Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 24
fslenzka sendinefndin í New York:
Kostnaður á sjöttu milljón
— lauslega áætlað
Útreikningar DB benda til að
kostnaður við för .11 manna
sendinefndar tslands á hafréttar-
ráðstefnuna í New York verði á sjöttu
milljón. Þessi tala er byggð á
upplýsingum um kostnaðarliði við
utanferðina.
Sendinefndin er skipuð eftirtöldum
mönnum: Hans G. Andersen, for-
manni, Jóni L. Amalds, Jóni Jónssyni,
Gunnari G. Schram, Guðmundi
Eiríkssyni og stjórnmálamönnunum
Eggert G. Þorsteinssyni, Eyjólfi
Konráð Jónssyni, Jónasi Árnasyni,
Magnúsi Torfa Ólafssyni og Þórarni
Þórarinssyni.
Utanrikisráðuneytið greiðir fargjald
þessara manna frá Keflavík til New
York og aftur heim. Einnig sér það
þeim fyrir dagpeningum sem eru 80
dollarar á hvern mann á dag eða um
21 þúsund krónur. Með dagpeningun-
um greiða sendimennirnir hóteldvöl
sína og uppihald. Ráðuneytið greiðir
ekki fyrir maka.
Ellefumenningarnir munu
væntanlega allir búa á Rogers Smith
Hotel, en það er skammt frá aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna. Ekki
hafa fengizt upplýsingar um verð á
hótelherbergjum þar en þau munu
ekki verulega dýr.
Sendinefndarmenn hafa ekki risnu,
nema hvað4 formaðurinn, Hans G.
Andersen, getur haft risnu i undan-
tekningartilvikum og með samþykki
utanríkisráðuneytisins í Reykjavík.
Tölur um heildarkostnað af ferð
íslenzku fulltrúanna eru ekki fyrir
liggjandi hjá utanríkisráðuneytinu þai
sem enn hafa engir reikningar borizt.
GM.
Frábær
árangur
hjá Wilkins
— kastaði 69,44 m
ílogni og rign-
ingu á Laugar-
dalsveiliígær
Ekki tókst Mac Wilkins að bæta
heimsmetið í kringlukasti á
Laugardalsvellinum I gær — en
hann kastaði þó betur en áður á
þeim mótum sem hann hefur
keppt á hér, að visu ekki eins langt
og á fimmtudag — þá bezt 70.02
m i roki — en i logni og rigningu í
gær kastaði hann lengst 69.44 m.
Það er frábær árangur við þær að-'
stæður sem voru. Þetta var ótrú-
lega vel heppnað kasf og ef einhver
vindur hefði verið til aö lyfta undir
kringluna hefði hún farið langt
yfir 70 metrana. Það var ekki
veður fyrir kringlukast í gær. Mac
Wilkins byrjaði með 67.84 —
siðan 68.12 — 69.44 — ógilt —
66.12 og í siðustu tifraun 67.96 m.
Erlendur Valdimarsson, ÍR,
varð annar, kastaði lengst 56.06m.
Sá árangur gefur til kynna hve
afrek Wilkins var mikið. í fyrradag
kastaði Erlendur 59.88 m í rokinu
þá. hsím.
Ah.... síi er „sexý”, hugsaði gölturinn.
En honum var meinaður aðgangur.
DB-mynd Ragnar.
Gölturinn á landbúnaðar-
sýningunni var orðinn leiður á
einlírmu. 1 næsta bás stóð lika þessi
girnilega gylta sem bókstaflega virtist
bíða eftir honum. Svo hann ákvað að
gera eitthvað i málinu. Hann komst
við illan leik inn i básinn til gyltunnar
og ætlaði rétt að fara að sýna henni
hversu vel hann væri af guði gerður,
göltur sem valinn er á landbúnaðar-
sýningu er sko ekki bara máttlaust
flesk. En þá dreif að múg og marg-
.. I oppmennirnir prir. I rá linstri er Hcrn
stcin scm li'l al stiirl'um. Í niii’liii t r Rit hanl \
Marlini. n\i \tirniaiiurinn a ht'llarikuntJli ii|
l.h. hinntr taraaðmiráll st-m annaiiisl \llr
mannaskipiin.
I)B nnnil \ri
í gærmorgun fóru fram yfirmanna-
skipti hjá vamarliðinu á Keflavikurvelli
að viðstöddum fjölda fólks, m.a. for-
sætis- og utanríkisráðherrum Islands og
sendiherra Bandarikjanna á Islandi.
George E.R. Kinner 2. varaaðmíráll
var mættur til að leysa Karl J. Bernstein
undirflotaforingja frá störfum en hann
hefur verið yfirmaður varnarliðsins frá
því i ágúst 1976. í embættið var settur
Richard A. Martini, 46 ára gamall
undirflotaforingi.
Athöfnin fór að venju fram með
hátiðabrag, ræðum og lúðrablæstri.
Úrskeiðis fór aðeins að tveir úr heiðurs-
verði féllu I ómegin I varðstöðu
sinni.Féll annar í gólf flugskýlisins en
fánavarðliða var bjargað frá falli af
nærstöddum.
Að þvi er blaðinu var tjáð lauk
athöfninni með hádegisverði fyrir stóran
hóp fólks i nærliggjandi klúbbi yfir-
manna.
ASt.
YFIRMANNASKIPTI
MEÐ POMPI, PRAKT
OG YFIRUÐUM
Fánavarðliðinn var að yfirliði kominn en
var gripinn i fallinu. Hann jafnaði sig
fljótt og tók við sinu starfi aftur.
DB-mynd Ari.
Landbúnaöarsýningin:
Gölturinn fékk nóg af einlífinu
menni sem réðist á göltinn með offorsi
og dró hann yfir í einlífið á hans bás
aftur. Þvílíkt og annað eins! Og á þetta
gláptu sýningargestir eins og naut á
nývirki, hafa þeir aldrei séð gölt eða
hvað?
Á landbúnaðarsýninguna komu á
fimmtudaginn 5 þúsund manns og
voru þá gestir orðnir 42 þúsund. Á
þeim þremur dögum sem eftir eru
verður því að vera fjölmennt ef 90
þúsund gesta talan hans Kjartans
framkvæmdastjóra á að nást.
Kvartað var yfir því I lesendabréfi í
DB að stærsti og minnsti hestur
landsins sem heitið hafði verið á
sýningunni væru þar ekki. Nú eru þeir
hins vegar komnir á staðinn og vekja
mikla furðu þegar þeir eru teymdir um
svæðið öðru hvoru.
I gærkvöldi völdu gestir sýning-
arinnar hest dagsins og um helgina
dreifir Páll Sveinsson aftur lukku-
miðum. Vakti það mikla lukku er
hann gerði þetta um daginn.
Sigurður Jónsson blaðafulltrúi
segist hafa orðið var við ótta manna
um rigningu á Selfossi sem spilla
myndi ánægjunni af að skoða
sýninguna. En mikill hluti sýning-
arinnar er undir þaki þannig að úr-
koma kemur ekki að sök. Fyrir nú
utan að flestir ættu að vera orðnir
henni vanir.
-DS.
trjélst, nháð dagblað
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978.
Náðu 590
þús. kr. úr
stolnum
banka-
bókum
Tveimur bankabókum var stolið um
síðustu helgi úr herbergi I Reykjavik. í
bókunum voru samtals 600 þúsund
krónur. Ránsins varð ekki vart fyrr en
seint á þriðjudag og kom þá I Ijós að úr
bókunum höfðu verið teknar 590
þúsund krónur.
! Rannsóknarlögreglan handtók tvo
menn sem viðurkenndu stuldinn. Eru
þetta ungir menn og hafa áður komizt
úndir lögregluhendur. Hefur annar
verið dæmdur i 20 daga gæzluvarðhald
en hinum var sleppt. -ASt
Vilja að
Geir veiti
lausn til
bráða-
birgða
Talsmenn frystihúseigenda hafa nú
ákveðið að óska eftir fundi með forsætis-
ráðherra til að gera honum grein fyrir
viðhorfi samtaka þeirra til bráðabirgðar-
lausnar á vanda og erfiðleikum frysti-
húsanna i landinu. Jafnframt hyggjast
þeir leggja áherzlu á að þeim frysti-
húsum sem nú hefur verið lokað verði
gert mögulegt að hefja rekstur að nýju.
Ályktun þessi var gerð á stjórnarfundi
SH á fimmtudag. Var þar skýrt frá
niðurstöðum funda sem haldnir hafa
verið víðsvegar um landið. Taldi
fundurinn að óhjákvæmilegt væri að
gera ráðstafanir til að tryggja rekstur
frystihúsanna þangað til ný rikisstjóm
hefur verið mynduð. Annars stefndi í
stórfellt atvinnuleysi vegna lokunar
húsanna.
ASt.
Sumargetraunin:
Skilaf restur til
midvikudags-
kvölds
Sumargetrauninni okkar lauk i
gærdag þegar tíundi hluti hennar birtist.
Lesendur eru beðnir að skila sem allra
fyrst en skilafrestur er til miðvikudags-
kvölds. Dregið verður strax og sýnt er að
póstur utan af landi hefur borizt.
Þeir sem vilja geta keypt eldri blöð á
afgreiðslu blaðsins í Þverholti 11.
Dregið verður um vinninginn, Grikk-
landsreisu fyrir tvo, siðari hluta
vikunnar.
Kaupið^
,3 TÖLVUR.
I* OG TÖLVUÚR »]
B AN K ASTRÆTI8
^ÖV|I27§^