Dagblaðið - 19.08.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978.
Tölvunotkun við happdrætti
og hagkvæmnisrannsóknir
Tölvudrættir
Nú hefur tölva Reiknistofnunar
Háskólans verið notuð i nokkur ár til
að draga i stærstu happdrættum
landsins. Á þessu sviði sem og á
mörgum öðrum hefur reynst mikið
hagræði af tölvunotkun: Margra
klukkustunda verk tekur nokkrar
minútur og spamaðurinn er eftir þvi.
Tilefni þessarar greinar er það að
undanfarið hefur komið fram nokkur
vantrúnaður á tölvudrætti og efa-
semdir um að tölvan geti dregið rétt.
Er mér bæði Ijúft og skylt að veita
nokkra innsýn i það hvernig þetta er
gert. sérstaklega vegna þess að þær
aðferðir. sem tölvudrættir byggja á.
geta verið ákaflega hagnýtar á fjöl-
mörgum öðrum sviðum, en eru því
miður alltof litið notaðar. Mun ég
vikja að þvi síðar.
Aðferð sem allir
geta prófað
Hægt er að nota margar mis-
munandi reikniaðferðir til að fram-
kalla röð af tilviljunarkenndum tölum
eða „slembum". Sameiginlegt með
öllum þessum aðferðum er. að það
verður að mata þær á byrjunartölu
valinni af handahófi. Útfrá byrjunar-
tölunni má siðan framkalla langa röð
af slembum sjálfvirkt.
í stað þeirrar aðferðar. sem notuð er
við tölvudrættina, skulum við lita á
hliðstæða og auðskiljanlegri aðferð.
sem allir geta prófað með hjálp vasa-
tölvu eða borðreiknivélar.
Við veljum af handahófi einhverja
fjögurra stafa byrjunartölu, t.d. 5782.
og margföldum hana með sjálfri sér.
Þá kemur talan 33431524. en af henni
notum við aðeins miðjustafina fjóra:
Kjallarinn
Páll Jensson
4315. Þessa tölu margföldum við með
sjálfri sér og þannig koll af kolli.
Útkoman verður talnarunan: 5782.
4315.6192.3408,0. s. frv.
Nú getur hver sem vill sannreynt,
að jafnvel með venjulegri
borðreiknivél má framkalla röð af
tilviljunarkenndum tölum án þess að
sú röð sýnist á nokkurn hátt frá-
brugðin tölum dregnum úr hatti eða
fengnum með öðrum „nátlúrulegum”
aðferðum.
Þegar tölva Reiknistofnunar Há-
skólans er notuð við happdrætti er
fyrst fundin 48 stafa byrjunartala með
teningum i tromlu. Tölvan er mötuð á
þessari tölu og framkallar siðan röð af
vinningsnúmerum með aðferð. sem er
hliðstæð ofangreindri aðferð en þó
flóknari og langtum fullkomnari
laðferðin hér að ofan er reyndar of
gölluð til að vera nothæf við
happdrætti og geta talnaglaðir
lesendur spreytt sig á því að finna
gallana).
Það skal tekið fram að hér er ekki
um íslenska uppfinningu að ræða.
Aðferðin var sett upp á tölvu.
Háskólans árið 1972 og annaðist dr.
Þorkell Helgason uppsetninguna, en
Sviar hafa notað aðferðina við
happdrætti síðan 1962 og Danir
siðan 1967. svo dæmi séu tekin. Hefur
aðferðin verið þrautreynd með
tölfræðilegum prófum.
Ekki aðeins
við happdrætti
Við höfum nú fengið innsýn i það.
hvernig hægt er með hjálp tölvu að
búa til reiknilikön, sem líkja eftir jafn-
miklu óvissufyrirbæri og happdrætti
er. Þá vaknar sú spurning. hvort þetta
megi ekki hagnýta á öðrum sviðum,
sem einnig einkennast af óvissu.
Það færist nú mjög í vöxt meðal
vísindamanna hér á landi að gera
töluleg líkön af ýmsum náttúrufyrir-
bærum, svo sem öldugangi.
grunnvatnsrennsli, þróun fiskistofna
o.s.frv. Erlendis hefur þessi tækni
verið mikið notuð í nokkra áratugi
ekki aðeins í náttúruvisindum, heldur
einnig við hagkvæmnisrannsóknir i at
vinnulífinu: Gerðeru reiknilíkön til að
likja eftir framleiðslu- og birgða-
kerfum. umferð og biðröðum manna,
bilaogskipa o. fl. o. fl.
Tökum islenskt dæmi: Með þvi að
láta reiknilíkan líkja eftir gangi
loðnuvertiðar klukkustund eftir
klukkustund (slíkt líkan er þegar fyrir
hendi) má gera líkan-tilraunir með t.d.
nýja verksmiðju. stækkun þróarrýmis.
breyttar stjórnunaraðgerðir eða verk-
smiðjuskip, og draga ályktanir um af-
komu þess og áhrif á afkomu flotans
ogannarra verksmiðja.
Reiknilíkanið getur þannig orðið
hagnýtt hjálpartæki til að meta hag-
kvæmni ýmissa tillagna ogaðgerða.og
um leið hvort verulegum þjóðar-
tekjum sé hugsanlega fómað með því
að fara ekki eftir þessum tillögum.
Óvissufyrirbærin
í atvinnulífinu
Þegar nýjungar sem þessa'r eru
prédikaðar hér á landi með skirskotun
til þess. að þær þyki ómissandi hjálpar-
tæki við skipulagningu og ákvarðana-
töku hjá stjórnvöldum og í fyrir-
tækjum víða um heim, þá benda
margir á hinar „sérislensku
aðstæður". Er þá m.a. átt við
óvissuþætti veðráttu og verðlags.
Þannig álita margir að tölvan og
reiknilíkönin strandi. þegar kemur að
hinum íslensku óvissufyrirbærum.
Þessu er til að svara að aðferðir
þær. sém við höfum séð að geta likt
eftir happdrætti, hafa einmitt verið
byggðar inn i reiknilíkön svo likja
megi eftir óvissuþáttum, eins og t.d.
brælum. aflabrögðum og óvissu
verðlagi.
Þessar „séríslensku aðstæður”
hindra þvi alls ekki að við íslendingar
hagnýtum okkur viðurkenndar
reikniaðferðir til hagkvæntnis-
rannsókna á borð við aðrar þjóðir. í
rauninni gefa þessir óvissuþættir
tilefni til að við leggjunt sérstaka
áherslu á notkun tölfræði og
reiknilikana til að hjálpa okkur við
ákvarðanatöku i atvinnulífinu, en ekki
aðeins til að draga i happdrættum.
Staðreyndin er þvi miður sú, að
þrátt fyrir hvatningu íslenskra sér-
fræðinga á þessu sviði undanfarin ár.
hafa okkar að öðru leyti ágætu og
reyndu brjóstvitsmenn atvinnulifsins
litið gert af því að þiggja aðstoð þeirra
eða notfæra sér þekkingu þeirra á
þessu sviði.
Verðug rann-
sóknarverkefni
Ég hefi hér að ofan leitast við að
lýsa því með einföldu dæmi hvernig
það má vera að tölva getur dregið i
happdrætti. Ég hef jafnframt notað
tækifærið til að benda á notkunar-
möguleika þessara og álika aðferða við
hagkvæmnisrannsóknir og skipu
lagningu i atvinnulífi okkar. þar sem
vandamálin einkennast oft af óvissu
jafnvel i átt við happdrætti. sbr. afla-
brögð.
Það er reynt að finna leiðir til að
auka þjóðartekjurnar cn jafnframt
þykir mörgum að óvenju litill hluti
þjóðarteknanna nái til vasa launþeg-
anna, miðað við nágrannaþjóðir.
Hvað verður um auðinn? Er ekki
ein af ástæðunum sú að við erum
algerir eftirbátar nágrannaþjóðanna
hvað varðar hagnýtar rannsóknir á
rekstri atvinnuveganna?
Eru þetta ekki jafn verðug og i
augnablikinu brýnni rannsóknar
verkefni en ýmsar af fræðilegri rann-
sóknum okkar. sem okkur finnast þó
mikilvægar?
Páll Jensson '
forstöðumaður
Rciknistofnunar
Háskólans.
Samtök herstöðvaandstæð-
inga og baráttan gegn heims-
valdastefnu Sovétríkjanna
21. ágúst nk. eru liðin tiu ár frá þvi
að Sovétrikin hernámu
Tékkóslóvakiu. Mikið er í húfi að sá
dagur verði vel nýttur til baráttu gegn
heimsvaldastefnu Kremlherranna —
sýnir yfirgangur þeirra jafnt i Evrópu
sem Afríku að þar eru á ferð hættuleg-
ustu óvinir allrar alþýðu. Öllum þeim
sem telja sig andheimsvaldasinna og
stuðningsmenn þjóðfrelsis ber skylda
til að skipa sér i fylkingu gegn
kúgunarstefnu Sovétrikjanna. Það
dugar ekki að andæfa bandariskri
heimsvaldastefnu einni sér. Risaveldin
sem beita hervaldi eða hótunum i
öllum heimshornum eru tvö.
Hér á landi eru margir sem telja sig
málsvara þjóðfrelsis en eiga furðu
erfitt með að taka skilyrðislausa af-
stöðu gegn allri kúgun. Gildir það
jafnt um þá sem styðja Bandarikin
sem þakhjarl „vestræns lýðræðis” en
lýsa sig andstæðinga einræðis og
kúgunar i Austur-Evrópu — og aðra
sem telja sig andstæðinga heimsvalda-
stefnu Bandaríkjanna en geta ekki
kyngt þeirri staðreynd að Sovétríkin
eru i dag ríki sömu tegundar.
Þ. 18. júli sl. var stofnuð í Reykja-
vik hreyfing til baráttu gegn báðum
risaveldunum. Heitir hún 21. ágúst-
hreyfingin og stefnir hún að aðgerðum
21. ágúst undir kjörorðunum:
— Her Sovétrikjanna burt úr
Tékkóslóvakiu!
—Styðjum frelsisbaráttu Tékka og
Slóvaka!
— Gegn stríðsundirbúningi risaveld-
anna. Bandaríkjanna og Sovét-
rikjanna!
— Gegn allri heimsvaldastefnu —
ísland úr N ATO — herinn burt!
Samtök her-
stöðvaandstæðinga
Nú hefur miðnefnd Samtaka her-
stöðvaandstæðinga ákveðið að efna til
mótmæla gegn hersetu Sovétrikjanna í
Tékkóslóvakíu. Eru það gleðileg
tíðindi ogskref fram á við.
En skugga ber á gleðina — vegna
þess að miðnefnd starfar ekki af
heilindum að máli þessu. Við skulum
athuga helstu atriði þessa máls og þátt
miðnefndar.
Það sem hæst ber er neitun
miðnefndar SHA á samstarfi við 21.
ágúst-hreyfinguna um aðgerðir 21.
ágúst nk. Ér það i hæsta máta
furðulegt þar sem miönefnd hefur
tekið upp svo til allan málefnagrund-
völl 21. ágúst-hreyfingarinnar!
Hvaða rök notar miðnefnd SHA til
stuðnings afstöðu sinni? Aðalrökin. ef
rök skyldi kalla, eru þau að SHA hafi
það sem grundvallarreglu að starfa
ekki með öðrum samtökum. Önnur
röksemd er sú að félagar i 21.
ágústhreyfingunni séu allir i SHA og
þvi sé fáránlegt að SHA hafi samstarf
við þá á einhverjunt sérstökum grund-
velli. Hefur það jafnvel heyrst að 21.
ágúst-hreyfingin (og 21. ágústnefndin i
fyrra sé stofnuð sem klofningsaðgerð
gegn SHA.
Svokölluð grundvallarregla
miðnefndar um neitun á samstarfi við
aðrar hreyfingar er út i hött og vafa-
samt uppátæki — sem á sér ekki neina
stoð i lögum SHA og hefur aldrei verið
samþykkt á landsráðstefnum sam-
takanna. Enda skaðleg þeim málstað
sem samtökin eru smiðuð um og eftir
því sem best verður séð sett fram i
óheiðarlegum tilgangi. „Grundvallar-
reglan" er i andstöðu við stefnuskrá
SHA. en þar segir að samtökin liti á
störf sin og stefnu „sem þátt i viðtækri
baráttu gegn heimsvaldasinnuðum
hernaðarbandálögum, drottnunar-
stefnu og siauknum vigbúnaði her-
velda." Ef um víðtæka baráttu er að
ræða þá geta SHA ekki einangrað sig
frá henni. og mega það alls ekki.
Röksemd númer tvö er einnig hald-
laus. í fyrsta lagi vegna þess að
miðnefnd hefur ekki hugmynd um það
hvort allir félagar 21. ágúst-hreyfing-
arinnar séu jafnframt i SHA og í öðru
lagi vegna þess að grundvöllur 21.
ágúst-hreyfingarinnar er miklu
viðtækari en grundvöllur SHA.
Tilveruréttur 21. ágúst-hreyfing
arinnar er því ótvíræður. Sést það vel
á eftirfarandi staðreyndum: 21. ágúst-
hreyfingin brennimerkir Sovétrikin
sem heimsvaldasinnað risaveldi og
uppsprettu nýrrar heimsstyrjaldar.
Aftur á nióti hefur það ekki fengist í
gegn á landsfundum SHA að heims-
valdastefna Sovétríkjanna skyldi einu
sinni tekin til umræðu. 1976 var það
gert með frávisunartillögu og 1977 var
það gert með þvi að fella tillögu þar að
lútandi. Voru þar fremstir i flokki þeir.
sem nú berjast fyrir því að SHA hafi
aðgerðir 21. ágúst og verður það að
teljast í hæsta máta sérkennilegt að
neita félögum samtakanna um
skipulagða untræðu um þann aðila,
sent nú skal efna til mótmæla gegn!
Er hægt að leggja
21. ágúst
hreyfinguna niður?
Það hefur verið lagt til mál-
anna að 2I. ágústhreyfingin sé
óþörf og að hana beri að leggja
niður. Auðvitað væri það góð
lausn í dag fyrir þá sem ekki vilja
berjast gegn heimsvaldastefnu og
stríðsundirbúningi Sovétríkjanna. En
það væri afleit lausn fyrir málstað
allra þeirra sem eiga i höggi við hið
fasíska kúgunarafl sem Brésnef veitir
forstöðu. Og á meðan^nokkur ærlegur
andheimsvaldasinni drcgur andann
hér á landi verður það starf sem
hreyfingin vinnur ekki stöðvað. Hins
vegar væri sjálfsagt að leggja
hreyfinguna niður þegar:
—miðnefnd SHA tekur upp baráttu
gegn heimsvaldastefnu og stríðsundir-
búningi beggja risaveldanna.
— SHA eru reiðubúin aðfjár-
magna útgátu á bæklingi sent skýrir út
cðli heimsvaldastefnu Kremlherranna
og stendur að útgáfu merkis og dreifi-
rita sent ótvirætt beinast gegn þeim.
Kjallarinn
Hjálmtýr Heiðal
í dag eru SHA ekki fær um að sinna
þessum verkefnum og er 2I. ágúst-
hreyfingin því nauðsynleg santtök. En
ofantalin verkefni hafa þegar verið
unnin af 2I. ágúst-hreyfingunni og
aðeins möguleg með tilvist hennar.
Og hvað svo?
Þó svo að miðnefnd SHA hafi nú
bætt ráð sitt þó nokkuð og gengið inn
á mestallan grundvöll 2I. ágúst-
hreyfingarinnar þá hefur hún ekki
kippt tilverugrundvellinum undan
henni eins og sést af frantansögðu.
Hinsvegar hefur miðnefnd nú tekið
skref sem hún var ófáanleg til að stiga
i fyrra — þegar ekki mátti nefna
Sovétríkin á nafn i kjörorðum SHA og
jafnframt gefur þetta skref tækifæri til
að benda á næsta skref og brautina
framundan. Hún felst í því að taka
upp kröftuga baráttu gegn báðum risa-
veldunum og beina afli islenskra and-
heimsvaldasinna sameinuðu til
stuðnings þjóðfrelsisbaráttu kúgaðra
þjóða og til verndar íslensku sjálf-
stæði. Vcrkefni næstu landsráðstefnu
SHA markast af þessu.
Hjálmtýr Heiðdal
teiknari.
V