Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 12

Dagblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 12
12. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978 „Art Tatum er sá albeztr HallgrímurBjörgólfssoníSan Francisco ræðir við píanósnillinginn Oscar Peterson Hitinn var 28 gráður á Celsíus og öll drykkjarföng löngu þrotin. Milli atriða mynduðust langar biðraðir dasaöra jass- unnenda við vatnskranana. Áhorfendur voru að örmagnast í hitanum, en þrjózkuðust samt við. Til er fólk sem leggur á sig ótrúlegt erfiði til að hlusta á góða tónlist. Staðurinn er Berkeley, útborg San Francisco. Árlega gengst háskólinn þar fyrir mikilli jasshátið I útileikhúsi, eftir- líkingu forngrísku hringleikahúsanna. Hátiðin í ár stóð yfir í tvo daga, átta klukkustundir hvorn dag. Milli fjögur og fimm þúsund manns létu sig ekki muna um að koma og hlýða á það sem upp á var boðið. Meðal þeirra sem fram komu má nefna Ramsey Lewis, Hubert Laws, Freddie Hubbard, Richie Pole, Eddie Jefferson, Noel Painter, Herbie Han- cock, Tony Williams og Ron Cater. Áður en kom að hápunkti hátíðar- innar voru fjórir jassleikarar heiðraðir fyrir framlag sitt til listagyðjunnar á síðasta ári. Það voru þeir Ronald Kirk, sem reyndar er nýlátinn, Charles Mingus, Eddie Jefferson og síðast en Áhorfendur á hátiðinni voru milli l'jögur og fimm þúsund og langflestir létu sig hafa það að sitja allar sextán klukkustundirnar og hlusta. Hér sést hluti áhorfenda. Hápunktur jasshátiðarinnar i Berkeley var leikur Oscars Pctcrson og félaga. — Það Einfaldast væri að segja að hann væri upplifun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fat ekki sízt Oscar Peterson. — Að svo búnu hófst lokaatriði hátíðarinnar. Oscar Peterson gekk fram á sviðið ásamt Louis Bellson trommuleikara og Ray Brown bassaleikara. Þeir Bellson og Brown eru báðir frábærir hljóðfæraleik- arar, þó að þeir komist að sjálfsögðu ekki i hálfkvisti við „meistarann”. Áheyrendur fóru ekki dult með að þeir voru á sömu skoðun og aðstand- endur jasshátíðarinnar um að trió Oscars Peterson væri toppurinn á hátíð- inni. Þeir voru á sviðinu í fjörutíu og fimm mínútur og þær mínútur liðu með örskotshraða. Tríóið var umsvifalaust klappað upp og tók nokkur aukalög. Þar á meðal var fimm mínútna einleikur Petersons. Að koma orðum að píanóleik „meistarans” er ekki auðvelt, svo stór- kostlegur er hann. Einfaldast er að segja að það sé upplifun, sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara, að sjá hann á hljómleikum, því að snilld hans nær langt út fyrir annars óljós landamæri jassins. Sleipur Ijósmyndari Oscar Peterson er nú orðinn 52ja ára gamall og býr í Toronto í Kanada. Hann er tvíkvæntur og á fjögur börn. Auk píanóleiksins dundar hann við Ijósmynd- un og er sagður allvel sleipur í því fagi. Hann hefur ferðazt eftir frægðarbraut- inni með miklum afköstum ogán þess að svalla mikið en æði margir stéttar- bræður hans eru kunnir nautnaseggir. Eins og allir meistarar byrjaði Oscar Peterson snemma að slá nótnaborð. Fimm ára gamall hóf hann nám i píanó- .leik. Fyrsta skrefið inn á frægðarbraut- ina steig hann þegar Norman Granz bókaði hann í Carnegie Hall I New York árið 1949. Segja má með sanni að þar hafi ameriski draumurinn rætzt því að hann varð heimsfrægur á einni nóttu. Árið eftir var Peterson fastráðinn hjá J.A.T.P. Tour’s. Það leiddi síðan til /Hvernig vœrí að fá tvœr? . ... konur eiga ekkert með hesta, þá sérstaklega þúi! Þú ferð ekki eitt einasta fet á hestinum!! ástæðu fyrir þvíl!

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.