Dagblaðið - 11.09.1978, Page 3

Dagblaðið - 11.09.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1978. 3 Óánægður með áfengishækkun: „REISN” YFIR FYRSTA VERKI FJÁRMÁLARÁÐHERRA Lesandi skrifan Flestir bjuggust við er ný rikisstjóm skreið hér i valdastólana að þar færu menn sem hefðu einhverja reisn og tækju á einhvern hátt fram forverun- um sem flestir voru sammála um að hefðu verið heldur rislágir og úrræða- litlir við stjórn landsins. Nú bregður svo við að nýskipaður fjármála- ráðherra (að vísu úr hinum óvinsælli fyrrum ríkisstjórnarflokki) fær tækifæri til að sýna vald sitt þ.e. með klassiskri verðbreytingu á áfengi. Valdi má beita á margan hátt. Það má beita þvi þannig að menn finni vart fyrir því, jafnvel að þeir menn K Nýskipaður fjármálaráðherra,Tómas Árnason. Bréfritari er óánægður með áfengishækkunina og talar um vald- beitingu i þvi sambandi. DB-mynd Hörður. jsem þvi beita vaxi við valdbeitinguna. |Því má einnig beita þannig að valdi andúð, jafnvel klígju. Vald- beiting fjármálaráðherra í sambandi við hækkun áfengis þann sjöunda þessa mánaðar er af síðara taginu. Henni er skellt á rétt fyrir helgi í stað þess að koma henni á um helgi þannig að ekki þurfi að koma til lokunar áfengisverzlananna. Það er greinilegt að hið síþyrsta ráðuneyti mátti ekki missa af krónunum, sem tapazt hefðu, ef hækkunin hefði dregizt um tvo daga. Það hvarflaði ekki að hinum nýja ríkiskassahirði að áfengisverzlunin er þjónusta við almenning en ekki tekjulind sem gripið er til eftir hentug- leikum rikisvaldsins. Tómasi Árnasyni er hollt að minnast þess að hinar ýmsu stofnanir ríkisvaldsins eru fyrst og fremst þjónustustofnanir sem almenningur stendur undir, en ekki tæki í höndum hans sjálfs. Raddir lesenda I Okur- verölag — Brask og svindl innflytjenda Það er alkunna, að verðlag hér á landi er geysihátt ef miðað er við laun almennra islenzkra launamanna og verðlag i nágrannalöndum okkar. Skiptir þá engu máli hvort um svokallaðar munaðarvörur er að ræða eða brýnustu nauðsynjavörur eins og matvæli. Vinur minn, sem hefur dvalið i Svíþjóð undanfarin ár, kom í heimsókn nú i sumar og leizt heldur illa á verðlagsþróunina í „Guðs vors landi”. En það sem stakk hann mest í augun var matarverðið. Hann kvað mat dýran I Svíþjóð, en honum blöskraði okrið á matvælum hérna á skerinu. Hvernig skyldi standa á þessu okri? Fyrir nokkrum dögum kom skýring frá verðlagsstjóra á þvi að innfluttar vörur til landsins væru um 20% dýrari en sams konar vörur fluttar til hinna Norðurlandanna. Þessi verðmunur mun stafa af ýmislegu braski og svindli innflytjenda með faktúrur og milliliði, svo að þeir geti kríað út aukagjaldeyri og sett í eigin vasa. Svavar Gestsson nýskipaður viðskiptaráðherra hefur lýst því yfir, að hann ætli sér að fara i saumana á verzlunar- og viðskipta- málum landsins. Ég vona að ráðherr- ann standi við sín orð og gangi rösklega fram við verkið, þvi það er víðar pottur brotinn en í innflutnings- verzluninni. Launafólk er orðið lang- þreytt á fjármálaóstjóm þessa lands og þeirri óðaverðbólgu sem er hennar tryggi fylgifiskur. Þreyta fólksins hefur nú breytzt í megna gremju og almenna reiði við vitneskjuna um, að nokkrir heildsalar úti I bæ hafa stolið tugum milljóna af almannafé á undan- förnum árum og kynnt á þann hátt undir verðbólgubálið. Smáþjófar og aðrir smákrimmar sitja undir lás og slá, en stórglæponarnir ganga lausir. Það er kominn tími til að taka þessi mál föstum tökum. Svavar, stattu þig. TG. GOD SYNING H.B. hringdi og sagðist hafa farið að sjá sýninguna íslenzk föt 1978 og verið mjög hrifinn. Sagði hann, að sýningin hefði komið sér reglulega á óvart og ekki sízt hefði snyrtisýning á vegum Snyrtistofunnar Klöru verið vel heppnuð. Þess vegna hefði það vakið undrun sína að sjá ekkert minnzt á jressa glæsilegu sýningu. Vildi H.B. hvetja fólk til að gefa henni gaum. Hún væri þess virði. LOFTRÆSTIVIFTUR A undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér- verzlun landsins með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús, verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf. Veitum tceknilega ráðgjöf vio val á loftrcestiviftum. /Pskking feynsla tyonusi P Fálkinn póstsendir allar nánari upplýsingar, sé þess óskað. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Spurning dagsins Verður rfkisstjórnin langlíf? Þorleifur Guðbjartsson bflstjóri: Ég mundi álíta að hún yrði skammlíf. Þama eru þrir flokkar saman komnir, allir eru á móti öllum. Einnig hefur þeim ekki komið vel saman að undanförnu. Hilmar Skarphéðinsson vélstjóri: Já, hún verður langlif. Þeir eiga eftir að standa sig vel. Stefán Hilmarsson bankastjóri: Ég held að hún sé vonarpeningur. Rannveig Sigurðardóttir frí Nes- kaupstað: Ég vona það. Hvers vegna? Nú, vegna þess að ég kaus hana. Þór Halldórsson læknir: Það vona ég að hún verði. Þegar einhverjir byrja á einhverju er æskilegast að þeir ljúki því. Svanborg Jensdóttir verkakona: Ég get sagt þér það að ég hef ekkert vit á stjórn- malum. Eg veit ekki hvort þessi ríkis- stjórn er betri en önnur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.