Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18.SEPTEMBER 1978.
9
Erlendar
fréttir
Egyptaland:
Utanríkisráð-
herrann segir
af sér
Mohammed Ibrahim Kamel
utanrikisráðherra Egyptalands
sem var i fylgdarliði Sadats forseta
í Camp David hefur sagt af sér
embætti vegna andstöðu við ýmsa
liði þess samkomulags, sem þjóðar-
leiðtogarnir urðu sammála um. Að
sögn bandarískra fréttastofa munu
nokkrir aðrir egypzkir embættis-
menn sem voru í Camp David
hafa sagt af sér af sömu orsökum.
Kamel, fráfarandi utanríkisráð-
herra, er annar í þeirri stöðu sem
segir af sér vegna andstöðu við
stefnu Sadats forseta í friðarum-
leitunum við ísrael. í nóvember
sagði Ismael Fahmi af sér, þegar
Sadat ákvað að fara til Jerúsalem
til að koma af stað friðarviðræðum
milli ísrael og Egyptalands.
Bretland:
Scotland Yard
leitarBaader
Meinhof konu
Starfsmenn Scotland Yard eru
nú að kanna hvort orðrómur um
að kona sem tilheyrt hefur
Baader-Meinhof hópnum vestur-
þýzka sé i felum i Bretlandi hafi
við rök að styðjast. Kemur þessi
rannsókn í kjölfarið á handtöku
Astrid Pröll. sem búið hefur i Bret-
landi i fjögur ár undir fölsku nafni.
Sú sem nú er leitað mun heita Sus-
anne Albrecht og er hennar leitað
fyrir tilraun til mannráns og morð
á bankastjóra einum vestur-þýzk-
um, að nafni Juergen Ponto. í
fyrra.
Frakkland:
FellurServan-
Schreiber?
Svo virðist sem Jean Servan-
Schreiber, franski stjómmálamað-
urinn og blaðaútgefandinn þekkti.
muni tapa í aukakosningum, sem
hófust i gær í borginni Nancy.
Kosningarnar voru endurteknar
vegna þess að frambjóðandi sósíal-
ista vildi ekki una við 22 atkvæða
meirihluta Servan-Schreiber í vor.
Að þessu sinni fékk hann aðeins
29% atkvæða en Tondon, verka-
lýðsleiðtogi I Nancy, fékk 37,5%.
Ekki er talið líklegt að Gaulistar
verði hrifnir af að kjósa Servan-
Schreiber í síðari umferð kosning-
anna og hætt við að hann eigi I
vök að verjast gegn verkalýðsleið-
toganum, sem fær þá mestan
hluta fylgis kommúnista.
Egyptaland:
29farastí
jámbrautarslysi
Tuttugu og níu manns fórust og
fimmtíu særðust er tvær járn-
brautarlestir rákust á í borginni
Wasta i Egyptalandi í gær.
íran:
Borgin þurrkaöist út og
aðeins pálmatrén standa
— í minnsta ellefu þúsund manns f órust í jarðskjálfta, óttazt að
manntjónsé mu
Ljóst er að i jarðskjálftanum í íran
hafa í það minnsta fimmtán þúsund
manns farizt í borginni Tabas og nær-
liggjandi þorpum. Óttast yfirvöld að
svo geti farjð að tala látinna geti jafn-
vel orðið enn hærri. Tabas er algjör-
lega jöfnuð við jörðu og ekkert er þar
uppistandandi annað en nokkur
pálmatré, að sögn sjónarvotta. Allar
byggingar hafa hrunið og jafnhliða
hafa þúsundir grafizt undir rústunum.
Talsmaður rauða Ijónsins og sólarinn-
ar, sem jafngilda Rauða krossinum
sagði í gær að engan veginn væri hægt
að gefa neitt upp um tölur særðra og
látinna fyrr en leitarsveitir hefðu lokið
verki sínu. Fljótlega eftir jarðskjálft-
meira
ann á laugardaginn fóru þó að berast
fregnir frá Tabas, sem stendur ekki
fjarri landamærum Sovétríkjanna og
Afghanistan. Svo virðist sem aðeins
tvö þúsund af þrettán þúsund ibúum
Tabas hafi komizt lifs af úr skjálftan-
um< Hinir allir grófust undir rústum
húsanna.
Björgunarsveitir vinna nú að því að
bjarga fólki en erfiðleikar eru vegna
líka sem fljótlega rotna í steikjandi
sólarhitanum. Jarðskjálftinn, sem
varð á laugardagskvöldið þegar ibú-
arnir i Tabas og nágrenni ætluðu að
fara að setjast að kvöldverði, mældist
sjö stig á Richter. Er þetta mesti jarð-
skjálfti sem komið hefur í íran síðan
1962. Þá fórust á milli tólf og tuttugu
þúsund manns. Var það í Khorassan
héraði, en Tabasborg er einnig í þvi
héraði. Jarðskjálftans á laugSrdaginn
varð vart i Teheran, höfuðborg íran,
sem stendur I 700 kílómetra fjarlægð
frá Tabas. Byggingar hristust og stór-
hýsi sveifluðust til. Upptök jarðskjálft-
ans munu hafa verið við Tabas. Auk
borgarinnar er talið að að minnsta
kosti fjörutiu þorp hafi hrunið til
grunna og I sextiu hafi orðið verulegar
skemmdir á byggingum. Óttazt er að
margir hinna særðu á jarðskjálfta-
svæðinu muni ekki lifa af ef hjálp
berst ekki fljótlega. Allir læknar sem
bjuggu í Tabas munu hafa farizt í
skjálftanum. öll fjarskiptasambönd
við umheiminn rofnuðu og ekkert
vatn né rafmagn var að fá í borginni.
Herlið hefur verið sent á vettvang og
bæði flugvélar og þyrlur hafa verið
sendar til aðstoðar. Nokkrir erfiðleikar
munu þó hafa verið fyrir flugvélarnar
að lenda vegna skemmda á vegum og
flugbrautum I jarðskjálftanum.
Tuttugu þúsund jarðskjálftar hafa
verið í íran á þessari öld. Þar af hafa
um það bil tuttugu verið svo miklir að
valdið hafi manntjóni. Hafa nærri sex-
tiu þúsund manns týnt lífi I þessum
jarðskjálftum.
REUTER
Ulferts
litmynda-
listinn
Aukin þjónusta
Sérpantanir á Ulferts
húsgögnum.
Hafið þið leitað lengi að réttu húsgögnunum?
Farið búð úr búð og ekki fundið það rétta?
f vali á húsgögnum ræður smekkur miklu. Nýi
Ulferts litmyndalistinn er fullur af smekklegum
húsgögnum: Raðstólum, borðum, stólum, rúmum ofl
Þið finnið áreiðanlega eitthvað við ykkar hæfi.
Skrifið eftir nýja Ulferts litmyndalistanum og
veljið síðan eftir ykkar eigin smekk.
Eins og áður er úrval Ulferts húsgagna
að jafnaði til á lager verslunarinnar.
HÚSGRGflflVERSLUn
KRISTJflnS
SIGGEIRSSOnflR HF.
^ Til Kristjáns Siggeirssonar hf.
I Laugavegi 13,101 Reykjavík.
| Vinsamlega sendið mér ókeypis Ulferts
litmyndalistann.
Nafn:
Heimilisfang:
LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870