Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978.
7
Krakkarnir sem hlutu ritgerðarverðlaunin á landbánaðarsýningunni, samankomnir I stalli Litla og Stóra I kvöldhúminu I
gær. Þeir eru: Marfa, Elfn, nafnarnir Sigurður, Sigriður, Kristfn Fjóla og Sigrfður Gunnarsdóttir. DB-mynd: Ari.
Verðlaun fyrir ritgerðir á landbúnaðarsýningunni:
ÞAR TVINNAST SAMAN
ALDAGÖMUL SVEITA-
MENNING OG NÚTÍMA
POPPMENNING BORGANNA
Þau Röndótt Mær og Kalli Kúla voru
meðal sigurvegara í ritgerðarsamkeppni
þeirri sem Búnaðarsamband Suðurlands
efndi til i tilefni landbúnaðarsýningar,
og auðvitað um það sem gerist í sveit-
inni. Að vísu eru rétt nöfn þeirra
Röndóttu Meyjar og Kalla Kúlu Kristin
Fjóla Bergþórsdóttir og Sigurður
Gunnarsson.
Fyrstu verðlaun í hverju ritgerðarefni
fyrir sig, Eftirlætis húsdýrið mitt,
Starfsdagur i sveit og Fyrirmyndar
sveitabýli.hlu.u þær Sigríður Jónsdóttir
ættuð úr Biskupstungum, Elín Guðjóns-
dóttir, Laugarási sömu sveit og Kristín
Fjóla Bergþórsdóttir en hún var reyndar
sú eina sem skrifaði nokkuð um fyrir-
myndar sveitabýlið. Kristín er frá
Selfossi.
önnur og þriðju verðlaun komu í hlut
alnafnanna tveggja, Sigurðar Kristins-
sonar frá Hörgslandi á Siðu og Selfossi,
Mariu Óladóttur og Sigriðar Gunnars-
dóttur frá Selfossi. Allir eru verðlauna-
hafamir á aldrinum 12— 14 ára.
Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri
Suðurlands afhenti verðlaunin en hann
sat í dómnefnd ásamt þeim Stefáni
Jasonarsyni og Kjartani Ólafssyni.
Hann þakkaði gefanda verðlaunanna,
Dagblaðinu, veglegar bókagjaftr.
Bækurnar voru: Ferðabók Eggerts og
Bjarna, Dönsk-islenzk orðabók auk
Stóru blómabókarinnar.
Þeir Jón og Stefán sögðu 20—30
ritgerðir hafa borizt misjafnar að frá-
gangi, hugsun og málfari. Eftirtektar-
vert væri hvernig sveita- og bæjamenn-
ing samantvinnaðist í ritgerðum þessum.
Þar tengdist aldagömul menning sveit-
anna og poppmenning bæja og borga.
Þær ritgerðir er verðlaun fengu þóttu
bæði hnyttnar og skemmtilegar en ekki
siður fróðlegar. Börnin kváðust ánægð
með verðlaunin þótt ekki settust þau
þegar niður við að pæla i þeim enda enn
gott sumar. Sá I. verðlaunahafi er hress-
astur var hafði sagt svo frá í ritgerð sinni
að hún var eitt sinn lokuð inni í fjárhúsi
af pörupiltum en síðan vill hún verða
dýralæknir og fylgist af athygli með
nýjasta framhaldsþætti sjónvarpsins.
Utifundur til stuðn-
ings Tékkóslóvakíu
Herstöðvaandstæðingar:
Hafna samstarfi við 21. ágúst-hreyfinguna
Samtök herstöðvaandstæðinga
gangast fyrir útifundi fyrir framan
sovézka sendiráðið í Reykjavik á
mánudaginn kl. 17.30. Fundurinn er
haldinn til að mótmæla innrás
Varsjárbandalagsins i Tékkóslóvakíu
og veru sovézka hersins þar.
Nýstofnuð 21. ágúst-hreyfing hefur
einnig sýnt áhuga á að mótmæla
innrásinni þennan dag. Bauðst hún til
að hafa samstarf við Samtök her-
stöðvaandstæðinga en því var hafnað.
Miðnefnd Samtaka herstöðvaand-
stæðinga taldi að samtökin væru
réttur aðili til að standa fyrir andófi
þennan dag og I bréfi til 21. ágúst-
hreyfingarinnar segir hún að ekki sé
ljóst hvert sé tilefni stofnunar
hreyfingarinnar. Miðnefndin fullyrðir
og að 21. ágúst-hreyfingin haft þegar
tekið ákvörðun um aðgerðir þennan
dag og kynnt þær i fjölmiðlum án sam-
ráðs við herstöðvaandstæðinga.
21. ágúst-hreyfing hefur visað þessu
á bug. Segist hún ekki hafa tekið
neinar ákvarðanir um aðgerðir en vilji
stuðla að því að sem víðtækust
samstaða náist um öflugar aðgerðir.
Jafnframt hefur 21. ágúst-
hreyfingin lýst þvi yfir að hún telji að
baki ákvörðunar miðnefndar búi
pólitískur ágreiningur. Miðnefndin sé
ekki reiðubúin til að líta á Sovétríkin
sem heimsvaldasinnað risaveldi. Hún
vilji heldur ekki að aðgerðirnar verði
öflugar.
Blaðinu er kunnugt um að sams-
konar deila kom upp á síðasta ári þeg-
ar svipaðir aðilar stóðu fyrir mót-
mælum á afmælisdegi innrásarinnar I
Tékkóslóvakiu. Undirrótin mun vera
ágreiningur milli fylkingarfélaga og
alþýðubandalagsmanna í Samtökum
herstöðvaandstæðinga annars vegar
og marx-lenínista og skoðanabræðra
þeirra í 21. ágúst-hreyfingunni hins
vegar. Deilan snýst m.a. um
skilgreiningar á fræðilegum hugtökum
og ýmiss áherzluatriði.
GM.
Skóg/ugginn hf..
Rauðarárstíg 16
ítölsku sandalarnir komnir aftur. Stœrö 37—
40. Verð kr. 8.995.-
Verið velkomin í nýju verzlunina
okkar í Rauðará, Rauðarárstíg 16.
Sími 11788.
Nýr umboðsmaður á:
Stöðvarfirði
Jóna Maja Jónsdóttir
Heiðmörk 11B
Sími 5822.
BIADIB
Kennarar
Kennara vantar að Barnaskóla Ólafsfjarðar.
Útvegum húsnæði. Nánari upplýsingar gefur
Bergsveinn Auðunsson skólastjóri í síma 91 —
41172 í dag og næstu daga.
Skólanefnd.
Hugmyndasam-
keppni um skipulag
Mosfellssveitar
Keppni þessari er nú lokið og eru
verðlaunaðar úrlausnir ásamt öðrum tillögum
til sýnis í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfells-
sveit dagana 18.—27. ágúst kl. 15—19. Laug-
ardaga og sunnudaga kl. 13— 19.
Þetta er eina tækifærið sem gefst til að sjá
þessar tillögur.
Aðgangur er ókeypis.
Sveitarstjórn Mosfellshrepps.
Skipulagsstjórn ríkisins.