Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
33
Hilmar Pétursson (B-lista):
í fyrsta skipti sem allir umsækjendur fá
byggingarlóðir — Varnarliðið á ekki að taka þáttí rekstri sorpeyðingarstöðvarinnar
„Þegar rætt er um bæjarmálefni er af
mörgu að taka en fyrst vil ég nefna
málefni aldraðra, sem nú eru mikið í
sviðsljósinusagði Hilmar Pétursson
skrifstofumaður, fyrsti maður á lista
framsóknarmanna til bæjarstjórnar.
„Fyrirhugað er að byggja sérstakar
íbúðir yfir aldraða og öryrkja nú á næstu
mánuðum. Það er staðreynd að margt
fullorðið fólk óskar eftir að komast i litl-
ar og þægilegar ibúðir og selja fyrri
íbúðir sinar, sem í mörgum tilfellum eru
orðnar allt of stórar, gamlar og viðhalds-
frekar. Bæjarstjórn hefur nýlega kosið
nefnd til að sjá um þennan málaflokk og
er Guðjón Stefánsson annar bæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins formaður
hennar.
Eitt af stærstu framtíðarverkefnum
'okkar Suðurnesjamanna í dag er að
koma upp fullnægjandi sorpeyðingar-
stöð fyrir öll byggðarlögin og Kefla-
víkurflugvöll sameiginlega. Ég er mót-
fallinn þvi að vamarliðið taki þátt í.
rekstri stöðvarinnar með sveitarfélögun-
um. Heldur greiði það fyrir þessa
þjónustu til þeirra á meðan það dvelur
hér.
Nú hin síðari ár hefur verið mikið gert
í skólabyggingum hér í Keflavík. Byggt
við gagnfræðaskólann og eru húsnæðis-
mál hans í góðu lagi. Byggt var yfir iðn-
skólann en það húsnæði hefur verið not-
að undir starfsemi Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Nú í sumar hefjast fram-
kvæmdir við nýbyggingu hans. Má segja
að með stofnun fjölbrautaskólans hafi
framhaldsmenntun verið flutt til Suður-
nesja og hefur það gífurlega þýðingu
fyrir okkur að þurfa ekki að senda
unglingana frá okkur til náms.
Mikið hefur verið byggt í Keflavik
síðustu árin og ný hverfi risið svo sem
Garða- og Eyjabyggð og nú er verið að
byggja í Heiðabyggðinni. Hin síðari ár
hefur bygginganefnd tekizt að úthluta
lóðum til þeirra, sem tilbúnir hafa verið
að byggja. Er það í fyrsta skipti sem það
hefur tekizt. Þá má ekki gleyma hinu-
glæsilega íþróttahúsi sem innrétta á nú i
ár.
Ég vil fullyrða að mesta framfaramál
okkar hér á Suðurnesjum séu hitaveitu-
framkvæmdirnar. Öll vinna við þær
hefur gengið mjög vel og verið til fyrir-
myndar. Lokið hefur verið við að koma
lögnum í mestan hluta bæjarins og búið
að tengja hús við nokkrar götur. Er fólk
þar að vonum mjög ánægt. Jóhann
Einvarðsson bæjarstjóri hefur verið for-
maður Hitaveitu Suðurnesja frá upp-
hafi og unnið mjög vel að þeim málum.
Erfiðleikar útgerðar og fiskvinnslu á
Suðurnesjum skyggja mjög á. Þau mál
hafa verið mikið rædd í fjölmiðlum og
víðar. Nú er verið að reyna leiðir til úr-
bóta í atvinnumálum með nokkurri að-
stoð ríkisvaldsins.
Orsakir þessara erfiðleika eru marg-
þættar en eflaust er þverrandi fiskur á
nærliggjandi miðum aðalmeinsemdin.
Aðstoð við útgerð á Suðurnesjum hefur
hingað til verið minni en annars staðar á
landinu og nábýli við varnarliðið og
verktaka á Keflavíkurflugvelli meðsínar
yfirborganir og miklu framkvæmdir er
erfitt.
Þetta og margt fleira spilar inn í þessa
óheillaþróun sem nú verður að stöðva.
Að lokum vil ég benda kjósendum á,
að Framsóknarflokkurinn hefur tekið
þátt i meirihlutasamstarfi hér í Keflavík
siðastliðin átta ár. — Mesta fram-
kvæmdatimabil i sögu bæjarins. Við
leggjum þvi óhræddir út í baráttuna til
að ná aftur þriðja bæjarfulltrúanum. í
síðustu kosningum skorti aðeins örfá at-
kvæði til aðsvo mætti verða."
ÓG
Ólafur Björnsson (A-lista):
Allir sem stutt hafa óheillaríkisstjórnina hljóta
að gjaldaþess
— endurreisn atvinnuhfsins stærra verkefni en
fólk almennt gerir sér grein fyrir
„Ég er bjartsýnn á úrslit kosninganna
þótt pólitik sé lítil í bæjarmálum hér í
Keflavík eins og vera ber,” sagði Ólafur
Björnsson útgerðarmaður, fyrsti maður
á lista Alþýðuflokksins til bæjarstjórnar.
„Sjálfstæðis- og framsóknarmenn hafa
staðið að meirihluta hér tvö síðastliðin
kjörtímabil. Mörgum finnst tími til kom-
inn að breyta til. Þar við bætist að allir
sem stutt hafa þessa óheillaríkisstjórn
hljóta að gjalda þess.
Þótt margt megi betrumbæta hér tel
ég að málefni aldraðra og öryrkja eigi að
hafa forgang næsta kjörtímabil. Þá tel
ég að þar sem ráðstöfunarfé sveitar-
stjórna er litið i reynd beri að leggja
áherzlu á bætta stjórnun og aðhald í
bæjarrekstrinum.
Stærsta verkefni sveitarstjórnar-
manna hér í Keflavík og öllum Suður-
nesjum næsta kjörtímabil verður að
beita sér fyrir endurreisn atvinnulifsins.
Hér er um stærra verkefni að ræða en
fólk almennt hefur gert sér grein fyrir og
því siður hafa stjórnvöld áttað sig á þvi.
Um aðrar framkvæmdir þarf ekki að
ræða nema þetta takist. Samstarf sveit-
arfélaga á Suðurnesjum þarf að endur-
skipuleggja. Þar eiga kjörnir fulltrúar að
taka við stjórn á sem breiðustum grund-
velli.
Stöðu fyrirtækja á Keflavíkurflugvelli
gagnvart sveitarfélögunum verður að
endurskoða. Sameinaðir eiga Suður-
nesjamenn að koma í veg fyrir að svæð-
ið sé nýtt eins og hver önnur nýlenda.
Fiskveiðar og fiskvinnslu er nán-
ast búið að flytja af þessu landsvæði og
við verðum að endurreisa þessar at-
vinnugreinar.”
ÓG.
Björnsson, fyrsti maður á lista Alþýðuflokksins.
Urslit í 4 sídustu
kosningum
Alþýðuflokkur
Framsóknarflokkur
Sjðlfstœðisflokkur
Alþýðubandalag
1974 1970
729-2 637-2
767-2 860-3
1043-4 828-3
289-1 283-1
1966 1962
585-2 458-2
1008-4 613-2
620-3 816-3
137-0
Fjórir listar
íkjöri
A-listi
Alþýðuflokksins
1. Ólafur Bjömsson
2. Guöfinnur Sigurvinsson
3. Karl Steinar Guðnason
4. Jón ólafur Jónsson
5. Gottskálk ólafsson
6. Guðrún Ólafsdóttir
7. Svafa Ásgeirsdóttir
8. óli Þór Hjaltason
9. Sigurður Ámason
10. ÞórhallurGuðjónsson
11. Hreggviður Hermannsson
12. JúlíusHögnason
13.Stefán Kristinsson
14. María Jónsdóttir
15. GuöjónÓIafsson
16. Guölaugur Eyjólfsson
17. Bjöm Jóhannsson
18. Ragnar Guðleifsson
B-listi
fulltrúaráðs
Framsóknar-
félaganna
1. Hilmar Pétursson
2. Guðjón Stefánsson
3. Sigutður Þorkelsson
4. Birgir Guðnason
5. Kristinn Danivalsson
6. Oddný Mattadóttir
7. Magnús Gunnarsson
8. Magnús Haraldsson
9. Jóhanna Jónsdóttir
10. Páll Jónsson
11. Margeir Jónsson
12. Halldór Þórðarson
13. Berghn Bergsdóttir
14. NielsÁ.Lund
15. Hjalti Guðmundsson
16. Ambjöm ólafsson
17. Jón Eysteinsson
18. Valtýr Guðjónsson
D-listi
Sjálfstæðisflokksins
1. TómasTómasson
2. Ingólfur Halldórsson
3. Ingólfur Falsson
4. Kristinn Guömundsson
5. Ingibjörg Hafliðadóttir
6. Ámi Ragnar Ámason
7. Ámi Þ. Þorgrímsson
8. Ingibjörg Eliasdóttir
9. Halldór Ibsen
10. EliasJóhannsson
11. Einar Kristinsson
12. EinarGuðberg
13. Bjöm Stefánsson
14. Jóhann Pétursson
15. Gunnlaugur Karlsson.
16. Jóhanna Pálsdóttir
17. Tómas Ibsen
18. Sesselja Magnúsdóttir
G-listi
Alþýðubandalagsins
1. Karl G. Sigurbergsson
7. Sigríður Jóhannesdóttir
3. Gylfi Guömundsson
4. Sólveig Þóröardóttir
5. Alma Vestmann
6. JóhannGeirdal
7. Birgir Jónasson
8. JónKr. Olsen
9. Amheiður Ingólfsdóttir
40. Sigurður N. Brynjólfsson
11. Jón Rósant Þórarinsson
12. Hjörtur Sigurðsson
13. Einar Ingimundarson
14. Alda Jensdóttir
15. Kári Tryggvason
16. Sigvaldi Amoddsson
17. Jónina Bergmann
18. Gestur Auðunsson
Spurning
dagsins
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna?
Páll Þór Jónsson húsasmíðameistari: Ég
tel líklegast að Sjálfstæðisflokkurinn fái
þrjá fulltrúa, Framsókn þrjá, jafnaðar-
menn tvoog Alþýðubandalagiðeinn.
Sturlaugur Olafsson kennari: Sjálf-
stæðið fær þrjá, Alþýðuflokkurinn tvo,
Framsókn þrjá og Alþýðubandalagið
einn. Framsókn vinnur sinn mann aftur
því hér virðist fólk fæðast inn í flokka
og litlu vilja breyta i þeim efnum.
Bogi Þór Jónsson iðnnemi: Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar einum manni, sem
Alþýðubandalagið vinnur. Aðöðru leyti
spái ég þvi að fulltrúatala verði óbreytt í
bæjarstjórninni.
Jón Guðlaugsson húsasmiðun Þetta
verður svipað og siðast. Fjórir sjálf-
stæðismenn, tveir frá Framsókn, tveir
frá Alþýðuflokki og einn alþýðubanda-
lagsmaður
Jens Hjelm húsasmiðanemi:
Alþýðuflokkur fær fjóra, sjálfstæðis-
menn þrjá, Framsókn tvo og Alþýðu-
bandalagið missir sinn fulltrúa.
Krístinn Rúnar Jónsson húsasmiðanemi:
Framsókn vinnur einn mann og fær
prjá, sjálfstæðismenn halda sínu og fá
fjóra og Alþýðuflokkurinn líka og fær
tvo.