Dagblaðið - 11.09.1978, Síða 16
'á ——— DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11.SEPTEMBER 1978. PAGBLAÐID. MÁNUDAGUR ll.SEPTEMBER 1978. . 17
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir ■n
FORUSTA ÖSTER EYKST
öster frá Vaxjö, liðiö, sem Teitur Þóröarson
leikur með I Sviþjóð, vann enn einn sigurinn i
Allsvenskan I gær. Hefur nú orðið fjögurra stiga
forustu i keppninni og stefnir greinilega á sænska
meistaratitilinn.
öster lék á útivelli í gær við Átvidaberg og
sigraði 1—2. Ekkert mark var skorað í fyrri hálf-
leik en á 55. mín. tókst Teiti að skora fyrsta mark
leiksins fyrir öster. Fimm mín. síðar kom Peter
Svensson Öster i 2—0 en rétt fyrir lok leiksins
skoraði Leif Johannsson fyrir Atvidaberg.
Öster hefur nú 28 stig eftir 18 umferðir —er
fjórum stigum á undan Kalmar, sem er í öðru sæti
með 24 stig. Kalmar gerði jafntefli við Malmö í
gær 0—0 — og um næstu he'lgi leika Öster og
Kalmar í Vaxjö. Gautaborg leikur í kvöld og gæti
komiztí 24 stig.
íþróttir
Teitur er annar markahæsti leikmaðurinn í All-
svenskan. Hefur skorað 10 mörk en efstur er Per
Olaf Ohlsson hjá Nörrköping með 12 mörk svo
ekki munar miklu. Umferðir í Allsvenskan eru 26.
Öster leikur í Stokkhólmi gegn Hamnmerby 20.
september eða sama dag og tsland leikur i
Hollandi í Evrópukeppninni. Það hefur verið
reynt að fá Teit lausan í þann leik— en Öster vill
ekki sleppa honum, svo Teitur getur ekki leikið
þar. Hins vegar getur hann tekið þátt í
Evrópuleiknum við Austur-Þjóðverja 4. október í
Þýzkalandi. Sama dag leika Sviar í
Evrópukeppninni.
Hins vegar leika Jóhannes Eðvaldsson og
Ásgeir Sigurvinsson ekki 20. september með liðum
sínum. Ekki leikið þá á Skotlandi og Belgíu og þeir
geta því leikið gegn Hollandi.
Dankersen vann Göppingen
Keppnin 11. dcild handknattleiksins hófst I Vestur-Þýzkalandi á laugardag. Dankersen lék þá á heima-
velli gegn Göppingen og sigraði 14-12. Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson léku með Dankersen og
Gunnar Einarsson með Göppingen. Þorbergur Aðalsteinsson, sem verður með Göppingen I vetur, tók
ekki þátt I leiknum en var á varamannabekk. Jafnt var upp I 3-3 en þá kom góður kafli hjá Dankersen.
Liðið komst I 7-3 og þar réðust úrslitin. Göppingen minnkaði muninn I 7-5 fyrir hálfleik. í s.h. hafði
Dankersen 2-3 marka forustu, 13-10 og 14-11 en Göppingen skoraði siðasta markið I leiknum. Waltke
var markahæstur hjá Dankersen með fjögur. Axel skoraði eitt mark úr viti og Gunnar tvö mörk úr vitum.
Þá lék Björgvin Björgvinsson sinn fyrsta ieik með nýliðum Grambke i 1. deild. Var ekki mikið inn á —
en Grambkc gerði jafntefli á heimavelli við Hiittenberg, 16-16. Hafði tvö mörk yfir, þegar tvær mín. voru
eftir en Hiittenberg tókst að jafna. Skoraði siðasta mark leiksins nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
Ágúst Svavarsson leikur með Spenge I 2. deild. Þar hafa þrjár umferðir verið háðar. Spenge tapaði fyrstu
tveimur leikjunum. Fyrst heima 8-19 og síðan á útivelli 15-16. Á laugardag vann liðið hins vegar heima
24-22. Ágúst hefur skorað 4—5 mörk I sfðustu leikjum liðsins.
Úrslit I öðrum leikjum í 1. deild á laugardag urðu þessi: Gummersbach — Gengunge 25-14, Kiel —
Nettelstedt 14-14, Rintheim — Leverkrusen 17-17, Rheinhausen — Grossvallstadt 16-20 og Hofweier —
Milbertshofen 20-16. Eins og undanfarin ár munu þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson skrifa um
þýzka handknattleikinn fyrir DB I vetur — og ef að likum lætur mun fyrsta grein þeirra á þessu keppnis-
timabili birtast á föstudag.
' Sigurlið Selfoss 13. deild.
- DB-mynd FAX
Magni, Grenivlk, i öðru sæti f 3. deild
Selfoss sigraði f 3. deild
Selfoss tryggði sér meistaratign 3. deildar með
öruggum sigri yfir Magna, Grenivik á Akureyri á
laugardag, 3—0. Þegar leikurinn fór fram, var
veður afleitt, norðanstrekkingur, rigning og hroll-
kalt.
Það fór aldrei á milli mála hvort liðið var
sterkara á Akureyri — Selfyssingar höfðu tögl og
hagldir í leiknum og verðskulduðu sigur sinn. Þeg-
ar á 10. minútu skoraði Tryggvi Gunnarsson fyrir
Selfoss, skallaði laglega í markið eftir fyrirgjöf.
Staðan I leikhléi var 1—0 og í siðari hálfleik
bættu Selfyssingar við tveimur mörkum. Sumar-
liði Guðbjartsson skoraði á 31. mínútu síðari hálf-
leiks og á 40. mínútu bætti Stefán Larsen við
þriðja marki Selfoss, 3—0, Selfoss sigurvegari 3.
deildar en Magni fylgir Selfoss i 2. deild.
-St. A.
' Islandsmeistarar Vals ásamt Halldóri liðsstjóra og Nemes þjálfara veifa til áhorfenda eftir sigurinn gegn í A
DB-mynd Bjarnleifur.
Valsmenn eru beztir
— Sigruðu ÍA1-0 í gær og glötuðu aðeins einu stigi á íslandsmótinu
„Þá er úr því skorið hverjir eru bezt-
ir,” sagði Pétur Sveinbjarnarson, for-
maður knattspyrnudeildar Vals, og
brosti, eftir að Valur hafði sigrað Akra-
nes 1-0 I síðasta leik íslandsmótsins á
Laugardalsvelli I gær. Fjörugur leikur á
köflum en datt svo algjörlega niður þess
á milli. Greinilegt að leikmenn beggja
Jafntefli
Standard
Standard Liege, liðið, sem Ásgeir
Sigurvinsson leikur með I 1. deild I
Belgiu, gerði jafntefli við La Louviere á
heimavelli I gær. 2—2. Standard hefur
fjögur stig eftir fjórar fyrstu um-
ferðirnar. Önnur úrslit I gær urðu þessi:
Molenbeek-FC Brugge 2—0
Beveren-Beringen 5—1
Winterslag-Anderlecht 1—2
Charleroi-FC Liegc 3—1
Beerschot-Lokeren 3—0
Lierse-Waregem 2—0
Kortrijk-Antwerpen 0—2
Berchem-Waterschei 0—1
Bezti árangur
íslands í
golf i til þessa
— á Norðurlandamótinu
iKalmaríSvíþjóð
Norðurlandamótinu i golfi lauk I gæi
með úrslitum i einstaklingskeppni. Svi-
inn Michael Sorling sigraði i þriðja
skipti i röð, annar varð Christian Nilson,
sem einnig er Svii, og eru Sviar i nokkr-
um sérflokki.
íslendingar hafa vakiö athygli fyrir
góðan árangur og sérstaklega þó viður-
eign Björgvins við Jan Rube og sagði
Rube eftir keppnina að óheppni Björg-
vins hefði bjargað honum.
í viðtali við DB sagði Kjartan L. Páls-
son að árangur íslands væri sá bezti á
Norðurlandamóti til þessa og að næsta
skref yrði annaðsætið.
Kjartan sat þing golfsambanda Norð-
urlanda þar sem ákveðið var að ísland
héldi Norðurlandamót 1982 og einnig
að tsland tæki þátt I unglingakeppni
Norðurlanda en íslandi hefur aldrei
verið boðin þátttaka þar.
Landsliðið keppti í gær við klúbblið
Kalmars og sigraði með fimm höggum.
Sex léku en fimm beztu skor töldu og
kom island inná 396enSviarnirá 401.
Ragnar lék bezt á 77 en Björgvin á 78
höggum.
Landsliðið kemur heim í dag.
HBK.
iiða voru talsvert með hugann við
Evrópuleikina á miðvikudag. Þá leikur
Valur við Magdeburg á Laugardalsvelli
— Akranes við Köln I V-Þýzkalandi.
Eftir leikinn I gær var mikill áhyggju-
svipur á þjálfara Akurnesinga — George
Kirby. „Það er útilokað að segja nú
hvort Árni Sveinsson getur leikið á mið-
vikudag. Það eru takkaför á hné hans og
við vitum ekki hvort beinin hafa skadd-
azt,” sagði Kirby. Árni var borinn af
velii eftir samstuð við Hörð Hilmarsson.
Ljótt brot — og eftir fyrri hálfleikinn
varð Jóhannes Guðjónsson, Akranesi,
að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Vals-
menn sluppu hins vegar við slæm meiðsli.
Valsmenn höfðu sigrað I lslandsmót-
inu fyrir þennan leik — 16. sigur Vals á
íslandsmótinu. Úrslit hans skiptu því
ekki meginmáli en þó greinilegt að leik-
menn lögðu nokkurn metnað í leikinn.
Undir niðri „sauð” á ýmsum leikmönn-
um. Talsverð harka, þegar á leikinn leið.
Valur sigraði — og vann það ein-
stæða afrek á mótinu að hljóta 35 stig af
36 mögulegum. Það er glæsilegur árang-
ur. Sautján sigurleikir — eitt jafntefli og
það stig, sem KA hlaut gegn Val á Akur-
eyri, bjargaði liðinu frá falli. Skrítið!
Sennilega verður þetta afrek Valsmanna
seint jafnað þó svo áður hafi lið sigrað á
Íslandsmótinu með fulit hús stiga i mun
færri leikjum. Jens Sumarliöason, vara-
formaður KSÍ, afhenti Valsmönnum
sigurlaun sin eftir leikinn og þeir voru
mjög hylltir af áhorfendum.
Já, Valur sigraði. Kannski ekki sann-
gjarn sigur, þegar á heildina er litið en
einn leikmaður Vals átti þó skilið að
vera í sigurliði, Sigurður Haraldsson,
markvörður. Hann bjargaði hvað eftir
annað snilldarlega. Varði allt, sem á
mark Vals kom — stundum bókstaflega,
þegar ekki var „hægt” að koma í veg
fyrir mark. Hins vegar hafði Jón Þor-
björnsson, markvörður Akraness, miklu
minna að gera og færði Valsmönnum
sigurmarkið á silfurbakka. Það var um
miðjan s.h. Hálfdán Örlygsson spyrnti
knettinum inn í vítateig Akraness. Jón
hljóp úr marki sinu — slæmt úthlaup —
og það sem verra var fyrir lið hans. Hitti
knöttinn illa og sló hann beint fyrir
fætur Alberts Guðmundssonar. Markið
opið og Albert sendi knöttinn i átt að
þvi. Á marklínunni tókst Árna Sveins-
syni að slá knöttinn yfir þverslána en
knötturinn stefndi efst i markið. Víta-
spyrna, sem Ingi Björn skoraði örugg-
lega úr — og sigurmark leiksins.
Opinn leikur og mikið um færi á báða
bóga. Strax á 1. mín. átti Ingi Björn
hörkuskot yfir af löngu færi. Þrívegis
síðar munaði hársbreidd að hann
skoraði — eitt sinn varði Jón vel. Hinu-
megin varði Sigurður vel frá Pétri —
hreint á undraverðan hátt frá Matthíasi
af 2ja metra færi — og glæsilega frá
Karli á lokamínútu leiksins. Einnig
nokkra skallknetti frá Pétri. Já, Sigurður
var maður leiksins. Auk þess fór knött-
urinn oft „hárnákvæmt” framhjá
báðum mörkum — og það úr góðum
færum. Eitt bezta færið misnotaði Al:
bert. Stóð einn fyrir opnu marki eftir
mikil mistök Jóns markvarQar. En Al-
bert hikaði aðeins og það nægði Karli
Þórðarsyni til að komast fyrir skot hans
og bjarga í horn. Dómari Magnús
Pétursson.
- hsim.
Borg tapaði í úrslitum
Birni Borg tókst ekki að veröa banda-
rískur meistari i tennis — eini meirihátt-
ar meistaratitilinn, sem hann skortir i
safn sitt. Í úrslitum i gær sigraði Jimmy
Connors Björn 6—4, 6—2 og 6—2. í
annað sinn sem hann sigrar Björn I úr-
slitum bandariska meistaramótsins.
Eftir 35 sigurleiki I röð tapaði Bjöm loks
i gær — og hann naut sín ekki f leiknum.
í undanrúslitum á föstudag, þegar hann
sigraði Vitas Gerulaites 6—3, 6—2 og
7—6 fékk Björn blöðrur á þumalfingur
hægri handar og háði það honum mjög i
úrslitaleiknum, einkum i upphafsgjöf,
sterkasta vopni Svians. Hann missti
spaðann oftar en einu sinni og átti
greinilega i vandræðum með gripið. Það
fór Ifka f skapið á honum svo eftir-
leikurinn var Connors auðveldur. í
einliðaleil^ kvenna sigraði Cris Evert,
USA, 16 ára bandaríska stúlku, Pam
Shrivers, i úrslitum 7—5, og 6—4.
Fjórði sigur hennar í röð. Shrivers er
yngsta kona, sem komizt hefur f úrslit á
bandarfska meistaramótinu.
Capes vann
Stahlberg
Gcoff Capes, Englandi, varpaði kúlunni 20.68 m f landskeppni Bretlands og Finnlands I gær og sigraði Finnann Reijo
Stahlberg, sem varpaði 20.49 m. Bretar sigruðu Finna i landskeppninni, sem háð var á Crystal Palace-leikvanginum í
Lundúnum. 111 stig gegn 1011 karlakeppninni og 104 gegn 53 f kvennakeppninni.
Heimsmethafinn Henry Rono, Kenýa, keppti sem gestur i 10 km hlaupinu og sigraði auðveldlega á 27:53.79 min. í fimmta
sinn, sem hann hleypur vegalengdina innan við 28 mín. f sumar. Finnski Evrópumeistarinn Vainio sigraði i landskeppninni á
28:22.86 mfn. eftir harða keppni við Bernie Ford, Bretlandi, 28:25.30.
Hvers vegna?
1. ágúst s.l. voru 5 ár liðin frá sameiningu
hlutafélaganna Flugfélags íslands og Loft-
leiða, með stofnun Flugleiða h.f.
Af því tilefni var ákveðið að þau hlutabréf
sem gefin hafa verið út til aukningar
hlutafjár, verði boðin öllum landsmönnum
til kaups og lögð áhersla á að þau dreifist
sem víðast.
Hvemig berðu þig að?
Það er einfalt. Þú hringir í eða heimsækir
næsta umboðsmann, eða skrifstofu Flug-
leiða og lætur skrá þig fyrir hlut. Flugleiðir
gefa út hlutabréf á nafn þitt og þú innleysir
það síðan þar sem þú lést skrá þig.
Þá ert þú orðin hluthafi
í Flugleiðum h.f.
Þú hefur verndað fé þitt gegn verðbólgu.
Hefur rétt til að sitja hluthafafundi og að-
alfundi með tillögu- og atkvæðisrétt. Þér
berast ársskýrslur og aðrar upplýsingar um
starfsemi félagsins.
Framundan er stór aukning innanlands-
flugs og vöruflutninga.
Kaup á nýjum millilandavélum og sífelld
endurskoðun og aukning leiðanetsins, svo
að um nóg er að hugsa og ræða.
Gefðu börnunum hlutabréf TFIugleiðum
h.f..
í fæðingargjöf, sem tannfé, í skírnargjöf,
afmælisgjöf, fermingargjöf, eða af ein-
skærri fyrirhyggju.
Lítilli stúlku var gefið 1000 kr. hlutabréf í
öðru félaginu fyrir 30 árum. Það bréf er nú
orðið að 354.000 kr. hlut í Flugleiðum h.f.
Útboðið.
Alls eru boðin út hlutabréf fyrir U:þ.b. 300
milljónir króna, í stærðunum kr. 10.000,
50.000, og kr. 100.000.
FLUGLEIDIRHF
Jens Sumarliðason, varaformaður KSÍ, afhendir fyrirliða Vals, Inga Birni Albertssyni, tslandsbikarinn. DB-mynd Bjarnleifurl