Dagblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978.
41
ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ REYKJA í RÚMINU:
DÁNARORSÖK18
MANNS í KAUP-
MANNAHÖFN
Á ÞESSU ÁRI
Lögreglan 1 Kaupmannahöfn segir
að á þessu ári hafi farizt helmingi fleiri
af þvi að reykja í rúminu heldur en i
fyrra. Átjánda fórnarlamb
sígarettunnar var 4.1 árs gömul kona,
sem lézt af þessari orsök fyrir
nokkrum dögum í íbúð sinni við
Eskildsgötu á Vesturbrú.
Lögreglan heldur að konan hafi
uppgötvað eldinn, en of seint. Hún
fannst látin á gólfinu og hefur
sennilega rétt komizt fram úr, en
siðan misst meðvitundaf reykeitrun.
Danmörk:
ífangelsi f
níunda sinn
fyrir hjú-
skaparsvik
Fjörutíu og eins árs gamall maður var
nýlega dæmdur í sex mánaða fangelsi
fyrir að svíkja fé út úr fjörutiu og níu ára
konu, sem hann hitti undir því yfirskini
að ætla að kvænast henni. Upphaf
málsins var það, að árið 1976 setti
konan auglýsingu i blað eitt þar sem
hún sagðist vilja kynnast karlmanni með
hjónaband i huga. Hann svaraði þessari
auglýsingu og ákváðu þau stefnumót á
aðaljárnbrautarstöðinni i Kaupmanna-
höfn.
Siðan fóru þau á hótel eitt en þar
varð konan ávallt aðgreiða reikninginn,
en karlmaðurinn sagðist mundu greiða
henni kostnaðinn til baka þegar hann
væri tekinn við stöðu sem aðstoðarfor-
stjóri en það átti að verða næstu daga.
Gekk svo um hrið. En þar kom að hinn
væntanlegi ektamaki hætti að láta sjá
sig.
Komst þá konan, sem greitt hafði
reikninga fyrir um það bil tiu þúsund
krónu danskar, sem er jafnvirði rúmlega
sex hundruð þúsund islenzkra króna að
þvi að hinn heittelskaði var atvinnulaus
og átti ekki von á neinu aðstoðarfor-
stjórastarfi. Aftur á móti hafði hann lagt
sig sérstaklega eftir að sérhæfa sig í að
táldraga og blekkja fé út úr konum með
þeini árangri að siðasti dómur er sá
níundi yfir honurn af sliku tagi.
Konan óheppna tók fram við réttar-
höldin að maðurinn hefði skrifað mjög
trúverðugt svarbréf við auglýsingu
hennar og eins hefði hann verið mjög
sannfærandi í framkomu þegar þau áttu
fundi saman.
Vandid valiö. Þessar bækur eru til sýnis í bókabúðum um allt
land. Verðið er ótrúlega hagstætt. Listaverkabók frá Fjölva
verður varanleg vinargjöf. Uppspretta fróðleiks og ánægju og
prýði á hverju heimili.
FJÖLVI
Skeifan 8, Rvk.
Sími 3-52-56.
„Okkur finnast þessi slys vera farin
að verða ískyggilega tið,” segir danska
lögreglan. „og skorum á fólk að gefa
hættunni gaum. Dýnur úr gerviefnum
eiga hér eflaust nokkra sök, því komizt
i þær eldur gýs upp mikill reykur
ásamt kolsýringi. Og fólkið missir
meðvitund áður en því tekst að
komast út.
Fjölvi býður fjölbreytt úrvai af listaverkabókum.
í fyrsta lagi:
Stóra listasaga Fjölva. Sígilt verk í 3 bindum.
Allt á einum stað. — Pýramídalist til popplistar.
í öðru lagi:
Listasafn Fjölva Sjálfstæðar ævisögur fremstu meistara.
Allt forkunnarfagrar bækur með ógrynnum listaverka í
fullum litum.
Út eru komnar 6 bækur um meistarana Leonardó, Rembrandt,
Goya, Manet, Matisse og hinn furðulega Duchamp, frumkvöðul nútímalistar.
Manet, höfundur Litlaskattsáengi.
Byltingarmaður í listum.
Matisse, óargamálari, málaði
Dansinn og Tónlistina. Lærifaðir
Jóns Stefánssonar.
Furðufuglinn Duchamp,
brautryðjandi popplistar. Einnig
fjallað um Dali.
Þetta er ófögur sjón. í þessu rúmi lézt sextugur maður af reykingum.
Neyzla áfengis eða eiturlyfja er
stundum ástæðan fyrir því, að fólk fer
ógætilega. En alls ekki alltaf.Og er full
ástæða til að brýna fyrir fólki að láta
ckki sígarclluna verða siðasta félaga
sinn i rúntinu.
Leonardó, höfundur Mónu Lísu og
síðustu kvöldmáltiðarinnar.
Rembrandt, höfundur
Næturvarðanna og margra
Bibliumynda.
Goya, höfundur Nöktu Maju og
Svörtu myndanna Heyrnarlausi
meistarinn.
ENDURSKINS-
MERKIERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
umferðarrAð