Dagblaðið - 03.06.1978, Page 1
íríálst
ohái
dagblað
RITSTJÓRN SÍÐLMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022.
4. ÁRG. - LALGARDAGUR 3. JÚNÍ1978 - 116. TBL.
Verkfallsátökin harðna í Hafnarfirði:
STARFSFOLKIÐ LÆST
INNIÁ ÚTGERÐAR-
SKRIFSTOFUNNI
þegarþað settist
að og beið
útborgunar
Enn aukast átökin vegna verkfalls-
ins i fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar. Ekkert virðist hafa þokazt í
samkomulagsátt og í gær var útborg-
unardagur og fékk þá aðeins hluti
starfsfólksins greidd sin laun.
Trúnaðarkonur fengu sín laun
greidd, svo og það fólk sem unnið
hafði á undanþágu við að þrífa i fisk-
iðjuverinu og verkstjórar. Starfsfólkið
sat i gær i matsal fyrirtækisins og eftir
kl. fimm fór stór hópur starfsfólks til
gjaldkera og settist þar og sagðist ekki
fara fyrr en laun fengjust greidd. Fólk-
inu var þá tjáð að engir peningar væru
fyrir hendi.
Þegar tiðindamenn Dagblaðsins
komu á staðinn hafði þetta fólk verið
læst inni i húsinu og komust menn
hvorki út né inn. Með góðri aðstoð
gátu blaðamaður og Ijósmyndari DB
þó „smyglað” sér inn á skrifstofu
Bæjarútgerðarinnar þar sem fólkið
beið úrlausnar sinna mála.
Skömmu siðar var tilkynnt að hver
starfsmaður fengi 15 þúsund króna'
borgun. Það var nokkur kurr í mann-
skapnum þar sem vikugreiðslan er
venjulega 37—40 þúsund krónur.
Þetta fannst þeim þunnur þrettándi.
Það fór þó svo að fólkið samþykkti
þessa greiðslu þar sem sýnt þótti að
meira væri ekki að hafa. Þetta var þó
betra en sú yftrlýsing, sem áður hafði
verið gefin, að ekki væri til króna til
útborgunar.
Að þessu loknu fór skrifstofustúlka
niður og opnaði fyrir hópnum sem
hafði verið læstur inni. t viðtali við
forstjóra BÚH, sem er i DB í dag,
kemur fram að kröfur starfsfólks séu
óljósar, auk þess sem það sé á misskiln-
ingi byggt, að konunni, sem átökin
standa út af, hafi verið sagt upp. Þá
segir forstjórinn einnig að sáttatilboði
hans hafi verið hafnað. Það er þvi ljóst
að verkfallsátökin í Hafnarfirði eru að
harðna. - JH
Það var ekki nema viss hópur starfs-
manna Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
sem fékk útborgað f gær vegna verk-
fallsins. Hiuti starfsfólksins sætti sig
ekki við þau málaiok og settist að á
skrifstofu fyrirtækisins þar sem það
var siðan lokað inni. Eftir nokkurt japl
hafðist það i gegn að hver fékk 15 þús-
und kr. og miðað við aðstæður var það
betra en við mátti búast. Það er þó
hægt að skrimta af y fir helgina.
Hér má sjá hluta starfsfólks Bæjar-
útgerðarinnar og er hver með sin 15
þúsund i höndunum en venjulegt viku-
liaup er um 40 þúsund.
DB-mynd Ragnar Th.
Einkaviðtal
DB við Oscar
Peterson
- sjá bls. 12-13
Gömul og
falleg hús,
— en vanhirt
— sjá bls. 4
HEIMSMEISTARI
í DAGBLAÐSLIÐIÐ
— Jón L Árnason skrifar um skák ÍDB
DB er í sókn — á hvitum reitum og
svörtum. Heimsmeistarinn ungi í
skákinni, Jón L. Árnason, hefur tekið
sér að skrifa skákþætti í DB. Hinn
fyrsti er í blaðinu í dag — bls. 8 og 9.
Þar skrifar Jón um deildakeppni Skák-
sambands tslands, sem er að ljúka.
Skákþættir Jóns verða i laugardags-
blöðum DB — það er flesta laugar -
daga — en aðrir munu gripa inn í
þegar Jón er erlendis. DB fagnar að
hafa fengið inn unga, snjalla skák-
meistara i lið sitt og býður hann vel-
kominn.
Þá mun Friðrik Ólafsson stórmeist-,
ari einnig sktifa skákþætti í DB eins og
áður hefur verið skýrt frá. Skrifar
hann af og til þætti eftir þvi sem efni
rekur á fjörur hans, Skákhorn Friðriks
Ólafssonar.
Fylgizt með skákþáttum þessara
snjöllu skákmanna i DB. - hsim.
* ■l™
HM-sigur ítalíu gegn Frakklandi
-2-1 íMardelPlataí
V
gær
Það tók Frakkann Bernard
Lacombe aðeins 41 sek. að skora gegn
Ítölum á HM i gær í Mar del Plata —
fyrsta mark í heimsmeistarakeppninni
i knattspyrnu 1978 — en það nægði
Frökkum skammt. ltalir skoruðu tví-
vegis og sigruðu 2-1 í fyrsta leiknum i
1. riðli og hafa nú alla möguleika á að
komast i milliriðil.
Paolo Rossi, markakóngur ttalíu á
siðasta leiktímabili, jafnaði á 29. min.
Á 16. mín. hafði Bettega sent knöttinn
í mark Frakka en það var dæmt af
vegna rangstöðu. Bossis fékk mögu-
leika að koma Frökkum í 2-0 en skall-
aði fram hjá í opnu færi, 1-1 í hálfleik.
Zaccarelli skoraði sigurmark ítala á
54. min. en hann kom inn á sem vara-
maður fyrir Antognoni i byrjun s.h.
Frakkar reyndu mjög að jafna. Dalger
átti spyrnu rétt yfir þverslá og
Lacombe skallaði rétt fram hjá. En allt
kom fyrir ekki. ítalir sigruðu til mikill-
ar ánægju fyrir 45 þúsund áhorfendur.
sem nær allir voru á þeirra bandi.
- hslm.
Listahátíð hefstídag:
ÞAR VERÐUR Ein-
HVAÐ FYRIR ALLA
Reykvíkingar og gestir i höfuðborginni
hafa i mörg horn að líta næstu vikurnar.
Listahátíð í Reykjavík verður opnuð í
dag með viðhöfn að Kjarvalsstöðum en
þar sýnir listamaðurinn Erró verk sín.
Um helgina má skoða myndlistar-
sýningar í FlM-salnum að Laugarnes-
vegi 112 en þar er sýning Kristjáns
Daviðssonar, í Norræna húsinu eru
blómamyndir Vigdísar Kristjánsdóttur
og sýning finnskra hjóna. Þá eru
franskar og amerískar sýningar í gangi,
höggmyndasýning, tónleikar i Þjóðleik-
húsinu, listdans á þeim sömu fjölum og
kátir leikarar munu leika á stultum á
stað sem nánar verður auglýstur í út-
varpinu.
Þá má ekki gleyma Oscar Peterson
og félögum í Laugardalshöll. Þeir
skemmta jassunnendum í kvöld.
Meira um listahátið á bls. 6—7 I
blaöinu I dag.
Erró, tíl vinstri, ásamt aðstoðarmanni við uppsetningu sýningarinnar miklu á Kjar-
valsstöðum. DB-mynd Hörður.