Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 4

Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. DB á ne ytendamarkaði ANNA BJARNASON Óvenjumargir nóvemberseðlar komnir j Enn er tækifærí að vera með J Dregið úr seðlunum milli jóla og nýárs „Vinsamlegast birtið upplýsinga- seðilinn fyrr eftir hver mánaðamót. Ég heltl að það hvetji fólk frekar til að senda inn seðlana tímanlega og með þvi verði fleiri með í útreikningunum og þannig meira að marka meðaltals tölurnar fyrir hverja fjölskyldustærð. Þótt hægt sé að senda inn upplýsingar áður en seðillinn birtist i blaðii u hefur hann þau áhrif á mig að ég fer að reikna saman þegar hann birtist”. Þannig segir í bréfi frá S.H. sem hún sendir okkur með upplýsinga- seðlinum. Að sjálfsögðu þökkum við góðar ábendingar og munum fara eftir þeim. Óvenjumargir seðlar núna Hins vegar hafa óvenjumargir sent inn upplýsingaseðla að þessu sinni. Hins vegar höfum við ákveðið að gera ráð fyrir töfum á póstinum vegna jóla- anna og bíðum með alla útreikninga þar til milli jóla og nýárs. Þá drögum við einnig út hinn heppna vinningshafa okkar fyrir nóvembermánuð. Það er ekki amalegt að fá heilsmánaðar úttekt fyrir fjölskylduna svona rétt þegar búið er. að eyða öllu i jólahaldið. Því birtum við nú nóvemberseðilinn enn einu sinni ef einhver er enn ekki búinn að fylla hann út og senda okkur. en vill gjarnan vera með í þessari upplýsingamiðlun okkar. Við óskum öllum þeim sem tekið hafa þátt í heimilisbókhaldinu með okkur á Vikunni og Dagblaðinu gleðilegra jóla og þökkum þeim vinsamlegar kveðjur og þátttökuna. -A.Bj. „OKTOBERTOLURNAR RUKU UPP ÚR ÖLLU VALDP’ segir í bréfi frá húsmóður í Kópavogi. „Með upplýsingaseðlinum ætla ég að hripa fáeinar línur,” segir í upphafi bréfs frá húsmóður í Kópa- vogi, sem sendi okkur seðil með heimilisútgjöldunum. Útgjöldin voru upp á 124.101 kr. en I fjölskyldunni eru sex manns, þannig að meðaltals- eyðslan er 20.683 kr. Þaðer í rauninni alls ekki slæm útkoma! En höldum áfram meðbréfið. Mér hugkvæmdist ekki að skrifa skýringu með síðasta seðli, þar sem upphæðin rauk upp úr öllum venjulegum tölum (þá var meðaltalið 37.648 kr. á mann). 1 október keyptum við allt kjöt til vetrarins og vel það. T.d. hálft hross, annað eins af hreindýrakjöti, þrjá kindaskrokka og Góð aðferð til að reita rjúpurnar „Gamall rjúpnaveiðimaður” hringdi tii okkan „Ég kom inn í kjötbúð um daginn og þar voru rjúpur til sölu. Með fiðr inu kostuðu þær 1650 kr. en rúmlega 1800 kr. hamflettar. Mér alveg of- bauð að fólk skuli greiða fé fyrir að láta stóreyðileggja matinn fyrir sér. Rjúpurnar eru nefnilega allt annar matur ef þær eru reyttar en ekki ham flettar, eins og getið var um á Neyt- endasíðunni fyrir nokkrum dögum. Gott ráð til þess að losna við fiðrið af rjúpunum er að gera það undir sjóð andi vatni, þá má strjúka fiðrið af rjúpunum. En það verður að svíða þær á eftir. Bezta ráðið til að gera það er að láta gróft salt á „fægiskúffu”, hella spritti yfir og kveikja í. Þetta er mjög þrifaleg aðferð til að svíða fuglana.” Partygrill .nefur bæói rafm.element og sprittlampa! Allar aðrar gerðir af grillum! /FQnix SÍMI 24420 • HÁTUNI 6A síðast slátur. Á veturna fer meiri upphæð i mat vegna þess að hér eru þrjú börn í skóla og þarf að nesta þau á hverjum degi. Það munar um það, þar sem ávextir eru frekar dýrir. Aðalmáltiðin er á kvöldin því bóndinn kemurekki heim í hádeginu. Hann hefur einnig með sér nesti. Sjálf læt ég heimavinnuna duga. Það er gaman að taka þátt í þessum samanburði á heimiliskostnaði, en ég er ekki viss um að ég spari meira með því. Ég dreg ekkert undan. Þið fáið alveg uppgefið hve mikil eyðslukló ég er. Ég hef haldið heimili í 15 ár og skrifað heimilisdagbók af og til. Um leið og ég þakka fyrir ágætis blað óska ég ykkur gleðilegra jóla og gangi ykkur allt í haginn á nýja árinu. D.H.V.húsmóðirí Kópavogi.” SMJORKREM - SÚKKULAÐIKREM Lesandi Neytendasíðunnar hringdi og bað okkur að birta góða uppskrift að smjörkremi. Þegar við búum til smjörkrem í „tilraunaeldhúsi” DB notum við annaðhvort smjör, jurta eða sólblóma smjörliki. Í unt það bil 100 gr af smjöri er hæfilegt að láta 150 gr flór- sykur, nokkra dropa af vanilludropum og 1 lítið egg. Þetta er hrært mjög vel í hrærivél (á mesta hraða) Ef það er of þykkt má setja 1—2 msk. af rjóma út i og hræra áfram. Ef við notum þetta krem á brúna tertu eins og t.d. draumatertu (brún rúlluterta) látum við jafnan fáeina dropa af gulum matarlit út i kremið. Ef afgangur er af kreminu er hægt að geyma hann í ísskápnum í nokkra daga. Ef nota á kremið á súkkulaðitertur er ofantalin uppskrift ágæt sem grunnuppskrift, en þá notum við gjarnan meiri flórsykur, 2 lítil egg og svolítið vatn. Langbezt er að nota sjóðandi vatn. Þá glansar kremið meira. — Ekki má gleyma kakóinu, sem bætt er í kremið. Smjörkrem með eggjum smyrst mjög vel og gott er að sprauta terturnar fagurlega með því. -A.Bj. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttákandi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Kostnaóur í nóv. mánuöi 1978 Matur og hreinlætisvörur kr---------------------------- Annað • kr.______________________ Alls kr. w i mi¥ Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.