihlutinn nánast rambað á barmi falls. Þjóðviljinn sannar aftur á móti með tölum, að Alþýðubandalagið vanti svo mörg þúsund atkvæði í viðbótarfulltrúa, að vonlaust sé að fella meirihlutann. Til þess að kóróna gamansemina birtir Tíminn svo lof- greinar um ýmsa þætti borgarmálanna, að því er virðist aðeins til að koma því á framfæri, að framsóknarmenn hafi átt hugmyndirnar og síðan stutt framgang þeirra hjá Reykjavíkurborg. Öðruvísi okkur áður brá, þegar allt var teiknað í svarthvítu! Sérfræðingarnir virðast telja, og sennilega með réttu, að hinir óvissu kjósendur hafi hvorki áhuga á oflofi um gerðir meirihlutans né ósanngjarnri gagnrýni á þær. Ennfremur hafi þeir ekki áhuga á stórkarlalegum lof- orðum fram í tímann, hvorki af hálfu meirihluta né minnihluta. Af baráttunni mætti ætla, að allt snúist um hóp þög- ulla kjósenda, sem helzt mundu kjósa Sjálfstæðisflokk- inn, ef þeir nenntu að kjósa. Hinum tölfræðilega menú- ett sérfræðinga flokkanna virðist helzt beint að slíkum hópi manna, til að fá hann annars vegar til að kjósa og hins vegar til að sitja heima. Vonandi verða stjórnmálaflokkarnir þó ekki svo vís- indalegir, að hefðbundin barátta deyi alveg út. Orlofsstofnun dönsku launþegasam- takanna hefur tekizt að bjóða sjúkum og atvinnulausum félögum sínum sólarferðir fyrir ótrúlega lágt verð. Hefur verið samið við hina þekktu dönsku ferðaskrifstofu Tjæreborg Rejser um ferðirnar og verðið fyrir einstakling fer allt niður í 95 krónur danskar eða jafnvirði um það bil 4500 íslenzkra króna. Boðið er upp á ferðir til flestra vinsælustu ferðamannastað- anna við Miðjarðarhafið og er gert ráð fyrir að þrjátiu þúsund félagar í dönskum launþegasamtökum taki þátt I þeim í sumar. Eina skilyrðið er að þeir verða að vera sjúkir eða atvinnu- lausir. Ekki mun það þó vera svo að dönsku 95 krónurnar nægi öllum ferðakostnaði. Hann mun vera greidd- ur nokkuð niður af sjóðum danskra verkalýðsfélaga. Forsvarsmaður orlofsstofnunar- innar var spurður um ástæðurnar fyrir því að ákveðið hefði verið að bjóða Miðjarðarhafsferðir fyrir svo lágt verð og lengri ferðir fyrir jafnvirði frá níu þúsund krónum íslenzkum. Sagði hann að þessi stóri þjóðfélags- hópur, sem ekki kæmist fyrir á Gömul kaldastríðs saga: Áætlun um andspymu- hreyfingu á Notður- löndunum var tilbúin Bandaríkin höfðu uppi töluverðan viðbúnað til að koma á fót andspyrnu- hreyfmgum á Norðurlöndunum sem væru viðbúnar ef Sovétríkin legðu þau undir sig. Þetta var á tíma þegar kalda striðið stóð sem hæst og stjórn mála var í höndum CIA njósnastofnunar Bandaríkjanna. Frá þessu er sagt meðal ýmiss annars í bók, sem nýlega kom út í Bandaríkjunum og er höfundur hennar William Colby fyrrverandi yfirmaðurClA. Talið er að áætlanir um mótspyrnu- hreyfingu á Norðurlöndum hafði aðeins verið einn þáttur aðgérða sem áætlaðar voru af Bandaríkjunum og nokkrum Norðurlandanna um 1950. Vitað er að heildarstörfunum, þar á meðal njósnum i norðurhluta Sovét- ríkjanna sem stundaðar voru frá Noregi og Finnlandi, var stjórnað frá aðalstöðvum sem voru í Finnlandi. í bók sinni segir Colby frá þvi þegar hann kom til starfa i bandaríska sendi- ráðinu í Stokkhólmi árið 1951. Að nafninu til var hann sagður starfs- rhaður bandarisku utanrikisþjónust- unnar en i raun átti hann að stjórna uppbyggingu mótspyrnuhreyfingar á Norðurlöndunum sem viðbúin væri sovézkri innrás. Töldu Bandaríkja- menn réttara að falla ekki í sömu gryfjuna og bandamenn i siðari heims- styrjöldinni. Þurfti að hefjast handa við að koma á andspyrnuhreyfingum i löndum sem nasistar hernámu. Var þaðauðvitað ýmsum erfiðleikum háð. William Colby gætir þess að nefna aldrei nöfn þeirra Norðurlanda þar sem starfsemi hans var sem mest. En líklegast er að þau þeirra sem eru og voru í Atlantshafsbandalaginu hafi verið auðveldari starfsvettvangur heldur en ríkin utan þess. Eins og kunnugt er eru Danmörk og Noregur í Atlantshafsbandalaginu en Svíþjóð og Finnland utan þess. CIA foringinn fyrrverandi viðurkennir að hafa fengið það sem hann nefnir óformlega aðstoð leyniþjónusta þeirra rikja sem eru I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.