Dagblaðið - 18.09.1978, Qupperneq 32
Eyjólfur Konráð í
viðtali við útvarpið
um fulltrúafjöldann á
Hafréttarráðstefnunni:
Handboltalið
staö fótboltaliðs
Srjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 18. SEPT. 1978.
Heimdallur:
— þýddi nærri helmings fækkun fulltrúa
„Ég er þeirrar skoðunar nú sem fyrr
að fulltrúarnir séu óþarflega margir.
sex til sjö menn gætu annazt þessi
störf að mínu mati,” sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson alþingismaður í við-
tali við fréttamann rikisútvarpsins úti I
New York á föstudaginn. Frétta-
maður hafði áður spurt hann hvort
fulltrúarnir væru ef til vill of margir.
eins og margir vilja vera láta.
Nú eru fulltrúarnir 12, eins og DB
skýrði frá er þeir héldu utan. eða jafn-
margir og leikmenn knattspyrnuliðs
auk eins varamanns. Eyjólfur virðist
sætta sig við fjölda handboltaliðs, sem
í eru sjö leikmenn.
Eyjólfur sagði ennfremur að kostn-
aðurinn af þessum fulltrúafjölda væri i
sjálfu sér hverfandi, ef tillit væri tekið
til hversu mikið hagsmunamál íslend-
inga bæri þarna á góma og væru jafn-
vel afgreidd.
Þá ræddi fréttamaður við Þórarin
Þórarinsson alþingismann sem taldi
nauðsynlegt að halda þessari háu full-
trúatölu, þannig að allir stjórnmála
flokkar gætu sem bezt fylgzt með mál
unum af eigin raun. Þannig væri unni
að koma í veg fyrir hugsanlega tor
tryggni.
—G.S.
ÞEIR TRYLLA OG TÆTA...
Það er ekki tekið út með sældinni að björgunarsveitin þekkta i Grindavík, var tekin við það tækifæri, — einn bíl- um keppnina í blaðinu á morgun.
vera keppandi i torfæruakstri. Stakkur, efndi til slikrar keppni i gær. Þessi mynd anna öslar gegnum drullupytt — Nánar DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Oddur og félagi hans Helgi Backmann
halda hér á minkaparinu og hádegis-
verði þess igær.
DB-mynd: H.V.
ÓBOÐNIR GESTIR í SUNNU-
DAGSSTEIKINA við Elliðaárnar
Tveir minkar veiddu sér stokkönd í
sunnudagsmatinn við ofanverðar
Elliðaárnar i gær og voru að byrja að
gæða sér á henni er óvænta og óboðna
gestibaraðgarði.
Voru þar tvær þjálfaðar minka-
veiðitikur, Stúlla og Stulta. minkaban-
ans Odds Magnússonar. en Oddur og
hundar hans hafa unnið fjölda minka
við Elliðaárnar, þótt ótrúlegt sé svona
nánast inni i borginni. Minkurinn er
. hinn mesti skaðvaldur, bæði gagnvart
fugla- og fiskilífi umhverfisins. Alls
hafa Oddur og félagi hans Helgi Back-
mann veitt um 240 minka með aðstoð
hunda sinna það sem af er árinu. en
heldur er afraksturinn þó lélegur þvi
verð fyrir unninn mink hefur verið
óbreytt- i þrjú ár, 1500 krónur. Þannig
tók það Odd, Helga og tikurnar tvær
átta tíma að hafa uppi á minkunum í
gær. sem aðeins gaf 3 þúsund krónur i
aðra hönd.
—G.S.
Fagnar kaup-
tilboði í
Víðishúsið
Aðalfundur Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna, sem haldinn var i gær
samþykkti ályktun þar sem framkomnu
kauptilboði i Víðishúsið að Laugavegi
166 er fagnað. Jafnframt var skorað á
rikisstjómina að ganga til samninga um
sölu á húsinu.
GM.
Þjófnaðurinn
komst upp við
líkamsárás
Ráðizt var á mann á Ránargötunni á
föstudagskvöldið. Voru þar að verki
tveir piltar sem lögreglunni tókst að ná.
Við leit á piltunum fannst þýfi úr inn-
brotisemþeirhöfðuframið. jjs.
Innbrot víða í fyrrinótt:
Skemmdir og
peninga-
þjófnaður
Talsvert var um innbrot i fyrrinótt og
var meðal annars brotizt inn i tvær
byggingarvöruverzlanir í Ármúla. Litlu
var þó stolið þar sem annars staðar enda
litið um lausafé á glámbekk en það virt-
ist hið eina sem innbrotsþjófarnir höfðu
áhuga á. Þó var stolið myndavél á einum
stað og útvarpi á öðrum. Víða urðu tals-
verðar skemmdir af innbrotunum.
DS.
Ólæti á Hallærisplani:
40 unglingar
færðirheim
40 unglingar voru teknir og færðir til
síns heima á föstudagskvöldið eða for-
eldrarnir látnir koma og sækja þá á lög-
reglustöðina. Þessir fjörutíu voru meira
og minna drukknir og með ólæti á Hall-
ærisplaninu í Reykjavik. Er þar yfirleitt
mikið um að vera á föstudagskvöldum
og gerir lögreglan þá jafnan „rassiu”.
DS.
Velti bílíBlesugróf:
Stakk af upp
íÁrbæ
Bíl var velt um þrjúleytið í fyrrinótt í
Blesugróf i Reykjavík. Ökumaðurinn,
sem var ölvaður, hugðist stinga af en
lögreglan náði honum i Árbænum.
DS.
Þa«0\
y Kaupið^X
5 TÖLVUR. £
BAIMKASTRÆTI8