Dagblaðið - 19.05.1978, Side 19
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
23
Spurning
dagsins
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna?
Birna Thorlacius húsmóðir, vinnur i
frystihúsi hálfan daginn: Vinstri menn
sigra! Þeir hafa staðið sig með afbrigð-
um vel.
Gestur Pálmason verkamaður: Ég hef
ekki myndað mér neina skoðun um
þetta. Ég hugsa litið um pólitik.
Friðrik Hansson, vinnur í frystihúsinu:
Ég held það verði H-listinn. alveg tvi-
mælalaust. Þeir hafa staðið sig vel.
Sigriður Þorsteinsdöttir verkakona: Já.
nú veit ég ekki. Ef ég á að spá. þá held ég
að vinstri flokkarnir vinni.
% 'U
.
Björn Sveinsson, vinnur við löndun:
Samsteypan vinnur, samsteypan vinnur.
Björn Þörðarson skrifstofumaður: Það
er erfitt að spá og mér sýnist þetta hafa
gengið vel hjá þeim meirihluta, sem nú
starfar. En það er alltaf gott að skipta
um.
Viðræður að hefjast
um alvörulán til
kaupa á eldrí íbúðum
- fulltrúar Húsnæðismálastofnunar og Reykjavíkurborgar hittast á mánudag
Á mánudaginn hefjast viðræður
nefndar á vegum Reykjavíkurborgar
og Húsnæðismálastofnunar ríkisins
um lánvéitingamál stofnunarinnar til
kaupa á eldra íbúðarhúsnæði og fyrir-
hugað er einnig að stofnunin taki upp
viðræður við Samband islenzkra
sveitarfélaga um sama mál. Verður
þar væntanlega rætt um frekari hækk-
anir þessara Iáná7en nýlega voru þau
hækkuð úr allt að 600 þús. i allt að
milljón.Lán vegna nýrra íbúða eru nú
3.6 milljónir.
Sem kunnugt er hefur þetta átt sinn
þátt i að raska uppbyggingu stærri
bæja þannig að heilu hverfin hálf-
tæmast á meðan ungt fólk ræður ekki
við annað en að byggja nær eingöngu i
nýju hverfunum.
Sigurður E. Guðntundsson. fram-
kvæmdastjóri Húsnæöismálastofn-
unarinnar. sagði i viðtali við DB i gær
að al' stofnunarinnar hálfu væri fullur
vilji tilaðbæta úrþessu.
Liður i því væri m.a. að veita full
lán til allra þeirra ibúða. sem verið er
að byggja fyrir aldraða við Furugerði,
Dalbraut og Lönguhlið. Væntanlega
virkaði þetta hvetjandi á gamalt fólk,
sem ef til vill byggi eitt í heilu húsun-
um. að rýma þau og flytja i hinar nýju
íbúðir.
I l'yrra námu lánveitingar stoln-
unarinnar 5.977,8 milljónum króna til
byggingar og eða kaupa á 3879
íbúðum. G.S.
Græn bylting -JQrA -W - Jm ~ ' ' ' Sá tími árs er nú upp runninn að menn fara aö fegra kringum sig. Þessi mynd var tekin inni I Langholti þar sem verið var að útbúa skemmtilegt trjábeð. væntaniega einn angi gr innar, sem verið hefur síðustu fjögur árin. R.Th.Sig. tn bvltingar- i Iramkvæmd — DB-mynd
HjallafKkur
Mcrkið lem vann harðflsknum nafn
Fotlt hjá: Siggabúð Seffossi
Hjallur hf. - Sölusími 23472
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Nýir umboösmenn
Dagb/aðsins
Vopnafjörður
Ragnhildur Antoníusdóttir
Lónabraut 29, sími 97-3223.
Búðardalur
Anna Flosadóttir, Sunnubraut, sími 95-2159.
Ford Fairlane Fiat 128
Mini Peugeot 204
M. Benz 220 Saab 96 '
Einnig höfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Simi 11397
Atvinnurekendur!
Atvinnumiðlun Landssambands íslenzkra framhalds-
skólanemenda er tekin til starfa.
Vinnuveitendum er góðfúslega bent á að hringja í síma
16011 mánudaga til föstudaga kl. 9.00 til 18.00.
Selfoss og nágrenni
Alhliða sprunguviðgerðir. Margra
ára reynsia.
KJARTAN HALLDÓRSSON
SÍMI3863