Dagblaðið - 18.09.1978, Page 10

Dagblaðið - 18.09.1978, Page 10
10 DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 18.SEPTEMBER 1978. ÍMjálst,úJiád dagblað Skrtfstofusljöri ritsljómar Atli Stsinarsson og Óm« Útgefandi DegblaðkPhf. _ Fromkvœmoastjóri: Sveinn R. Eyjóifsaon. Rkstjiri: J6nasl< Fróttastjóo. Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfuttrúl: Haukur Helga Jóhannot. KeykdaL íþróttin Halur Sknonarson. Aðstoíari Valdimarssoii. Handrit: Ásgrimur Póisson. BÍaöamenn Árina BjámasorirAsáeÍrTSRtásson, Bragi Slgurósson, Dóva Stefánsdóttir, Gbsur Sigurðs- son, Guðmundur Magnússon, Halur HaAsson, Helgi Pétursson, Jónqs Haraldsson, Ólefyr Geirsson Ólafur Jónssor^ Ragnar Lér., RagnhaiQur Kristjónsdóttir. Hönnun: Guðjón H. Pélsfon Ljósmyndu Ari Krístkisson Ámi PéH Jóhannsson, Bjamieifur Bjamleifsson, Hörður Vlhjéimsson, Ragnar Tli. Sigu^össon, Sveinn Þormóðssdn. Skrifstofustjórii'ólafur Eyjólfsson. Gjaidkeri: Þráinn Þorieifsson. Söiustjórí: Ingvar Sveinsson. Dreifing arstjóri: Már E.M. HaSldórsson. Ritstjóm Síðumóia 12. Afgreiðsla, éskriftadeild, augtýslngar ogskrifstbfur Þvertiohi 11. Aðalsími blaðsins er 27022(10 Ifnur). Áskrift 2000 kr. é ménuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagbiaðið hf. Síðumúia 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Siðumúia 12. Prentun: ^Aprgjturhf SkeifunnMO. Einkum til ills Ríkisstjórnin telur sig hafa unniö þarft verk, er hún hækkaði skatta þeirra, sem báru hæsta skatta fyrir. Enda er trúlegt, að greiðendur hárra skatta séu fjöl- mennir í hópi þeirra, sem breiðust hafa bökin. v Hinu má ekki heldur gleyma, að greiðendur lágra og engra skatta eru fjölmennir í þessum hópi. Hinar nýju skattabreytingar koma ekki lögum yfir skattsvikara. Til dæmis er engin tilraun gerð til að ná skatti af rekstri heimila á kostnað fyrirtækja né af óframtöldum tekjum, sem eru afar miklar hér á landi. Rikisstjórnin hefði unnið mun þarfara verk, ef hún hefði reynt að koma lögum yfir hin breiðu bök, sem tekst að koma tekjum sínum framhjá skatti. Þar eru gífurlegir möguleikar á auknum skatttekjum ríkisins, sanngjarnari en auknar álögur á þá, sem gefa nauðugir eða viljugir upp allar sínar tekjur. Nú er auðvitað ekki sanngjarnt að gera ótakmarkaðar kröfur um kerfisendurbætur á fyrstu vikum óreyndrar ríkisstjórnar. Kannski ættu Dagblaðið og aðrir gagn- rýnendur að gefa ríkisstjórninni betri frið fram á önd- verðan vetur til að sjá, hvort ekki fari að kræla á raunverulegum umbótum. Ekki verður samt framhjá því gengið, að þeir, sem ekki stela undan skatti, mundu bera hinar auknu byrðar með meira jafnaðargeði, ef þeir treystu því, að ríkis- stjórnin mundi koma skattalögum yfir þá, sem lifa í vel- lystingum praktuglega án þess að taka þátt í að halda uppi ríkisbákninu. Enn alvarlegra mál er hin grófa afturvirkni nýju skattabreytinganna löngu eftir álagningu. Þar með hefur ríkisstjórnin rambað háskalegar en fyrri ríkisstjórnir út á yztu nöf laga og réttar. Siðferði af því tagi er illur fyrir- boði. Lögfróðir menn deila um lögmæti hinnar grófu aftur- virkni. Vel getur verið að Ólafur Jóhannesson hafi rétt fyrir sér, er hann segir afturvirknina ekki beinlinis bannaða með lögum hér á landi. Hins vegar er afturvirknin óumdeilanlega siðlaus, enda bönnuð með lögum í siðuðum nágrannalöndum okkar. Það er hörmulegt að sjá forsætisráðherra og fyrr- verandi dómsmálaráðherra allt að því hælast um siðferðisgat í landslögum. Viðhorfin, sem hann endur- speglar, valda mestu hugarangri í þessu máli. Ætla mætti, að nýir ráðherrar mundu hugsa sitt ráð vel, áður en þeir ljá máls á grófri afturvirkni skattalaga. Þeim á að vera vel kunnugt um lög og venjur siðaðra þjóða og eiga ekki að hefja feril sinn á siðleysi, sem á sér einstaklega veika lagastoð. Ríkisstjórn, sem ætti að taka forustu í bráð- nauðsynlegri siðvæðingu þjóðfélagsins, hefur gerzt lærimeistari í ferðalögum á breiða veginum. Það er einkar athyglisvert, að ríkisstjórnin notfærir sér gat í landslögum með sama hætti og skattsvikarar notfæra sér göt í skattalögum. Hugarfarið er eitt og hið sama. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skattamálum eru sumpart þolanlegar, sumpart ófullnægjandi og sumpart svo siðlausar, að valda hlýtur verulegum áhyggjum. Þær gefa ekki hið minnsta tilefni til að óska ríkisstjórninni langra lífdaga. ' BANDARÍKIN: Carter milli steins og sleggju í ntálum Nicaragua og íran — hagsmunir Bandaríkjanna og mannréttindastefna forsetans fara illa saman Liklegast er Jimmy Carter Banda- rikjaforseti kominn í vanda vegna þeirrar mannréttindastefnu, sem hann hefur rekið ötullega frá þvi hann settist i valdastólinn. Er þá átt við hvernig hann á að snúa sér í málum sem varða íran og Nicaragua. Að visu hefur forsetinn haft heldur hægara um sig síðari mánuði en fyrst eftir að hann tók við völdum. Stefna Carters í mannréttindamálum er þó skýr og Young, fulltrúi Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur verið ötull við að undirstrika hana hvenær sem hann hefur haft tækifæri til. Nú hafa mannréttindamál ekki þótt til neinnar fyrirmyndar hjá stjórnend- um i íran og Nicaragua. Þeir eru aftur á móti hefðbundnir bandamenn bandaríkjanna og meðal þeirra þjóða sem sjaldan eða aldrei láta af stuðningi við stefnu þeirra í alþjóðamálum. Stjórn Bandarikjanna hefur líka » Jimmy Carter leikur erfiöan línudans varðandi stefnuna í íran og Nicaragua. Oliu, viðskipta- og hernaðarhagsmunir Bandaríkjanna fara þar illa saman við mannréttindastefnu hans. farið sér mjög hægt í gagnrýni sinni á aðfarir stjórnar keisarans i íran og Sómóza forseta i Nicaragua. Á báðum stöðum hafa verið miklar blóðsúthell- ingar og barátta gegn stjórnum land- anna beggja. Ekki mun í sjálfu sér Fyrir ári fór Geir Hallgrímsson, þáv. forsætisráðherra, í opinbera heimsókn til Sovétrikjanna og var tekið þar með kostum og kynjum. Eins og fram kom i viðtölum við hann eftir heimkomuna, ætluðu sovésk stjórn- völd aö fá ráðherrann til að undirrita samning um íþróttasamskipti land- anna meðan á heimsókninni stóð. Engin skýring fékkst á þessu tiltæki sovéskra yfirvalda, þessum skorti á háttvisi mitt i öllum vinahótunum. Islenski forsætisráðherrann vísaði til- mælum Sovétmanna á bug, sín heimsókn „ætti ekki að vera vettfang- ur slikrar samningagerðar, heldur ætti að gera slika samninga eftir eðlilegan faglegan undirbúning og ætti þá að taka sjálfstæða afstöðu til þess, hvort æskilegt væri að á slikt yrði fallist.” (Mbl. 5. okt. 1977). Frá sjónarmiði íslenskrar iþrótta- forystu voru þetta skynsamleg og sjálf- sögð viðbrögð, og menn væntu þess að þetta sjónarmið myndi ráða ferðinni. En raunin varð önnur. Snemma á þessu ári fóru að kvisast um það fréttir í blöðum að búið væri að gera samning um íþróttasamskipti við Sovétrikin. Þetta kom íslenskri íþrótta- hreyfingu í opna skjöldu. Hvorki ÍSÍ né UMFÍ hafði verið kvatt til ráðuneytis um gerð samningsins né heldur voru þessi samtök látin vita um að hann hefði verið gerður. Formenn þessara landssamtaka iþróttafólks sátu einn kynningarfund um hugsanlegan umræðugrundvöll fyrir nokkrurn árum, þar sém því var heitið að þeir yrðu kvaddir til undirbúningsfunda hugsanlegs samnings ef áfram yrði haldið. Ekki hefur þessum samtökum heldur verið sendur samningurinn enn þó að hann hafi verið undirritaður í febrúar sl. ISI hefur hins vegar að eigin frumkvæði aflað sér eintaks af samningnum hjá utanríkisráðu- neytinu. Mætti ætla að samnings- aðilar teldu þennan samning iþrótta- hreyfingunni óviðkdomandi þó að hann Kjallarinn Eysteinn Þorvaldsson kveði á um samskipti sem henni er ætlaðaðannast. Óhagstæður samningur Um samninginn efnislega er það að segja að hann geymir fyrst og fremst almennar yfirlýsingar um aukin sam- skipti. I veigamiklum atriðum er hann afar óhagstæður tslendingum. Kostnaður af samskiptum á að greiðast jafnt af báðum aðilum, og slíkt er afar óhag- stætt smáþjóð með fjárvana íþrótta- hreyfingu sem býr fjarri öðrum löndum, ekki síst Sovétríkjunum. I sjálfu sér er auðvitað ekki nema gott eitt um það að segja að millirikja- samningar um aukin samskipti iþróttafólks séu gerðir. En það er aðdragandi og forsaga þessa samnings, svo og hvernig að honum var staðið. sem sýna að samningurinn er alvarleg glöp frá sjónarmiði hinnar frjálsu íþróttahreyfingar. Samningurinn er samþykktur af menntamálaráði Islands og íþróttaráði Sovétrikjanna. Hann kveður á um samskipti iþróttasamtaka í þessum tveimur löndum. Hvers vegna varð ekkert úr hinum faglega undirbúningi sem forsætisráðherrann talaði um í fyrra? Samningurinn er gerður án nokkurs samráðs við islensk íþrótta- samtök sem þó er ætlað að annast þau viðskipti sem hann kveður á um. • Benda má á að slíka samninga við Sovétríkin hafa hin Norðurlöndin gert, en hvergi án hlutdeildar íþróttasamtakanna, og a.m.k. í Noregi, Sviþjóð og Danmörku eru íþróttasamtökin sjálf samningsaðilar, undirbjuggu samningana og standa að þeim. Hvers vegna mátti ekki viðhafa slík fagleg vinnubrögð hér? Skuggaverk Vitað er að sovésk yfirvöld sóttu það fast að þessi samningur yrði gerður. En hvað knúði íslenska menntamálaráðuneytið til þessarar

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.