Dagblaðið - 18.09.1978, Side 15

Dagblaðið - 18.09.1978, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978. 15 ð Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 8 Jaf ntefli — þrátt fyrir ákafar vinningstilraun- ir Kortsnoj í Baguio 23. skákin i heimsmeistaraeinviginu var tefld á laugardag og lauk með jafn- tefli eftir 41 leik. Kortsnoj, sem hafði hvitt, fékk frumkvæðið eftir byrjunina og reyndi mjög að knýja fram vinning. Karpov varðist þó öllum skakkaföllum með nákvæmri vörn og eftir 41. leik, þegar áskorandinn rétti að honum blað með orðinu „jafntefli” á, var hann fljótur að samþykkja. Staðan í einvíginu er þvi cnn 4—2 (12 1/2—10 1/2) heimsmeistar- anum í vil, ásamt 17 þýðingarlausum jafnteflum. Eftir að skákinni lauk á laugardag sat Kortsnoj lengi i stól sínum og starði á skákborðið. Hann var greinilega mjög miður sín yfir að hafa ekki getað unnið. eftir að hafa haft betra tafl allan tímann. Hann kallaði á yfirdómarann, Lothar Schmid. sem einnig er stórmeistari. og spurði hann fullur einlaegni: „Hvernig átti ég að fara að þvi?” Seinna sagðist hann svo halda að hann hafi misst af vinningi með því að leika 38. og 39. leiknjm i vitlausri röð. Það virtist hins vegar hafa við litil rök að styðjast. Kapparnir tefldu drottningarbragð eina ferðina enn og fékk Kortsnoj fljót- lega betri stöðu. Karpov tefldi eins hratt og mögulegt var og reyndi greinilega að þreyta sig sem minnst. Aftur á móti sat áskorandinn oft löngum stundum yfir skákborðinu. enda hafði hann það erfiða verkefni með höndum að breyta stöðuyfirburði sínum i vinning. Hann tefldi vel fyrir bragðið og jók yfirburði sína jafnt og þétt. Karpov varaði sig þó á þvi að láta þá verða of mikla og varðist vel. Mikil uppskipti urðu á mönnum og upp kom hróksendatafl, sem Kortsnoj gat engan veginn unnið. Þeir sömdu þvi um jafntefli á sinn sérstaka hátt. eins og fyrrsagði. 23. einvígisskákin Hvítt: V. Kortsnoj Svart: A. Karpov Drottningarbragö. 1. c4 RÍ6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4 Be7 5. Bf4 0-0 6. e3 c5 7. dxc5 BxcS 8. Dc2 Rc6 9. Hdl Da5 10.a3Be7 10. — He8?! sá fyrst (og síðast?) dagsins Ijós i 21. einvigisskákinni. Karpov hverfur nú aftur til þess leiks. sem hann lék i 9. einvígisskákinni. en hún fór jafntefli eftir mikinn darraðar- dans. Þar átti Karpov lengst af i vök að verjast, svo líklegt er að hann geri einhverja tilraun lil að endurbæta tafl- mennskusina nú. 11. Rd2 e5 12. Bg5 d4 13. Rb3 Db6. Og hér breytir Karpov út af. í 9. skákinni lék hann 13. — Dd8, sem af „sérfræðingum” er lalinn betri leikur. Samt fékk hann erfiða stöðu út úr byrjuninni og hefur því skiljanlega ekki áhuga á að fara út i þá sálmana aftur. 14. Bxf6 Bxf6 15. Rd5 Gallinn við 13. — Db6 kemur nú greinilega í Ijós. 15. — Dd8 16. Bd3 g6 17. exd4 Rxd4 18. Rxd4 exd4 19. Rxf6+ Dxf6 20. 0- 0 Eftir skákina Forintos-Smederevac. Wijk ann Zee 1970, hefur þetta afbrigði verið talið mjög hagstætt hvítum. Smederevac lék nú 20.— Bd7? en tapaði einfaldlega peði eftir 21. Be4 Bc6 22. Bd5! Had8 De4. Karpov hefur skiljanlega engan áhuga á slikum enda- lokum og kemur því með nýjan lcik, sem gerir svörtu stöðuna skyndilega teflandi. 20. — Be6! Kortsnoj virtist liða illa eftir þennan leik og átti í mestu erfiðleikum með að einbeita sér. Sjálfsagt hefur cinnig urið i taugarnar á honum hvað Karpov lék hratt. en þegar hér var komið sögu hafði hann aðeins notað 4 minútur. Kortsnoj hafði hins vegar eylt 25 minútum. Skyndilega kallaði hann á yfirdómarann Schmid og kvartaði sáran yfir þvi að Karpov truflaði einbeitni sína með því að rugga sér i stólnum. Siðan sfóð hann upp og gekk inn í hvildarher- bergið. Þaðan horfði hann á stöðuna á Kortsnoj, tefldi stift til sigurs en dugðl ekki tU. sýningarborðinu i nokkrar mínútur, rétt eins og Spassky forðum. Á meðan spurði Schmid Karpov kurteislega að því hvort hann gæti ekki teflt svolítið hljóðlegar. Karpov hætti þá rugginu. Kortsnoj sneri aftur að borðinu og allt féll i Ijúfa löð. 21. Hfel Hac8 22. b3 Hfd8 23. Be4 Hc7 24. Dd2 Kortsnoj hefur greinilega náð betri stöðu eftir byrjunina, en eins og oft áður var timi hans verri. Hann átti nú um 50 mínútur eftir á 16 leiki.en Karpov meira -en 2 klst! 24,—Bg4 25.13 Be6 26. a4! Peðameirihluti hvits fer nú af stað og svartur má hafa sig allan við ef ekki á illa aðfara. 26. —b6 27. a5 b5 28. cxb5 Bxb3 29. Hbl Bd5 30. b6 axb6 31. Hxb6 Hc6. Allt að þvi þvingað. 31. — Dg7?? 32. Bxd5 Hxd5 33. He8+ hefði leitt til skjótra endaloka. 32. Hxc6 32. Bxd5 Hxd5 33. He8+ Kg7 34. Hbb8h5! leiðir ekki til neins fyrir hvítan. Eftir t.d. 35. Hh8? Dg5 36. Hgb8+ Kf6. er svarti kóngurinn mun öruggari en sá hvíti. 32. — Bxc6 33. Bd3. Hvítur forðast biskupakaup, því biskup hans stendur vel á d3, þar sem harin hindrar framrás svarta d-peðsins. Svartur er hins vegar ekki á því að leyfa honum að komast upp með það og beinlínis þvingar fram biskupakaup. 33. - Bd7! 34. a6 Bf5 35. Df4 Kg7 36. 38. Hal Eftir skákina var Kortsnoj mjög óhress með þennan leik og sagðist hafa átt vinning með 38. Kf2. Eitthvað virðist það nú vera vafasöm fullyrðing.' Svartur leikur samt sem áður 38._^-_d3! íþróttir og útivist eru líka fyrir fatlaða. Styðjum jafnréttisbaráttu fatlaðra. íþróttasamband íslands JÓN L. ÁRNAS0N SKRIFAR UM SKÁK og ætti auðveldlega að ná jafntefli Eftir t.d. 39. Hbl (39. Hal He8! leiðir til sömu stöðu og í skákinni og 39. Ke3! d2! 40. Hdl Ha8 er einnig jafntefli). He8! 40. Hb6 d2 41. Hd6 He6! er jafnteflið staðreynd. 38. — d3! 39. Kf2 He8! Hvíti kóngurinn kemst nú- ekki að d- peðinu og jafnteflið er gulltryggt. 40. Ha2 He7! 41. Hd2 Ef4l.a7,þád2! 41. — He6 Kortsnoj sá nú fram á að frekari barátta var tilgangslaus. svo hann skrifaði orðið „jafntefli” niður á blað. Karpov var fljótur að skrifa nafnið sitt undir og fór samstundis út. — Sem sagt: jafntefli. Alsuðu handbókin er komin út Álsuóuhandbókin er gefin út af samtökum norræna áliðnaðarins sem kennslu- og handbók fyrir málmiðnaðarmenn. Álsuðuhandbókin fæst hjá íslenzka Álfélaginu Straumsvík sími 52365 og kostar aðeins 600 krónur. ^ viTpós^sendum. skon^\luminium NORDISK ORGAN FOR ALUMINIUMINDUSTRIEN NORRÆN SAMTÖK ÁLIÐNAÐARINS

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.