Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 1
stjórn fyrír Benedikt? — stefnir frekar að minnihlutastjórn en vinstri stjórn þriggja flokka Lúðvik Jósepsson kann að mynda rikisstjórn „fyrir Benedikt Gröndal” með svipuðum hætti og Ólafur Jóhannesson myndaði stjórn fyrir Geir Hallgrimsson fyrir fjórum árum. Líkiegast er talið að takist sam- komulag milli Alþýðubandalags og Alþýðuflokks, muni það verða Bene- dikt fremur en Lúðvík, sem verður for- sætisráðherra. Lúðvík er frekar að reyna að mynda minnihlutastjórn Alþýðubandalags og Alþýðuflokks en vinstri stjórn þriggja flokka með Framsóknarflokknum. Alþýðubandalagsmenn telja að erfitt verði að hemja alþýðuflokks- og fram- sóknarmenn saman i rikisstjórn. Þá sé betra að hafa hlutleysi Framsóknar utan stjórnar. Þetta er þó enn óráðið eins og fleira í stjómarmynduninni og formlegar viðræður flokkanna þriggja hefjast klukkan tiu árdegis i dag. Mikið var um fundarhöld i gær. Lúðvík og Benedikt ræddu við fulltrúa flokka sinna hjá Alþýðusambandinu klukkan tvö og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja klukkan hálf þrjú. Samtímis voru aðrir flokksmenn þeirra á fundum annars staðar og hlýddu á Jón Sigurðsson forstöðu- mann Þjóðhagsstofnunar, sem fjallaði um lausnir efnahagsvandans og eðli hans. Síðan hélt Alþýðubandalagið miðstjórnarfund í gærkvöldi. -HH. Fyrstu kartöflurn- arúr Þykkva- bænum komu í gær — horfuráaö upp- skera verði í meðallagi í sumar Sigurður Tryggvason verkstjöri med nýju kartöflumar úr Þykkvabænum. DB-mynd Bjamleifur. Fyrstu íslenzku kartöflurnar í sumar bárust Grænmetisverzlun landbúnaðarins í gær úr Þykkva- bænum. Það voru fjögur tonn og verður þeim dreift i verzlanir, náist samkomulag um verð. Ekki liggur enn fyrir verðákvörðun sexmanna- nefndarinnar, það er haustverð. „Uppskeran í sumar ætti að verða nokkuð svipuð og i meðalári. Tið var erfið i. vor en batnaði verulega í júlí og ágúst hefur verið hlýr þó ekki hafi hann verið sólarmikill. Kartöflugrösin hafa tekið vel við sér og stefnir i þokkalegt kartöfluár,” sagði Páll Guðbrandsson, bóndi í Hávarðar- koti í Þykkvabæ, i viðtali við DB i gær. Fyrstu kartöflur í sumar i Þykkvabænum voru teknar upp á fimmtudag og fóru á markað i gærmorgun. Nú eru á markaðnum italskar kartöflur en birgðir af þeim eru nú litlar, um vikubirgðir. Haustverð sexmannanefndarinnar mun liggja fyrir um mánaðamótin. H. Halls. Kvaðzt í flugskýli ,,....og vinir berast burt með tfmans straumi...” Hér er kveðjustund i flugskýli á Keflavikurflugvelli. Karl Bernstein sem verið hefur yfirmaður varnarliðsins á Vellinum f tvö ár kveður Geir forsætísráðherra og Einar utanríkisráðherra. Ekki er vitað hvað fór þeim á milli. DB-mynd Ari. Hvað er í pokanum, Lúðvík? „Þetta verður allavega stjórn sem hefur meirihluta þjóðarinnar að baki,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambandsins, þegar DB hitti hann i þann mund er fundur ASÍ-manna með Lúðvik Jósepssyni og Benedikt Gröndal hófst í gær. Þannig svaraði Guðmundur spurningunni um hvort vænta mættí vinstri stjórnar þriggja flokka eða minnihlutastjómar Alþýðubandalags og Aiþýðuflokks. — DB spurði nokkra þingmenn um gang mála og horfur. Sjá bls. 5 Fótboltaliðiðá hafréttar- ráðstefnunni: Kostnaður- inn a.m.k. $-6 milljónir króna — baksíða Áskrift getur gefið hnatt- ferð — efþúgerist áskrifandi að DB um helgina Áskrifendum Dagblaðsins hefiir fjöigað til muna i sumar og mun það styðja og styrkja útgáfu blaðsins. Eftir helgina verður dregið um stœrsta ferðavinning sem sögur fara af hér á landi, hnattferð í 30 daga fyrir tvo farþega, auk einkafararstjóra sem er ferðalöngunum til reiðu. Tölvan okkar mun um helgina hafa œrinn starfa við að koma nýjum áskrif endum inn I kerfið. Dregið verður úr nöfiium áskrifenda sem berast fyrir lokun á sunnudagskvöld. Áskriftasíminn okkar verður opinn til kl. 141 dag, en frá kl. 14 til 22 á morgun. Og áskrijtasiminn? Hann er 2— 70—22.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.