Dagblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978.
3
Þarf lagaheimild til þess
að lána út skrúfjárn?
Lesandi hringdi:
Margar „skemmtilegar” sögur eru
jafnan í gangi manna á meðal um hið
mikla fyrirtæki Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Á annatímum má hitta þarna marga
viðskiptavini sem eru um það bil að
sleppa • sér. Menn eru sérlega
viðkvæmir gagnvart bílum sínum og
öllu sem þeim viðkemur.
Um daginn kom kunningi minn til
þess að láta umskrá bifreið sina. Þurfti
þar af leiðandi að skipta um númers-
plötu. Ætlaði hann að fá skrúfjárn
lánað en það var ekki hægt. Ekkert
skrúfjárn fyrir viðskiptavinina. Var
honum bent á að fara á verkstæði i ná-
grenninu og fá skrúfjárn að láni.
Þar fengust hins vegar þau svör að
verkstæðismenn væru löngú búnir að
gefast upp á þvi ónæði sem fylgdi að
lána viðskiptavinum Bifreiðaeftir-
litsins skrúfjárn!
N ú voru góð ráð dýr! Loks kom þar
að kunningi kunningja míns, en sá var
persónulega kunnugur einum af starfs-
mönnum eftirlitsins. Gat hann fengið
skrúfjárnið að láni hjá þessum vini sín-
um!
Þegar starfsmenn eftirlitsins voru
spurðir hvers vegna þeir hefðu ekki
skrúfjárn á staðnunvþar sent ógerlegt
er að skipta um númersplötu nema
hafa þennan margumrædda grip, var
því svarað til að „það væri ekki
heimild til þess í lögum að lána út
verkfæri eftirlitsins!”
Bifreiðaeftirlitið
VANTAR UMFERÐARUÓS A GATNAMÓT
VESTURLANDSVEGAR OG BÆJARHÁLS
Anna skrifar:
Ætli yfirvöld i umferðarmálum séu
að biða eftir dauðaslysi á gatnamótum
Vesturlandsvegar og Bæjarháls til þess
að þeim finnist ástæða til að koma þar
fyrir umferðarljósum?
Þráttað
og deilt
Allt er þráttað um og deilt,
aldrei rökin þrjóta,
það sem ýmsir ætla heilt,
aðrir niður brjóta.
Allar deilur eiga tvenn,
ólik sjónarmiðin.
Bágt er þegar bestu menn,
blindar önnur hliðin.
Megi vandað tungutak
tala sáttar máli,
þar sem óheilt orðaskak
olli heiftar báli.
Raddir
lesenda
Það sem
útlendingum
leyfist en
landanum
ekki
Ferðamaður hafði samband við DB
og sagðist hafa ekið yfir Hitarárbrú á
mánudag, um verzlunarmannahelg-
ina, kl. 14.30. Sá hann þá að verið var
að veiða þarna en þessi timi er hvíldar-
timi í ám (ýmist frá 12—15 eða 13—
16). Sagðist hann gera ráð fyrir að
þarna hefði verið um útlendinga að
-ræða þar sem það væru fyrst og fremst
útlendingar sem veiddu í þessari á.
Þess vegna vaknaði sú spurning hvers
vegna útlendingum leyfðist að veiða á
hvildartímanum, en yfirleitt er gengið
mjög hart eftir að hann sé haldinn.
Þetta eru stórhættuleg gatnamót,
sama i hvora áttina -er ekið eftir
Vesturlandsvegi. Árbæingar, eða þeir
sem koma úr Árbæ, eru hroðalega
óþolinmóðir á gatnamótunum og oft á
aðeins þeir sem eru á vinstri akreininm
i áttinatil Reykjavíkur heldur einnig
hinir sem eru á hægri akrein! Þeir
koma þá beint í veg fyrir þá er koma
eftir Vesturlandsveginum á leið í
Það nálgast kraftaverk aðekki skuli
verða fleiri slys á þessunt gatnamótum
en raun ber vitni.Viðkomandi yfirvöld
eru vinsamlegast beðin að koma þarna
upp umferðarljósum og það hið allra
miklum annatímum beygja ekki bæinn!
fyrsta.
co
Græna veltan
áSELFOSSI
Einn af hinum fjölmörgu og athyglisverðu þáttum Land-
búnaðarsýningarinnar 1978 á Seifossi, er vafalaust Græna
veltan, hlutavelta garðyrkjubænda. Á Grænu veltunni gefst
þér tækifæri til að vinna ríflega útilátin sýnishorn afurða
garðyrkjubændanna, — fallegt grænmeti fyrir sama og
ekkert verð.
Sýningin er opin 11.-20. ÁGÚST
Virka daga kl. 14 — 23, kl. 10 — 23 laugardaga og sunnudaga.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978
Ævintýri lyrir alla Ijolskylduna
Ertu ánægðtur) með
sumarið?
Sigurlaugur Sigurðsson leigubílstjóri:
Já, að vissu leyti er ég ánægður með
sumarið. Það sem mér hefur helzt þótt
að er hve sólarlitið það hefur reynzt þó
það hafi nú, ef á heildina er litið, verið
með bezta mótið, a.m.k. miðað við sl.
sumur. Það ánægjulegasta er náttúrlega
það að ekkert leiðinlegt eða hryllilegt
hefurskeð.
Rcgina Gisladóttir húsmóðir: Ætli það
mætti ekki segja mér að sumarið væri að
koma. einmitt núna. og þá er betra seint
en aldrei. Annars hefur það nú verið
heldur betra nú en i fyrra eða kannski ég
segi sl. tvö ár. Vorið var að visu kalt,
maí og júni.
Tryggvi Arason rafvirki: Ja. það er alla
vega fint veður í dag. Annars held ég að
ég geti sagt að ég sé nokkuð ánægður
með sumarið, það hefur a.m.k. verið
betra en sl. sumur. Ég hef alltaf farið út
i garð i hádeginu. mér finnst sent
einungis hafi rignt svona nokkurn
veginn mátulega fvrir gróðurinn.
Brynja Vermundsdóttir, bara húsmóðir:
Ég er mjög ánægð með sumarið. það
hefur einmitt verið ágætt að keyra úti
með barnið. Þetta sumar er mun betra
en sl. sumur, sólardagar eru fleiri, að
minu áliti var júlí beztur. eftir er að sjú
hvernig ágúst kemur út.
örn Guömundsson skrifstofustjóri: Jú.
ég er ánægður með sumarið, þó var júni
nokkuð kaldur, en júli aftur á móti
góður. Það er annars hvergi eins gott að
vera og á íslandi, eða eins og maðttr
segir við útlenzku túristana: „ll' you
do’nt like the weather in lceland. just
wait a minute." (Ef þú kannt ekki við
veðrið á Islandi biddu þá eina mínútul.
Kjartan Jóhannesson tölvari: Eg er mjög
ánægður með sumarið, það hefur nefni-
lega verið bliða. Ég myndi segja að það
hafi verið svipað og sl. sumur. Annars
hef ég nú dvalið erlendis siðustu tvö
árin.