Dagblaðið - 23.10.1978, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 23.10.1978, Blaðsíða 18
18 i DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Vestmannaeyjar—Slask, Póllandi, í UEFA-bikarnum 0-2 Leikmenn Slask líkastir lífvörðum úr páfagarði! — mættu í svörtum sokkabuxum milli laga í EvrÓDubikarleikinn á Melavelli á laugardag íklæddir svdrtum sokkabuxum milli laga liktust pólsku knattspyrnumenn- irnir frá Slask einna helzt einhvers konar lifvörðum frá páfagaröi þegar þeir mxttu til leiks i sunnankaldanum og suddanum á Melavelli á laugardaginn gegn Eyjamtínnum í UEFA-kcppninni I knattspyrnu. Aðstæður til að sýna knattspyrnu voru einkar óhagstæðar vestur á gamla . Melavellinum, og satt að segja er ekkert gott að vera áhorfandi lengur á þessum gamla góða velli. En enda þótt liðin fengju aldrei að sýna mikla takta, þá buðust stundum skemmtileg tækifæri, sem þó nýttust ekki. Mörkin tvö komu bæði fyrir maka- laus mistök. Eyjamenn voru nærri að skora i fyrri hálfleik með rosalegri aukaspyrnu upp í vinkil marksins. Hinn stórgóði mark- vörður Kalinowski varði i horn, sem var raunar kraftaverki líkast. Fleiri góð tækifæri fengu leikmenn ÍBV. Einnig áttu Pólverjar góð tækifæri — og þar var aðallega að verki hinn smávaxni Sybis, skemmtilegur og leikinn maður það. En merkilegt nokk — markið virtist ekki vilja koma, enda þótt það væri stundum galopið. 61. mínúta: Sending inn miðjuna sem; tía Pólverjanna fylgir eftir. Vestmanna- eysk þrenning, tveir varnarmenn og markvörðurinn Páll Pálmason, „frjósa” gjörsamlega, Kwiatkowski fylgir send- ingunni eftir og rétt breytir stefnunni I hægra horn marksins, 1—0. 73. mínúta: Engin furða þótt Þórður Hallgrímsson færi að hlæja. Ekki á hverjum degi að hann skorar svo glæsi- lega. Fyrirgjöf frá vinstri. Engin hætta á ferðum. Nema hvað? Þórður tekur við fyrirsendingunni og skýtur glæsilega I eigið mark, gjörsamlega óverjandi fyrir Pál Pálmason i markinu, 2—0. Fleiri voru mörkin ekki i þessum fyrri leik liðanna í UEFA-keppninni. Kannski Þetta hlýtur að vera sárt, er eins og pólski leikmaðurinn Sybis hugsi, þegar kntítturinn lendir i andliti Eyjamanns. DB-mynd Bjarnleifur. réttlát úrslit. Mér fannst einhvern veginn gefið mál að pólska liöið væri snöggtum betra, enda þótt segja megi að allnokkurt jafnræði væri á með liðunum tveim í þessari viðureign. Þó verður það að segjast að enginn leikmaður sýndi neitt hvað í honum bjó, við þvi var varla að búast, eins og allt var í pottinn búið. Helzt sýndu þeir svolitla takta Pólverj- arnir Snuda, Sybis og Olwsiak og mark- vörðurinn Kalinowski. Góður dómari leiksins, R.V. Byrne frá írlandi: „Jú, aðstæðurnar voru ekki upp á það bezta. En við dómararnir megum ekki láta neitt slíkt á okkur fá, við göngum að hverju sem er i þessum efnum.” Aðalfararstjóri Slask, Nawrock: „Að- stæðurnar — við erum öllu vanir. Við getum ekki farið að setja neitt út á þær. En við getum lofað Eyjamönnum að þær verða á allan hátt skemmtilegri að- stæðurnar heima hjá okkur, þegar þeir koma og heimsækja okkur.” - JBP ÍBV og UEFA-keppnin: 2-3 millj. króna tap „Því verður ekki neitað að við erum i ákafri fjárþrtíng eftir þessa þátttöku okkar i Evrópubikar- keppninni,” sagði Kristinn Sigurðsson, slökkviliðsstjóri í Eyj- um, varaformaður ÍBV. Hann kvað uppgjtír ekki liggja fyrir vegna leiksins á laugardag- inna, en þar hefðu þó varla nema 800—1000 manns greitt aðgangs- eyri. Slíkt hrekkur varla fyrir meiru en hótelkostnaði vegna Slask-liðsins. Kvaðst Kristinn vel geta Imyndað sér að ÍBV þyrfti að brúa 2—3 milljón króna tap vegna þessa. Að visu endurgreiddi Evrópusambandið hluta af hallan- um, en það fé kæmi ekki fyrr en á næsta ári. „Við höfum mikinn stuðning af okkar fólki hér f Eyjum og vonum að þetta fari allt vel,” sagði Krist- inn. ÍBV leikur siðari leikinn i Pól- landi 2. nóvember næstkomandi. - JBP Haukar fóru vel af stað Haukar fóru vel af stað í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik er þcir sigruðu Fram, 26—25, í Laugardalshtíll á laugardag. Það er greinilegt að Haukar vcrða sterkir í vetur, þó ef til vill markvarzlan geti verið vandamál. Gunnar Einarsson, landsliðsmarkvörður leikur nú með Arhus KFUM, og á Guðniekki áfram með ÍBK Guðni Kjartansson, þjálfari Kcflvík- inga f sumar, mun ekki þjálfa ÍBK næsta sumar. Undir stjórn Guðna hafnaði IBK f 3. sæti 1. deildar, og komst við það f UEFA-keppnina. Keflvíkingar eru nú að leita fyrir sér að nýjum þjálfara og hafa beint augum sfnum einkum til Englands. laugardag var Þorlákur Kjartansson meiddur. Fram hefur ungu liði á að skipa, efnilegu liði. Þess tfmi er þó ekki kominn, ef marka má leik liðsins gegn Haukum — það verður erfiður vetur framundan hjá Fram. Haukar stilltu upp fjórum nýliðum gegn Fram, Herði Harðarsyni, áður Ármanni en hann lék í Svíþjóð síðast- liðinn vetur, Árna Sverrissyni áður Fram, Júlíusi Pálssyni, áður FH og Herði Sigmarssyni — en hann sneri aftur til Hauka eftir ár með Leikni. Hörður Harðarson skoraði flest mörk Hauka, 9 — og mörg þeirra gullfalleg. Haukar skoruðu tvö fyrstu mörkin í Laugardalshöll — þeir Hörður Harðar- son og Höröur Sigmarsson. En Fram svaraði meðfjórum mörkum. Fyrri hálf- leikur var mjög jafn, 5—5, 6—6, 7—7, 8—8 en Haukar skoruðu þrjú mörk í röð, breyttu stöðunni í 11—8 sér í vil. Staðan í leikhléi var 14—13. Fram náði að jafna í byrjun síðari hálfleiks, og komst yfir, 17—16. En Haukar svöruðu með fjórum mörkum, og lögðu grunninn að sigri þá, komust í 20—17. Sá munur hélzt fram á síðustu mínútur. Þegar aðeins mínúta var eftir skoraði Andrés Kristjánsson, 26—23, — en Fram skoraði tvö síðustu mörk leiksins, 26— 25. Eins og tölurnar gefa til kynna þá var varnarleikur liðanna slakur, svo og markvarzlan. Hins vegar sáust mörg falleg mörk, skemmtilegur sóknarleikur —já, leikurinn hafði á sér nokkurn haustbrag. Mörk Hauka skoruöu: Hörður Harðarson 9,2 viti. Nafni hans Sigmars- son skoraði 6, 4 víti. Andrés Kristjáns- son og Árni Hermannsson skoruðu 4 mörk hvor, Árni Sverrisson, Sigurður Aðalsteinsson og Þórir Gíslason skor- uðu 1 mark hver. Fyrir Fram skoraði Gústaf Björnsson mest, 8 mörk, 4 víti. Atli Hilmarsson 7, Birgir Jóhannsson 4, Pétur Jóhannsson og Sigurbergur Sig- steinsson 2, Kristján Unnarsson og Er- lendur Davíðsson 1 mark hvor. Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjáns- son og Haukur Þorvaidsson — og áttu þeir ekki einn af sínum betri dögum. - H Halls. Tveir tapleikir hjá Leikni a KA vann stórsigur á Leikni úr Reykjavik á Akureyri á laugardag f 2. deild Islandsmótsins f handknattleik. Lokatölur. 30—13 eftir 14—6 i hálfleik. Það var aðeins jafnræði með liðunum upphafsmfnúturnar en sfðan skildu leiðir. Alfreð Gfslason skoraði flest mörk KA eða nfu. Jón Hauksson, 6, fjögur úr vftaköstum. Guðmundur og Hafliði Kristinssynir voru markhæstir Leiknismanna með fjögur mörk hvor. Akureyri Á sunnudag lék Leiknír svo við Þór. Þar var um jafnari viðureign að ræða. Þór sigraði 17—15 eftir 9—7 f hálfleik en sigur Þórs var aldrei f hættu. Sig- tryggur Guðlaugsson skoraði flest mörk liðsins — sex, fjögur vfti. Sigurður Sigurðsson skoraði fjtígur. Ásmundur Kristinsson skoraði meir en helming marka Leiknis, átta, eitt vfti. •StA.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.