Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978.
23
Sjónvarp
Útvarp
Útvarp kl. 13.30: Út um borg og bý
Ferðalög og
frönsk tónlist
Út um borg og bý nefnist þáttur er
hefur göngu sína í útvarpinu á laugar-
dag og er hann i umsjá Sigmars B.
Haukssonar. Helga Jónsdóttir og
Gunnar Kristjánsson voru með þenn-
an þátt áður og hét hann þá Á sveimi.
Sigmar sagði að þessi þáttur yrði ekk-
ert frábrugðinn öðrum laugardágsþátt-
Sigmar verður með ýmislegt skemmti-
legt i pokahorninu 1 þxtti sínum i dag.
um. Þátturinn yrði með léttu efni við
allra hæfi hvort sem fólk sæti heima
eða væri úti að keyra. í þættinum
ætlar Sigmar að ræða við ýmsa aðila
og má þar fyrst nefna Baldvin Hall-
dórsson leikara en hann er nýkominn
frá London og ætlar hann að segja
okkur frá leikhúsum þar. Birna Bjarn-
leifsdóltir er formaður leiðsögumanna
og ætlar hún að segja okkur frá leið-
sögumannsstarfinu. Guðni Þórðarson
forstjóri ferðaskrifstofunnar Sunnu
segir okkur frá ferðalögum til sólar-
landa bæði á sumrin og veturna.
Tryggvi Jónsson skáti segir frá skáta-
starfinu og starfsfólk í minjagripa-
verzlunum segir okkur hvað sé helzt
verzlað hjá þvi og fl.
Rætt verður við starfsfólk hjá Slysa-
varnafélaginu um slysahættur og lítil-
lega verður siðan rætt um stanga-
veiðar. Sigmar ætlar síðan að hringja
út á landsbyggðina á ferðamannastaði
og athuga hvort mikið ferðafólk sé á
ferðinni. Létt lög verða leikin inn á
milli atriða og að þessu sinni verður
einungis spiluð frönsk tónlist. Þátt-
urinn mun sem sagt ganga að mestu út
á ferðalög og franska tónlist. Þáttur-
inn stendur yftr í tvær og hálfa
klukkustund.
- ELA
Sjónvarp annað
kvöldkl. 21.00:
Gæfa eða
gjörvileiki
Falconetti
kemurWes
íhættu
Gæfa eða gjörvileiki er ♦ dagskrá
sjónvarpsins annað kvöld og þykir ntörg-
um spenna vera að komast i leikinn i
þáttunum. 11. þátturinn er á dagskrá á
sunnudaginn en þættirnir eru 21 i allt. í
siðasta þætti gerðist það helzt að Billy og
söngkonan Annie Adams fara til Los
Angeles þar sem hún kemur fram i sjón-
varpsþætti og vekur hrifningu mikla.
Rudy kemur fram fyrir þingnefnd og
óskar eftir rannsókn á starfsemi Esteps
vegna gruns um misferli en nefndin
hafnar kröfu hans. Estep lætur leysa
Falconetti úr fangelsi. Diana. dóttir
Maggie. reynir að hugga Wes i sorg og
verður vel ágengt. Rudy verður æfa-
reiður við Wes og hann hleypur að
heiman. í næsta þætti verður það helzt
að Wes ræður sig á bát hjá Roy Dwyer.
fyrrum bátsfélaga föður síns. Fyrrver-
andi fjármálastjóri Esteps býðst til að
hjálpa Rudy að fletta ofan af fjármála-
starfsemi kaupsýslumannsins. Falco-
netti sprengir siðan upp bát Roys og
Wesleys I loft upp og verður siðan Roy
að bana. Ekki er að efa að þessi þáttur
verður hörkuspennandi en hann er
fimmtíu min. langur og sendur út í lit.
Þýðandi er Kristmann Eiðsson.
- ELA
f, ...........
Utvarp á morgun kl. 13.30:
Fyrir ofan garð og neðan
Rætt við Guðmund
Arnlaugsson rektor
auk margra annarra
Fyrir ofan garð og neðan nefnist
þáttur sem er á dagskrá á morgun kl.
13.30 og er hann i umsjá Hjalta Jöns
Sveinssonar. Hjalti ætlar að byrja á
þvi að kynna okkur hænsnarækt og
siðan verður langt og mikið viðtal við
lljalti Jón Sveinsson stjórnar þættin-
um Fvrir ofan garö og neðan.
' ««m
Guðmund Amlaugsson rektor og
skákmann og kemur þar ýmislegt
fram. Guðmundur hefur verið í skák-
inni siðan árið I930og var m.a. i skák-
landsliðinu. H.inn var kennari við
Menntaskólann i Reykjavik i yfir 20
ár en byrjaði siðan i Hamrahliðarskól-
anum sem rektor cr sá skóli var
opnaður. Guðmundur er einn braut-
rvðje.ida i svokölluðu áfangakerfi. í
þættinum ætlar hann að segja okkur
leril sinn sem kcnnara og skákmanns
og hel'ur hann frá mörgu skemmtilegu
að scgia Snjólaug Bragadóttir rithöf-
undur kcmur í heimsókn og ætlar
Fljalti að ræða við hana um hana
sjá;'a og ásuna en eins og flestum er
kunnugt þá skrifar hún einmitt mikið
um ástina. Við fáum að kynnast sam-
tökum SÁÁ og hvað þar er á döfinni
en það er vist æði margt. Fritz
Hendrik Berndsen, ungur maður. mun
segja okkur frá starfi samtakanna.
Lagaval verður að þessu sinni valið af
starfsfólki dagskrárdeildar útvarpsins
og sagði Hjalti að það yrði mikið um
djass. sem spilað yrði. Þátturinn er i
cinn og hálfan tíma.
Framundan bíða:
London • Róm • Karachi • Bangkok • Manila • Tokio
Hong Kong • Honolulu • San Fransisco • New York.
Frœnka passar blómin,
amma börnin
og lyklana
í Keflavík kemst fiðringurinn í
hámark. Þið leggið fram farseðla og
vegabréf... Svo eruð þið flogin.
Umhverfi8 jörðina
á 30 dögum á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu.
- Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins.-
Allir 8em eru áskrifendur þann 20. ágúst eru Sértu ekki áskrifandi nú þegar, þá hringdu
með í leiknum 8trax og pantaðu áskrift. Opið til kl. 10 öll
kvöld nema laugardagskvöld.
EMEBIADID
Áskrifendasími 27022
Lœrðu númerið utanað. Um það verður spurt þegar þú vitjar vinningsins.