Dagblaðið - 27.10.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978.
5
HEIMILISLÆKNIR SVARAR
Ófrjósemisaögerð
er óafturkræf
7235-0421 hríngdi:
Hvaöa áhrif hefur ófrjósemisaðgerð
á ungar konur innan við þrítugt?
Breytist holdafar kvenna? Hefur slík
aðgerð áhrif á kynlífið? Hvað getur
annað gerzt við slíka aðgerð. Er
möguleiki á því að „setja konur í
samband” aftur eftir slíka aðgerð.
SVAR:
Þessu var reyndar svarað hér
nýlega, en rifja má upp helztu atriðin.
Ófrjósemisaðgerð er óafturkræf.
Eggjaleiöarar eru teknir í sundur en öll
starfsemi legs, eggjastokka og reyndar
annarra líkamshluta verður óbreytt.
Því er ekki um að ræða áhrif á holda-
far né kynlíf.
Frásagnir um óæskileg áhrif þessara
aðgerða má yfirleitt skýra annaðhvort
þannig að aðgerðarþolinn hafi ekki
verið nógu vel fræddur um fram-
kvæmd og aukaverkanir eða að
hún/hann hafi þrátt fyrir allt ekki
verið nógu viss um hug sinn. Taki
fólk ákvörðun sem þessa án þess að
gaumgæfa málið vel og lengi og án
þess að verða sér úti um góða fræöslu
um eðli aðgerðarinnar, er hætta á
ýmsum geðrænum einkennum siðar
meir, t.d. sektarkennd, dapurleika, en
hvort tveggja getur leitt til ofáts og
kynlífsvandamála, t.d. kyndeyfðar.
Skrifið:
HeimilislæKnir
svarar
Dagblaðið
Sfðumúla 12
Reykjavík
eða hringið:
Raddir lesenda
Sími 27022
Kl. 13-15 virka
daga.
Að lokum skal hér enn bent á að
aðgerð sem þessi er einfaldari,
óþægindaminni, ódýrari og jafn auka-
verkanalaus sé hún framkvæmd á
körlum.
HVERS BER AÐ GÆTA EFTIR
TÖKU GALLSTEINA?
Dagbjört Flórentsdóttir, Fifuseli 26,
hríngdi:
Gallsteinar hafa verið teknir úr
mér. Því leikur mér forvitni á að vita
hvaða fæðutegundir ég á að forðast.
Ég veit að ég á að forðast fitu. Þá
hefur mér verið ráðlagt að borða
trefjaríka fæðu. Hvað er trefjarik
fæða?
Einnig hef ég heyrt að t.d.
rabarbari og aspas séu steina-
myndandi. Er það rétt? Ber að forðast
þessar fæðutegundir?
Stundum hefur fólki verið ráðlagt
að drekka meira af hitaveituvatni en
gert er. I þvi mun vera kisill. Er
heppilegt fyrir mig að drekka hita-
veituvatn?
Að lokum ein spurning: Getur
gallblaðra myndazt á nýjan leik?
svar:
Þú skalt reyna að forðast fitu- og
sykurríkan mat, en einnig þarftu að
reyna að halda þyngdinni í skefjum,
þ.e. hitaeiningarnarskipta einnig máli.
Trefjarík fæða inniheldur
ómeltanlegar trefjar úr jurtaríkinu.
Þar er um að ræða t.d. brauð úr
grófmöluðu korni, hveitiklið, krúska,
gulrætur, gulrófur, kál og hreðkur,
einnig ýmiss konar morgunverðar-
korn.
Rabarbari hefur verið orðaður við
myndun nýrnasteina en ekki hef ég
heyrt getið um gallsteina í því
sambandi. Aspas hef ég ekki heyrt
getið þegar rætt er um steina-
myndun.
Sama er að segja um kísil. Heyrzt
hefur að hann veiti einhverja vörn
gegn hjartasjúkdómum. Það er þó
með öllu ósannað enn, svo fyrir alla
muni farðu ekki að þamba hita-
veituvatn þess vegna.
Gallblaðra myndast ekki aftur eftir
brottnám. Að lokum má geta þess að
von er á lyfjum er leysa upp gallsteina,
þannig að hugsanlegt er að gallsteina
og gallblöðruaðgerðir verði að rnestu
eða jafnvel með öllu óþarfar i
framtíðinni.
Flestar vörtur hverfa sjálfkrafa
OUT spyr:
Hvað er helzt til ráða gegn vörtum,
sem marga plaga?
SVAR:
Vörtur orsakast af veirusýkingu,
koma fram l—6 mánuðum eftir
smitun, en að öðru leyti er litið vitað
um hegðun veirunnar. 2/3 hlutar
vartna hverfa sjálfkrafa innan 2 ára.
Því er meginatriði að meðhöndla ekki
vörtur, nema þær valdi verulegum
óþægindum þar eð stundum veldur
meðferð eða afleiðingar hennar meiri
óþbsgindum og/eða lýtum en vartan
sjálf gerði.
Óþægindum af vörtu má venjulega
halda verulega í skefjum með því að
sverfa eða skafa ofan af henni yzta
lagið með þjöl eða rakvélarblaði.
Sverfa skal unz sárindi finnast,en það
þýðir að komið sé inn úr hornlaginu.
Síðan má reyna að bera á vörtuna
ýmiss konar vörtueitur, en þeim er
þó sameiginlegt að vera breði lítil- og
seinvirk.
Mun vænlegra til árangurs er
frysting eða rafmagnsbrennsla, hvort
tveggja framkvæmt af læknum nánast
óþægindalaust. En ég legg aftur
áherzlu á íhaldssemi, einkum þó við
meðferð vartna á viðkvæmum
stöðum, t.d. við neglur eða á iljum.
Loks ber að taka fram, að grunsemdir
um smitsemi vartna réttlæta ekki að
börnum með ilvörtur sé meinuð sund-
og/eða leikfimiiðkun i skólum.
Fæstí
apótekinu og
snyrtivörubúðinni
FARMASÍA
SÍMI25933
V
Húsgagnavika
20-29 október
GLÆSILEG SÝNING
ÍÁG HÚSINU,
ÁRTÚNSHÖFÐA
Skoóiö nýjungar innlendra, frcimleiðenda:
hítsgögn, áklceöi og innréttingar.
Opíö virka daga kl. 17 — 22
Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22
argus