Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGUST 1978. 9 HVAÐ MISSA KONURNAR IFISKINUM ÞEGAR ÞÆR MISSA VINNUNA? Fastakaup á viku fyrir dagvinnu er 33720 krónur en þær hæstu komast í 109 þúsund yfir vikuna Nú þegar atvinnuleysið er orðið staðreynd í fiskvinnu á tslandi á sumum stöðum og vofir yfir á öðrum vaknar sú spurning hvað fólk missi í tekjum og hvað það fái baett. Eins og fram hefur komið eru atvinnuleysisbætur 5235 kr. á dag fyrir fyrirvinnu heimilis og skiptir ekki máli hvort um er að ræða karl eða konu. Fyrir hvert barn á framfæri fyrir- vinnunnar koma að auki 425 kr. á dag. Bætur til einstaklinga nema hins vegar 4581 krónu. Langstærstur hluti þeirra sem misst hafa atvinnuna eru konur sem stundað hafa fiskvinnu i fiskvinnslustöðvum. Laun kvenna í fiskvinnu (miðað við eins árs kaup) eru 843 krónur á tímann eða 33720 krónur á viku. Eftir fjögurra ára starf hækkar vikukaupið í 34.560 krónur. Hér er einungis miðað við 8 stunda dagvinnu og engar auka- greiðslur. Algengasta dagkaupið fyrir konur í fiskvinnu mun • vera 843 krónur og verður því dagkaupið 6744 krónur. Kona sem missir slíka vinnu tapar þvi 1509 krónum á dag við það að færast yfir á atvinnuleysisskrá og er miðað við að hún teljist „fyrirvinna” heimilis. Teljist hún „einstaklingur” en ekki fyrir- vinna er tap hennar á dag 2163 krónur. En tap flestra kvenna sem missa fisk- vinnu sína er í raun miklu meira. Átta stunda dagvinna er næsta fátíð i fisk- vinnunni og þar finnast háar eftirvinnu- og næturvinnugreiðslur og víða allháar „bónus”-greiðslur. t stórri vinnslustöð fengum við upplýsingar um raunverulegt kaup þriggja kvenna eina viku fyrir stuttu. Ein ung stúlka fékk 1 vikukaup 73000 krónur. Hún hafði unnið 52,5 tíma þá vikuna og fékk 24 þúsund krónur í bónusgreiðslu. önnur stúlka fékk 78000 krónur. Hún hafði unnið 56 tíma og fengið 20 þúsund kr. i bónusgreiðslur. Þriðja stúlkan vann á vél. Hún er 16 ára. Hún fékk útborgaðar 88.000 krónur. Hún hafði unnið í 60,5 tíma og í vélavinnu er föst bónusgreiðsla 21 þúsund krónur af áðurnefndri upphæð. Tekið skal fram að þessar stúlkur voru valdar úr miðjum hópi fjölda kvenna miðað við krónutölu í umslagi þeirra eftir vikuna. Hæstu konurnar hjá þessari stóru fiskvinnslustöð fengu yfir 100 þúsund í vikukaup. Ein fékk t.d. 109 þúsund krónur útborgaðar. Af þvi voru 37 þúsund krónur í bónus og hún skilaði 64 stunda vinnu yfir vikuna. Sliku kaupi ná ekki nema þær allra hörðustu og vöskustu í hópnum. Vinna í frystihúsunum hefur verið með líkum hætti um þriggja mánaða skeið. Oft er unnið á laugardögum og því algengir 16 timar í næturvinnu. Fyrir konur sem hafa kaup eins og það sem sýnt hefur verið fram á hér er því reiðarslag að missa vinnuna og fara á atvinnuleysisskrá og fá bætur úr at- vinnuleysissjóði. -ASL Siguröur Kristinsson, forseti Landssambands iönaðarmanna. Leiðrétting 1 DB sl. miðvikudag urðu þau leiðu mistök að röng mynd birtist með viðtali við Sigurð Kristinsson forseta Landssambands iðnaðar- manna. Með viðtalinu birtist mynd af Sigurði Kristjánssyni tæknifræðingi og fyrrverandi for- manni Neytendasamtakanna. Eru hlutaðeigandi aðilar hér með beðnir afsökunar á þessum mistökum. Sigurður Kristjánsson tæknifræö- ingur og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna. Bý ég enn við brjóstið þitt Matthias Jochumsson var sem kunnugt er prestur i Odda, á Rangárvöllum á árunum 1880- 87. Þá voru elstu börn hans ung. Mikið sam- band var við hið fjölmenna heimili að Selalæk, bæði milli fullorðna fólksins og barnanna. Eftir- farandi vísur hef ég ritað eftir 93 ára gamalli konu, en móðir hennar hafði verið vinnukona á búi Matthíasar bæði á Móum og i Odda. Hún segir að þá hafi verið siður á Suðurlandi að gælunafn drengja, sem hétu Gunnar, væri Gaui, en ekki Gunni, eins og tíðkaðist annars- staðar á landinu. Um Gunnar son sinn orti Matthias: Kominn er i annað sinn, álm sá kunni benda gildan meður geirinn sinn, Gunnará Hliðarenda. Eins og forni fullhuginn fær i hildargaman, hefur roða i hvorri kinn og hafið nef að framan. En einmitt svo mun Gunnari á Hlíðarenda vera lýst í Njálu. En þriðja visan er svona Gráttu ekki, Gunnar minn, grimm þó sóknin verði. En nálgast ei sem nafni þinn neina slæma Gerði. Hér er auðvitað átt við Hallgerði. Gunnar Matthíasson fór ungur til vesturheims og ílentist þar, eignaðist þar góða konu og börn, varð gamall maður, um margt var hann líkur föður sínum. Á Selalæk var telpa er Vigdís hét Stefáns- dóttir, siðar húsfreyja í Hafnarfirði, gift Ólafi Thordersen. Þau voru jafnaldra Gunnar og hún. Einhverju sinni fékk hún eftirfarandi bréf frá Odda: Væna besta, Vigga min, vandi er nó að lifa, mætti ég vera að vitja þín, væri ég ekki að skrifa. Ég á bæði bæ og bú, bæði slá og róa, hirða lambiö, kálf og kú, kríu, hrafn og spóa. Systirin, sem nefnd er í næstu vísu, hét Elín. Svo er hún litla systir mín, sem er kölluð Éla. Hún er mesta hljóðaskrín hafi ún ei fullan pela. Efniö var það Vigga mín,— , vantar þig ekki kodda? — að biðja nú um bliðu þin, og bjóða þér heim i Odda. Sykurmola sendi ég þér, svona rétt í spaugi. Inní honum ástin er. — Unnusti þinn Gaui. Halldóra hét ein dóttir Matthiasar. Um hana er þessi vísa: Eina veit ég auðarsnót, sem eitt sinn var að klóra, lág og gild með hýrleg hót og heitir litla Dóra. Steingrímur, sem síðar varð læknir á Akur- eyri, bar sig illa vegna tannpínu. Matthías orti: Kveinar nú með stríðan stun, Stcini minn með tannamein, seinna, spái ég, samt hann mun sveinaprýðin verða hrein. V Vísur og vísnaspjall f-m/ Jön Gunnar Jönsson y V Enn eru tvær dætur ónefndar frá Oddaárun- um. Önnur bar móðurnafn Matthíasar og hét Þóra, en gælunafn hafði hún, er sótt var í aðra átt og kemur það fram i þessari vísu: Góð er litla Lolla min, löngum finnur hún til sin, segist vera fríð og fin og fallegasta silkihlín. Matthea var elsta dóttirin og hér er henni lýst. Matta hcitir mærin stutt, mátulega hýr og kát, fattan hefur ún fingurputt, fátöluð og snyrtilát. Á Akureyrarárunum bættust svo tveir drengir i hópinn, Brynjólfur, sem dó ungur og Magnús, sem varð kaupsýslumaður; og ein dóttir, Herdís. — En vísur um þau bárust ekki að Selalæk, því nú varð vík milli vina, en Matthías sendi móður sögukonu minnar Ijóð- mæli sín, þegar þau komu út, og voru þau lærð spjaldanna á milli. Eftirfarandi sagði mér görnul kona, sem nú er látin fyrir mörgum árum. Ég þekkti móður Alexanders Jóhannessonar háskólarektors. Hún flutti ekkja til Reykjavíkur og vann fyrir börnum sínum og kom þeim til mennta, en fátæk voru þau. Séra Matthías þekkti hana frá fornu fari og heimsótti hana oft, þegar hann kom til Reykjavíkur. Einhverju sinni sýndi hún skáldinu Alexander, yngsta soninn, ogsagði, að hann væri nú ekki hár i loftinu, en þá var hann ekki fullvaxinn. Þá varpaði skáldið fram þessari vísu: Langur þráður leynir sér litlum oft í hnykli, inndælt væri, ef yrði úr þér Alexander mikli. Hér er vísa um Steingrím lækni, líklega ort, þegar leggja mátti dóm um þaðskáldverk: Eina stöku orti ég auðs með hrund i leyni. Vönduð, slyng og viturleg visan heitir Steini. Eins og flestir vita missti Matthias tvær fyrri konur sinar eftir skamma sambúð. Hann orti um þær raunir sínar. Og um miðkonu sína orti hann giftingarárið 1870 eftirfarandi visur: Kringum ennis yndið mitt ástar brennur Ijómi. Bý ég enn við brjóstið þitt, bjarti kvenna sómi. Há og grönn og hýr á brá, horskum mönnum vekur þrá, bein sem hvönn frá hvirfli að tá, hrein sem fönn af nýjum snjá. Seinustu konu sinnar. Ciuðrúnar Runólfs- dóttur, sem var hans hægri hönd í langri sam- búð og móðir margra barna, minnisuskáldið hlýlega í æviminningum sinum, en um hana mun hann lítið hafa ort. Þessi er þó tH: Látum liða og bíða, börn, betur þakka ég vífi, þegar ég ris eins og örn aftur i fegra lifi. J.G.J. — S. 41046.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.