Dagblaðið - 11.09.1978, Síða 9

Dagblaðið - 11.09.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1978. ARANGUR VIÐRÆDNANNA UÓSINNAN SKAMMS — skilningurá milli leiðtoganna sem gæti leitt til f rekari f riðarviðræðna Viðræður Carters, Begins og Sadats í Camp David í Bandaríkjunum virð- ast nú á vendipunkti. Samkvæmt heimildum þaðan sagði að næstu tveir dagar segðu til um það hvort viðræð- urnar bæru árangur eða ekki. Leiðtogarnir þrír áttu rúmlega klukkustundar langan formlegan fund i gær. Það var fyrsti fundurinn eftir helgarhvíld i viðræðunum. Það var fyrst nú um helgina að leiðtogarnir fóru frá Camp David, sveitasetri Bandarikjaforseta, frá því að viðræð- urnar hófust á þriðjudag i siðustu viku. Begin forsætisráðherra Ísraels sagði fréttamönnum á leið til Gettysburg, að viðræðurnar hefðu gengið vel. Egyptar voru ekki eins bjartsýnir. Aðrir töldu, að enda þótt ástandið væri enn mjög óljóst og erfitt, þá rikti skilningur á milli leiðtoganna og sá skilningur gæti e.t.v. leitt til frekari friðarviðræðna á milli ísraels og Egyptalands. Þessar skoðanir fengu byr undir báða vængi er varnarmála- ráðherra ísraels, Ezer Weizman, lét hafa eftir sér að tvo til þrjá daga til viðbótar þyrfti til þess að ganga betur frá málunum. Fundur leiðtoganna i gær var haldinn með öllum helztu ráðgjöfum þeirra. Það merkir það að þung áherzla hafi verið lögð á að þrengja og afmarka umræðusviðið. Siðasti fundur þeirra þar á undan var á fimmtudag. Ekki er vitað hvenær næsti formlegi fundur leiðtoganna verður haldinn. f Talsmaður Hvita hússins sagði á laugardag að árangur hefði náðst í við- ræðunum. Sum erfið verkefni hefðu verið leyst, en önnur biðu úrlausnar. Þrjú megin vandamálin, sem um er rætt, eru kröfur Egypta um algeran brottflutning Israelsmanna frá her- numdu svæðunum, öryggi Ísraels og framtíð Palestinumanna á hernumdu svæðunum. Viðræður leiðtoganna þriggja eru nú á vendipunkti og ætti þær bera árangur innan tveggja daga. — Mynd Newsweek. að verða Ijóst hvort - Kampavín lítið en gott í ár Vínræktin í franska héraðinu Champagne verður til muna minni i ár en í meðalári að sögn tals- manna bænda þar. Stafar það af slæmum veðurskilyrðum og litlu sólskini að undanförnu. Þrátt fyrir að magnið verði lítið geta kampa- vinsunnendur huggað sig við að samkvæmt sömu heimildum verða gæði kampavinsins mikil þetta árið. HERLÖGÍ RÓDESÍU Ian Smith, forsætisráðherra Ródesíu, tilkynnti i gær að tak- mörkuðu hernaðarástandi hefði verið komið á í landinu. Hann sagði aftur á móti að almennt her- útboð yrði ekki að svo stöddu. Talsmaður þjóðernissamtaka svartra, sem stjórnað er af Joshua Nkomo, en hann er í útlegð, sagði að nítján forustumenn samtak- anna hefðu verið handteknir sið- ustu daga. Hermenn Ródesíu- stjórnar hafa fellt i það minnsta tiu skæruliða á landsvæði nærri þar sem farþegavélin sem skotin var niður hrapaði til jarðar. Skæru- liðar munu hafa myrt alla nema þrjá þeirra farþega sem komust lifs af úrflugslysinu. Tuttugu og f imm fallnir íNicaragua 1 það minnsta tuttugu og fimm manns hafa verið drepnir i átökum milli þjóðvarðliða Somoza forseta og andstæðinga hans t Nicaragua á undanförnum dögum. Þjóðvarð- liðar hafa beitt skriðdrekum, flug- vélum og þungum byssum í bar- dögum við uppreisnarmenn og segjast nú hafa tögl og hagldir. Uppreisnarmenn krefjast afsagnar Somoza forseta en hann segist ákveðinn i að sitja út kjörtímabil sittsemertil 1981. ■vn tífök y þeir hafa þekkingu, reynslu og þjálfun Eitthvað á þessa lelð er rabb þelrra um gólflögn frá Gólf hf.: „Svo eru það gólfln, maður," seglr elgandinn. „Þau þurfa að hata töluvert burðar og efnaþol." „Já, hérna eru þelr elnmitt með eina tegund sem hentar okkur full- komlega. Burðarþol 500- 800 kg á fersentimetra og efna- og slltþol ettir því. - (Elgandlnn grfpur fram í og seglr:) 9NSB ,Trúlr arkltektlnn þessu?' „Nel, en þetta er staðreynd," segir arkitektlnn. „Þeir hafa lagt gólf- lagnlr á gömul og slltin gólf, vöru- afgreiðslur, snyrtlherbergl, blf- relðaverkstaaðl o. s. frv. Þeir hafa þekklngu, reynslu og þjálfun og NÓTA BENE þetta er ódýrara en fifsalögn. „Nú," segir elgandinn, best maður hrlngl í þó.” S vo taufar hann: „Þelr ættu bara að fara að leggja á göturnar með þessu..." GOLFHF JJ/; ‘ ^a k 1 W . r i m ts É íjt * V ■ KÁRSNESBRAUT 32, KÓPAVOGI Símar: 40460 og 76220

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.