Dagblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978.
Verða menn að vera leiðin
legir til að fá verðlaun?
Matthías Johannessen
Kæri AOalsteinn,
Þú hefur skrifað mér bréf og að
sjálfsögöu svara ég þér, en treysti mér
þó ekki til að gera það með þeim hætti,
sem þú óskar. Ég veit ekkert um hvaða
rithöfundar, lífs eða liðnir, eru „mikil-
hæfastir” eða „skipta mestu máli fyrir
samtimann”. Og mér finnst engu máli
skipta. hvort einhver erlendur höfund
ur hefur „hlotið meira lof og athygli”
en hann á skilið. Það koma ekki allir
dagar í böggli, sagði gamla fólkið.
En mig langar að svara þér með
öðru bréfi, sem er þá einna helzt i
tengslum við upphaf þíns bréfs — og
svar mitt er á þessa leið:
Of mat og vanmat
Það er margt ofmetið í samtiman
um, en annað vanmetið. Það er gömul
saga og ný. Fjölmiðlarnir eiga því
miður mestan þátt i því að brenglað
mat og alls kyns dómgreindarleysi
veður uppi og færist fremur í vöxt en
að úr þvi dragi. Af þessu hlýtur rit-
stjóri ábyrgs blaðs að hafa þó nokkrar
áhyggjur.
Verðlaunaveitingar í listum geta
verið viðsjárverðar. Á það hefur verið
bent, að á þau sé lítt treystandi. m.a.
vegna þess að þeir sem úthluta verð
launum geta átt margvíslegra hags
muna að gæta. Sjaldan er langt milli
hagsmuna og fordóma, eins og þú
veizt. Ljóðskáld eru auk þess oftast
óþýðanleg og eiga frama sinn erlendis
undir misjafnlega fordómafullum þýð
endum. Mörg beztu Ijóðskáld smá
þjóða eru gjörsamlega óþýðanleg —
eða mundi stórskáld á borð við Tómas
Guðmundsson ekki hafa komið til
álita sem nóbelsskáld, ef hann hefði
ort á heimstungu? Mér dettur það
svona i hug.
Samtími glám-
skyggn á verðmæti
Fyrir getur þó komið, að með verð-
launum sé unnt að beina athygli að
góðum listamönnum, sem annars
væru I skugganum. Samtiminn er ein-
att glámskyggn á verðmæti. Sjón-
varpsgoðið og laugardagsfárið móta
hann, a.m.k. á yfirborðinu. Og stórar
sölufyrirsagnir og hvellfréttir í dag-
blöðum. Eitt er að veita tilfinningum
útrás, en annað er að brengla þær og
dómgreind fólks. Ég sé ekki, að aukin
menntun hafi ræktað sterkari og sjálf
stæðari einstaklinga en áður. Þegar ég
hóf blaðamennsku fyrir aldarfjórð-
ungi, kynntist ég fjölda fólks af al-
þýðustéttum, sem var óskólagengið.
en svo raunmenntað, að það var mér
annar háskóli að tala við það. Slíkt
fólk verður aðég hygg, æ fágætara.
Sumir listamenn virðast fæddir til
verðlauna og leggja mikið upp úr
þeim. Aðrir rækta garðinn sinn og
kæra sig kollótta um vinsældir eða
veraldarupphefð. Taka jafnvel ekki
við fálkaorðunni, ef þcir komast hjá
því (!) Sumir þurfa af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum á verðlauna-
fárinu að halda.
Hófsamt aðhald
Aftur á móti er hverjum lislamanni
nauðsynlegt að hljóta viðurkenningu
og uppörvun, þó að hófsamt aðhald sé
bezta veganesti ungs skálds út i lifið.
Hann verður þá ekki ofantekinn fyrir
hverju sem er, þegar frá liður. En aðal
atriðið er, að listamenn trúi sjálfir á
það, sem þeir eru að gera; fljóti ekki
með straumnum. en fari eigin leiðir;
rækti jafnvel sinn vonda smekk, ef út i
það fer; reyni ekki viðstöðulaust að
eltast við skottið á tízkunni, þvi að
húnervaltasturvina.
1 bók minni um Gunnlaug Scheving
er m.a. minnzt á þennan vonda
smekk. Gunnlaugur var um sina daga
allra listamanna mest virtur hér á
landi, enda fór hann eigin leiðir án
þess að sinna um kóng eða prest.
Hann segir m.a. í fyrrnefndri bók; „Ég
held upp á rómantik. natúralisma. ég
vil vcra sentimental. Ég elska stefnu-
leysi og lauslæti i listinni. Ég hef
ánægju ai symbólisma, draumum og
súrrealisma og sveitarómantik. Sem
sagt: ef ég ætti að afticita öllu þessu og
neiutmér umað mála ský á hunni.fjall
eða tungl, þá gæti ég ekki málað. Ég
legg ofar öllu öðru áherzlu á vondan
smekk.
Hægt andlát
Án hans væri égekki til. eða réttara
sagt: ég mundi fá hægt andlát af tóm-
um leiðindum. Ég er ekki að boða
neina trú eða kenningu með því að
segja þetta við þig. Og ég fer þess ekki
á leit við nokkurn mann, að hann sé
mér sammála hvað þetta snertir. En
það, sem kallað er góður smekkur,
hefur smám saman orðið í niíninn
augum eins og einhvers konar rolukast
þeirra, sem vilja tolla í tízkunni,"()g
síðan minnir Gunnlaugur á þá aug
ljósu staðreynd, sem alltof fáir hafa
gert sér grein fyrir, að „nútiminn
framleiðir svo mikið af hversdags-
legum verkum, sem eru hvorki góð né
vond”. 1 staðinn fyrir „hversdags-
legum” hefði ég kannski heldu kosið
aðsegja „ópersónulegum” verkum.
Þá erum við komnir að upphafi þíns
ágæta bréfs og sný ég mér nú að
nóbelsverðlaununum. Menn eins og
Simenon mega ekki hljóta þessi eftir-
sóttu verðlaun, þótt hann uppfylli að
minu viti gæðakröfurnar, a.m.k. þegar
bezt lætur. En hann er dæmigerður
fulltrúi þess „vonda smekks”.
Of skemmtilegir?
Ég hef stundum spurt sjálfan mig
þessarar spurningar: hvers vegna
mega ekki höfundar á borð við Simen-
on og Graham Greene hljóta nóbels-
verðlaun? Eru þeir of skemmtilegir
höfundar? Gengur það orðið glæpi
næst að vera skemmtilegur í bókum?
Verða menn að vera fulltrúar ein-
hverrar hundleiðinlegrar lágkúru? Eða
er það kannski sáluhjálparatriði að
vera fulltrúi alls nema bókmennta til
að hljóta bókmenntaverðlaun? Verða
menn t.d. að vera óskrifandi sérfræð
ingar i þjóðfélagsvísindum? Eða póli
tiskir messíasar?
Halldór Laxness er ekki aðeins einn
mesti skáldsagnahöfundur okkar daga
heldur einnig — og ekki síður — einn
allra skemmtilegasti höfundur sam-
tímans. Hann hefur ekki sett sér það
takmark að finna Stórasannleik i bók-
um sínum. En af Sjömeistarasögunni
má sjá, „að það starf sem ég gæti
hugsað mér væri að leita að upptökum
Nílar”, eins og hann komst að orði,
þegar hann var að lita í kringum sig
upprennandi skáldsagnahöfundur i
eden æsku sinnar.
Upptök Nílar
En að upptökum Nílar hefur verið
löng leið fyrir strák af Norðurpólnum.
Og hvar var þá þessi Níl? 1 hans eigin
brjósti. auðvitað. Upptök mikillar list
ar eru i hjarta og hugskoti listamanns-
ins sjálfs. Og enginn er persónulegri en
Laxness.
Annars er fátt eins afstætt og mat
manna á list og menningu, eins og þú
veizt Aðalsteinn. Ég hef heyrt ungl-
inga halda því fram fullum fetum, að
Jónas Hallgrímsson sé hundleiðin
legur, en hann megi svo sem flippa út
fyrir þeim. Og fullorðið fólk hef ég
heyrt halda þvi fram i fúlustu alvöru.
að Þórbergur sé ekki rithöfundur (!)
Ungur drengur var ég varaður við
Steini Steinar. Skoðanir manna eða
fordómar eru með ýmsu móti. Ólafur
Daníelsson gullverðlaunahafi í stærð
fræði og óbilandi raunvisindamaður.
vildi ekki fara með Árna Pálssyni, pró-
fessor, austur á Þingvöll vegna þess að
það væri sögustaður(!) Þarna geturðu
séð, hvort það er auðvelt að svara
þeim spurningum. sem þú varpar fram
til okkar rithöfunda i bréfi þinu.
Einstæður
höfundur
Argentínska skáldið Jorge Luis
Borges er unnandi íslenzkra fornbók-
mennta. Hann hefur komið tvisvar
sinnum til Íslands að heimsækja land
þeirrar mestu ritsnilldar, sem hann
segist þekkja. Nafn hans tengist Ís-
landi með skemmtilegum hætti fyrir
okkur. Það er mál margra, sem til
þekkja, að Borges sé einhver mesti höf-
undur samtimans á spænska tungu.
jafnvígur á ljóð og óbundið mál. Hann
er a.m.k. einstæður höfundur. Verk
hans hafa verið mér eins og ómetanleg
reynsla úr lifinu sjálfu. Lengra komast
skáld ekki með verkum sínum. En
hvað gerist? Það er alltaf verið að
tönnlast á því, að Borges sé verður
bókmenntaverðlauna Nóbels, en þó er
engu líkara en eitt helzta takmark
Sænsku akademíunnar hafi verið að
koma í veg fyrir. að þessi sérstæði
snillingur hlyti nóbelsverðlaunin.
Sjálfur hefur hann sagt við mig.
að hann geti ekki fengið þessi verð
laun; hann sé ekki fulltrúi Suður
Ameríku eins og miðlungshöfundar,
sem hafa lent i náðinni. hann sé ekki
fulltrúi ncinnar tízku eða stjórnntála
stefnti eins og ntarxistinn Ncruda á
sínunt tima. hann sé aðeins venjuleg
ur borgaralegur höfundur — og sé
ekki einu sinni fulltrúi neins ntinni-
hlutahóps.
Útií
kuldanum
En hann biður ekki eftir neinum
náðarmolum af veizluborði Sænsku
akademíunnar. „Ég get aldrei fengið
nóbelsverðlaunin,” sagði hann við
mig, „þvi að ég er ekki fulltrúi fyrir
neitt — nema bókmenntir.” Þetta
þóttu mér skrýtin orð, þegar þau voru
sögð við mig fyrir nokkrum árunt, en
ég sé ekki betur en þessi harði spá-
dómur sé að rætast. Einn þeirra ágætu
r
Kærkomnar
fölagjafír
Minoltn
super8
kvikmyndavébr
meó eóa án hljóó-
upptöku.
rRA SEINT
EN ALDREI...
Aukin tillitssemi
bætir umferðina
verour pu
ökumaður
UMFERÐARRÁÐ
Skólavörðuslíg 41 — Síml 20235