Dagblaðið - 02.09.1978, Page 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1978
II
GODSOGNIN KENNEDY
trausts þess vegna. Meðal þeirra má
nefna Woodrow Wilson, Herbert
Hoover og Wendell Willkie. En allir
þessir menn áttu sér merkan starfsferil
að baki er þeir komust út í hringiðu
stjórnmálanna.
Það sem er sérstakt með Edward
Kennedy er að þrátt fyrir litið frum-
kvæði hans frá byrjun þá umgengust
r
menn hann eins og miklir leiðtoga-
hæfileikar bræðra hans tveggja Johns
og Roberts væru einnig vöggugjöf
hans, eins konar sending af himnum
ofan.
Menn héldu fast við þetta þrátt fyrir
það að áður en Edward hóf störf á
þingi þá hafði ferill hans alls ekki verið
skrautlegur. Frammistaða hans í Har-
vard háskóla hafði ekki verið neitt til
þess að hrópa húrra fyrir. Hann hafði
m.a. borgað félaga sínum fyrir það að
taka próffyrirsig.
Samt sem áður var töluverð hreyf-
ing fyrir því að gera hann að forseta-
frambjóðanda strax árið 1968, í stað
bróður hans Roberts sem myrtur var
það ár. Robert var þá talinn líklegur
forsetaframbjóðandi Demókrata-
flokksins.
Þá hefði Edward einnig mætavel
getað orðið frambjóðandi flokks síns
við forsetakosningarnar 1972 ef ekki
hefði komið til slysið við Chappaquid-
dick, þar sem ung stúlka drukknaði
eftir að öldungadeildarmaðurinn ók út
af við brú eina. Margt í sambandi við
þaðslyserenn óskýrt.
Edward kaus sjálfur að taka ekki
þátt i baráttunni fyrir kosningarnar
1976. En timaritið Time hefur látið
framkvæma skoðanakönnun þar sem
fólk var beðið að nefna líklegasta
frambjóðanda Demókrataflokksins
fyrir næstu forsetakosningar árið
1980. Mikill meirihluti nefndi Edward
Kennedy, eða 58% þeirra sem spurðir
voru. Aðeins 30% nefndu Carter for-
seta.
1 skoðanakönnuninni kom einnig
fram að ef forsetakosningar væru
haldnar i dag, þá myndi Kennedy auð
veldlega sigra Gerald Ford, fv. forseta,
ef hann yrði frambjóðandi Repúblik-
anaflokksins. Hins vegar var talið
samkvæmt könnuninni aö Ford
myndi sigra Carter. Carter naut ekki
einu sinni fylgis Suðurríkjamanna en
hann er sem kunnugt er ættaður frá
einu suðurrikjanna, Georgíu. Um það
bil helmingur þeirra sem spurðir voru
töldu að Kennedy yrðí framúrskarandi
forseti.
Enginn vafi er talinn á þvi að
Kennedy sé í dag vel hæfur sem forseti
Bandaríkjanna. En þaðerueinnig tylft
annarra öldungadeildarþingmanna og
ríkisstjóra. En meirihluti demókrata,
sem vilja Kennedy sem forseta og
einnig flestir þeir, sem standa utan
flokkanna tveggja, eru ekki að velja á
milli manna. Þeir eru að vekja upp
með Edward Kennedy gullaldardaga
hinnar stuttu forsetatíðar Johns
Kennedys, frá tímum fyrir Víetnam-
strið og Watergatehneyksli.
Afneitun
raunveruleikans
Þetta fólk neitar raunveruleikanum
i dag og lítur á forsetatíð Johns
Kennedys sem tíma sakleysis i sögu
Bandarikjanna. Þetta mat er að sjálf-
sögðu óraunsætt því ekki er hægt að
leita aftur í söguna og það vita allir.
Auk þess ber á það að líta að þeir at-
burðir sem gerðust seint á sjöunda ára-
tugnum og í upphafi þess áttunda í
Bandarikjunum eiga sér rætur i for-
setatið Kennedys.
Það var fyrst i tið Kennedys að
verulegur fjöldi hernaðarráðgjafa var
sendur til Vietnam. Þá var það einnig i
hans tið sem einangrunarstefnan
gagnvart Kúbu var tekin upp. En það
var ákveðinn glans yfir forsetatið
Kennedys. Þessi stutti tími er eins
konar keisaratimabil i bandariskri
sögu. Forsetinn hefur einangrazt
meira síðan, sérstaklega í tíð Johnsons
og Nixons.
Það er e.t.v. síðasta dökka táknið
um óheppni Kennedyanna að það
skuli vera Edward Kennedy, sá Kenn-
edybræðranna sem minnstan metnað
hafði, sem verður tákn pólitisks flótta
og ábyrgðarleysis bandarisku þjóðar-
innar. Hinar þrjózku vinsældir hans
og stuðningur fólks við Kennedynafn-
— Meirihluti
Demókrata óskar
fremureftir
Edward Kennedy
sem forseta 1980
en Jimmy Carter.
— Talið vístað
Kennedy sigraði
Ford ef hann
færi á móti honum
ið lýsir einhverju hamslausu i fari
bandarisku þjóðarinnar.
Með Kennedyunum sjá Bandarikja-
menn töfralausn á vandamálum sin-
um. Endurtekningu gullaldarinnar
sem landsmenn þrá og sjá í draumum
sínum. En slík endurtekning er imynd-
unein.
„Það er þó eitt gott við Edward, hann
er ekki þátttakandi i Georgiuklik-
unni,” segir i texta myndarinnar og er
þar höfðað til Carters forseta.
.....
Vinsældir Edwards Kennedy meðal almennings i Bandarikjunum eru með óiikind-
um. Kennedy goðsógnin lifir enn góðu lifi.
Stærstu hagsmunamál þjóðarinnar
Kjallarinn
Skyndilega hefur veður snúist á
hinum pólitíska himni. Bara ein rikis-
stjórn kemur til greina i dag: vinstri
stjórn. Ég sagði i grein 16. ágúst að
áframhald rikisstjómar Geirs og Ólafs
væri liklegt. Ein litil frétt, sem i fyrstu
vakti litla athygli, var merki um að
Ólafur Jóhannesson — mesti skák-
maður islenzkra stjórnmálamanna i
dag — teldi nauðsyn að breyta til.
Þegar Skandinavar kaupa á
100 kr. kaupum við á 125
Þessi frétt var frásögn verðlags-
stjóra af stærsta hneyksli sem nokkru
sinni hefur verið opinberað á íslandi,
hinum óhagstæðu innkaupum is-
lenzkra heildsala og Sambands isl.
samvinnufélaga erlendis. Þar var sagt
að þegar Skandinavar kaupa vöru á
100 kr. þá kaupa íslendingar sömu
vöru á 125 kr. Vitur maður sagði að
hér hefði grunur sinn verið staðfestur
að nýir verzlunarhættir væru mesta
hagsmunamál Islendinga í dag og
hann fullyrti að hér væri um tugi millj-
arða að ræða. Nú er öllum Ijóst að
verðlagsstjóri er embættismaður sem
heyrir undir Ólaf Jóhannesson og að
Sambandið er stærsti innflytjandinn.
Hér kom því ágreiningur i eigin her-
búðum hjá Ólafi upp á yfirborðið. Þvi
á borði liggur að Sambandið vildi ofar
öllu framhald núverandi stjórnar. Ef
til vill hefur það ráðið nokkru um
ákvörðun Ólafs að fýra þessu skoti að
heildsalar höfðu gert litið úr fyrri upp-
Ijóstrunum verðlagsstjóra um þetta
mál. Og að sjálfsögðu þegir Morgun
blaðið nú og þagði þá og það sama
gerði raunar Þjóðviljinn lika. Hins
vegar skrifaði hinn skemmtilegi og að
ýmsu leyti stórsnjalli ritstjóri Timans.
Jón Sigurðsson, skynsamlega um
málið og fylgdi skotinu eftir af tölu-
verðri hörku. Sama gerði Haukur á
Dagblaðinu.
Hið gullna tækifæri krata
Vitaskuld hljóta æðstu menn gjald-
eyrismála — menn á borð við Jóhann-
es Nordal og Jónas Haralz — að hafa
vitað um þetta hneyksli en þeir þögðu
lika. Því óhagstæð innkaup þýða
hærri tolla og meiri söluskatt fyrir
ríkissjóð.
— Hvaðgerist nú.spyrja menn.
— Verður verðlagsstjóri rekinn eða
málið rannsakað?
— Hvorugt, hyggég.
Á íslandi er enginn jarðaður opin-
berlega fyrir að segja satt né er þar til
siðs að mál séu könnuð niður i kjöl-
inn.Hins vegar er hér hið gullna tæki-
færi fyrir krata. I fyrsta skipti i sög-
unni er nú jarðvegur fyrir islenzkan
stórkrataflokk. Nú þarf bara unga og
vaska menn sem vilja vinna að verzl-
unarmálum á heiðarlegan hátt.
Kemur til greina pöntunarfyrirkomu-
lag ellegar stórmarkaðir. Aðalatriðið
er að hefjast þegar handa og eyða ekki
kröftum eða tíma i óparfa þref. Sem
dæmi um hve islenzkir alþingismenn
vita litið í sinn haus eða telja almenn-
ing sljóan er grein i Morgunblaðinu á
sunnudag eftir einn slíkan. þar sem
boðið er upp á þetta venjulega þrugl.
Það siðvæðir enginn
Lúðvík. Leið Dubceks er
blindgata
Vitaskuld vissu allir gamlir kratar
að Lúðvík var óhæfur sem stýrimaður.
Þetta verða alþýðubandalagsmenn að
skilja ef þeir vilja fylgja kommúnískri
forskrift út i æsar. þá verða þeir að
taka afleiðingunum. I vestrænum ríkj-
um eru kommúnistar hvarvetna tor-
tryggðir og það ekki að ástæðulausu.
Sannleikurinn er sá að leið Dubceks
var blindgata. Þetta sér djúpur hugs-
uður á borð við Solsenetsyn. Húman-
isk hlið á einræði er og verður aldrei
til. Það sýnir heimsku Eðvarðs
Sigurðssonar. sem er meðal merkari
verkalýðsforingja. að sakast við krata
út af þvi þakkarverki að hafa sett
spýtu fyrir Lúðvík. Ef Eðvarð vill gera
eitthvað upp við einhvern þá á hann
að gera upp sakirnar við sjálfan sig. Á
kommúnista og krata er reginmunur.
Verkalýður í kommúnistaríkjum er
sannarlega ekki öfundsverður og
verkalýðsforingjar eru þar ekki til.
Hins vegar er stjórnarfar á Norður-
löndum, Noregi, Sviþjóð og Dan-
mörku, hvarvetna talið til fyrirmynd-
ar. Þar hafa kratar sem kunnugt er
ráðið ferðinni.
Fylgið fordæmi
Björns Jónssonar
Ef að einhverjir í Alþýðubandalag-
inu vilja ekki láta bendla sér við
Georg Ólafsson verðlagsstjóri — undirmaður Ólafs Jóhannessonar.
Hilmar Jónsson
kommúnisma þá er ekkert annað að
gera en fylgja fordæmi Björns Jóns-
sonar og Hannibals og yfirgefa flokk
inn og koma til krata.
Erum við þá komnir að því atriði
sem margir kratar eru súrir yfir: Öiafi
Jóhannessyni forsætisráðherra. Flestir
okkar vildu fremur Sjálfstæðisflokk-
inn.En spurning er hvort sú skoðun
var rétt. Eða dettur nokkrum i hug að
Sjálfstæðisflokkurinn muni leiðrétta
verzlunarmál islendinga? Að kafa
ofan i faktúrufalsanir og óstjórn er
sannarlega ekki þeirra sterka hlið. En
nú gæti margur vafalitið spurt: Er
Ólafur liklegur til þess? Hárrétt. Ekki
hrópa ég húrra fyrir dómsmálaráð-
herranum og skýrsla verðlagsstjóra nú
gæti bara verið refskák, þar sem lítill
hugur fylgir máli. En á það verður að
reyna. Aðalatriðið er að láta hendur
standa fram úrermum i verzlunarmál-
unum. Það er brýnasta hagsmunamál
íslenzks verkalýðs í dag.
liilmar Jónsson
bókavörður, Keflavík.