Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 8

Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978. Camp David viðræður: Stefna að friðarsamning- um innan þriggja mánaöa Svo virðist sem árangurinn sem náðist á fundi Jimmy Carters Banda- ríkjaforseta með Sadat Egyptalands- forseta og Begin forsætisráðherra ísra- els hafi orðið mun meiri en flestir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt fyrstu öruggu fregnum, sem bárust af fundin- um í gær, virðist sem verulega hafi þokazt I friðarátt í Miðausturlöndum þó aðilar séu sammála um að mikið verk sé óunnið þar til friðarsamningar verði undirritaðir. Bæði Sadat og Begin sögðu á blaða- mannafundi í Hvita húsinu i Washing- ton að þeir mundu reyna að ganga frá formlegum friðarsamningum milli landanna innan þriggja mánaða. Þjóðarleiðtogarnir flugu I gærkvöldi frá Camp David i Maryland til Washington en þar gáfu þeir opinbera skýrslu um árangur viðræðnanna. Undirrituðu Sadat og Begin tvo samninga en samkvæmt öðrum þeirra er lagður grundvöllur að friðarsamn- ingummilli Egyptalands og ísraels og þar aö samkomulag hafi náðs^W^Phöfuðatriði ef undan er skilin nýhafin búseta israela á Sinai- eyðimörkinni. Samkvæmt hinum samningnum er búið að ná í höfuðat- riðum samkomulagi um Palestínu- flóttamennina á vesturbakka árinnar Jórdan og á Gaza svæðinu. Mun þeim vera ætluð mjög veruleg stjórn sinna mála innan tiltekins tima og einnig mun vera gert ráð fyrir að israelskur her hverfi á brott innan fimm ára frá svæðum flóttamanna. Carter Bandaríkjaforseti sagði að árangur Camp David viðræðnanna hefði fariö fram úr allra vonum og hefði verið talinn óhugsandi fyrir ári eða jafnvel einum mánuði. Sadat Egyptalandsforseti hrósaði Carter mjög fyrir stjórn viðræðnanna. Atburðurinn þegar þeir þrir gengju frá samningaborðinu eftir þrettán daga væri söguleg stund sem minnzt yrði i framtíðinni. Skoraði Sadat á Carter að taka áfram þátt í friðarviðræðunum. Sagði hann það vera nauðsynlegt þvi þörf væri á frumkvæði hans og aðstoð bandarisku þjóðarinnar. Begin forsætisráðherra israels sagði að þetta væri dagur Carters forseta og friöarsinnar í heiminum hefðu unnið mikinn sigur. Sagði forsætisráðherr- ann frá því að oftlega hefðu þeir leið- togarnir unnið fram til klukkan þrjú á nóttunni í Camp David og risið síðan úr rekkju klukkan fimm að morgni. — Ég held hann hafi unnið meira en ... já, jafnvel meira en forfeður okkar, er þeir reistu pýramídana i Egyptalandi. Svo virðist sem eina höfuðdeilu- málið, sem óleyst sé, sé um búsetu ísraela I Sinaíeyðimörkinni. Hefur hún reyndar verið mikið deilumál I ísrael. í samkomulagi þjóðarleiðtoganna þriggja segir að ísrael muni hverfa á brott með her sinn frá svæðum Palestínuflóttamanna innan fimm ára. Þó verði þeim heimilt að hafa herlið á nokkrum stöðum til öryggisgæzlu. Eiga íbúar vesturbakka Jórdan og Gazasvæðisins að fá fulla heima- stjórn. Er ætlunin að fá Jórdaníu- stjórn til að taka þátt i friðarviðræðun- um og þá sérstaklega hvað varðar vesturbakka Jórdanár. Mun Carter forseti ræða við Hussein Jórdaníukon- ung. þegar sá síðarnefndi kemur til Washington innan þriggja vikna. —grundvelli náð að samkomulagi um frið ogframtíð Palestínuaraba á vesturbakka Jórdan og Gaza svæði — (NV -| Wb 1 1 1/X X' Q vT X- n log 10-« r~i In e* Q X> Xv> Q »7** □ hyp ö sítr’ Q cos ' □ tatr’ O nb/c Er? ■ X-Y.M □ Tí n • • • 6 □ 77 , • ••» o X M m MR Q l-sac-1 CASIO- umboðið Bankastræti 8 - Sími 27510 Myndin er tekin i borginni Esteli, sem er norður af höfuðborginni Managua i Nicaragua. Göturnar eru fullar af grjóti, sem notað hefur verið i baráttunni gegn þjóðvarðliðum Somoza forseta. t fjarska sést reykur úr vindlaverksmiðju sem kveikt hefur verið i. Mikið var um að götuvigi væru reist til að verjast þjóðvarðliðinu. Nicaragua: Ukum brennt á göt- unum tf/ að forðast drepsóttir í Leon þjóðvarðliðar Somoza haf a náð borginni úr höndum uppreisnarmanna Borgin Leon i norðurhluta Nicaragua mun nú vera i höndum þjóðvarðliða Somoza forseta. Flestir uppreisnar- mennirnir flúðu til fjalla. Leon er algjör- lega i rústum eftir þriggja daga bardaga þar sem beitt var fallbyssum og eld- flaugum. Í gær komu fyrstu fréttamenn- irnir á vettvang og að sögn þeirra eru .flest stórhýsi hrunin og eldur logar enn víða um borgina. Töluvert mun vera um að hinir föllnu. sem munu vera i það minnsta eitt hundr- að og fimmtiu, séu brenndir á götunum. til að koma í veg fyrir að drepsóttir breiðist út. Sjúkrahús í borginni. þar sem fjöldi særðra leitaði skjóls var rafmagns- Rauðakrossinum. sem var á leið til Leon með lyf og hjúkrunargögn varð fyrir sprengju og eyðilagðist. Að sögn munu flestir uppreisnarmenn hafa komizt undan til fjalla og fáir kom- izt undir hendur þjóðvarðliða. Stöku skot heyrðust enn i Leon i gærkvöldi en þó var talið að þeir hefðu full völd i borginni.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.