Dagblaðið - 11.09.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1978.
13
Hollywood hressti
uppá
borgarbraginn:
BAUÐ
UPPÁ
KÓKOG
SÚKKU-
LAÐIKEX
FRÍTT
—yfirlOOO
ungmenniþágu
boðið
Skemmtileg tilbreyting átti sér stað 1
bæjarlifinu i gær. I staðinn fyrir aðfara í
þrjú bíó fóru nokkur hundruð börn i
Hollywood, en sá skcmmtistaður bauð
börnum upp á skemmtun þar sem allir
fengu kók og súkkulaði. Ennfremur
skcmmtu þeir bræður Halli og Laddi við
mikinn fögnuð áhorfenda. Kynntu þeir
lög af nýju plötu sinni, Hlunkur er þetta,
og var ekki annað að sjá en að krakk-
arnir skemmtu sér hið bczta. Sungu þau
og dönsuðu af hjartans lyst, enda ekki á
hverjum degi sem þeim býðst að koma á
barnaskemmtun af þessu tagi og þar að
auki allt ókeypis. Töframaðurinn Baldur
Brjánsson setti síðan i lokin skemmtilcg
endalok á skemmtunina. Allir krakkar
fóru út á stétt og þar sýndi töframaður-
inn töfrabrögð og voru börnin alveg
hissa á þcssum galdrakarli. Augun urðu
stór og munnurinn galopinn þegar
Baldur byrjaði að sópa peningum úrhári
og höndum viðstaddra. En samt stóð
þeim ekki alveg á sama um þennan
skritna karl þvi hann gat látið einn strák
inn pissa i gegnum trekt þó svo að hann
væri í buxum og ekki blotnuðu þær
hcldur neitt. Tveir drengir stóðu i vegi
fyrir Baldri og sagði annar þeirra við
Baldur: „Heyrðu manni, láttu vin minn
hvcrfa, hann er svo leiðinlegur.” Baldur
var fljótur á sér og bcindi töfrasprotan-
um að drengnum og sagði hókus, pókus
og ... en sá litli varð hræddur áður er,
nokkuð skeði og flýtti sér inn i
mannþvöguna svo galdrakarlinn gæti
Um eitt þúsund ungmenni fylgdust með
töfrabrögðum Baldurs Brjánssonar á
tröppum Hollywood.
ábyggilega ekki látið hann hverfa. Þá
sagði Baldur við hinn sem eftir var: „Ég
skal bara minnka þig í staðinn og gera
þið aftur tveggja ára,” en sá litli beið
ekki boðanna heldur flúði eins og fætur
toguðu eins langt frá Baldri og hann
mögulcga komst. En hvað sem öllum
göldrum líður þá er óhætt að segja að
þetta hafi verið gott framtak hjá veit-
ingahúsinu Hollywood og mætti vera
meira um að slíkt verði gert fyrir þau
yngstu á hversdagslegum sunnudögum.
ELA.
Þá var dansað, sungið og hlegið, enda verið að spila lög með Halla og Ladda.
Jmm
Wf 01
1 11 i r Æ&m
ÆL' > ' ' 9
}/ Æ BK -
éS ' * fl p ^ V ■Pf,|B
gk 'æ MHhá & 1 ■ ifl
\' ; :,'V:
til að komast ódýrt
til sólarlanda
Mallorca
Brottför:
17. sept., 2 vikur,
verð frá 112.800.-
24. sept, 1 vika,
verð frá 87.800.-
8. okt., 3 vikur, verð frá 107.700,-
Dvalið á eftirsóttustu ibúðahótelun-
um á Mallorca, Royal Magaluf,
Torrenova, Trianon og Portonova.
Costa del sol
Brottför:
22. sept., 2 vikur, verð frá 103.800.-
Búið á hinu glæsilega íbúðahóteli Playamar.
NYTT
Til þess að gera sem flestum fjöiskyldum og
starfshópum kleift að njóta glaðra sólskinsdaga i’
sólarlöndum og lengja sumarið getum við i þess-
ar ákveðnu ferðir gefið fria ferð fyrir 5. hvern
farþega sem ferðast með fjórum.
ATHUGIÐ
Kanaríeyjar
Laugardagsflug í allan vetur, 1. vetrarferðin 13.
október. Allir eftirsóttustu gististaðir á Gran
Canariaj^og Tenerife.
Grikkland
Brottför: 3. okt., 1 vika.
Verð frá kr. 90.000.-
Dvalið á vinsælum hótelum I baðstrandarbæjum við
Aþenustrendur eða I Aþenuborg.
Gisting og 2 máltíðir á dag innifalið.
SUNNA
BANKASTRÆTI 10. SÍMI 29322. ■
AKUREYRI. HAFNARSTRÆTI 94. SÍMI 21835.