Dagblaðið - 23.10.1978, Page 23
23
Iþróttir
Iþróttir
D
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1978.
I
Iþróttir
Iþróttir
FLORIDA svefnsófarnir eru komnir
aftur. Meö einu handtaki má breyta
þeim i hvilu fyrir tvo. Fyrirliggjandi
stakir eöa meö stólum, sem sófasett.
— Komið og skoöið, sjón er sögu rikari.
Komu sér upp íþróttahúsi án opinberrar aðstoðar:
Félagarnir unnu verkið
og fjármögnuðu sjálfir
—athyglisvert framtak félaganna í Gerplu íKópavogi
Skemmtilegt félagslegt framtak innan
eins yngsta iþróttafélags landsins,
íþróttafélagsins Gerplu I Kópavogi, varð
til þess að á örfáum mánuðum hefur
félagið reist sér skemmtilegt iþróttahús.
t stað þess að gera slfelldar kröfur til
ríkis og bæjar, hófu félagarnir i ágúst-
mánuði að innrétta fyrrum vélaverkstseði
fyrir stórvirkar vinnuvélar að Skemmu-
vegi 6. í byrjun október hófust þar
kennsla og æGngar við gjörbreyttar að-
stæður.
Gerpla er aðeins 7 ára gamalt félag.
Stærsta deild félagsins er fimleikadeild,
en þróttmiklar deildir júdómanna, borð-
tennis- og badmintonmanna eru og inn-
an félagsins. Aðstaða til æfinga hefur
verið einstaklega slæm, því áeft var áður
á sex stöðum i þrem bæjarfélögum.
Samningar voru gerðir í sumar við Pál
Hannesson verkfræðing, forstjóra Þóris-
óss hf., um leigu á húsnæði til fimm ára.
Undir haust hófust svo framkvæmdir
við að innrétta bygginguna.
Félagar Gerplu tóku að sér að vinna
.25 stundir hver félagi við bygginguna,
en reyndin var þó sú að um 40 manna
hópur vann að byggingunni og þar af
flestir mun lengri tima en hina umræddu
25 tíma — sumir allt að 200 tíma og fjöl-
margir yfir lOOtíma.
Þá hafa félagarnir sjálfir tekið virkan
þátt i 16 milljón króna fjármögnun inn-
réttinganna, framlög þeirra eru 5
milljónir, bankalán nema 8.5 milljónum
og úr rekstri félagsins koma 2.5 milljón-
ir.
1 vetur verður unnið að síðari hluta
innréttinga, tveim búningsklefum til við-
bótar, baðklefa ásamt 90 fermetra sal
fyrir júdó, jóga og ballett, skrifstofu
félagsins, setustofu, sauna og áhorfenda-
svæði.
Formaður Gerplu er Tómas Guð-
mundsson, og stýrði hann framkvæmd-
unum ásamt þeim Ingimundi Magnús-
syni rekstrarfræðingi og Vilborgu Brem-
nes, en þau skipuðu byggingarnefnd og
eru öll í aðalstjórn Gerplu.
Nýja iþróttahúsið er nú notað 95
stundir í viku hverri, en auk félagsdeilda
Gerplu fá þar inni skólar i Kópavogi
með fimleikakennslu sína, og fer sú
Celtic heldur forustunni á
Skotlandi en naumt er það!
Celtic tókst ekki aó sigra Morton á
heimavelli á laugardag I skozku úrvals-
deildinni. Jafntcfli varö 0—0 og sagði
fréttamaður skozka útvarpsins að allt
sem hægt væri að segja um þann leik
væru úrslitin. Svo slakur var hann. Þrátt
fyrir jafnteflið heldur Celtic forustunni á
betri markamun en Dundee Utd. og
Hibernian. Þau tið gerðu jafntefli i inn-
byrðisleik sinum i Edinborg á laugardag.
Gordon Rae skoraði fyrir Hibernian í
fyrri hálfleik en í þeim síðari jafnaði
Graeme Pyne á 75. mín. Urslit urðu
þessi: Aberdeen — Hearts 1-2
Celtic^Morton 0-0
Hibernian — Dundee U. 1—1
Partick — Motherwell 2-0
St. Mirren — Rangers 0-1
Sigur Hearts í Aberdeen var mjög
óvæntur. 1 fyrri hálfleik skoraði
O’Connors, sem Hearts keytpi í síðustu
viku frá St. Johnstone fyrir 30 þúsund
sterlingspund. Joe Harper jafnaði i s.h.
úr vitaspyrnu en á 75. mín. skoraði
Denis McQuade sigurmark Hearts.
Hann hafði komið inn sem varamaður.
Rangers vann sinn annan sigur —
mikinn heppnissigur — I Paisley gegn
St. Mirren. Eina mark leiksins skoraði
Man. Utd. — leikmaðurinn hjá
Rangers, Alex Forsyth, úr vítaspyrnu á
24. mín. Þrisvar tókst leikmönnum
Rangers að bjarga á markalínu og Peter
McCloy varði mark Rangers með mikl-
um tilþrifum. Rangers er nú aðeins
þremur stigum á eftir efstu liðunum.
Staðan:
Celtic
DundeeUtd.
Hibernian
Aberdeen
Partick
Rangers
St. Mirren
Morton
Hearts
Motherwell
starfsemi fram á tímanum frá því 8 á
morgnana til 16 á daginn. Salurinn er
32.4 metrar á lengd, 19 metrar á breidd,
og lofthæðin 6.60 metrar. -JBP
Nemes áf ram
meðVal
íslandsmeistarar Vals i knattspyrnu
hafa endurráðið þjálfara sinn, Gyuala
Nemes, fyrir næsta sumar. Undir stjórn
Nemes í sumar áttu Valsmenn fádæma
velgengni að fagna, settu hvert metið á
fætur öðru, töpuðu aðeins einu stigi i 1.
deild — á Akureyri. Þá léku Valsmenn
til úrslita í Bikarnum, en töpuðu gegn
erkifjendum sinum, Skagamönnum.
Meistarar
Fram fóru
velaf stað
íslandsmeistarar Fram fóru vel
af stað I 1. deild íslandsmótsins I
handknattleik kvenna. Sigruðu
Hauka 12—5 i Laugardalshöll á
laugardag. Sigur Fram var ör-
uggur, næsta fyrirhafharlitill.
: Staðan í leikhléi var 7—2 Fram í
vil. Sigrún Blomsterberg skoraði
flest mörk Fram, 4, Oddný Sig-
steinsdóttir 3, Jóhanna Halldórs-
i dóttir 2 og þær Erla Sverrisdóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir og Guðrún
Svcrrisdóttir skoruðu 1 mark hver.
Sjöfn Hauksdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Björg Jónatansdóttir og
Margrét Theódórsdóttir skoruðu
eitt mark hver fyrir Hauka.
FH sigraði
Breiðablik
Keppnin i 1. deild kvenna á
Íslandsmótinu i handknattleik
hófst i Hafnarflrði á laugardag. Þá
léku FH og Breiðablik. Leiknum
lauk með öruggum sigri FH-
stúlknanna, sem skoruðu 14 mörk
gegn 10 mörkum Breiðabliks.
Ekki var þetta skemmtilegur leik-
ur. Til þess voru yflrburðir FH of
miklir og greinilegt að stúlkurnar i
Breiðabliki verða að taka sig mikið
á ef þær ætla að halda sæti sinu i
deildinni.
Kristjana Aradóttir, FH,
skoraði fyrsta markið í íslands-
mótinu í kvennaflokki að þessu
sinni. Huldu Halldórsdóttur tókst
að jafna í 1—1 fyrir Breiðablik.
Síðan fylgdu fjögur mörk FH-
stúlknanna og þar með var greini-
legt að sigurinn yrði þeirra, 5—1.
Hulda stakk aftur inn marki fyrir
Breiðablik — en næstu tvö mörk
voru FH, 7—2. En stúlkurnar úr
Kópavogi gáfust ekki upp og tókst
verulega að minnka muninn, eða i
7—5. Þriggja marka munur var í
hálfleik, 9—6, fyrir FH.
Ekkert mark var skorað fyrstu
sjö minúturnar í síðari hálfleik.
Boltinn gekk á milli og raunveru-
lega ekkert gerðist. Svo fékk
Breiðablik víti, sem Sigurborg
Daðadóttir skoraði úr, 9—7. Fljótt
iá eftir tókst Hildi Harðardóttur að
skora fyrsta mark FH í hálfleikn-
um, 10—7. Tveggja til þriggja
marka munur hélzt en minútu
fyrir leikslok minnkaði Hulda
muninn í 10—8. Fimmta mark
hennar í leiknum en jafnframt
síðasta mark Breiðabliks. FH
skoraði tvívegis á lokasekúndun-
um. Úrslit 14—10.
Mörk FH skoruðu Kristjana 6,
Svanhvit Magnúsdóttir 3, Katrín
Danivalsdóttir 2, Hildur Harðar-
dóttir 2 og Jóna 1. Mörk Breiða-
bliks skoruðu Hulda Halldórsdótt-
ir 5, Sigurborg Daðadóttir 2/1,
Rósa Valdimarsdóttir 2 og Ásta
Reynisdóttir 1. . HJ
húsiö