Dagblaðið - 27.10.1978, Qupperneq 28

Dagblaðið - 27.10.1978, Qupperneq 28
Skattaukinn verði endurgreiddur með verðbótum og vöxtum — segir Albert Guðmundsson „Eignaupptaka með afturvirkum skattalögum striðir á móti siðferðiskennd fólks og er algerlega fráleit tekjuöflunaraðferð,” sagði Albert Guðmundsson í viðtali við DB. „Þetta er ekki spurning um lagalegan rétt ríkisins til skattheimtu, sem reyndar er talinn vafasamur, heldur kemur þetta þvert á réttarvitund almennings,” sagði Albert. Við umræður I neðri deild í gær um bráðabirgðalög rikisstjómarinnar, lögðu þeir Albert Guðmundsson og Matthías Bjarnason fram breyting- artillögur. Albert lagði til að skattaukanum á tekjur og eignir yrði breytt i skyldusparnað. Þeir sem verða fyrir þessari skattheimtu fái hana endur- greidda á tveim árum með vísitöluverðbótum og 4% vöxtum. „Ríkisstjórnin ætlaði sér tvö ár til þess að koma fjármálum rikisins á réttan kjöl. Ef þessi fráleita „skattheimta” verður framkvæmd á þann hátt sem ég legg til, hefur ríkið fengið skatta fjárhæðina að láni og til ráðstöfunar nokkurn tíma. Ríkinu ber siðferðileg skylda til þess að endurgreiða fólkinu þetta með verðbótum samkvæmt vísitölu eða annan jafntryggan hátt. 4% vextir geta naumast talizt ósanngjarnir,” sagði Albert Guðmundsson. Hann bætti við: ,Enda þótt ég hafi ekki aðstöðu til að þrýsta á mál í nefndum, mun ég standa vörð sem þingmaður fólksins i sölum Alþingis.” Matthías Bjamason lagði einnig fram breytingatillögu við umræðurnar í neðri deild. Hann lagði til, að eignar- skattsaukinn yrði ekki innheimtur af Öldruðum verði hlíft eigna- skatts- aukanum - segir Matthías Bjarnason fólki sem komið er á þann aldur að þvi beri ellilífeyrir. Beindi Matthías auk þess tilmælum til fjármálaráðherra um að reynt yrði að taka sama tillit til örorkulífeyrisþega. „Enda þótt ég sé alfarið á móti eignarskattsviðaukanum, býst ég ekki við að fallið verði frá þessari skatt- heimtu,” sagði Matthías.Kvaðst hann með tillögu sinni vilja bægja frá öldruðum og öryrkjum óheilbrigðri og ranglátri skattheimtu. -BS.' ENSKAR FYRIRSÆTUR OG ÍSLENZKUR LOPI t nýjasta hefti af brezka blaðinu Woman, vikuríti fyrír konur, eru margar siður um „Great Yarns”, eða „hið göða gam”. Blaðið kom hingað til lands siðastliðið sumar með fyrírsætur sínar og tók myndir af þeim i islenzku umhverfi i fötum úr islenzkum lopa og ull. Héru eru tvær myndanna úr blaðinu, — að sjálfsögðu er blaðið sem fyrir- sætau á annarri myndinni heldur á Dagblaðið. Eitt eintak af 28—30 þúsundum sem komu út þann daginn. Ný þjónusta við viðskiptavini Dagblaðsins: ALLS KONAR SAMNINGS- EYÐUBLÖÐ AFHENT ÓKEYPIS Þúsundir smáauglýsinga birtast mánaðarlega i Dagblaðinu, enda er blaðið langstærst allra blaða hér á landi í smáauglýsingum. Þessi markaður er I raun heljarstór verzlun eða markaður þar sem fólk gerir sín á milli hagstæð kaup. Oft á tíðum er nauðsynlegt að aðilarnir, kaupandi og seljandi, geri sín á milli samninga í þessum kaupum. Einkum ef um er að ræða kaup eða sölu á bifreið, leigu á húsnæði, eða kaup á dýrum hlutum, sem ekki verða greiddir út i hönd. Dagblaðið hefur nú tekið upp þá þjónustu að láta útbúa ýmis gögn sem auglýsendur geta hagnýtt sér í þessu sambandi. Verða þau afhent endur- gjaldslaust. nauðsyn á afsalseyðublaði og sölu- tilkynningu. Þessi eyðublöð höfum við ásamt leiðbeiningum um bilaviðskipti sem báðir áðilar, kaupandi og seljandi, ættu að kynna sér. Þá geta menn fengið hjá Dag- blaðinu tryggingabréf og víxileyðublöð. Vegna ýmissa lausafjárkaupa mun Dagblaðið útvega kaupsamninga með eignarréttarfyrirvara og vixileyðublöð. Loks er að geta húsaleigusamninga, sem blaðið mun afhenda þeim sem þess þurfa. Slikir samningar eru mjög áríðandi, þegar leigt er út húsnæði. Þá er og hægt að fá hjá Dagblaðinu húsaleigusamning sem Leigjendasam- tökin hafa látið gera. Einnig hann fæst ókeypis, eins og aðrir samningar sem Dagblaðið dreifir. -JBP- frjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 27. OKT. 1978. Mikil leit að gamalli konu: Fannst látin Mikil leit var gerð að vistkonu frá elliheimilinu I Hveragerði i nótt. Hún fór að heiman um kl. 17 í gær og þegar hún kom ekki heim var leit hafin. I leitinni tóku þátt á annað hundrað mans, Björgunarsveit slysavarna- félagsins á Selfossi og hjálparsveitir skáta frá Hveragerði, Reykjavik, Kópa- vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Njarðvík. Konan fannst kl. 3.30 í nótt í Hveragerði og var látin. -GAJ- Akureyri: Skemmdir unnar á bflum í fyrrinótt voru unnar nokkrar skemmdir á bílum við Bílasalann, Tryggvabraut á Akureyri. Var allt laus- légt á bílunum skemmt s.s. rúðuþurrkur. Voru þetta 10 bílar sem fengu þessa út- reið á Bílasalanum og tveir á Bílaleigu Akureyrar. Þar var einnig brotizt inn og stolið 10 þús. krónum í skiptimynt. -GAJ- Reykjavík: Árekstrum fjölgar á nýjan leik Árekstrar í höfuðborginni í gær voru alls 22. Hefur þarna orðið mikil fjölgun á nýjan leik eftir að fjöldi árekstra fór niður í 8 einmitt þegar hálkan var sem mest. Virðist þannig sem ekki sé aðstæðunum um að kenna fyrst og fremst. -GAJ- Eskifjörður: Loðnureykurinn ogogsólin rífast einsog alþingismenn utan dagskrár Hjá loðnubræðslunni á Eskifirði er búið að bræða 19 þúsund tonn af sumar- loðnu. Brætt er aðeins á daginn. Á kvöldin, þegar sjónvarpið byrjar, opna húsráðendur glugga sína til að fá útiloft i íbúðir sínar. En það kemur oft fyrir, að fólk gleymir að loka gluggum húsa sinna á kvöldin. í dag, fimmtudag, hefur verið blanka- logn og sólskin. Loðnureykurinn og sólin hafa rifizt eins og alþingismenn utan dagskrár, um það hvort ætti að hafa völdin. Auðvitað hefur það vonda yfirhöndina og öll ráð. Fréttaritari gleymdi í gærkvöldi að loka gluggum á íbúð sinni. Ólyktin er enda alveg óþolandi og einnig úti, þegar logn er og sólskin, eins og verið hefur. -Reglna/JH.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.