Dagblaðið - 03.06.1978, Side 1

Dagblaðið - 03.06.1978, Side 1
íríálst ohái dagblað RITSTJÓRN SÍÐLMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022. 4. ÁRG. - LALGARDAGUR 3. JÚNÍ1978 - 116. TBL. Verkfallsátökin harðna í Hafnarfirði: STARFSFOLKIÐ LÆST INNIÁ ÚTGERÐAR- SKRIFSTOFUNNI þegarþað settist að og beið útborgunar Enn aukast átökin vegna verkfalls- ins i fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Hafn- arfjarðar. Ekkert virðist hafa þokazt í samkomulagsátt og í gær var útborg- unardagur og fékk þá aðeins hluti starfsfólksins greidd sin laun. Trúnaðarkonur fengu sín laun greidd, svo og það fólk sem unnið hafði á undanþágu við að þrífa i fisk- iðjuverinu og verkstjórar. Starfsfólkið sat i gær i matsal fyrirtækisins og eftir kl. fimm fór stór hópur starfsfólks til gjaldkera og settist þar og sagðist ekki fara fyrr en laun fengjust greidd. Fólk- inu var þá tjáð að engir peningar væru fyrir hendi. Þegar tiðindamenn Dagblaðsins komu á staðinn hafði þetta fólk verið læst inni i húsinu og komust menn hvorki út né inn. Með góðri aðstoð gátu blaðamaður og Ijósmyndari DB þó „smyglað” sér inn á skrifstofu Bæjarútgerðarinnar þar sem fólkið beið úrlausnar sinna mála. Skömmu siðar var tilkynnt að hver starfsmaður fengi 15 þúsund króna' borgun. Það var nokkur kurr í mann- skapnum þar sem vikugreiðslan er venjulega 37—40 þúsund krónur. Þetta fannst þeim þunnur þrettándi. Það fór þó svo að fólkið samþykkti þessa greiðslu þar sem sýnt þótti að meira væri ekki að hafa. Þetta var þó betra en sú yftrlýsing, sem áður hafði verið gefin, að ekki væri til króna til útborgunar. Að þessu loknu fór skrifstofustúlka niður og opnaði fyrir hópnum sem hafði verið læstur inni. t viðtali við forstjóra BÚH, sem er i DB í dag, kemur fram að kröfur starfsfólks séu óljósar, auk þess sem það sé á misskiln- ingi byggt, að konunni, sem átökin standa út af, hafi verið sagt upp. Þá segir forstjórinn einnig að sáttatilboði hans hafi verið hafnað. Það er þvi ljóst að verkfallsátökin í Hafnarfirði eru að harðna. - JH Það var ekki nema viss hópur starfs- manna Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar sem fékk útborgað f gær vegna verk- fallsins. Hiuti starfsfólksins sætti sig ekki við þau málaiok og settist að á skrifstofu fyrirtækisins þar sem það var siðan lokað inni. Eftir nokkurt japl hafðist það i gegn að hver fékk 15 þús- und kr. og miðað við aðstæður var það betra en við mátti búast. Það er þó hægt að skrimta af y fir helgina. Hér má sjá hluta starfsfólks Bæjar- útgerðarinnar og er hver með sin 15 þúsund i höndunum en venjulegt viku- liaup er um 40 þúsund. DB-mynd Ragnar Th. Einkaviðtal DB við Oscar Peterson - sjá bls. 12-13 Gömul og falleg hús, — en vanhirt — sjá bls. 4 HEIMSMEISTARI í DAGBLAÐSLIÐIÐ — Jón L Árnason skrifar um skák ÍDB DB er í sókn — á hvitum reitum og svörtum. Heimsmeistarinn ungi í skákinni, Jón L. Árnason, hefur tekið sér að skrifa skákþætti í DB. Hinn fyrsti er í blaðinu í dag — bls. 8 og 9. Þar skrifar Jón um deildakeppni Skák- sambands tslands, sem er að ljúka. Skákþættir Jóns verða i laugardags- blöðum DB — það er flesta laugar - daga — en aðrir munu gripa inn í þegar Jón er erlendis. DB fagnar að hafa fengið inn unga, snjalla skák- meistara i lið sitt og býður hann vel- kominn. Þá mun Friðrik Ólafsson stórmeist-, ari einnig sktifa skákþætti í DB eins og áður hefur verið skýrt frá. Skrifar hann af og til þætti eftir þvi sem efni rekur á fjörur hans, Skákhorn Friðriks Ólafssonar. Fylgizt með skákþáttum þessara snjöllu skákmanna i DB. - hsim. * ■l™ HM-sigur ítalíu gegn Frakklandi -2-1 íMardelPlataí V gær Það tók Frakkann Bernard Lacombe aðeins 41 sek. að skora gegn Ítölum á HM i gær í Mar del Plata — fyrsta mark í heimsmeistarakeppninni i knattspyrnu 1978 — en það nægði Frökkum skammt. ltalir skoruðu tví- vegis og sigruðu 2-1 í fyrsta leiknum i 1. riðli og hafa nú alla möguleika á að komast i milliriðil. Paolo Rossi, markakóngur ttalíu á siðasta leiktímabili, jafnaði á 29. min. Á 16. mín. hafði Bettega sent knöttinn í mark Frakka en það var dæmt af vegna rangstöðu. Bossis fékk mögu- leika að koma Frökkum í 2-0 en skall- aði fram hjá í opnu færi, 1-1 í hálfleik. Zaccarelli skoraði sigurmark ítala á 54. min. en hann kom inn á sem vara- maður fyrir Antognoni i byrjun s.h. Frakkar reyndu mjög að jafna. Dalger átti spyrnu rétt yfir þverslá og Lacombe skallaði rétt fram hjá. En allt kom fyrir ekki. ítalir sigruðu til mikill- ar ánægju fyrir 45 þúsund áhorfendur. sem nær allir voru á þeirra bandi. - hslm. Listahátíð hefstídag: ÞAR VERÐUR Ein- HVAÐ FYRIR ALLA Reykvíkingar og gestir i höfuðborginni hafa i mörg horn að líta næstu vikurnar. Listahátíð í Reykjavík verður opnuð í dag með viðhöfn að Kjarvalsstöðum en þar sýnir listamaðurinn Erró verk sín. Um helgina má skoða myndlistar- sýningar í FlM-salnum að Laugarnes- vegi 112 en þar er sýning Kristjáns Daviðssonar, í Norræna húsinu eru blómamyndir Vigdísar Kristjánsdóttur og sýning finnskra hjóna. Þá eru franskar og amerískar sýningar í gangi, höggmyndasýning, tónleikar i Þjóðleik- húsinu, listdans á þeim sömu fjölum og kátir leikarar munu leika á stultum á stað sem nánar verður auglýstur í út- varpinu. Þá má ekki gleyma Oscar Peterson og félögum í Laugardalshöll. Þeir skemmta jassunnendum í kvöld. Meira um listahátið á bls. 6—7 I blaöinu I dag. Erró, tíl vinstri, ásamt aðstoðarmanni við uppsetningu sýningarinnar miklu á Kjar- valsstöðum. DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.