Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978.
DB á ne ytendamarkaði
Fljótlegur og spenn-
andi pönnuréttur
Blaðlaukur er mjög góður í ýmsa
rétti. Hér er uppskrift að fljótlegum
pönnurétti.
2—3 blaðlaukar
ca 500 gr pylsa. middagspylsa t.d.
2 matsk. smjör
l/2dlrjómieðavatn
3 egg
lítildóstómatkraflur
salt.
Hreinsið laukinn og skerið í þunna
hringi og pylsuna i litla bita. Steikið á
pönnu þar til laukurinn er orðinn
meyr. Þeytið eggin með rjómanum
(eða vatninu), tómatkrafti og salti.
Hellið þvi yfir pylsuna og laukinn á
pönnunni og látið stifna. Gætið þess
að þetta brenni ekki við. — Með
þessum rétti eru annað hvort bornar
fram soðnar kartöflur eða smurt
brauð.
VERÐ: Um 1628 kr. fyrir allan rétt
inn (þar af laukurinn taepl. 600 kr. og
pylsan um 700 kr.l eða um 407 kr. á
mann. - A.Bj.
Svona rétt er sjálfsagt að bera fram á
pönnunni, en þá verður pannan helzt
að vera „eitthvað fyrir augað”.
Fyrsta f lokks súpu er aðeins hægt
að búa til úr fyrsta f lokks soði
Gunnl. Ólafsdóttir skrifar:
„Um leið og eg þakka fyrir þáttinn
DB á neytendamarkaði langar mig til
að óska eftir að þið birtið fyrir mig
uppskrift af heimatilbúinni blómkáls-
súpu. þar sem fjölskyldan kvartar um
að ég kunni ekki að búa hana til. Beztu
kveöjur.”
Svar:
Til þess að búa til fyrsta flokks
blómkálssúpu er nauðsynlegt að eiga í
fórum sinum gott fisksoð, þannig að
eiginlega verður að byrja á því að
kaupa sér ýsu (ekki flök) í matinn og
sjóða fiskinn í léttsöltuðu vatni. —
Geyma siðan soðið fyrir súpuna. —
Eftir að búið er að hreinsa blómkálið
er það tekið í sundur i hríslur og soðið
Nemendur
níunda
bekkjar
greiða
sínar
bækur
sjálfir
Móðir hringdi:
„Ég man ekki betur en að ég
hafi lesið í dagblöðunum nýlega að
allir nemendur í grunnskólunum
ættu að fá námsbækurnar endur-
gjaldslaust frá skólunum. Dóttir
min er að hefja nám i 9. bekk og
þurfti -að kaupa skólabækur fyrir
um 17 þúsund krónur.
Er þetta rétt?”
Svar:
Já. þetta er rétt. Samkvæmt
upplýsingum sem fengust i
menntamálaráðuneytinu fá allir
nemendur í grunnskólanum sínar
skólabækur (sem gefnar eru út af
ríkisútgáfu námsbóka) fritt i skól-
anum nema þeir sem stunda nám i
9. bekk. — Segja má að hinni
eiginlegu skólaskyldu sé lokið i 8.
bekk. Grunnskólalögin öðlast ekki
fullt gildi fyrr en árið 1980 (ef ekki
verður gerð á þeim breyting) og þá.
en ekki fyrr, verða nemendur 9.
bekkjarins með friar skólabækur
eins og aðrir nemendur grunnskól-
ans.
i fisksoðinu (það má að sjálfsögðu
einnig nota kjötsoð) þangað til káliðer
meyrt. Þá eru nokkrar hríslur teknar
upp úr soðinu og ein til tvær látnar í
hvern disk og þeim haldið heitum.
Siðan er það sem eftir er af blómkáli i
pottinum hrært úl með þeytara.
Súpan er krydduð sparlega með salti,
pipar og þriðja kryddinu.
Ein eggjarauða og 1 matsk. rjómi er
Uppskrift
dagsins
hrært saman í skál (með rafmagns-
þeytara). Um helmingi súpunnar er
smám saman hrært út í rauðuhræruna
og þeytt í á meðan. Öllu hellt aftur i
súpupottinn og þeytt. Þetta má alls
ekki sjóða aftur. aðeins hitast að suðu-
marki. Ef það sýður er allt tapað. því
þá hleypur rauðan og fer i litlar
flyksur i súpunni.
Handa fjórum má reikna rneð eftir-
farandi hlutföllum:
4—500 gr blómkál
3/4 I fisksoð (eða Ijóst kjötsoð)
I eggjarauða og 1 matsk. rjómi
krydd.
Ef vill má bragðbæta þessa súpu um
leið og hún er borin fram með ofurlillu
af sjerrí.
A.Bj.
ÞINGHOLTSSTRÆTI24.
Kaupum,
seljum nýjar
ognotaðar
hljómplötur
OPIÐKL.1-6
LAUGARDAGA KL. 9-12
New York á útsölu
Ótrúlegt en satt.
Vikuferð til New York
frá kr. 127.400.-
Dvalið á hótel Piceadillv rétt við
TIMES SQUARE í hjarta
Manhattan
Þú getur gert all í New York. Verzlað, farið
á Broadway, séð nýjustu kvikmyndirnar,
skoðað hæstu byggingar heims, borðað mat
frá öllum heimsálfum og fleira og fleira.
Fari&vcrður: 3., IÖ. ög 17. öktóber.
Islenzkur fararstjóri SUr§§fea statVgfint.- Flouió njeö DC8 þotum Flúgleiöa
SUNNA Bankastraetí 10, sími 29322.
—— ?• I -k -
S U l\l l\l A Akureyri, sími 21835.
/V